Neytendur

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Thule lækkar í prósentu

Bjórinn Thule mun lækka í prósentu. Hann hættir að vera 5 prósenta bjór og verður frekar 4,4 prósenta „lite“ bjór. Hann mun samt áfram heita Thule. Coca Cola á Íslandi segist gera þetta til að mæta breyttum áherslum neytenda sem leiti í auknum mæli að léttari bjór.

Neytendur
Fréttamynd

Einungis sjö bílar kallaðir inn

Eigendur Land Rover-bíla sem BL hefur innkallað vegna skipta á háspennurafhlöðu þurfa ekki að hætta að keyra bílana þar til þeir komast í viðgerð. Öruggt er að keyra þá en einungis sjö ökutæki er um að ræða. 

Neytendur
Fréttamynd

Kaup­máttur heldur á­fram að aukast

Kaupmáttur ráðstöfunartekna á mann jókst um 1,1 prósent á fyrsta ársfjórðungi 2026. Ráðstöfunartekjur jukust um 6,4 prósent milli ára og vísitala neysluverðs hækkaði um 5,3 prósent. 

Neytendur
Fréttamynd

Taka ekki upp gjald­skyldu við Kringluna

Ekki stendur til að taka upp gjaldskyldu á bílastæði við Kringluna líkt og ákveðið hefur verið að gera við verslunarmiðstöðina Smáralind. Markaðsstjóri Kringlunnar segir meiri aðsókn í verslunarmiðstöðina en bílastæðaskortur sé ekki sérstakt vandamál.

Neytendur
Fréttamynd

Taka upp gjald­skyldu við Smára­lind

Forsvarsmenn Smáralindar hafa ákveðið að taka upp gjaldskyldu á bílastæðum við verslunarmiðstöðina en uppbygging á svæðinu og aðsókn í húsið eru meðal þess sem spilaði inn í ákvarðanatökuna að sögn markaðsstjóra Smáralindar.

Neytendur
Fréttamynd

Að fólk skilji garðhús­gagna­búslóðirnar eftir heima

Tónleikar hljómsveitarinnar Kaleo fara fram á Þingvöllum um næstu helgi og bera yfirskriftina Bergmál. Umræða hafði skapast undanfarna daga á spjallþráðum Facebook-hópa eftir að í ljós kom að stólar, regnhlífar og veitingar yrðu ekki leyfð á svæðinu. Jakob Frímann tónleikahaldari segir enga ástæðu til að hafa áhyggjur af þessu þó ekki sé gert ráð fyrir því að fólk flytji heilu garðhúsgagnabúslóðirnar með sér.

Neytendur
Fréttamynd

Spá ör­lítilli hjöðnun verð­bólgu

Íslandsbanki spáir því að verðbólga hjaðni lítillega í júní, en muni samt mælast yfir forsenduákvæði kjarasamninga í ágúst. Til lengri tíma litið er ekki útlit fyrir að verðbólga mælist við markmið á næstu árum.

Neytendur
Fréttamynd

Ís­lendingar borgi 55 prósent meira fyrir mat­vöru

Íslendingar borga 55 prósentum meira fyrir matvöru en íbúar Evrópusambandsins og eina Evrópulandið þar sem matvara er dýrari er Sviss, að sögn Samkeppniseftirlitsins. Þá hefur verð hækkað mest hér á landi á árunum 2020-2025. Samkeppniseftirlitið telur búvörulögin frá 2024 vera helstu skýringuna á því hvers vegna kjöt- og mjólkurverð hefur hækkað hraðar á Íslandi heldur en í Evrópu.

Neytendur
Fréttamynd

Öl­gerðin hækkar verðin

Ölgerðin hefur tilkynnt viðskiptavinum að hún ætli að hækka verð á framleiðsluvörum sínum. Vörur í dós hækka um 2,1 prósent í verði, að undanskildum Collab sem hækkar um 1,1 prósent. Vörur í plasti hækka einnig um 1,1 prósent en aðrar framleiðsluvörur um 0,8 prósent.

Neytendur
Fréttamynd

Segir sjaldan hafa verið auð­veldara að vera fyrsti kaupandi

Þvert á það sem margir halda fram hefur sjaldan verið auðveldara fyrir ungt fólk að kaupa sér húsnæði, að sögn fasteignasala. Hann bendir á að fyrstu kaupendur geti fengið allt að 90% fjármögnun, tekið hlutdeildarlán, nýtt séreignasparnað í fyrstu kaup og nýtt ýmsar aðrar sérlausnir sem ekki voru til staðar áður fyrr.

Neytendur
Fréttamynd

Fyrstu Spar-verslanirnar opna um helgina

Fyrstu Spar-verslanirnar verða opnaðar á laugardaginn við Barónsstíg í Reykjavík og Staðarberg í Hafnarfirði. Greint var frá því í febrúar að Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 yrðu Spar.

Neytendur
Fréttamynd

Samlokan merkt á tólf þúsund krónur vegna kerfisvillu

Kerfisvilla varð til þess að verðmerkingar í hillum verslana Samkaupa, sem eru meðal annars Nettó og Prís, sýndu rangar upphæðir í gær, þriðjudaginn 2. júní. Mistökin uppgötvuðust í bítið í gær og var strax hafist handa við að leiðrétta þau.

Neytendur
Fréttamynd

Inn­kalla pipar vegna eiturs

Eftir samráð við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur hefur Dai Phat Asian Grocery innkallað vöruna Villta Sichuan-piparinn. Ástæðan er sú að varan inniheldur skordýraeitur yfir leyfilegu hámarksgildi.

Neytendur
Fréttamynd

Icelandair hafði betur gegn ósáttum að­dáanda Oasis

Íslendingur sem skellti sér á tónleika Oasis í Manchester í pakkaferð Icelandair á ekki rétt á endurgreiðslu þrátt fyrir að afhending á tónleikamiðanum hafi farið fram síðar en boðað hafði verið. Flugfélagið bauð tónleikagestinum inneign í sárabætur en því boði var ekki svarað.

Neytendur
Fréttamynd

Lækkunin skilaði sér hjá öllum nema Costco

Lækkun virðisaukaskatts á eldsneyti af dælu virðist hafa skilað sér að fullu með lægra verðlagi hjá öllum hefðbundnu olíufélögunum. Undantekningin var Costco sem býður þó enn upp á ódýrasta eldsneytið.

Neytendur
Fréttamynd

Svara kallinu og hafa opið til tíu á kvöldin

Bónus í Skipholti er nú opið klukkutíma lengur en áður, til tíu að kvöldi. Tvær Bónus verslanir eru nú opnar svo lengi en framkvæmdastjóri Bónus segir lengri opnunartíma ekki skila sér út í verðlag. Ákvörðunin sé svar við kalli viðskiptavina.

Neytendur