Bíó og sjónvarp

Fréttamynd

White Lotus-stjarna bætist í leik­hópinn

Kanadíski leikarinn Adam DiMarco, sem sló í gegn í annarri seríu gamanþáttanna White Lotus, hefur bæst í leikhóp kvikmyndarinnar Hafið er svart. Hann mun þar leika á móti Baltasar Kormáki og Ólafi Darra í spennumynd um martraðarkennda sjóferð.

Bíó og sjónvarp

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Síminn stoppar ekki vegna heimildar­myndar

Framkvæmdastjóri Smárabíós segist varla hafa undan við að svara fyrirspurnum um það hvenær heimildarmyndin You can See Everything mætir í kvikmyndahúsin. Hann segir allar líkur á því að myndin verði sýnd hér á landi, von sé á svörum í vikunni vegna réttindamála en framkvæmdastjórinn segist ekki muna eftir annarri eins eftirvæntingu fyrir einni mynd. Myndin muni líklega fara í kvikmyndahús í lok nóvember á Íslandi.

Bíó og sjónvarp
Fréttamynd

Kempa leik­stýrir tálbeitutrylli Ólafs Darra

Kanadíski leikstjórinn Kari Skogland mun leikstýra spennuþáttaseríunni Stóra bróðir (Vigilant á ensku) sem byggir á samnefndri glæpasögu eftir Skúla Sigurðsson og fjallar um blaðamann sem tekst á við dularfulla tálbeituglæpi. Serían hefur verið í þróun í nokkur ár, Ólafur Darri Ólafsson leiðir handritaskrifin og hefjast tökur hérlendis í lok mánaðar.

Bíó og sjónvarp
Fréttamynd

Kyn­líf mið­aldra kvenna í brenni­depli

Fleiri Pabbahelgar er ný íslensk gamandramaþáttaröð í sex hlutum sem verður frumsýnd á RÚV sunnudaginn 18. október. Þáttaröðin er framhald af Pabbahelgum og fjallar um Karen, einstæða þriggja barna móður og hjónabandsráðgjafa, sem þarf að takast á við unglingsbörn, fyrrverandi eiginmann á sama tíma og íslenskan stefnumótaheim.

Bíó og sjónvarp
Fréttamynd

Elma seld til út­landa

Íslenska framleiðslufyrirtækið Glassriver hefur samið við alþjóðlega dreifingaraðilann Mediawan Rights um erlenda dreifingu íslensku glæpaþáttaraðarinnar Elmu. Þættirnir byggja á Marrinu í stiganum eftir Evu Björgu Ægisdóttur og verða frumsýndir hérlendis á Sjónvarpi Símans 15. október næstkomandi.

Bíó og sjónvarp
Fréttamynd

Douglas gengst við enn einu framhjáhaldinu

Michael Douglas hefur gengist við enn einu framhjáhaldi í markaðsherferðinni fyrir nýja ævisögu sína. Nýverið greindi leikarinn frá því að hann hefði haldið framhjá fyrri eiginkonu sinni, Diöndru Luker, með leikkonunni Kathleen Turner. Í ævisögunni kemur fram að Douglas hafi líka haldið framhjá Luker með leikkonunni Jean Tripplehorn við tökur á kynferðislega spennutryllinum Basic Instinct.

Bíó og sjónvarp
Fréttamynd

Hrútar orðnir að kóreskum kálfum

Íslenska kvikmyndin Hrútar eftir Grím Hákonarson hefur verið endurgerð í annað sinn. Ástralir endurgerðu hana fyrst árið 2020 með stórstjörnunni Sam Neill og í vikunni verður suður-kóresku endurgerðina Cattle Run frumsýnd með kálfum í stað hrúta.

Bíó og sjónvarp
Fréttamynd

Leikur í myndinni en skilur ekki nokkurn skapaðan hlut

Skoski stórleikarinn Alan Cumming verður meðal leikara í væntanlegri ofurhetjumynd Avengers: Doomsday. Frásagnir hins 61 árs gamla leikara af tökustað hafa hinsvegar vakið athygli þar sem hann sagðist skilja hvorki upp né niður í söguþræði myndarinnar. Þá lék hann með áhættuleikara Florence Pugh en ekki leikkonunni sjálfri.

Bíó og sjónvarp
Fréttamynd

Bransafólk í blússandi fíling

Kvikmyndahátíðin RIFF opnaði með pomp og prakt um helgina og fjöldi fólks kom saman í Háskólabíói við hátíðlega athöfn. Ráðherrar, bransafólk, leikarar og plötusnúðar skemmtu sér fram eftir kvöldi.

Bíó og sjónvarp
Fréttamynd

Hasar, húmor og hryllingur til að hámhorfa í haust

Haustið er komið og þá er fátt betra en að fara upp í sófa, hjúfra sig undir teppi og hámhorfa yfir sig af sjónvarpsefni. Það er af nægu að taka á hinum ótal streymisveitum sem eru í boði og hefur Vísir tekið saman góðar þáttaraðir til að glápa á í haust.

Bíó og sjónvarp
Fréttamynd

Hlaut ó­vænt heiðurs­verð­laun RIFF

Kvikmyndaframleiðandinn Sigurjón Sighvatsson fékk óvænt heiðursverðlaun RIFF í gær fyrir æviframlag sitt til kvikmyndalistarinnar. Verðlaunin voru veitt á sérstakri tvöfaldri sýningu samstarfsverka Sigurjóns og leikstjórans heitins Davids Lynch.

Bíó og sjónvarp
Fréttamynd

„Þetta snýst um líf og dauða“

Sænsk-samíska kvikmyndagerðarkonan Amanda Kernell er meðal erlendra gesta Alþjóðlegrar kvikmyndahátíðar í Reykjavík (RIFF). Hún kemur til landsins beint frá Toronto eftir heimsfrumsýningu á nýjustu kvikmynd sinni Með frost í hjarta þar sem hún fékk dómnefndarverðlaun. Aðspurð segir hún að þó umfjöllunarefnið sé nýtt hverju sinni þá tengi dramatískir þræðir myndir sínar; leyndarmál innan fjölskyldunnar, og konur sem taka róttækar ákvarðanir koma oftar en ekki við sögu.

Bíó og sjónvarp
Fréttamynd

Streymisveitan Apple TV loksins á Ís­landi

Streymisveitan Apple TV er nú loksins aðgengileg hér á landi. Fjölmargir Íslendingar með myndlykilinn Apple TV ráku upp stór augu í byrjun vikunnar þegar þeir gátu skyndilega nýtt sér streymisveituna Apple TV, sem áður hét Apple TV+.

Bíó og sjónvarp
Fréttamynd

Hinsta ferð Johns Snorra á hvíta tjaldið

Heimildarmyndin Hinsta ferðin á K2 fjallar um örlagaríka tilraun Johns Snorra Sigurjónssonar og pakistönsku feðganna Muhammad Ali Sadpara og Sajid Sadpara til að verða fyrstir til að klífa fjallið K2 að vetri til árið 2021. Kvikmyndin verður opnunarmynd kvikmyndahátíðarinnar RIFF þann 24. september og mun Páll Guðmundsson, náinn vinur Johns, halda stutta tölu fyrir sýninguna.

Bíó og sjónvarp
Fréttamynd

Sögu­legur tvö­faldur sigur á Emmy-verðlaunum

Matthew Rhys kom, sá og sigraði á Emmy-verðlaununum og varð sá fyrsti til að fá tvenn verðlaun sem aðalleikari í tveimur ólíkum verkum, það er þáttunum Widow's Bay og The Beast In Me. Þættirnir fengu 14 verðlaun og The Pitt sex. Dolly Parton og Catherine O´Hara voru báðar heiðraðar á hátíðinni. 

Bíó og sjónvarp
Fréttamynd

Af TikTok á skjáinn

Skólinn eru nýir örþættir frá Sketsagerðinni, sem hefur notið vinsælda fyrir myndbönd sín á samfélagsmiðlum, sem hefja göngu sína á Sýn+ þann 15. september. Þættirnir verða þrjátíu talsins, hver á bilinu ein til þrjár mínútur að lengd og verða þeir sýndir yfir þrjátíu daga tímabil.

Bíó og sjónvarp