Fréttir
56 57 58 59 60 61 62 63 64 … 334 ›
Inga muni varpa efnahagslegum gjöreyðingarvopnum Hugmyndir Ingu Sæland um að sækja níutíu milljarða á ári með aukinni skattheimtu á innborganir í lífeyrissjóði hafa farið öfugt ofan í ýmsa. Varaþingmaður segir Ingu lýsa því hvernig hún muni „varpa efnahagslegum gjöreyðingarvopnum á framtíðarkynslóðir“ og formaður Samfylkingar telur áformin feigðarflan. Innlent 7.11.2024 11:57
Vill taka vantraustið fyrir strax Formaður Kristilegra demókrata í Þýskalandi vill að vantraustillaga á hendur ríkisstjórn landsins verði tekin fyrir strax, en Þýskalandskannslari hefur talað fyrir því að tillagan verði tekin fyrir á næsta ári. Erlent 7.11.2024 11:37
Glæný könnun og hávaðarok víða um land Í hádegisfréttum fjöllum við um glænýja könnun sem Maskína gerði fyrir fréttastofuna. Innlent 7.11.2024 11:30
Algjör undantekning að mörg skot þurfi til að fella dýrið Yfirmaður hjá Umhverfisstofnun segir um undantekningartilvik að ræða þegar skjóta þurfti fleiri en einu skoti til að fella hreinkú á Suðausturlandi í gær. Mestu máli hafi skipt að tekist hafi að fella dýrið en það ekki sloppið sært í burtu. Innlent 7.11.2024 11:02
Norðmaður vann 3,7 milljarða, landi hans 1,6 og Íslendingur milljón Telja má líklegt að Norðmaður nokkur hafi hoppað hæð sína í lofti þegar dregið var í Víkingalottóinu í gærkvöldi. Fyrsti vinningur hafði ekki gengið út síðan í maí og því til mikils að vinna. Innlent 7.11.2024 10:08
Kölluð út eftir að skipverji slasaðist á hendi Þyrlusveit Landhelgisgæslunnar var kölluð út eftir að skipverji slasaðist á hendi við vinnu um borð í fiskiskipi sem var við veiðar norður af Siglufirði í gærkvöld. Innlent 7.11.2024 09:51
Skrifstofustjórinn fær ekki milljónirnar 24 Fyrrverandi skrifstofustjóri fær ekki tæpar 24 milljónir króna sem Landsréttur hafði dæmt honum vegna niðurlagningar á stöðu hans. Hæstiréttur telur ekkert hafa komið fram í málinu sem benti til þess að staðan hefði verið lögð niður gagngert til að losna við skrifstofustjórann. Innlent 7.11.2024 09:40
Engin furða að verkafólk hafi snúið baki við Demókrataflokknum Bandaríski öldungadeildarþingmaðurinn Bernie Sanders segir enga furðu að verkalýðsstéttin hafi snúið baki við Demókrataflokknum í nýafstöðnum forseta- og þingkosningum í Bandaríkjunum. Slíkt gerist þegar flokkurinn snúi baki við verkalýðsstéttinni. Erlent 7.11.2024 08:48
„Hafi eitthvað borið í milli, þá bar í milli þar“ Jakob Frímann Magnússon, frambjóðandi Miðflokksins, segir að hafi eitthvað borið í milli í aðdraganda þess að hann sagði sig úr Flokki fólksins, hafi borið í milli hvað varðaði listamannalaun. Hann hafi viljað fjölga listamönnum á launum en ekki þingflokkurinn. Innlent 7.11.2024 08:39
Óþarfi að skera úr um hvort læknir hafi gerst sekur um gáleysi Sjúkratryggingar Íslands hafa verið sýknaðar af miskabótakröfu konu, sem eggjastokkur var fjarlægður úr án samþykkis hennar. Hæstiréttur sneri við dómi Landsréttar þar sem ekki var talið að lög um sjúklingatryggingar næðu yfir miskabótakröfu konunnar. Innlent 7.11.2024 07:30
Ofsaveður í kortunum norðvestantil og viðvaranir í gildi Veðurfræðingar vara við enn verra veðri í dag heldur en gert var ráð fyrir í fyrstu spám í gær. Kröpp og dýpkandi lægð, skammt suðvestur af Reykjanesi, hreyfist norður á bóginn og gengur þá á með hvassri sunnanátt eða stormi, rigningu og hlýindum, en þurrt að kalla á Norður - og Austurlandi. Gular og appelsínugular viðvaranir eru í gildi um mestallt land. Veður 7.11.2024 07:18
Vinnan sé seld langt undir kostnaðarverði Formaður Rithöfundasambands Íslands segir hvorki rithöfunda né útgefendur græða á samningum við Storytel. Vinna þeirra væri seld langt undir kostnaðarverði. Rithöfundasambandið leitar til lögfræðinga vegna mikillar óánægju innan starfsstéttarinnar. Innlent 7.11.2024 07:01
Varað við ofsaveðri á Vestfjörðum og Norðurlandi Veðurfræðingur Vegagerðarinnar hefur varað við enn verra veðri á morgun, heldur en gert var ráð fyrir í spá dagsins. Á norðanverðum Vestfjörðum má búast við ofsaveðri eða fárviðri og hviðum um og yfir 50 m/s. Veður 6.11.2024 23:30
Gert að greiða leigu fyrir afnot af „Hafnarfjarðarhreysinu“ Kærunefnd húsamála hafnaði í dag kröfu konu um að leigusali skyldi endurgreiða henni leigu sem nemur 800 þúsund krónum sem hún greiddi fyrir leigu frá 1. desember í fyrra þar til 1. mars á þessu ári. Nefndin samþykkti á sama tíma kröfu leigusalans um að konan greiði honum mánaðarleigu sem hún skuldi auk 65 þúsund króna sem vantaði upp á einn mánuðinn. Innlent 6.11.2024 23:19
Ríkissjórn Scholz er sprungin Ríkissjórn Olaf Scholz Þýskalandskanslara er sprungin eftir að einn þriggja stjórnarflokkanna ákvað að segja skilið við ríkisstjórnina. Það gerðist í kjölfar þess að Scholz ákvað að reka fjármálaráðherrann Christian Lindner, leiðtoga Frjálslynda lýðræðisflokksins, sem átti aðild að stjórninni. Erlent 6.11.2024 22:58
Óskaði Trump til hamingju og ítrekaði friðsamleg valdaskipti Kamala Harris játaði ósigur í forsetakosningum Bandaríkjunum og þakkaði stuðningsfólki sínu í ávarpi í kvöld. Hún hringdi í Donald Trump næsta Bandaríkjaforseta og tjáði honum að hún muni sjá til þess að valdaskiptin verði friðsamleg. Erlent 6.11.2024 22:29
„Við erum í neyðarstöðu akkúrat núna“ Formenn Samfylkingarinnar og Framsóknarflokksins segjast vel geta hugsað sér að vinna saman að því að gera úrbætur á húsnæðismarkaði í ríkisstjórnarsamstarfi. Þetta er meðal þess sem kom fram í líflegum rökræðum um húsnæðismál í kosningapallborðinu á Vísi í dag. Þar sakaði Kristrún Frostadóttir hins vegar formann Framsóknarflokksins um aðgerðarleysi á meðan Sigurður Ingi Jóhannsson sagði Samfylkinguna í megin dráttum hafa tekið upp stefnu Framsóknar í húsnæðismálum. Innlent 6.11.2024 22:01
Ríkisstjórn Scholz á barmi þess að springa Ríkisstjórn Olaf Scholz kanslara Þýskalands stendur mjög tæpt eftir að Scholz rak fjármálaráðherra ríkisstjórnarinnar í kvöld. Hann hefur tilkynnt að atkvæðagreiðsla um vantrauststillögu á fari fram á þingi í janúar. Erlent 6.11.2024 21:38
„Kennarasambandi Íslands blöskrar afstaða viðsemjenda sinna“ Baráttufundur Kennarasambands Íslands krefst þess að íslensk stjórnvöld standi við gerða samninga og tryggi að laun félagsfólks Kennarasambandsins standist samanburð við laun sérfræðinga á almennum markaði. Þetta kemur fram í ályktun frá Kennarasambandinu í kjölfar baráttufundar sambandsins í Háskólabíó í kvöld. Innlent 6.11.2024 20:41
„Hann kemur margfalt sterkari til leiks núna” Eiríkur Bergmann, prófessor í stjórnmálafræði, segir sigur Trump í forsetakosningunum ekki koma á óvart en það komi á óvart hversu afgerandi hann er. Hann segir hann koma reyndari til baka í forsetaembættið. Það eigi eftir að koma í ljós hver áhrifin á umheiminn eigi eftir að verða. Innlent 6.11.2024 20:30
Fleiri konur mættu í krabbameinsskimun í ár en í fyrra Fleiri konur mættu í bæði legháls- og krabbameinsskimun í fyrra en árið áður. Hlutfall þeirra kvenna sem mætir í skimun árlega nær þó enn ekki viðmiðunarmörkum sem eru 75 prósent. Greint er frá þessu í nýju gæðauppgjöri embættis landlæknis vegna skimunar. Innlent 6.11.2024 19:31
Harris búin að hringja í Trump og undirbýr ávarp Kamala Harris forsetaframbjóðandi demókrata, sem laut í lægra haldi gegn Donald Trump frambjóðanda repúblikana, er búin að ræða við þann síðarnefnda og játa ósigur. Hún sleppti því að ávarpa stuðningsmenn sína í nótt en hyggst gera það síðar í kvöld. Erlent 6.11.2024 19:11
Söguleg endurkoma, súr kosningavaka og baráttuhugur Donald Trump verður fertugasti og sjöundi forseti Bandaríkjanna eftir sögulegan og stærri sigur en búist var við. Í kvöldfréttum Stöðvar 2 heyrum við frá sigurræðu Trumps, rýnum í áhrif úrslitanna með prófessor í stjórnmálafræði og verðum í beinni frá Bandaríkjunum. Hólmfríður Gísladóttir, fréttamaður okkar, var í kosningavöku Kamölu Harris í Washington í gærkvöldi og fer yfir andrúmsloftið þar - sem hefur eflaust verið í súrara lagi. Innlent 6.11.2024 18:01
Andlát af völdum fíkniefna og lyfja aldrei verið fleiri Árið 2023 voru lyfjatengd andlát alls 56 hér á landi og hafa aldrei verið fleiri, að því er fram kemur í tölum frá Landlæknisembættinu. Innlent 6.11.2024 17:57
„Það styðja allir sitt fólk 100 prósent“ Mikill hugur er í kennurum á fjölmennum baráttufundi í Háskólabíó. Stóri salurinn er þéttsetinn. Lillý Valgerður Pétursdóttir fréttamaður ræddi við kennara og formann Kennarasambandsins fyrir fundinn. Innlent 6.11.2024 17:13
Segja umboð samninganefndar afdráttarlaust Stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga segir í yfirlýsingu umboð samninganefndar þeirra til kjaraviðræðna við Kennarasamband Íslands skýrt. Þá lýsir stjórnin yfir fullu trausti til samninganefndarinnar. Þetta segir í tilkynningu frá Sambandinu og er vísað í umræðu í fjölmiðlum. Innlent 6.11.2024 16:54
Segist sá sami í útlendingamálum og hann hafi alltaf verið Sigurður Ingi Jóhannsson formaður Framsóknar heldur sig fast við það sem hann sagði í leiðtogaumræðum RÚV á dögunum um útlendingamálin. Fjölmiðlar hafi bara ekki sýnt því neinn áhuga sem hann hafi haft fram að færa í þeim efnum. Innlent 6.11.2024 16:16
Bjóða út gerð landfyllinga við Fossvogsbrú Vegagerðin hefur nú boðið út gerð landfyllinga og sjóvarna vegna byggingar Fossvogsbrúar. Í tilkynningu frá Vegagerðinni kemur fram að verkið sé hluti af 1. lotu Borgarlínu og uppbyggingu fyrir þróunarsvæði í Skerjafirði. Innlent 6.11.2024 15:36
Ákærður fyrir hnefahögg á Lúx sem leiddi til dauða Íslendingur á þrítugsaldri hefur verið ákærður fyrir stórfellda líkamsárás sem leiddi til dauða litáísks karlmanns í skemmtistaðnum Lúx í Austurstræti í Reykjavík í júní í fyrra. Innlent 6.11.2024 15:24
Baráttufundur en enginn samningafundur Lítið þokast í kjaradeilu kennara og sveitarfélaga og ríkisins. Enginn samningafundur hefur verið boðaður í deilunni og óvíst hvenær næst verður fundað Innlent 6.11.2024 14:57