Fréttir
51 52 53 54 55 56 57 58 59 … 334 ›
Bein útsending: Tekist á um samgöngur í Norðvesturkjördæmi Oddvitar í Norðvesturkjördæmi koma saman á opnum fundi á Ísafirði í dag þar sem meðal annars verður rætt um samgönguinnviði og Vestfjarðarlínu. Innviðafélag Vestfjarða heldur fundinn þar sem farið verður yfir hvernig forsvarsmenn flokka bregðast við ákalli um stórátak í uppbyggingu samgönguinnviða. Innlent 11.11.2024 16:01
Hafa tilkynnt E. coli veikindin til Sjóvá Enn eru þrjú börn inniliggjandi á Barnaspítalanum vegna E. coli sýkingar á leikskólanum Mánagarði. Tvö eru á legudeild og eitt á gjörgæslu. Barnið er ekki í lífshættu að sögn Valtýs Stefánssonar Thors yfirlæknis á barnaspítala Hringsins. Sjóvá hafa borist tilkynningar og fyrirspurnir vegna veikindanna en Félagsstofnun stúdenta er bótaskyld vegna þeirra. Innlent 11.11.2024 15:57
Búinn að velja sendiherra og „landamærakeisara“ Donald Trump, verðandi og fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, hefur valið Elise Stefanik til að verða sendiherra hans gagnvart Sameinuðu þjóðunum. Stefanik situr í fulltrúadeild Bandaríkjaþings og hefur lengi verið einn ötulasti stuðningsmaður Trumps þar og kom hún til greina sem varaforsetaefni hans. Erlent 11.11.2024 15:24
Ók á sjö kindur og drap þær Sjö kindur drápust um helgina á Suðurlandi þegar var ekið á þær. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Lögreglunni á Suðurlandi. Þar segir að frá því á föstudag hafi verið skráð um 150 mál hjá embættinu. Innlent 11.11.2024 15:07
Ekki púað á Snorra Ein mest lesna frétt fréttavefsins Mannlífs um þessar mundir er undir fyrirsögninni „Púað á Snorra“. Eitthvað er það málum blandið og við ritun og birtingu fréttarinnar gerði Reynir Traustason ritstjóri þau örmu mistök að upplýsa um heimildarmann sinn – í ógáti. Innlent 11.11.2024 14:51
„Ásakanir Svandísar í minn garð eru lygi frá rótum“ Snorri Másson oddviti Miðflokksins í Reykjavíkurkjördæmi Suður segir að hann „sundli við fúkyrðaflaumi“ Svandísar Svavarsdóttur í hlaðvarpinu Ein pæling fyrir helgi. Hann segir ásakanir Svandísar í hans garð lygi frá rótum. Innlent 11.11.2024 13:14
„Ásakanir Jóns Gunnarssonar eru rangar“ Ritstjóri Heimildarinnar hefur vísað þungum ásökunum Jóns Gunnarssonar alfarið á bug. Hann sagði blaðamenn Heimildarinnar hafa staðið að því að tálbeita veiddi upplýsingar um hvalveiðar upp úr syni hans. Innlent 11.11.2024 12:20
Elduðu úti, óðu yfir vaktstjórann og fylltu matsalinn Rekstrarstjóri bensínstöðvarinnar í Staðarskála segir farir starfsfólks síns ekki sléttar eftir samskipti við stóran hóp erlendra ferðamanna í gær. Hópurinn hafi gengið fram með svo miklum dónaskap að það hálfa væri meira en nóg. Innlent 11.11.2024 12:04
Nauðsynlegt að sameinast um aðgerðir í jafnréttismálum Gestir á Heimsþingi kvenleiðtoga segja kominn tími til að grípa til aðgerða til að vinna gegn því bakslagi sem hafi orðið í jafnréttismálum á alþjóðlegri grundu. Þetta segir stjórnarformaður þingsins sem hófst í morgun. Innlent 11.11.2024 12:02
Sakar Orbán um „ungverskt Watergate-hneyksli“ Leiðtogi ungversku stjórnarandstöðunnar sakar ríkisstjórn Viktors Orbán forsætisráðherra um að njósna um sig og aðstoðarmenn sína. Líkir hann hlerununum við Watergate-hneykslið sem felldi Richard Nixon, fyrrum Bandaríkjaforseta. Erlent 11.11.2024 11:47
Tálbeita á Edition og vegklæðning flettist af í Öxnadal Í hádegifréttum verður meðal annars fjallað um hið undarlega mál sem Jón Gunnarsson þingmaður lýsti í Facebook uppfærslu í morgun. Innlent 11.11.2024 11:40
Bein útsending: Heimsþing kvenleiðtoga Heimsþing kvenleiðtoga Reykjavik Global Forum, fer fram í Hörpu í dag og á morgun. Þingið er skipulagt í samstarfi við fjölmarga erlenda og innlenda aðila, og í ár er sérstök áhersla lögð á að kvenleiðtogar taki höndum saman undir yfirskriftinni „Power Together for Action.” Innlent 11.11.2024 11:32
Settur forstjóri skipaður forstjóri Guðlaugur Þór Þórðarson umhverfis-, orku og loftslagsráðherra hefur skipað Rúnar Leifsson í embætti forstöðumanns Minjastofnunar Íslands. Hann hefur verið settur forstjóri Minjastofnunar frá 1. maí 2023, þegar þáverandi forstjóri lét af störfum. Innlent 11.11.2024 11:22
Vill losna við tálma úr vegi sínum Eftir að hafa tryggt sér Hvíta húsið og meirihluta í öldungadeildinni er útlit fyrir að Repúblikanar muni einnig enda með meirihluta í fulltrúadeild Bandaríkjaþings. Fari kosningarnar svo er fátt sem staðið getur í vegi Donalds Trump og stefnumálum ríkisstjórnar hans á næsta kjörtímabili en hann er þegar byrjaður að þrýsta á Repúblikana á þingi um að fjarlægja tálma úr vegi hans. Erlent 11.11.2024 11:00
Sautján sóttu um embætti skrifstofustjóra fjármála Sautján hafa sótt um embætti skrifstofustjóra fjármála í heilbrigðisráðuneytinu en umsóknarfrestur rann út 28. október síðastliðinn. Innlent 11.11.2024 10:48
Scholz tilbúinn að láta undan þrýstingi um vantraust Olaf Scholz, kanslari Þýskalands, segist til í að efna til vantraustsatkvæðagreiðslu á þingi fyrr en hann hafði ætlað ef samstaða ríkir um það á meðal stjórnmálaflokkanna. Líkurnar á skyndikosningum snemma á næsta ári fara því vaxandi. Erlent 11.11.2024 10:46
Pallborðið: Hvaða lausnir bjóða flokkarnir? Í kosningapallborði fréttastofunnar í dag er rætt við frambjóðendur þeirra flokka sem fengju einna flest þingsæti á Alþingi samkvæmt könnunum, sumir hafa verið að sækja á en fylgi annarra að dala. Þátturinn verður í beinni útsendingu og hefst klukkan 14. Innlent 11.11.2024 10:36
Ishiba áfram forsætisráðherra þrátt fyrir kosningatap Shigeru Ishiba mun áfram gegna embætti forsætisráðherra Japans þrátt fyrir að flokkur hans, Frjálslyndi lýðræðisflokkurinn, og stuðningsflokkar hafi misst meirihluta á þingi í þingkosningum sem fram fóru í lok október. Erlent 11.11.2024 10:28
Fimm prósent segja innflytjendamálin mikilvægust Efnahagsmál eru að flestra mati mikilvægasta mál komandi kosninga, en heilbrigðismál rata oftar á lista fólks yfir þau fimm málefni sem leggja þurfi áherslu á. Þrátt fyrir að hafa farið hátt í umræðunni telja aðeins fimm prósent að innflytjendamál séu mesta forgangsmálið. Innlent 11.11.2024 10:18
Verðlaunuð fyrir að berjast gegn slúðri Freyja Rós Haraldsdóttir, kennari, jafnréttisfulltrúi og gæðastjóri við Menntaskólann á Laugarvatni, hlaut hvatningarverðlaun Dags gegn einelti sem afhent voru á föstudaginn. Valið var úr innsendum tilnefningum. Innlent 11.11.2024 10:08
Gular viðvaranir vegna hvassviðris eða storms Veðurstofan hefur gefið út gular viðvaranir á norðvesturhluta landsins vegna sunnan hvassviðris eða storms. Veður 11.11.2024 10:03
Tveir af fimm telja hvalveiðar veikja stöðu Íslands í alþjóðlegum viðskiptum Rúm fjörutíu prósent Íslendinga segjast telja að hvalveiðar veiki stöðu Íslands í alþjóðlegum viðskiptum. Tæplega fjórtán prósent segja veiðarnar styrkja stöðu Íslands að einhverju leyti. Hátt í helmingur telur veiðarnar ekki hafa nein áhrif. Innlent 11.11.2024 09:53
Ósammála því að skoðanakannanir séu ekki nákvæmar Framkvæmdastjóri markaðsrannsóknafyrirtækisins Maskínu segist ekki sammála því að skoðanakannanir séu ónákvæmar. Könnunum sé ekki ætlað að vera spá um úrslit kosninga heldur að mæla stöðuna á hverjum tíma. Innlent 11.11.2024 09:29
Óvenju margar bilanir í götulýsingu í Kópavogbæ Bilun er í götulýsingu víða í Kópavogi og hefur verið frá því fyrir helgi. Unnið er að lagfæringu en vatn komst í rafstreng sem liggur nærri bilun. Búið er að koma umferðarljósum í gang sem einnig biluðu í morgun. Innlent 11.11.2024 09:28
Tálbeitan var með einkabílstjóra og gisti á Edition Jón Gunnarsson, fulltrúi ráðherra í matvælaráðuneytinu, segir tálbeitu á vegum Heimildarinnar hafa verið ekið um á drossíu af einkabílstjóra og gist á Edition hótelinu á meðan hún njósnaði um son hans. Samkvæmt heimildum Vísis var tálbeitan ekki á vegum Heimildarinnar. Innlent 11.11.2024 09:09
Segir hafa verið njósnað um son hans Jón Gunnarsson, fulltrúi ráðherra í matvælaráðuneytinu, segir blaðamenn á Heimildinni hafa sett á svið blekkingarleik til þess að safna upplýsingum um hvalveiðar í gegnum son hans. Innlent 11.11.2024 07:51
Allt að tuttugu stiga hiti Hiti gæti náð allt að tuttugu stigum á norðaustanverðu landinu síðdegis í dag. Enn ein lægðin gengur yfir landið úr suðri með ofgnótt af hlýju og röku lofti. Veður 11.11.2024 07:00
Ræddi við Pútín og varaði við stigmögnun Donald Trump Bandaríkjaforseti er sagður hafa rætt við Vladimír Pútín Rússlandsforseta í síma fyrir helgi. Erlent 11.11.2024 06:47
Myndaveisla: Grindvíkingar komu saman ári eftir rýmingu Grindvíkingar héldu samverustund í Grindavíkurkirkju í kvöld þar sem ár er liðið frá því að stór kvikugangur myndaðist undir Grindavík og bærinn var rýmdur. Innlent 10.11.2024 23:58
Björguðu villtum ferðamönnum í Fljótsdal Björgunarsveitirnar Hérað og Jökull voru kallaðar út um klukkan 18 í kvöld vegna villtra ferðamanna í námunda við Kirkjufoss í Fljótsdal. Mennirnir fundust á gönguleið frá skála í Laugarfelli. Innlent 10.11.2024 23:47