Fréttir
296 297 298 299 300 301 302 303 304 … 334 ›
Viðbrögð Hamas við vopnahléstillögunum „neikvæð“ Háttsettur embættismaður innan Hamas sagði í samtali við AFP í nótt að viðbrögð samtakanna við þeim vopnahléstillögum sem nú lægju fyrir væru „neikvæð“ en viðræður stæðu enn yfir. Erlent 2.5.2024 06:59
Hundruð lögreglumanna í viðbragðsstöðu vegna mótmæla í UCLA Hundruð lögreglumanna í óeirðarbúnaði eru nú í viðbragðsstöðu á lóð UCLA í Kaliforníu í Bandaríkjunum en til stendur að loka tjaldbúðum sem komið hefur verið upp við háskólann og reka mótmælendur á brott. Erlent 2.5.2024 06:41
Icelandair flýgur til Færeyja að nýju Icelandair hóf í dag áætlunarflug til Færeyja á ný eftir tuttugu ára hlé. Utanríkisráðherrar Íslands og Færeyja fagna áfanganum sem og flugstjóri fyrstu flugferðarinnar. Flogið verður fimm til sex sinnum í viku gegnt flugfélaginu Atlantic Airways sem hefur verið að fljúga á milli tvisvar til þrisvar í viku. Innlent 1.5.2024 23:00
Stutt í næsta gos komi til gosloka Enn mælist landris við Svartsengi þrátt fyrir að vísbendingar séu um að hægt hafi á því síðustu daga. Gögn benda til þess að þrýstingur sé að aukast í kvikuhólfinu undir Svartsengi. Jarðeðlisfræðingur segir bæði líkur á nýju gosi ofan í það sem er nú í gangi og goslokum, en í því tilfelli myndi líklegast brátt gjósa aftur. Innlent 1.5.2024 22:01
„Það er hart sótt að okkar fólki“ Verkalýðsdagurinn var haldinn hátíðlegur um land allt í dag. Fjöldi landsmanna kom saman í kröfugöngu í miðbæ Reykjavíkur og var gengið niður að Ingólfstorgi þar sem fram fór fjölmennur útifundur. Innlent 1.5.2024 21:01
Vilja endurupptöku í máli Weinstein Saksóknarar kröfðust endurupptöku yfir Harvey Weinstein í yfirheyrslu í Manhattan-borg í dag eftir að áfrýjunardómstóll sneri við nauðgunardómi kvikmyndaframleiðandans alræmda Harvey Weinstein frá árinu 2020. Erlent 1.5.2024 19:35
Háskólanemar halda lautarferð og stofna hreyfingu fyrir Palestínu Hópur stúdenta tók þátt í samstöðulautarferð fyrir Palestínu á túninu fyrir framan Háskóla Íslands seinni partinn í dag. Skipuleggjandi segir mikilvægt að hreyfingin fái leyfi fyrir viðburði af þessu tagi svo hægt sé að krefja skólann aðgerða sem snúa að samstöðu með Palestínu. Innlent 1.5.2024 18:12
Jarðhræringar á Reykjanesi, flug til Færeyja og verkalýðsdagurinn Enn mælist landris við Svartsengi þrátt fyrir að vísbendingar séu um að hægt hafi á því síðustu daga. Gögn benda til þess að þrýstingur sé að aukast í kvikuhólfinu undir Svartsengi. Í kvöldfréttum Stöðvar 2 verður rætt við Magnús Tuma Guðmundsson prófessor í jarðeðlisfræði um stöðuna við Svartsengi. Innlent 1.5.2024 18:00
Úrskurðurinn felldur úr gildi Landskjörstjórn braut á jafnræðisreglu stjórnarskrárinnar þegar þeir úrskurðuðu að meðmælalisti forsetaframbjóðandans Viktors Traustasonar væri ógildur. Úrskurðarnefnd kosningamála hefur því fellt úrskurðinn úr gildi. Innlent 1.5.2024 17:20
Vill hinn almenna launamann á þing Kristrún Frostadóttir, formaður Samfylkingarinnar, segist vilja hinn almenna launamann á þing. Hún segist telja það mikilvægt að framboðslistar flokksins endurspegli breyttan flokk. Innlent 1.5.2024 16:30
Sinueldur í Munaðarneslandi Sinueldur logar í Munaðarneslandi á Vesturlandi. Viðbragðsaðilum hefur tekist að ná tökum á brunanum en enn logar í einhverjum glæðum. Svæðið sem brann var ekki stórt en á mjög erfiðu svæði þar sem eldurinn átti upptök sín í birkiskógi. Innlent 1.5.2024 16:15
Íslensk stjórnvöld haldin „sjúkri undirgefni“ Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, var harðorð í garð íslenskra stjórnvalda í ræðu hennar á útifundi á Ingólfstorgi í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi verkalýðsins í dag. Hún segir íslensk stjórnvöld haldin sjúkri undirgefni gagnvart Bandaríkjunum. Innlent 1.5.2024 15:27
Þrjú hundruð handtekin í Columbia-háskóla Um þrjú hundruð manns voru handtekin í Columbia-háskóla í New York-borg. Eric Adams borgarstjóri segir utanaðkomandi æsingamenn hafa náð ítökum meðal mótmælenda og að gyðingahatur og andóf gegn Ísrael væru útbreidd. Erlent 1.5.2024 14:42
Barn á Akureyri greindist með kíghósta Kíghósti hefur greinst í barni í Brekkuskóla á Akureyri, að því er fram kemur í tilkynningu Landlæknis. Minnt er á mikilvægi bólusetninga gegn sjúkdómum sem kíghósta, en þátttaka barna í bólusetningum hefur dregist saman síðustu ár. Innlent 1.5.2024 14:14
Íslensk fjara á lista yfir bestu strendur heims Eystri-Fellsfjara við Jökulsárlón er á lista yfir bestu strandir heims að mati ferðamálasérfræðinga. Þar er hún í fertugasta og fyrsta sæti af fimmtíu. Listinn er uppfærður á hverju ári og áður var Reynisfjara einnig á honum. Innlent 1.5.2024 13:24
Beint: Hátíðarhöld á verkalýðsdaginn 2024 Hatíðarhöld ASÍ í tilefni verkalýðsdagsins 1. maí 2024 verða víða um land í dag. Á Ingólfstorgi verður samstöðufundur Alþýðusambands Íslands, með ræðuhöldum og tónlistaratriðum. Innlent 1.5.2024 13:01
Sniglar hægja á umferð Töluverð umferðarteppa myndaðist á Hringbraut í dag vegna hópaksturs bifhjólasamtakanna Snigla. Innlent 1.5.2024 12:46
Yrði gagnkynhneigður maður spurður sömu spurningar? Formaður Samtakanna '78 segir það áhyggjuefni þegar reynt er að nota kynhneigð forsetaframbjóðanda til að gera hann tortryggilegan. Baldur Þórhallsson var spurður í viðtali í vikunni hvort mynd af honum á stað sem sagður er vera kynlífsklúbbur geti skaðað ímynd forsetaembættisins. Innlent 1.5.2024 12:08
Verkalýðsbaráttan aldrei verið jafn mikilvæg Hátíðarhöld fara fram um allt land í dag vegna Verkalýðsdagsins 1. maí. Formaður VR segir verkalýðsbaráttuna sjaldan hafa verið jafn mikilvæga og í dag. Innlent 1.5.2024 11:55
Einkamálefni forsetaframbjóðanda, verkalýðsdagurinn og háskólamótmæli Formaður Samtakanna '78 segir ekki slæmt að kynhneigð forsetaframbjóðenda sé til umræðu. Það sé hins vegar ekki gott að gerð sé tilraun til að gera frambjóðendur tortyggilega vegna samkynhneigðar. Rætt verður við formann Samtakanna í hádegisfréttum á Bylgjunni. Innlent 1.5.2024 11:43
Stuðningur við dönsku ríkisstjórnina aldrei verið minni Stuðningur við dönsku ríkisstjórnina hefur aldrei mælst lægri samkvæmt nýrri skoðanakönnun sem framkvæmd var af Epinion. 31,5 prósent landsmanna kysi ríkisstjórnarflokkana þrjá ef gengið yrði til kosninga í dag. Erlent 1.5.2024 11:34
Mótmælendur og gagnmótmælendur tókust á Bandarískir stúdentar hafa mótmælt stríðsrekstri Ísraelsmanna á Gasa af miklum móði undanfarnar vikur og hafa tjaldbúðir risið við háskóla um landið allt. Snemma morguns í dag sauð upp úr í einum slíkum tjaldbúðum sem reistar hafa verið við UCLA-háskóla í Kaliforníu þegar gagnmótmælendur gerðu tilraun til að rífa búðirnar niður. Erlent 1.5.2024 10:51
„Hinsegin fólk þekkir vel að vera smættað niður í einkalíf sitt“ Samtökin 78 hvetja íslenskt samfélag í heild sinni til að halda sig í málefnalega umfjöllun í aðdraganda kosninga. Það gera þau í tilefni af umfjöllun um einkamálefni Baldurs Þórhallssonar. Innlent 1.5.2024 09:46
Hátíðardagskrá víða um land á verkalýðsdaginn Blásið verður til kröfugöngu og hátíðarhalda víða um land í dag í tilefni verkalýðsdagsins 1. maí. Innlent 1.5.2024 08:33
Bjartviðri á verkalýðsdaginn Verkalýðsdagurinn heilsar með hægum vindi og yfirleitt björtu veðri. Veður 1.5.2024 07:34
Litaðir seðlar til skoðunar og málið á mjög viðkvæmu stigi Lögregla heldur spilunum afar þétt að sér við rannsókn á þjófnaði á tuttugu til þrjátíu milljónum króna í Hamraborginni fyrir rúmum fimm vikum. Samkvæmt heimildum fréttastofu er grunur um að reynt hafi verið að koma lituðum peningum í umferð. Innlent 1.5.2024 07:01
Sagðist ætla að nota tíu milljón króna kókaín allt sjálfur Karlmaður hlaut í dag sextán mánaða fangelsisdóm í Héraðsdómi Reykjaness fyrir að flytja til landsins tæplega 700 grömm af kókaíni. Maðurinn játaði að hafa flutt efnin til Íslands, en vildi meina að þau hefðu verið til einkaneyslu. Innlent 30.4.2024 23:37
Arnór Sighvatsson settur varaseðlabankastjóri fjármálastöðugleika Bjarni Benediktsson forsætisráðherra hefur sett Arnór Sighvatsson tímabundið í embætti varaseðlabankastjóra fjármálastöðugleika. Þetta kemur fram á vef stjórnarráðsins. Innlent 30.4.2024 22:47
Sér eftir Landsdómsmálinu: „Ég myndi aldrei gera þetta svona aftur“ Katrín Jakobsdóttir forsetaframbjóðandi sér eftir því að hafa greitt atkvæði með því að sækja Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra, til saka í Landsdómsmálinu svokallaða. Innlent 30.4.2024 22:21
Íslenskar stjörnur fái peninga að gjöf til að leggja undir í veðmálum Lögregla hefur ekkert eftirlit með ólöglegum veðmálasíðum hér á landi þrátt fyrir að ríkislögreglustjóri meti sem svo að hætta á peningaþvætti og skattsvikum í gegnum síðurnar sé mikil. Dæmi eru um að íslenskar stjörnur fái peninga að gjöf til að leggja undir í veðmálum. Innlent 30.4.2024 21:11