Fréttir
110 111 112 113 114 115 116 117 118 … 334 ›
Mikill viðbúnaður vegna hnífaárásar í nótt Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu var kölluð til í nótt vegna líkamsárásar í umdæminu Grafarvogur/Mosfellsbær/Árbær, þar sem eggvopni hafði verið beitt. Innlent 9.10.2024 06:16
Segir Rússa reyna að skapa usla á götum Evrópu Leyniþjónustur Rússlands vinna að því að valda miklum usla á götum Evrópu. Útsendarar GRU, leyniþjónustu rússneska hersins, eru sértaklega kræfir og hafa staðið að sífellt fífldjarfari árásum og leyniaðgerðum. Erlent 8.10.2024 23:19
Milton safnar aftur krafti Fellibylurinn Milton er aftur orðinn að fimmta stigs fellibyl, eftir að hann var lækkaður í fjórða flokk í dag. Búist er við því að fellibylurinn muni valda mikilli eyðileggingu á vesturströnd Flórída seinna í vikunni, gangi spár eftir. Erlent 8.10.2024 22:24
Mikið um dýrðir í Íslandsboðinu í konungshöllinni Mikið var um dýrðir á hátíðarkvöldverði sem haldinn var í Kristjánsborgarhöll í Kaupmannahöfn í kvöld, þar sem Halla Tómasdóttir forseti Íslands er stödd í sinni fyrstu opinberu heimsókn. Heimsóknin er einnig sú fyrsta í tíð Friðriks tíunda á konungsstóli. Innlent 8.10.2024 21:59
Margir í vandræðum í Kömbunum Hjálparsveit skáta í Hveragerði var kölluð út í kvöld til að aðstoða fjölda ökumanna sem lentu í vandræðum í Kömbunum í kvöld. Þar hafði myndast talsverð hálka og snjór á veginum sem gerði að verkum að margir komust ekki sinnar leiðar. Innlent 8.10.2024 21:50
Afhöfðaður sex dögum eftir embættistöku Alejandreo Arcos, nýkjörinn borgarstjóri Chilpancingo, hafði einungis setið í embætti í sex daga þegar hann var myrtur og höfuðið skorið af honum. Aðrir borgarstjórar í sama héraði hafa biðlað til ríkisstjórnarinnar eftir aukinni öryggisgæslu en sveitarstjórnarpólitík í Mexíkó hefur lengi verið mjög blóðug. Erlent 8.10.2024 21:18
Greiða atkvæði um verkfall í níu skólum fram á fimmtudag Magnús Þór Jónsson formaður KÍ er þögull sem gröfin um nöfn þeirra skóla þar sem verkfall gæti hafist í lok mánaðar. Greidd verða atkvæði um verkfall í níu skólum og atkvæðagreiðslu lýkur á fimmtudag. Innlent 8.10.2024 20:24
Segja hermenn Kim líklega á leið til liðs við Rússa Hermenn frá Norður-Kóreu verða líklega sendir til liðs við rússneska hermenn í Úkraínu. Sex hermenn frá einræðisríkinu einangraða eru þar að auki sagðir hafa fallið í eldflaugaárás í Úkraínu fyrr í mánuðinum. Erlent 8.10.2024 19:32
Ýmsar áhyggjur varðandi flóttamenn í JL-húsinu Íbúar í nágrenni við JL-húsið hafa áhyggjur af fyrirætlunum yfirvalda um úrræði fyrir allt að fjögur hundruð umsækjendur um alþjóðlega vernd. Ekkert samráð var haft við íbúa áður en fréttir voru sagðar af áformum þessum. Innlent 8.10.2024 19:24
Ekkert á hreinu um næstu kosningar Forsætisráðherra segir að ríkisstjórn sem ekki hafi burði til að ljúka málum, eigi að pakka saman. Formaður Vinstri grænna sagði eftir ríkisstjórnarfund í morgun að oddvitar stjórnarflokkanna ættu eftir að ræða forgangsröðun mála og tímasetningu kosninga. Innlent 8.10.2024 19:21
Snjóþekja á Hellisheiði Vetur konungur virðist kominn á suðvesturhornið og lét hann fyrst sjá sig á Hellisheiðinni í dag. Þá hefur snjóað í fjöll við höfuðborgarsvæðið undir kvöld. Innlent 8.10.2024 18:55
Segja Hezbollah höfuðlaus eftir dauða arftaka Nasrallah Forsvarsmenn ísraelska hersins sögðu í dag að Hashem Safieddine, einn af leiðtogum Hezbollah sem talið var að ætti að taka við af Hassan Nasrallah, væri líklega dáinn. Ekkert hefur heyrst af honum frá því Ísraelar gerðu loftárás í Dahiyeh, úthverfi Beirút, í síðustu viku. Erlent 8.10.2024 17:58
Leynd yfir aðgerðum kennara og í beinni frá höllinni Skæruverkföll eru fram undan í átta skólum samþykki kennarar verkfall í atkvæðagreiðslu sem er hafin. Ekki hefur verið gefið upp í hvaða skólum kennarar hyggjast leggja niður störf en formaður Kennarasambands Íslands mætir í myndver og segir frá fyrirhuguðum aðgerðum og stöðu deilunnar í beinni í kvöldfréttum Stöðvar 2. Innlent 8.10.2024 17:39
Ákærður fyrir að nauðga barnungri frænku sinni Karlmaður hefur verið ákærður fyrir að nauðga náfrænku sinni á barnsaldri. Við húsleit lögreglu kom í ljós að maðurinn hafði mikið magn barnaníðsefnis, þar á meðal af stúlkunni, í fórum sínum. Innlent 8.10.2024 17:03
Milljónagreiðslur haldi stjórnarflokkunum saman Ríkisstjórnarflokkarnir ætla sér að hanga saman fram yfir 25. janúar 2025 til þess að þiggja ríkisstyrk miðað við núverandi þingstyrk, sem nemur mörg hundruð milljónum. Innlent 8.10.2024 15:59
Trump sendi Pútín kóvidpróf á laun Donald Trump, þáverandi Bandaríkjaforseti, sendi Vladímír Pútín, forseta Rússlands, tæki til þess að greina kórónuveirusmit þegar skortur var á þeim í heiminum árið 2020. Pútín bað Trump um að halda sendingunni leyndri. Erlent 8.10.2024 15:10
Skorti langtímarannsóknir á áhrifum Ozempic og Wegovy Læknir segir skynsamlegt að setja vinnureglur um hvenær skuli ávísa þyngdarstjórnunarlyfjum og hvenær ekki. Það muni taka nokkur ár í viðbót áður en góður skilningur fáist á langtímaávinningi og mögulegum aukaverkunum af lyfjunum. Innlent 8.10.2024 15:02
Bílastæðin malbikuð og nýr útsýnispallur fyrir fatlað fólk Íris Guðnadóttir, einn landeigenda við Reynisfjöru, segir nýju bílastæðin bæta umferðaröryggi við þennan vinsæla ferðamannastað til muna. Búið er að malbika bílastæðin og merkja gönguleiðir á bílastæðin sjálf. Þá er einnig búið að gera göngustíg á milli bílastæða en um 300 metrar eru á milli. Innlent 8.10.2024 14:53
Reyna að ná til nýbúa til að Ísland verði fyrsta reyklausa þjóðin Prófessorar og sérfræðingar í krabbameini og reykleysi segja brýnt að ná til innflytjenda hérlendis þar sem reykingar eru mun algengari en almennt gerist í landinu. Markmiðið að gera Ísland að reyklausri þjóð sé innan seilingar. Fyrirtæki eru hvött til að nálgast myndskreitta bæklinga á þremur tungumálum og kynna fyrir starfsfólki. Innlent 8.10.2024 14:42
Varaþingmaður Miðflokksins vill skoða að stofna íslenskt varnarlið Skoða ætti kosti þess að stofna íslenskt varnarlið sem hefði hernaðarlega þjálfun, að mati varaþingmanns Miðflokksins í Norðausturkjördæmi. Dýrmætt væri fyrir þjóðina að Íslendingar gætu gengið í norska herinn til þess að fá þjálfun og reynslu. Innlent 8.10.2024 14:33
Kennarar greiða atkvæði um verkfall Félagsmenn aðildarfélaga Kennarasambands Íslands í fjórum leikskólum, þremur grunnskólum og einum framhaldsskóla greiða atkvæði um verkföll sem hefjast eiga í lok mánaðar. Atkvæðagreiðslurnar hófust á hádegi í dag en ekki er greint frá í hvaða skólum er greitt atkvæði um verkföll. Innlent 8.10.2024 14:08
Svandís og Sigurður Ingi verja flugvallarákvörðun Svandís Svavarsdóttir innviðaráðherra segist hafa verið að framkvæma gamla ákvörðun með tilmælum til Isavia um að færa girðingu Reykjavíkurflugvallar svo að Reykjavíkurborg gæti fengið flugvallarland í Skerjafirði til húsbygginga. Innlent 8.10.2024 14:06
Lögregla upplýsir ekki um notkun andlitsgreiningarhugbúnaðar Fjöldi Bandaríkjamanna hefur verið handtekinn grunaður um glæp eftir að myndir af þeim hafa komið upp við leit í gagnagrunnum á grundvelli andlitsgreiningarhugbúnaðs. Erlent 8.10.2024 13:00
Rukka fyrir stæðin í þjóðgarðinum Sérstök bílastæðagjöld verða tekin upp í Snæfellsjökulsþjóðgarði næsta sumar. Tekjurnar eru sögð munu breyta rekstrarumhverfi þjóðgarðsins og nýtast til að standa kostnað af þjónustu. Innlent 8.10.2024 12:57
Koma sér í skjól undan fellibylnum Milton Meira en þrjár milljónir manna búa á Tampa-svæðinu á vesturströnd Flórída þangað sem fellibylurinn stefnir nú. Fólk er byrjað að koma sér undan þar en innan við tvær vikur eru frá því að fellibylurinn Helena olli eyðileggingu í Flórída og víðar. Erlent 8.10.2024 12:39
Yazan og fjölskylda komin með vernd Yazan Tamimi, ellefu ára langveikur drengur frá Palestínu og fjölskylda hans, fengu fyrr í dag samþykkta viðbótarvernd hjá Útlendingastofnun. Fjölskyldan var boðuð í viðtal og tilkynnt um þetta. Lögmaður fjölskyldunnar segir bæði kærunefnd útlendingamála og Útlendingastofnun hafa unnið hratt að umsókn þeirra. Innlent 8.10.2024 12:26
„Þetta er bara órætt okkar á milli“ Forsætisráðherra segist ekkert hafa rætt hugsanlegar kosningar í vor við hina formenn ríkisstjórnarflokkanna. Landsfundur Vinstri grænna ályktaði um helgina að ganga verði til kosninga næsta vor. Innlent 8.10.2024 12:20
Alvarleg staða á leikskólunum sem þurfi að taka á tafarlaust Borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins segir mikla starfsmannaveltu á leikskólum borgarinnar vera alvarlegt vandamál sem þurfi að taka á tafarlaust. Hún vill að leitað verði nýrra leiða í leikskólamálum og Kópavogsmódelið tekið upp. Innlent 8.10.2024 12:18
Ekkert nema styrkleikamerki að birta öryggisveikleika Stofnandi Defend Iceland vill knýja fram viðhorfsbreytingu um öryggisveikleika. Hann fullyrðir að þeir séu jákvæðir ef þeir eru meðhöndlaðir á ábyrgan hátt; tilkynntir og birtir í forvarnaskyni. Sumum finnist óþægilegt að sýna veikleikamerki en ef veikleikinn er meðhöndlaður sé það ekkert annað en styrkleikamerki. Innlent 8.10.2024 12:02
Hugmyndir VG um vorkosningar óræddar og Kópavogsmódelið í borginni Bjarni Benediktsson forsætisráðherra segir að hugmyndir Vinstri grænna um að gengið verði til kosninga í vor hafi ekki verið rætt milli formanna ríkisstjórnarflokkanna. Hann segir ríkisstjórnina eiga að halda áfram störfum þar til hún hefur lokið þeim verkefnum sem hún getur lokið. Rætt verður við Bjarna í hádegisfréttum á Bylgjunni. Innlent 8.10.2024 11:46