Átta mörk og tvö rauð spjöld í ótrúlegu jafntefli á Brúnni Anton Ingi Leifsson skrifar 5. nóvember 2019 21:45 Úr leiknum í kvöld. vísir/getty Chelsea og Ajax gerðu jafntefli, 4-4, í rosalegum leik á Stamford Bridge er liðin mættust í H-riðli Meistaradeildar Evrópu. Ajax komst yfir strax á 2. mínútu er Tammy Abraham gerði sjálfsmark en tveimur mínútum síðar jafnaði Jorginho úr vítaspyrnu. Hollendingarnir voru þó ekki af baki dottnir og voru komnir í 3-1 fyrir hlé. Quincy Promes kom þeim í 2-1 og Kepa Arrizabalaga gerði svo sjálfsmark á 35. mínútu eftir stórkostlega aukaspyrnu Hakim Ziyech.HT: BVB 0-2 Inter HT: Chelsea 1-3 Ajax FT: BVB 3-2 Inter FT: Chelsea 4-4 Ajax The UEFA Comebacks League returns. #UCLpic.twitter.com/nWwP22DzLa— Squawka News (@SquawkaNews) November 5, 2019 Donny van de Beek virtist svo að vera gera út um leikinn eftir 55 mínútur er hann skoraði fjórða mark Ajax. Heimamenn voru þó ekki hættir og Cesar Azpilicueta minnkaði muninn á 63. mínútu. Ajax fengu tvö rauð spjöld á 68. mínútu eftir ótrúlega atburðarás. Daley Blind braut af sér í uppbyggingu sóknarinnar og Joel Veltman fékk svo boltann í höndina. Báðir höfðu þeir fengið gult spjald fyrr í leiknum. Jorginho minnkaði muninn í 4-3 á 71. mínútu og þremur mínútum síðar jafnaði varamaðurinn Reece James metin. Rosalegur leikur á Brúnni. Cesar Azpilicueta virtist vera tryggja Chelsea sigurinn með marki tólf mínútum fyrir leikslok en markið var dæmt af eftir skoðun í VARsjánni. Lokatölur 4-4.- @ChelseaFC 4-4 @AFCAjax 8 - goals 2 - penalty goals 2 - own goals 2 - red cards#UCL#CHEAJA— Gracenote Live (@GracenoteLive) November 5, 2019 Ajax, Chelsea og Valencia eru öll með sjö stig en Lille er á botninum með eitt stig. Alvöru spenna í H-riðlinum. Meistaradeild Evrópu
Uppgjörið: Georgía - Ísland 25-30 | Íslenska liðið spýtti í lófana og gerði nóg í Georgíu Handbolti
Uppgjörið: Georgía - Ísland 25-30 | Íslenska liðið spýtti í lófana og gerði nóg í Georgíu Handbolti