Öll hin ellefu lið Pepsi-deildarinnar hafa nú skorað meira en KR Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 12. júlí 2016 10:00 Kennie Knak Chopart er markahæstur hjá KR með 2 mörk. Vísir/Hanna
KR-ingar duttu niður um eitt sæti í Pepsi-deild karla í gær og sitja nú í síðasta örugga sæti deildarinnar þegar tíu umferðir eru búnar af mótinu. KR-ingar skoruðu ekki í tíundu umferðinni en fengu þó eitt stig í markalausu jafntefli á móti Víkingi Ó. á heimavelli og enduðu þar með þriggja leikja taphrinu sínu. Fylkismenn skoruðu hinsvegar fjögur mörk í umferðinni og Þróttur náði að setja eitt mark þrátt fyrir þriggja marka tap. Það þýddi að þótt að KR sleppi við botnsætið þegar kemur að stigum í húsi þá sitja KR-ingar einir á botninum á listanum yfir skoruð mörk. KR hefur aðeins skorað 2 mörk í síðustu 4 leikjum sínum í Pepsi-deildinni og markatala KR-inga á síðustu 410 mínútum liðsins í Pepsi-deildinni er -5 (2-7). KR-liðið hefur skorað undir eitt mark að meðaltali í leik bæði á heimavelli (0,83) og á útivelli (0,75) í Pepsi-deildinni í sumar. Garðar Gunnlaugsson tryggðu Skagamönnum sigur á Blikum með sínu sjötta marki í þremur leikjum. Hann hefur nú skorað einu marki meira en allt KR-liðið og er markahæstur í Pepsi-deildinni. Aðeins tveir KR-ingar hafa náð því að skora meira en eitt mark en það eru Kennie Knak Chopart og Óskar Örn Hauksson sem báðir eru með 2 mörk í fyrstu 10 umferðunum. KR-liðið er þó ekki í neðsta sæti yfir mörk á heimavelli þrátt fyrir að þau nái ekki einu marki í leik. Bæði Breiðablik (3 mörk á heimavelli) og Fylkir (4 mörk á heimavelli) hafa skorað minna á heimavelli sínum í Pepsi-deildinni í sumar heldur en KR. KR-ingar hafa aftur á móti skorað fæst mörk á útivelli eða einu marki færri en Reykjavíkurliðin Valur og Þróttur (4 útimörk hvort lið). Næsti leikur KR í deildinni er á móti Fylki á sunnudaginn kemur en tapi KR-ingar þeim leik þá eru þeir komnir niður í fallsæti.Flest mörk í fyrstu 10 umferðum Pepsi-deildar karla 2016: 1. Fjölnir 22 2. Stjarnan 18 3. Valur 15 4. FH 14 4. Víkingur Ó. 14 4. Víkingur R. 14 7. ÍA 12 8. ÍBV 11 9. Breiðablik 10 10. Fylkir 9 10. Þróttur R. 912. KR 8
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Kemur Íslendingnum unga til varnar Fótbolti „Við eigum bara svalasta fyrirliða í Evrópu“ Fótbolti „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fótbolti „Allur heimurinn veit hvað þessir leikmenn gera“ Handbolti Arnar kynnti landsliðshópinn Fótbolti Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Hópurinn í lokaleikjunum: Kristian snýr aftur og Daníel er með Fótbolti „Mikið af lygum um margt sem hefur gerst á milli mín og stjórans“ Fótbolti Sjáðu upprisu United og öll hin mörkin úr Meistaradeildinni Fótbolti „Ég er ekki Mohamed Salah“ Enski boltinn Fleiri fréttir FH fær miðvörð aftur heim Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Fer frá Stjörnunni í FH Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Sjá meira