Flóttamenn „
5 6 7 8 9 10 11 12 13 … 45 ›
„Píratar stýra ekki þinginu, þeir eru ekki í meirihluta“ Þingmenn hafa rætt frumvarp dómsmálaráðherra um breytingar á útlendingalögum í tugi klukkustunda frá því þing kom saman eftir jólahlé í síðustu viku. Þingmaður Sjálfstæðisflokksins segir Pírata, sem hafa látið að sér kveða í umræðum um málið, ekki stýra þinginu. Innlent 1.2.2023 22:24
Stjórnarandstaðan vill sjá á spilin: „Mér er gjörsamlega misboðið“ Önnur umræða um útlendingafrumvarp dómsmálaráðherra stendur nú yfir á Alþingi en ákveðið var að lengja þingfundinn í dag. Þingmenn Pírata og Samfylkingarinnar vildu að hlé yrði gert á umræðunni þar sem meirihlutinn hefur boðað breytingar. Einn þingmaður Pírata sagði þau eiga skilið að sjá á spilin og annar sagði stjórnarliðum ekki treystandi. Fjármálaráðherra sagði minnihlutann snúa öllu á hvolf. Innlent 1.2.2023 18:35
Píratar vilja þrýsta útlendingafrumvarpi aftur til nefndar Þingmenn hafa rætt frumvarp dómsmálaráðherra um útlendingalög í þrjátíu og eina klukkustund frá því Alþingi kom saman eftir áramót. Þingflokksformaður Pírata segir frumvarpið meingallað og brjóta á mannréttindum flóttafólks. Stjórnarflokkarnir gætu lokið umræðunni með því að kalla málið aftur til nefndar til lagfæringar. Innlent 1.2.2023 18:07
Ekki við mótmælendur að sakast hvernig fór við brottvísun Hussein Embætti ríkislögreglustjóra hafnar því að þau kenni mótmælendum um hvernig fór þegar flóttamanninum Hussein Hussein var vísað úr landi. Áætlanir hafi breyst eftir að boðað var til mótmæla, sem hefðu getað verið fjölmennari en raun bar vitni. Embættið beri ábyrgð og ekki sé við mótmælendur að sakast. Innlent 1.2.2023 11:57
Sema segir ríkislögreglustjóra „ljúga upp á almenna borgara“ Sema Erla Serdar, stofnandi Solaris og baráttukona fyrir réttindum flóttafólks, sakar ríkislögreglustjóra um að ljúga opinberlega upp á almenning í svörum sínum við erindi umboðsmanns Alþingis. Innlent 1.2.2023 06:24
Leitar að hjólastólavænum bíl fyrir brottvísanir Ríkislögreglustjóri bindur vonir við að embættið geti fest kaup á eða leigt bifreið, sem hentar fólki sem notast við hjólastól, á fyrri hluta þessa árs. Slíka bifreið sé nauðsynlegt fyrir embættið að hafa þurfi það að flytja einstaklinga í hjólastól. Innlent 31.1.2023 10:31
Grasrótin hristir upp í VG fyrir fund um útlendingamál Hópur fólks innan Vinstri grænna segir nýtt frumvarp um útlendinga einkennast af útlendingaandúð. Frumvarpið virðist hafa það að markmiði að neita fleirum um hæli á enn meiri hraða en áður. Innlent 27.1.2023 19:43
Með lögum skal land byggja en ekki með ólögum eyða Þann 23. janúar síðastliðinn kom Alþingi saman í fyrsta sinn eftir jólafrí. Eina málið á dagskrá er hið umdeilda útlendingafrumvarp Jóns Gunnarssonar. Þetta er þó ekki í fyrsta sinn sem frumvarpið er lagt fram heldur það fimmta og er Jón Gunnarsson fjórði ráðherrann til að leggja það fram. Skoðun 27.1.2023 18:00
66 umsækjendur af 178 sem sögðust börn metnir fullorðnir Frá árinu 2014 hafa 178 einstaklingar sótt um alþjóðlega vernd hér á landi sem fylgdarlaus börn. Eftir gagnaöflun og aldursgreiningu voru 78 metnir sem börn en 66 sem fullorðnir. Innlent 25.1.2023 11:57
Bara útlendingafrumvarp á dagskrá: „Alveg ljóst að margir hyggjast taka til máls“ Útlendingafrumvarp dómsmálaráðherra er eina málið á dagskrá á fyrsta þingfundi ársins í dag og forseti Alþingis gerir jafnvel ráð fyrir að þannig verði það áfram í vikunni. Það stefnir í mikil átök en þingmenn stjórnarandstöðunnar hafa sagt að frumvarpið megi ekki samþykkja óbreytt. Innlent 23.1.2023 12:01
Útlendingafrumvarpið eina þingmálið á dagskrá Alþingi kemur saman á ný í dag og hefst þingfundur klukkan 15. Á dagskrá er óundirbúinn fyrirspurnartími og önnur umræða um útlendingafrumvarp Jóns Gunnarssonar dómsmálaráðherra. Innlent 23.1.2023 06:54
Hámarkinu náð með tilliti til flóttamanna: „Við ætlum að setja punktinn þarna“ Reykjanesbær mun ekki taka á móti fleiri flóttamönnum en samið hefur verið um. Bæjarstjóri segir hámarkinu náð og kallar eftir því að fleiri sveitarfélög axli ábyrgð. Stór hluti flóttamanna sem Reykjanesbær hafi samið um að taka á móti séu nú þegar komnir og ætti húsnæði ekki að vera vandamál. Sveitarfélagið sé tilbúið til að miðla sinni reynslu. Innlent 18.1.2023 11:32
Níu af ríflega fjögur þúsund umsóknum metnar tilhæfulausar Einungis níu af um fjögur þúsund og fimm hundruð umsóknum um alþjóðlega vernd á síðasta ári voru metnar tilhæfulausar. Þingmaður Samfylkingar telur að staðhæfingar um stjórnlaust ástand í útlendingamálum eigi sér enga stoð í raunveruleikanum. Innlent 17.1.2023 12:03
128 fluttir á brott í lögreglufylgd og 32 umsóknir metnar tilhæfulausar Á tímabilinu 1. janúar 2021 til 21. desember 2022 voru 128 einstaklingar fluttir úr landi í lögreglufylgd eftir að hafa verið synjað um alþjóðlega vernd hér á landi. Innlent 17.1.2023 08:12
Vilja loka húsnæði sem hýsir hælisleitendur Vinnumálastofnun hefur hýst hælisleitendur í Grindavík þrátt fyrir mótmæli bæjaryfirvalda. Bæjarráð hefur beint því til skipulags- og byggingarfulltrúa að kanna hvort bærinn geti lokað húsnæðinu. Innlent 12.1.2023 19:30
Hýsa hælisleitendur í Festi í óþökk bæjaryfirvalda Vinnumálastofnun hefur hýst hælisleitendur í Festi í Grindavík í óþökk bæjaryfirvalda en hótelstarfsemi var stöðvuð í húsinu síðastliðið vor vegna myglu. Formaður bæjarráðs Grindavíkur segir engum verða úthýst en furðar sig á vinnubrögðum Vinnumálastofnunar. Innlent 12.1.2023 13:00
Móttaka flóttamanna sé ekki skammtímaverkefni Félagsmálaráðherra stefnir á að koma með frumvarp á haustmánuðum sem snýr að móttöku flóttamanna en engin slík löggjöf er til staðar. Áætlanir gera ráð fyrir að svipaður fjöldi flóttamanna komi til landsins í ár og í fyrra, eða allt að fimm þúsund manns. Fjögur sveitarfélög hafa skrifað undir samning við ríkið um móttöku flóttamanna en stærsta áskorunin er húsnæði. Innlent 11.1.2023 13:01
Fimmtíu umsækjendur um alþjóðlega vernd flytja á Laugarvatn Umsækjendum um alþjóðlega vernd, sem koma hingað til lands munu meðal annars fá inni á heimavist Háskóla Íslands á Laugarvatni, sem hefur staðið tóm í nokkur ár. Um fimmtíu manns munu því flytja á Laugarvatn á næstunni, barnlaus pör og litlar fjölskyldur. Innlent 7.1.2023 13:03
Allt að 350 flóttamenn til Akureyrar á þessu ári Akureyrarbær hyggst taka á móti allt að 350 flóttamönnum í samstarfi við stjórnvöld fram til ársloka 2023. Samningur um samræmda móttöku flóttafólks á Akureyri var undirritaður í dag af Guðmundi Inga Guðbrandssyni, félags- og vinnumarkaðsráðherra, Nichole Leigh Mosty, forstöðukonu Fjölmenningarseturs og Ásthildi Sturludóttur, bæjarstjóra á Akureyri. Innlent 6.1.2023 16:08
Brottvísun Husseins fer fyrir Landsrétt Dómsmálaráðuneytið áfrýjaði dómi Héraðsdóms Reykjavíkur sem felldi úr gildi úrskurð kærunefnda útlendingamála um brottvísun Husseins Husseins, fatlaðs flóttamanns frá Írak, til Landsréttar. Lögmaður Husseins segir miður að dómnum verði áfrýjað enda hafi hann verið í stíl við annan nýlegan dóm. Innlent 6.1.2023 14:38
Met slegið í komu flóttafólks í desember Flóttafólkið sem nú streymir til landsins sem aldrei fyrr kemur einkum frá frá Venesúela og Úkraínu. Innlent 28.12.2022 14:27
Tekist á um Jóladagatalið á Alþingi Skiptar skoðanir eru á Alþingi um útspil Útlendingastofnunar vegna Jóladagatals Ríkisútvarpsins. Þingmenn Miðflokksins eru hæstánægðir með upplýsingasíðu stofnunarinnar en þingmaður Pírata spurði hvort að eðlilegt gæti talist að starfsmaður stofnunarinnar hafi verið settur í þá vinnu að horfa á Jóladagatalið. Innlent 14.12.2022 11:41
Sagður hafa vísað flóttafólki úr strætó og neitað að leyfa öðrum að greiða farið Forstöðumaður Fjölmenningarseturs segir frásögn af fordómafullri framkomu strætóbílstjóra, sem vakið hefur mikla athygli á samfélagsmiðlum, ekki koma sér á óvart. Hún hafi ítrekað heyrt af sambærilegum málum og kallar eftir úrbótum. Framkvæmdastjóri hjá Vegagerðinni kannaðist ekki við málið en segir að það sé í skoðun. Innlent 10.12.2022 11:31
„Hann var hér úr þessum friðhelga ræðustól að ráðast á starfsfólk RÚV“ Ásmundur Friðriksson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, gerði starfsfólk Ríkisútvarpsins að umtalsefni í ræðu sem hann flutti undir liðnum „um fundarstjórn forseta“ þar sem hann fullyrti að það væri viðtekin venja að Gísli Marteinn Baldursson og gestir hans hefðu í frammi „misnotkun og dónaskap“. Innlent 6.12.2022 16:17
Aðeins barnlausum og heilbrigðum fullorðnum neitað um niðurgreidda heilbrigðisþjónustu Ákvæði í nýju frumvarpi dómsmálaráðherra um breytingar á lögum um útlendinga er varðar niðurfellingu á heilbrigðisþjónustu mun eingöngu koma til skoðunar í tilviki barnlausra og heilbrigðra fullorðinna einstaklinga sem dvelja hér ólöglega og neita að yfirgefa landið. Innlent 28.11.2022 07:31
Semja um móttöku allt að 100 flóttamanna Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra, Fjóla Steindóra Kristinsdóttir, bæjarstjóri Árborgar og Nichole Leigh Mosty, forstöðukona Fjölmenningarseturs, undirrituðu í dag samning um samræmda móttöku flóttafólks í Árborg. Samningurinn var undirritaður á Selfossi og kveður á um að sveitarfélagið taki í samstarfi við stjórnvöld á móti allt að 100 flóttamönnum fram til 31. desember 2023. Innlent 25.11.2022 15:38
Grunur um að lögregla eigi sök á dauða tuga flóttamanna Grunur leikur á að spænska lögreglan beri ábyrgð á öngþveiti sem skapaðist við landamæri Spánar og Marokkó í sumar með þeim afleiðingum að a.m.k. 23 flóttamenn létust þegar þeir tróðust undir og yfir 200 slösuðust. Lögreglan skaut táragasi, gúmmíkúlum, reykbombum og piparúða að mannfjöldanum til að hindra hann í að komast inn til Spánar. Erlent 12.11.2022 16:01
Kennarar leigja íbúð fyrir fjölskylduna og halda námi systranna gangandi Hópur kennara við Fjölbrautarskólann við Ármúla hefur tekið á leigu Airbnb íbúð í Aþenu fyrir Hussein fjölskylduna sem var vísað til Grikklands í síðustu viku. Kennararnir vona að systur í fjölskyldunni sem stunduðu nám við skólann mæti aftur á vorönn og leita því leiða til þess að aðstoða þær við að klára önnina í fjarnámi. Innlent 11.11.2022 14:41
Kemur í ljós hvort Hussein fái að gefa skýrslu á Íslandi Íslenska ríkið mun fyrir dómþingi í dag greina frá því hvort það hyggist verða við beiðni héraðsdómara um að flytja fatlaðan hælisleitanda aftur til Íslands til að hann geti gefið skýrslu milliliðalaust. Lögmaður mannsins segir mikilvægt að ríkið geri það í ljósi þeirra sérstöku aðstæðna sem uppi eru í málinu. Innlent 8.11.2022 13:04
Hundrað og sextán hafa verið fluttir eða sendir úr landi á árinu og 39 finnast ekki Dómsmálaráðherra telur ekki ástæðu til að endurskoða brottflutning hælisleitenda til Grikklands, ólíkt félagsmálaráðherra Vinstri grænna, sem telur hollt að taka þá umræðu. Á þessari stundu stendur til að vísa 98 flóttamönnum úr landi sem hér eru, en af þeim finnast ekki 39. Hundrað og sextán hefur verið komið úr landi það sem af er ári. Innlent 7.11.2022 20:35