Eldgos og jarðhræringar

Svona var íbúafundur Grindvíkinga í kvöld
Íbúafundur íbúa Grindavíkurbæjar í Laugardalshöll fór fram í dag. Margar spurningar brunnu á Grindvíkingum, og sneru margar að skorti á langtímaáætlunum þeim til stuðnings, nú þegar ljóst virðist orðið að hættan á eldsumbrotum inni í bænum er ekki á förum.

Heitt vatn og rafmagn komið á í Grindavík að mestu
Aðgerðir gengu vel í dag hjá HS Veitum í Grindavík og er nú komið heitt vatn og rafmagn á stóran hluta bæjarins. Þetta kemur fram í tilkynningu frá HS Veitum.

Erfiðast að sjá eigið hús ekki brunnið
Íbúi Grindavíkur segir að erfiðasti dagurinn frá því að bærinn var rýmdur þann 10. nóvember síðastliðinn hafa verið þegar hún vaknaði einn morguninn í vikunni og sá að húsið hennar var ekki brunnið.

Kvikusöfnun heldur áfram
Kvikusöfnun heldur áfram undir Svartsengi með svipuðum hraða og fyrir tvö síðustu gos. Þetta kemur fram á vef Veðurstofu íslands, en þar segir að um sé að ræða niðurstöðu samráðsfundar vísindamanna sem haldinn var í morgun.

Kindurnar fegnar að sjá Sigrúnu
Sigrún Eggertsdóttir frístundabóndi fór í dag til Grindavíkur og sótti fé sitt, þrjátíu kindur alls. Þær voru fengnar að sjá Sigrúnu.

Bein útsending: Íbúafundur Grindvíkinga
Íbúafundur íbúa Grindavíkurbæjar í Laugardalshöll hefst klukkan 17 í dag. Fundinn má sjá í beinni útsendingu hér að neðan.

Könnun meðal Grindvíkinga vegna stöðu húsnæðismála
Bæjarstjórn Grindavíkur biðlar til þeirra Grindvíkinga sem búsettir voru í Grindavík 10. nóvember 2023 að svara rafrænni könnun. Tilgangurinn með könnuninni er að afla nákvæmra upplýsinga um aðstæður íbúa til lengri og skemmri tíma og undirbyggja þannig ákvarðanatöku um húsnæðismál Grindvíkinga.

Brotnir verktakar fari grjótharðir áfram á hnefanum
Fjöldi íbúa Grindavíkur hefur skrifað undir pappíra sem heimila viðbragðsaðilum að fara inn í hús þeirr,a til þess að kanna ástand hitakerfa fasteigna, og afhent þeim lykla að heimilum sínum. Einn þeirra segir einsýnt að halda verði viðgerðum í bænum áfram. Verktakar hafi brotnað við slysið í bænum en fari áfram á hnefanum.

Á leið inn í Grindavík að sækja kindur
Sigrún Eggertsdóttir, fjárbóndi er nú á leið inn í Grindavík í fylgd björgunarsveitarfólks til að sækja kindurnar sínar. Kindurnar hafa verið án matar frá því á laugardag og óljóst um ástandið á þeim.

Reyna að koma á rafmagni og heitu vatni í austari hluta bæjarins
Sérsveit ríkislögreglustjóra og sérþjálfaðir viðbragðsaðilar munu fylgja starfsmönnum HS Veitna inn í Grindavík í dag. Starfsmenn HS Veitna ætla að reyna að koma á vatni og rafmagni í austari hluta bæjarins.

„Þetta lítur ekki nógu vel út“
Lögreglustjóri á Suðurnesjum segir ekki mikið um nýjar sprungur inni í Grindavík. Þær sprungur sem fyrir voru hafi hinsvegar stækkað. Forgangsatriði dagsins er að koma rafmagni og hita á austurhluta bæjarins.

Kraftaverk stöðvaði glóandi hraunrennslið
Hús Öldu Margrétar Hauksdóttur lífeindafræðings og Grettis Sigurjónssonar var næst í röðinni en logandi hraunið nam staðar í hlaðinu.

Ekki búandi í Grindavík næstu mánuði og jafnvel ár
Gosinu við Grindavík virðist lokið en prófessor í jarðeðlisfræði segir viðbúið að svipaðir atburðir endurtaki sig á næstu mánuðum og jafnvel árum. Grindavík sé ekki öruggur staður á meðan.

„Það eru þarna götur og svæði sem ekki verða byggð upp aftur“
Ríkisstjórnin fundaði með bæjarstjórn og bæjarstjóra Grindavíkur að loknum reglulegum ríkisstjórnarfundi í morgun. Þar verður rætt vítt og breytt um málefni bæjarins vegna jarðhræringanna sem undanfarna mánuði.

Engin virkni en of snemmt að lýsa yfir goslokum
Of snemmt er að lýsa yfir goslokum þrátt fyrir að engin virkni hafi verið sjáanleg í gossprungunum frá því um klukkan eitt í nótt. Enn er mikil hætta á svæðinu. Þetta kemur fram í uppfærðri frétt Veðurstofu Íslands um eldgos norðan Grindavíkur.

Fyllsta öryggis hafi ekki verið gætt
Upplýsingafulltrúi Landsbjargar segir að sér hafi verið verulega brugðið vegna atviks þar sem björgunarsveitamaður féll með lærið ofan í sprungu í gær. Ljóst sé að öryggisreglum hafi ekki verið fylgt.

Heitt vatn komið á vestari hluta bæjarins: Vilja fá lykla að húsunum
Búið er að koma á heitu vatn í hús vestan Víkurbrautar í Grindavík. Almannavarnir fóru í það verkefni í gærkvöldi í samstarfi við HS Veitur. Almannavarnir óska þess nú að Grindvíkingar sem búi vestan Víkurbrautar skili til þeirra lyklum að húsum sínum svo hægt sé að kanna ástand hitakerfa fasteigna.

Minnsta en skæðasta eldgosið á Reykjanesskaga
Eldgosið fyrir norðan Grindavík virðist hafa gefið upp öndina en engin kvika hefur sést kom upp síðan klukkan 1:08 í nótt. Eldfjalla- og náttúruvárhópur Suðurlands segir eldgosið það minnsta af þeim fimm sem orðið hafa á Reykjanesskaga frá 2021.

Engin kvika sést síðan klukkan eitt í nótt
Engin kvika hefur sést koma upp úr sprungunum norðan Grindavíkur síðan klukkan 1:08 í nótt. Vakthafandi náttúruvársérfræðingur segir eldgosið virðast hafa fjarað alveg út.

Malbikið flettist upp og húsin síga niður
Hraun flæðir enn úr einum gíg á Reykjanesi, en flæðið úr gígnum sem opnaðist Grindavíkurmegin við varnargarðana er hætt. Nýtt hraun setur undarlegan svip á bæinn.

Björgunarsveitir þurft að skipta sér af færra fólki en í fyrri gosum
Björgunarsveitir hafa þurft að hefta för fólks sem vill fara gangandi að eldgosinu norður af Grindavík. Ásóknin er þó minni en áður, sem er vel að sögn björgunarsveitarmanns.

Uppbyggingu varnargarða við Grindavík haldið áfram
Forsætisráðherra segir að uppbyggingu varnargarða við Grindavík verði haldið áfram. Þeir hafi sýnt gildi sitt í gær og markmiðið sé að verja byggðina í Grindavík til framtíðar. Ríkisstjórnin leggur til við Alþingi að afkomustuðningur við Grindvíkinga verði framlengdur.

Segir íbúa þurfa lausnir en ekki hrós: „Þú sleppir börnunum þínum ekki út úr húsi“
Íbúi við Efrahóp í Grindavík segir íbúa þurfa að heyra eitthvað annað en hvað þeir séu þrautseigir og duglegir. Nú þurfi þeir að fá raunhæfar lausnir frá stjórnvöldum. Þeir geti ekki lifað í biðstöðu. Hún ætlar ekki að flytja aftur í bæinn.

Gosið sé að lognast út af en Grindavík sé ekki staður fyrir almenning
Eldfjallafræðingur segir allt útlit fyrir að gosinu norðan við Grindavík sé að ljúka. Litlar líkur séu á að nýjar gossprungur opnist áður en gosinu ljúki.

Nýjar sprungur myndast og þær eldri stækka
Margar sprungur hafa myndast í og við Grindavík í jarðhræringum síðustu sólarhringa. Eldri sprungur, sem unnið hafði verið að því að fylla upp í og gera við, hafa einnig stækkað.

Jörðin gaf sig undan björgunarsveitamanni
„Þetta sýnir bara hversu ótryggt svæðið er hérna og hversu hættulegt þetta er. Ég var bara að labba eftir þessum stíg og það virtist allt vera í góðu lagi fyrir framan mig,“ segir björgunarsveitamaður að störfum í Grindavík. Rétt í þessu gaf jörðin sig þegar hann gekk eftir malbikuðum stíg.

Hátíðniórói bendi til loka hlaups í Grímsvötnum
Vatnshæð í Gígjukvísl hefur verið stöðug frá því í nótt sem bendir til þess að rennsli ánni sé í hámarki. Aukinn hátíðniórói bendir til þess að hlaupinu sé að ljúka.

„Met stöðuna tiltölulega örugga“
Lögreglustjórinn á Suðurnesjum fór ásamt aðstoðarmönnum sínum í skoðunarferð um Grindavík í morgun. Hann segir götur í bænum aflagaðar og nýjar sprungur bersýnilegar. Forgangsverkefni sé að koma rafmagni aftur á. Þrátt fyrir allt sem á undan er gengið segist hann bjartsýnn fyrir hönd Grindvíkinga.

Mælitæki Veðurstofunnar greindu engin merki áður en seinni sprungan opnaðist
Gliðnun innan bæjarmarka Grindavíkur hefur verið allt að 1,4 metrar síðasta sólarhringinn. Nýjar sprungur hafa opnast og eldri sprungur stækkað. Ekki er hægt að útiloka að nýjar gossprungur opnist án fyrirvara, líkt og gerðist í gær þegar sprunga opnaðist við bæjarmörk Grindavíkur. Engin merki sáust á mælitækjum Veðurstofunnar í tengslum við þá gosopnun.

„Langt frá því að vera búið“
Ármann Höskuldsson, prófessor í eldfjallafræði við Háskóla Íslands, segir mikilvægt að hafa í huga að þrátt fyrir að gosið við Grindavík virðist vera að lognast út af, sé eldsumbrotunum á Reykjanesskaga langt frá því að vera lokið. Varnargarðarnir hafi sannarlega sannað gildi sitt í gær og hafi „svínvirkað“.