Dómsmál
22 23 24 25 26 27 28 29 30 … 166 ›
Þriggja ára dómur fyrir brot gegn stjúpdóttur Karlmaður hefur verið dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir að hafa ítrekað og reglulega beitt stjúpdóttur sína kynferðisofbeldi á þriggja ára tímabili. Maðurinn er jafnframt dæmdur til að greiða stúlkunni 2,5 milljónir króna í miskabætur. Innlent 11.11.2023 06:45
Fjórir millistjórnendur fá ekki krónu eftir uppsögn Landsréttur sýknaði í dag íslenska ríkið af því að hafa staðið ólöglega að uppsögnum fjögurra fyrrverandi millistjórnenda spítalans í tengslum við skipulagsbreytingar. Starfsmennirnir kröfðust tuttugu til þrjátíu milljóna króna hver í bætur. Innlent 11.11.2023 06:33
Nauðgaði vinkonu sinni Márcio José Caetano Vieira var í Landsrétti í dag dæmdur í tveggja og hálfs árs fangelsi fyrir að nauðga kunningjakonu sinni fyrir fjórum árum. Landsréttur þyngdi dóminn um sex mánuði. Hann þarf að greiða konunni 1,8 milljónir króna í miskabætur. Márcio breytti framburði sínum verulega fyrir dómi og þótti ótrúverðugur í frásögn sinni. Innlent 10.11.2023 16:51
Ingó eigi ekki að þurfa að vera ásakaður þó hann sé frægur Landsréttur segir að ummæli Sindra Þórs í garð Ingólfs Þórarinssonar, sem er betur þekktur sem Ingó Veðurguð, hafi á forkastanlegan hátt gefið til kynna að sá síðarnefndi hafi haft samræði við börn. Innlent 10.11.2023 16:11
„Réttlætinu er fullnægt“ Lögmaður Ingós veðurguðs, sem hafði í dag betur í meiðyrðamáli fyrir Landsrétti, segir að niðurstaðan komi ekki á óvart og dómurinn sé réttur. „Réttlætinu er fullnægt.“ Innlent 10.11.2023 14:35
Ingó hafði betur í Landsrétti gegn Sindra Þór Ingólfur Þórarinsson, betur þekktur sem Ingó veðurguð, hafði í dag betur í meiðyrðamáli sínu á hendur Sindra Þór Sigríðarsyni Hilmarssyni í Landsrétti. Sindri Þór mátti ekki viðhafa ummæli á borð við „Skemmtikraftur sem hefur stundað það síðastliðin 12-13 ár að ríða börnum.“ Innlent 10.11.2023 14:08
Lögreglumaður ákærður fyrir að slá liggjandi mann ítrekað með kylfu Lögreglumaður á þrítugsaldri hefur verið ákærður fyrir líkamsárás og brot í opinberu starfi vegna atviks sem átti sér stað í miðbæ Reykjavíkur í lok maí á þessu ári. Innlent 10.11.2023 11:22
Hvað er greiðslustöðvun? Gríðarlega athygli vakti í gær þegar Árni Oddur Þórðarson, sem lengi hefur verið einn farsælasti viðskiptamaður landsins, tilkynnti að hann hafði fengið heimild til greiðslustöðvunar. Greiðslustöðvun er alls ekki algengt fyrirbæri og því vaknar spurningin: Hvað er greiðslustöðvun? Viðskipti innlent 9.11.2023 14:21
Viðurkenndi að hafa átt hnefahögg skilið Karlmaður var í síðustu viku sakfelldur fyrir líkamsárás í Héraðsdómi Vesturlands. Honum var þó ekki gerð refsing, en sjálfur hafði hann haldið því fram að hann hafi framið árásina til að verja vinkonu sína. Þá viðurkenndi brotaþolinn að hann hafi átt árásina skilið. Innlent 9.11.2023 07:00
Talinn hafa logið fíkniefnaframleiðslu í Borgarnesi upp á sjálfan sig Karlmaður á fimmtugsaldri sem bar vitni í umfangsmiklu fíkniefnamáli árið 2019, sem varðaði meðal annars framleiðslu á amfetamíni, og tók á sig alla sök, hefur verið ákærður fyrir að bera ljúgvitni. Innlent 8.11.2023 16:52
Ákærður fyrir tvær hnífaárásir í Skeifunni á nýársnótt Karlmaður á þrítugsaldri hefur verið ákærður fyrir tilraun til manndráps sem átti sér stað innandyra í húsnæði í Skeifunni á nýársnótt 2022. Þá er hann ákærður fyrir aðra árás sama kvöld. Innlent 8.11.2023 15:08
Stakk kærasta sinn í bakið með nefháraskærum Kona hefur verið dæmd til þriggja mánaða skilorðsbundinnar fangelsisvistar fyrir líkamsárás, með því að stinga kærasta sinn tvisvar eða þrisvar í bakið með skærum, sem ýmist er lýst sem nefhára- eða naglaskærum. Innlent 7.11.2023 16:17
Gekk berserksgang á Litla-Hrauni: Grunaður um að hóta lífláti og öðru ógeðslegra Karlmaður hefur verið ákærður í tuttugu ákæruliðum fyrir ýmis brot, líkt og hótanir og ofbeldi í garð opinberra starfsmanna, brot í nánu sambandi, og eignaspjöll. Innlent 7.11.2023 15:19
„Það er reyndar ekki ég sem er geðveik, það ert þú og það er umtalað í hestasamfélaginu“ Kona hefur verið sakfelld fyrir að slá nágrannakonu sína í hesthúsahverfi í Reykjavík tveimur höggum í andlitið. Með vísan til mikils sem gengið hafði á í samskiptum hesthúsaeigenda í hverfinu var konunni ekki gerð refsing fyrir líkamsárásina. Innlent 7.11.2023 13:44
Huldumenn frömdu hópárás við frisbígolfvöll Ungur karlmaður hefur verið dæmdur til þrjátíu daga skilorðsbundinnar fangelsisvistar fyrir líkamsárás við frisbígolfvöll í Reykjavík. Árásina framdi hann í félagi með „óþekktum aðilum.“ Innlent 7.11.2023 08:41
Ósáttir aðventistar kæra stjórnina vegna námuvinnslu Hluti safnaðar Kirkju sjöunda dags aðventista hefur sótt samtakastjórn kirkjunnar til saka fyrir að hafa farið út fyrir lögskipað hlutverk kirkjunnar með námarekstri. Þeir hafa kært til héraðsdóms Reykjavíkur. Innlent 6.11.2023 13:55
Deila um laun í ferðalögum fer fyrir Hæstarétt Hæstiréttur hefur veitt íslenska ríkinu leyfi til að áfrýja dómi Landsréttar í máli sem snýr að launum flugvirkja fyrir tíma sem hann varði í flugvélum á ferðalögum. Innlent 6.11.2023 11:44
Óvinnufær eftir átök á bráðamóttökunni: „Ég óttaðist um líf mitt“ Hjúkrunarfræðingur segir að stimpingar milli hennar og sjúklings á bráðamóttökunni í maí 2022 hafa haft gríðarlegar afleiðingar í för með sér. Hún hafi ekki getað mætt til vinnu í það eina og hálfa ár sem er liðið frá þessu og það hafi haft mikil áhrif á líf hennar. Innlent 6.11.2023 08:00
Meintar farsímanjósnir ástæðan fyrir hnífsárás Karlmaður var á föstudag sakfelldur í Héraðdómi Reykjaness fyrir líkamsárás í garð nágranna síns og fyrir að eyðileggja síma hans og stinga á dekk á bíl hans. Innlent 5.11.2023 22:21
Hafði betur gegn myndatökumanni Ræktum garðinn Myndatökumanni hefur verið gert að greiða fjölmiðlakonunni Hugrúnu Halldórsdóttur um 1,6 milljón króna vegna vangoldinna launa fyrir gerð þáttanna Ræktum garðinn sem sýndir voru í Sjónvarpi Símans í fyrra. Innlent 5.11.2023 11:30
Skilorð fyrir að taka tvisvar um háls barnsmóður sinnar Karlmaður hefur verið dæmdur í fjögurra mána skilorðsbundið fangelsi fyrir tvær líkamsárásir gegn þáverandi sambýliskonu sinni. Atvikin sem málið varðar áttu sér stað árið 2019 og 2020. Innlent 4.11.2023 20:13
Niðurlægjandi og meiðandi verknaður ekki bara líkamsárás heldur nauðgun Maður sem hafði verið dæmdur fyrir líkamsárás í Héraðsdómi Reykjaness fyrir að stinga fingri sínum í endaþarm annars manns hlaut þyngri dóm Í Landsrétti. Ástæðan er sú að Landsréttur telur brot mannsins ekki bara vera líkamsárás, heldur líka nauðgun. Innlent 4.11.2023 15:22
Sýknaðir í hópnauðgunarmáli Tveir karlmenn voru sýknaðir af ákæru um nauðgun í Héraðsdómi Reykjaness í gær. Vitnisburður brotaþola þótti trúverðugur, en framburðir mannanna af atburðunum sem málið varðar þóttu í takt við hvor annan og þótti dómnum ólíklegt að þeir hefðu sammælst um frásagnir sínar. Innlent 4.11.2023 09:52
Aðkoma stúlkunnar með símann „svívirðileg“ Meint fíkniefnaskuld var kveikjan að því að ungmenni ákváðu að veitast að 27 ára gömlum Pólverja fyrir utan Íslenska rokkbarinn í apríl. Brotaþoli lést eftir hnífstungur, högg og spörk. Héraðsdómari er ómyrkur í máli og lýsir atburðarásinni sem „leik kattarins að músinni“. Innlent 3.11.2023 18:25
Tíu ára fangelsi fyrir manndrápið við Fjarðarkaup Sæmundur Tryggvi Norðquist Sæmundsson, tæplega nítján ára karlmaður, var í dag dæmdur í tíu ára fangelsi fyrir manndráp á bílastæðinu við Fjarðarkaup í Hafnarfirði í apríl síðastliðnum. Tveir félagar hans í kringum átján ára aldur fengu tveggja ára dóm fyrir stórfellda líkamsárás. Sautján ára stúlka fékk tólf mánaða skilorðsbundinn dóm til fimm ára. Innlent 3.11.2023 15:19
Íslenska ríkið sýknað og kröfu Björns vísað frá dómi Landsréttur hefur sýknað íslenska ríkið og snúið við dómi Héraðsdóms Reykjavíkur í máli sem blaðamaðurinn Björn Þorláksson höfðaði gegn Kjara-og mannauðssýslu ríkisins. Kröfu Björns um miskabætur vegna uppsagnar hans árið 2021 hefur því verið vísað frá. Innlent 3.11.2023 14:25
Verslunarstjóri dæmdur fyrir fjárdrátt Fyrrverandi verslunarstjóri verslunar Krónunnar í Nóatúni hefur verið dæmdur í þrjátíu daga fangelsi fyrir að hafa dregið sér samtal tæpa milljón króna frá versluninni. Innlent 3.11.2023 13:56
Bændahjón óttaslegin vegna erja: „Hann á eftir að drepa okkur“ Bændahjón úr Kjós segjast hafa óttast um líf sitt og fjölskyldu sinnar vegna nágranna sem er ákærður fyrir að aka bíl á ógnandi hátt að þeim, elt þau um tíu kílómetra vegarkafla í Hvalfirði og reynt að þvinga þau af veginum. Atburðirnir sem málið varðar áttu sér stað á júníkvöldi árið 2021. Innlent 3.11.2023 07:01
Umtalsverðar líkur á áframhaldandi lífshættulegu ofbeldi Maður sem er grunaður um tilraun til að verða fyrrverandi kærustu sinni að bana hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald til mánudagsins 27. nóvember. Hann þykir mjög líklegur til að beita konuna frekara ofbeldi fengi hann að ganga laus. Innlent 2.11.2023 17:19
Með tvo lítra af amfetamínbasa í farangrinum Héraðsdómur Reykjaness hefur dæmt karlmann í tveggja ára fangelsi fyrir að hafa flutt tvö kíló af amfetamínbasa til landsins með flugi. Innlent 2.11.2023 15:04