Helstu fréttir
1 2 3 4 ›
Gosmökkurinn í 10 kílómetra hæð Gosmökkurinn frá gosstöðinni í Grímsvötnum mælist nú í um tíu kílómetra hæð, samkvæmt upplýsingum sem fengust hjá Veðurstofu Íslands. Mest var hæðin um 20 kílómetrar í gærkvöldi en síðan dró úr gosvirkninni. Gosmökkurinn mældist í 13-15 kílómetra hæð í hádeginu. Innlent 22.5.2011 16:08
Ögmundur og Jóhanna heimsóttu samhæfingarmiðstöðina "Það var mjög traustvekjandi að sjá hve vel smurð þessi vél er og samhæfir kraftarnir,“ segir Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra. Hann fór, ásamt Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra að skoða aðstæður í samhæfingamiðstöðinni í Skógarhlíð vegna eldgossins. Innlent 22.5.2011 16:08
Bjarga búfénaði frá öskufallinu Heimamenn hafa í dag verið að bjarga búfénaði í nágrenni við gosstöðvarnar í Grímsvötnum. Þessi bóndi á Hörgslandi var að bjarga hestinum sínum þegar Vilhelm Gunnarsson ljósmyndara bar að garði fyrir stundu. Gríðarleg svifryksmengun er vegna öskufallsins. Innlent 22.5.2011 15:26
Icelandair fellir niður flug á morgun Icelandair hefur tilkynnt að allt flug félagsins til Evrópuborga í fyrramálið verður fellt niður vegna öskufalls frá eldgosinu í Grímsvötnum, sem hefur lokað fyrir flugumferð um Keflavíkurflugvöll. Um er að ræða flug til Frankfurt, Parísar, Amsterdam, London, Manchester/Glasgow, Kaupmannahafnar, Osló, Bergen/Þrándheims, Stokkhólms og Helsinki. Áður hafði Icelandair aflýst öllu flugi síðdegis í dag. Innlent 22.5.2011 15:10
Fjölmiðlamenn á Vatnajökli Hópur fjölmiðlamanna fór með þyrlu á Vatnajökul í grennd við gosstöðvarnar í Grímsvötnum í dag. Þar á meðal var Anton Brink, ljósmyndari Fréttablaðsins og Vísis, sem myndaði það sem fyrir augun bar. Í myndasafninu sem fylgir þessari frétt má sjá gosstrókinn frá Grímsvötnum í bland við jökulinn. Innlent 22.5.2011 15:04
Leita fjögurra ferðamanna á gossvæðinu Björgunarsveitamenn eru byrjaðir að grennslast eftir fjórum ferðamönnum sem fóru í morgun á tveimur bílum frá Höfn áleiðis að sveitabæ vestan Kirkjubæjarklausturs þar sem þeir hugðust gista en þeir hafa ekki skilað sér þangað. Björgunarsveitir aka nú veginn á milli til að kanna hvar fólkið er niðurkomið en talið er að það sé á eða við þjóðveginn, eftir því sem fram kemur í tilkynningu frá Slysavarnafélaginu Landsbjörg. Innlent 22.5.2011 14:57
Gestir að yfirgefa Islandia Hótel Gestir á Islandia Hótelinu að Núpum, í nágrenni við Kirkjubæjarklaustur, eru að yfirgefa hótelið vegna öskufalls frá gosinu. Þau munu njóta aðstoðar björgunarsveitamanna. Viðbragðsaðilar vegna gossins voru að dreifa rykgrímum og gleraugum nú rétt í þessu þegar Vilhelm Gunnarsson ljósmyndari Fréttablaðsins og Vísis var staddur við hótelið. Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra hvetur þá sem eru í nágrenni við gosstöðvarnar til að halda sig innandyra. Þurfi þeir nauðsynlega að vera úti eru þeir hvattir til að nota rykgrímur og hlífðargleraugu. Innlent 22.5.2011 14:16
Ekki búist við hlaupi Staðfest hefur verið að gosið í Grímsvötnum er í sjálfri öskjunni nærri þeim stað þar sem gaus árið 2004. Þetta kemur fram á heimasíðu veðurstofunnar. Síðast hljóp úr Grímsvötnum árið 2010 og hefur lítið vatn safnast þar saman og þunnur ís er á öskjunni. Þegar gaus á sama stað árin 1998 og 2004 urður jökulhlaup nokkru eftir að gosið hófst en ekki er talið að samsvarandi aðstæður séu uppi nú. Því er ekki búist við jökulhlaupi að því er fram kemur á heimasíðu veðurstofunnar. Innlent 22.5.2011 14:05
Föst vegna ösku - aftur Norska blaðið Aftenposten greinir frá tveimur vinkonum sem báðar sátu fastar vegna eldgossins í Eyjafjallajökli fyrir rúmu ári. Önnur í New York og hin í Stokkhólmi. Nú eru ferðaplön þeirra aftur í uppnámi. Ástæðan. Þær ákváðu að skella sér í sumarfrí á Íslandi. Vinkonurnar heita Randi Roaldsnes og Karen Sofie Haraldsen. Þær eru hér ásamt þrettán vinum í skemmtiferð og hafa það bara gott - eða kjempefint, eins og segir í greininni. Erlent 22.5.2011 14:05
Ekkert amar að búfénaði austan við gosstöðvarnar Búfjárráðunautur heimsótti í dag bændur frá Höfn í Hornafirði og austur að Skaftafelli. Ekkert amar að búfénaði á því svæði en ekki er búið að kanna ástandið vestur af gosstöðvunum. Samkvæmt upplýsingum úr samhæfingarmiðstöð Almannavarna er svartamyrkur frá Kirkjubæjarklaustri og að Freysnesi. Verið er að vinna við að koma fólki til aðstoðar eins og hægt er og hafa allar aðgerðir gengið vel. Innlent 22.5.2011 13:44
Síminn stoppar ekki hjá upplýsingafulltrúum „Ég held að það sé vægt til orða tekið að segja að hann hringi stanslaust," segir Hjördís Guðmundsdóttir, upplýsingafulltrúi Isavia, en upplýsingafulltrúar ýmissa fyrirtækja og stofnana hafa staðið í ströngu við að upplýsa umheiminn um stöðu mála vegna eldgossins í morgun. Innlent 22.5.2011 13:38
Ómar hefur aldrei farið eins varlega Ómar Ragnarsson segist fyllast óttablandinni virðingu fyrir gosinu í Grímsvötnum. Hann sér samt enga ástæðu til þess að loka flugvöllum. Innlent 22.5.2011 13:28
Um 200 lögreglu- og björgunarsveitarmenn að störfum Almannavarnir leggja mikla áherslu á að fólk sé ekki á ferli á svæðinu þar sem öskufall er. Þeir sem þurfa að vera úti eru hvattir til að nota rykgrímur og hlífðargleraugu. Um tvö hundruð lögreglu- og björgunarsveitarmenn eru nú að störfum á gossvæðinu. Innlent 22.5.2011 13:23
Brynvarðir trukkar á leið á svæðið Björgunarsveitarmenn frá Landsbjörgu koma mikið við sögu í aðstæðum á borð við þær sem nú eru á gosstöðvunum og þeim svæðum sem orðið hafa fyrir öskufalli. Ólöf Snæhólm Baldursdóttir upplýsingafulltrúi Landsbjargar segir að björgunarsveitarmenn séu aðallega að aðstoða bændur á svæðinu með búfénað sinn auk þess sem þeir dreifi rykgrímum og manni lokunarpósta þar sem vegum hefur verið lokað. Innlent 22.5.2011 13:22
Gosmökkurinn 13 til 15 kílómetrar Gosmökkurinn úr gosstöðinni í Grímsvötnum mælist nú í um 13 til 15 kílómetra hæð samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofunni. Mest var hæðin á mekkinum um 20 kílómetrar í gærkvöldi en síðan dró úr gosvirkninni og á tímabili þegar fór mökkurinn niður í 10 kílómetra. Nú um hádegið virðist gosið hafa tekið kipp. Gosórói er nokkur á svæðinu en engir stærri jarðskjálftar hafa þó mælst. Innlent 22.5.2011 13:02
Hádegisfréttatími Stöðvar 2 Hægt er að horfa á aukafréttatíma Stöðvar 2 sem fór í loftið klukkan 12 hér í fréttinni. Innlent 22.5.2011 13:01
Viðvarandi lokun getur haft alvarleg áhrif Talsmaður ferðaþjónustunnar segir að viðvarandi lokun flugvalla geti haft alvarleg áhrif á greinina. Erna Hauksdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar, segir að ferðaþjónustunni hafi brugðið í brún þegar gosið hófst í gær, enda stutt síðan greinin stóð í stórræðum þegar gaus í Eyjafjallajökli í fyrra. Hún segir hins vegar að bæði stjórnvöld og Íslandsstofa hafi brugðist hratt við að koma upplýsingum til alþjóðlegra fjölmiðla. Innlent 22.5.2011 12:56
Iðnaðarráðherra innlyksa á Höfn Katrín Júlíusdóttir, iðnaðarráðherra boðaði til viðbragðsfundar í ráðuneytinu klukkan hálf ellefu í morgun, en þar voru samankomnir þeir sömu og sáu um viðbrögð við síðasta gosi á opinberum vettvangi. Innlent 22.5.2011 12:31
Öflugasta sprengigos í Grímsvötnum í 100 ár Gosið í Grímsvötnum er öflugasta sprengigos sem orðið hefur í eldstöðinni í 100 ár. Vísbendingar eru um að nokkuð hafi dregið úr krafti gossins á síðustu klukkustundum. Stórkostleg sjón, segir fjallaleiðsögumaður. Innlent 22.5.2011 12:23
Caribou tónleikum aflýst vegna gossins Hljómleikum Caribou sem áttu að fara fram á Nasa í kvöld hefur verið aflýst vegna eldgossins í Grímsvötnum. Hljómsveitin átti að koma frá Amsterdam í dag en vegna gossins liggur allt flug niðri. Lífið 22.5.2011 12:15
Fréttatími Stöðvar 2 í beinni á Vísi Aukafréttatími Stöðvar 2 vegna eldgossins í Grímsvötnum á Vatnajökli er í beinni útsendingu á Vísi. Hægt er að sjá útsendinguna hér. Innlent 22.5.2011 11:59
Hótelgestir komast hvorki lönd né strönd "Hér er bara mjög leiðinlegt ástand,“ segir Sigrún Kapitola Guðrúnardóttir, hótelstjóri, á Islandia Hótel að Núpum nærri Kirkjubæjarklaustri. "Það hefur verið mikið mistur frá því á miðnætti og núna sjáum við ekki bílana sem standa fyrir utan.“ Innlent 22.5.2011 11:32
Björgunarsveitir hafa þurft frá að hverfa Björgunarsveitir Slysavarnafélagsins Landsbjargar á Austurlandi hafa verið að störfum í nótt og í morgun vegna eldgossins í Grímsvötnum. Björgunarsveitamenn hafa dreift grímum og gleraugum á meðal íbúa á öskufallssvæðinu og aðstoðað bændur við að koma lambfé í hús. Innlent 22.5.2011 11:12
Fjöldahjálparstöðvar opnaðar Búið er að opna fjöldahjálparstöðvar í félagsheimilinu á Klaustri og Hofgarði fyrir þá sem treysta sér til að fara á þá staði. Íbúar á svæðinu eru hvattir til að hafa samband við nágranna sína og veita hver öðrum stuðning, að því er fram kemur í tilkynningu frá almannavörnum. Búið er að virkja hjálparsíma RKÍ 1777. Innlent 22.5.2011 10:53
Sjáðu myndirnar - eldgos í Grimsvötnum Visi hefur borist fjölda mynda af eldgosinu í Grímsvötnum. Það er með ólíkindum að sjá breytingarnar á meðfylgjandi myndum sem Friðrik Páll Friðriksson ljósmyndari tók á Fosshótelum í Skaftafelli. Fyrri myndin er tekin 21. maí klukkan 20:20 og síðari 22. maí, snemma morguns klukkan 07:03. Þá má einnig sjá myndir eftir Vilhelm Gunnarsson ljósmyndara, Egil Aðalsteinsson kvikmyndatökumann, Magnús Kristinsson frá Nónvörðu í Keflavík og íbúa í Vatnsendahverfi. Innlent 22.5.2011 10:39
Öllu flugi innanlands aflýst Allt flug Flugfélagsins Ernis fellur niður í dag vegna eldgossins í Grímsvötnum. Fara átti tvær ferðir til Eyja, og eina á Höfn, Bíldudal og Sauðárkrók. Með félaginu áttu bókað úm 150 manns, að fram kemur í tilkynningu. Innlent 22.5.2011 10:14
Almannavarnir hafa mestar áhyggjur af öskufallinu "Við höfum þessa bitru reynslu úr Eyjafjallajökli hvernig þetta getur verið og staðið jafnvel lengi yfir og haft mikil áhrif á fólkið,“ segir Víðir Reynisson, deildarstjóri hjá almannavörnum. Hann segir mikið öskufall vera í kringum Kirkjubæjarklaustur, bæði vestur út á Mýrdalssand og austur á Skeiðarársand. Þjóðveginum er lokað frá Kirkjubæjarklaustri að Freysnesi. Innlent 22.5.2011 09:58
Kraftur gossins svipaður "Það gæti verið að það sé hægt að draga úr kraftinum en þetta er svipað. Hann er sennilega ekki að aukast,“ segir Einar Kjartansson, jarðeðlisfræðingur hjá Veðurstofunni, um eldgosið í Grímsvötnum sem hófst í gær. Óvíst er hvort gosið komi til með að valda hlaupi. Innlent 22.5.2011 09:19
Ekki bjartsýn á framhaldið Loftrýminu yfir Keflavíkurflugvelli hefur verið lokað, en fram að þeim tíma var reynt að koma sem flestum vélum í burtu. Miðað við spá Bresku veðurstofunnar um gjóskudreifingu er Hjördís Guðmundsdóttir, upplýsingafulltrúi Isavia, ekki bjartsýn á framhaldið og segir að dagurinn líti ekki sérstaklega vel út. Innlent 22.5.2011 08:49
Keflavíkurflugvelli lokað klukkan hálfníu Keflavíkurflugvelli verður lokað kl. 08:30. Sú lokun er byggð á spá frá bresku veðurstofunni. Þetta segir í tilkynningu frá almannavarnadeild Ríkislögreglustjóra. Innlent 22.5.2011 07:48