Starfslok Harðar Arnarsonar hjá Landsvirkjun
Vill setja fimmtungshlut í Landsvirkjun á markað til að laða að erlenda fjárfesta Framkvæmdastjóri Birtu lífeyrissjóðs telur að skráning Landsvirkjunar á hlutabréfamarkað og sala á minnihluta í fyrirtækinu gæti laðað erlenda fjárfesta til landsins og gert íslenska markaðinn, sem sé núna „í þriðju deild í ensku“, að álitlegri fjárfestingarkost. Hann segir jafnframt að það sé ekki „góður bragur á því“ að haldnir hafi verið reglulegir óformlegir fundir stjórnar orkufyrirtækisins án þátttöku fráfarandi forstjóra og er þeirrar skoðunar að slíkt fyrirkomulag samræmist tæplega leiðbeiningum um góða stjórnarhætti fyrirtækja. Innherji 27.10.2026 20:26
Að segja satt frá og gera það strax! Flestir stjórnendur og stjórnmálamenn þekkja mikilvægustu PR-regluna: Ef þér veður á, gerir mistök o.s.frv., gildir að SEGJA SATT FRÁ og GERA ÞAÐ STRAX! Skoðun 27.10.2026 12:03
Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra segir enga formlega stjórnarfundi Landsvirkjunar hafa verið haldna án Harðar Arnarsonar fyrrverandi forstjóra. Hann segir lögin ekki banna stjórnarmönnum að hittast sem hafi borðað saman hádegismat fyrir fundina. Ágreiningurinn snúist um form en ekki stefnu. Innlent 26.10.2026 08:34
Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Hörður Arnarson, sem lét af störfum sem forstjóri Landsvirkjunar í byrjun mánaðar, segir að stjórnarfundir hafi verið haldnir án þess að honum hafi veri boðið líkt og lög kveði á um. Innlent 25.10.2026 12:43
Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Það vakti mikla athygli þegar Hörður Arnarson, fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar, tilkynnti starfslok sín en hann gaf engin skýr svör við því hvers vegna hann hafi ákveðið að hætta fyrr. Nú hefur hann sagt ágreining sem olli starfslokunum meðal annars tilkominn vegna skorts á umboði og trausti í sinn garð en hann gangi mjög sáttur frá borði og fyrirtækið sé á góðum stað. Viðskipti innlent 22.10.2026 20:13
Rafnar fylgir Herði og segir upp Rafnar Lárusson hefur ákveðið að láta af störfum sem fjármálastjóri Landsvirkjunar. Hann hafi ákveðið fyrir nokkrum árum að fylgja forstjóranum eftir. Viðskipti innlent 15.10.2026 13:34
Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Leit að eftirmanni Harðar Arnarsonar í starfi forstjóra Landsvirkjunar hefði hafist í haust eða vetur, að sögn Brynju Baldursdóttur stjórnarformanns. Hún segir næsta forstjóra þurfa að vera öflugan leiðtoga með reynslu af stjórnun og stórum verkefnum. Innlent 6.10.2026 13:02
Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Stjórn Landsvirkjunar nýtur áfram trausts fjármálaráðherra þrátt fyrir ágreining hennar við Hörð Arnarson, fráfarandi forstjóra. Ráðherrann segir þær skýringar sem hann hafi fengið á ágreiningnum vera almenns eðlis en telur fulla ástæðu til að yfirfara málið. Innlent 2.10.2026 14:11
„Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Skyndileg starfslok Harðar Arnarsonar sem forstjóra Landsvirkjunar koma í kjölfar ágreinings milli hans og stjórnar Landsvirkjunar. Stjórnarformaðurinn segir forstjórann og stjórnina ekki ávallt hafa verið sammála um allt en hún þakkar Herði fyrir glæsilegan sautján ára feril hjá félaginu. Viðskipti innlent 1.10.2026 21:31
Takk Hörður Hörður Arnarson hefur látið af störfum sem forstjóri Landsvirkjunar eftir sautján ár við stýrið. Hann tók við hlutverkinu í miðri efnahagskreppu 2009 þegar Landsvirkjun var gríðarlega skuldsett, öll lán fyrirtækisins með ríkisábyrgð og arðgreiðslur litlar. Skoðun 1.10.2026 16:12
Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Hörður Arnarson hefur ákveðið að láta af störfum sem forstjóri Landsvirkjunar. Kristín Linda Árnadóttir, aðstoðarforstjóri Landsvirkjunar, mun taka tímabundið við starfi forstjóra frá 1. nóvember, þar til nýr forstjóri verður ráðinn. Viðskipti innlent 1.10.2026 14:44
Boðaði til starfsmannafundar og mætti í stjórnarráðið Hörður Arnarson forstjóri Landsvirkjunar hefur óvænt boðað til starfsmannafundar eftir hádegið í dag. Samkvæmt heimildum Vísis hefur Hörður velt stöðu sinni sem forstjóri fyrir sér undanfarið og mun það vera tilefni fundarins. Vísir hefur ekki fengið staðfest hvort Hörður ætli að láta af störfum hjá félaginu en hann mætti á fund í stjórnarráðinu um eittleytið í dag. Viðskipti innlent 1.10.2026 12:07