Eurovision 2027

Eurovision 2027

Eurovision-keppnin 2027 fer fram í Burgas í Búlgaríu dagana 11., 13. og 15. maí 2027.

Fréttamynd

„Svo­lítið sárt í hjartanu að hafa enga söngva­keppni“

Yfirgnæfandi meirihluti er mótfallinn því að Ísland taki þátt í Eurovision verði Ísrael á meðal þátttökuþjóða, en þetta kemur fram í nýrri könnun Maskínu. Stjórnarkona í félagi áhugafólks um söngvakeppnina segir félagið ekki taka afstöðu í málinu en segir sárt að ekki sé haldin innlend söngvakeppni.

Innlent

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Ís­land ekki á lista 36 þjóða sem keppa í Euro­vision

Alls taka 36 lönd þátt í Eurovision á næsta ári. Kanada tekur þátt í fyrsta sinn og Norður-Makedónía snýr aftur eftir fjögurra ára hlé. Spánn og Slóvenía hafa frest þar til í desember til að tilkynna um þátttöku. Ísland er ekki á lista en stjórn RÚV hefur gefið út að þau myndu ekki vilja að Ísland tæki þátt nema Ísrael yrði meinuð þátttaka. Sem hefur ekki verið gert. 

Tónlist
Fréttamynd

Hætta við að hætta við að hætta við

Hollendingar munu ekki taka þátt í Eurovision á næsta ári eftir allt saman. Þjóðin sniðgekk keppnina í fyrra og ætlaði að gera það aftur í ár þar til að talsmenn sjónvarpsstöðvarinnar NPO tilkynntu að þjóðin yrði með. Nú er hins vegar orðið ljóst að ekkert verður af þátttökunni, Hollendingarnir eru þar með hættir við að hætta við að hætta við að taka þátt í Eurovision.

Tónlist