Stj.mál
36 37 38 39 40 41 42 43 44 … 187 ›
Sjálfstæðisflokkurinn og Framsókn tapa fylgi á Akureyri Meirihluti Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar á Akureyri er fallinn samkvæmt skoðanakönnun sem Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands hefur gert fyrir NFS. Sjálfstæðismenn halda sínu fylgi, mælast með 36,5% fylgi, en Framsóknarflokkurinn tapar hins vegar rúmum þriðjungi af fylgi sínu. Innlent 19.4.2006 06:50
Bíti á jaxlinn, bölvi í hljóði og beiti oddinum fast Guðni Ágústsson, varafomaður Framsóknarflokksins, segir skoðanakannanir sýna grafalvarlega stöðu flokksins, en nú síðast í kvöld sýndi skoðanakönnun á Akureyri að flokkurinn myndi tapa tveimur af þremur bæjarfulltrúum sínum þar ef kosið yrði nú. Hann hvetur framsóknarmenn til að bíta á jaxlinn, bölva í hljóði og beita oddinum fast næstu vikur. Innlent 18.4.2006 22:45
Leikskólagjöld lækkuð í Hafnarfirði Bæjarstjórn Hafnarfjarðar ákvað í dag að lækka leikskólagjöld í leikskólum bæjarins um um það bil 20 prósent. Lækkunin tekur gildi frá 1. maí næstkomandi. Fram kemur í tilkynningu frá bænum að dvalarkostnaður fyrir hvert barn á almennum gjöldum lækki um ríflega 70 þúsund krónur miðað við 11 mánuði ári. Innlent 18.4.2006 22:09
Meirihlutinn á Akureyri fallinn skv. skoðanakönnun Meirihluti Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar á Akureyri er fallinn samkvæmt skoðanakönnun sem Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands hefur gert fyrir NFS. Sjálfstæðismenn halda sínu fylgi en Framsóknarflokkurinn tapar hins vegar rúmum þriðjungi af fylgi sínu. Innlent 18.4.2006 19:13
Ungt fólk bjartsýnt á framtíðina Ungt fólk á Íslandi er upp til hópa bjartsýnt á framtíðarhorfur sínar í heimi hnattvæðingar og alþjóðlegrar samkeppni, ef marka má niðurstöður könnunar sem Samtök atvinnulífsins létu gera á dögunum. Liðlega átta af hverjum tíu hugnast betur að starfa hjá einkafyrirtæki en hinu opinbera og þá eru jeppar og einkaþotur þau farartæki sem ungmennum hugnast einna best. Innlent 18.4.2006 18:45
Stefna í fremstu röð í fiskeldi Samherji ætlar sér að verða í fremstu röð í lúðueldi og þorskeldi og setur stefnuna á að ná meira en helmings markaðshlutdeild í eldisbleikju. Þessu greindi forstjóri Samherja frá þegar tilkynnt var um stuðning stjórnvalda við fiskeldi í dag. Innlent 18.4.2006 15:09
Landhelgisgæslan leigir tvær þyrlur Ríkisstjórnin samþykkti tillögu Björns Bjarnasonar dómsmálaráðherra í morgun um að leigja tvær sambærilegar þyrlur til Landhelgisgæslunnar og hún hefur nú til umráða. Í tilkynningu frá dómsmálaráðherra segir að starfsfólki Landhelgisgæslunnar verði fjölgað þannig að unnt verði að reka fleiri þyrlur og halda úti tveimur þyrluvöktum allan sólarhringinn. Innlent 18.4.2006 13:14
Framsókn furðar sig á ummælum um Sundabraut Framsóknarflokkurinn í Reykjavík lýsir furðu sinni á ummælum oddvita Sjálfstæðisflokksins í borginni í Fréttablaðinu í dag um að framkvæmdum við Sundabraut sé sjálfhætt í bili vegna stöðu efnahagsmála. Innlent 18.4.2006 12:59
Ríkisstjórnin grípur ekki til aðgerða gegn verðbólgunni Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra segir ríkisstjórnina ekki ætla að grípa til sértækra aðgerða gegn verðbólgu. Þetta sagði hann í samtali við fjölmiðla eftir ríkisstjórnarfund í morgun. Hann sagðist eiga von á því að verðbólguskotið gangi fljótt yfir. Innlent 18.4.2006 12:26
Forseti bæjarstjórnar leiðir listann Elías Jónatansson, iðnaðarverkfræðingur og forseti bæjarstjórnar bolungarvíkur leiðir lista sjálfstæðismanna fyrir sveitarstjórnarkosningarnar þann 27. maí. Framboðslistinn var samþykktur einróma af fulltrúaráði Sjálfstæðisfélaganna í Bolungarvík á fundi ráðsins á skírdag. Innlent 15.4.2006 15:10
Endurgreiða gjöld og veita afslátt vegna stöðugleika í rekstri Bæjarstjórn Mosfellsbæjar hyggst greiða til baka hluta af gjöldum bæjarbúa til sveitarfélagsins á þessu ári og veita afslátt af dagvistargjöldum út árið. Bæjarstjóri segir þetta gert vegna stöðugleika sem náðst hafi í rekstri sveitarfélagsins. Innlent 13.4.2006 18:17
Umhverfisráðherra skoðaði afleiðingar sinubrunans á Mýrum Sigríður Anna Þórðardóttir umhverfisráðherra hefur falið Náttúrufræðistofnun Íslands að rannsaka áhrif sinubrunanna á Mýrum á lífríkið og mun stofnunin fylgist náið með framvindu gróðurs og dýrlífs á svæðinu á næstu árum. Umhverfisráðherra skoðaði í gær afleiðingar sinubrunans ásamt forstjóra Náttúrufræðistofnunar Íslands, sérfræðingum stofnunarinnar og fulltrúum heimamanna. Innlent 13.4.2006 16:28
D-listinn klofnaði í afstöðu sinni D-listi Sjálfstæðisflokksins í Árborg klofnaði í afstöðu sinni til samnings um Miðjuna á Selfossi, á fundi bæjarstjórnar Árborgar í gær. Bæjarstjórn samþykkti samning við Miðjuna ehf. um kaup á landi og sölu á byggingarrétti í miðbæ Selfoss, með 8 atkvæðum gegn 1. Annar tveggja bæjarfulltrúa D-listans samþykkti samninginn, en hinn greiddi atkvæði á móti. Innlent 13.4.2006 17:27
Horfir fram á sumarþing eða frestun mála fram á haust Magrét Frímannsdóttir, þingflokksformaður Samfylkingarinnar, segir að halda verði sumarþing eða fresta málum fram á haustþing því ekki náist að klára öll þau mál sem lögð hafi verið fyrir þingið að undanförnu. Hún sakar ríkisstjórnina um hroðvirkni við vinnslu frumvarpa. Innlent 12.4.2006 17:12
Vilja breyta eftirlaunalögum en deila um aðferðarfræði Samstaða er um það meðal allra flokka á Alþingi að breyta lögunum um eftirlaun stjórnmálamanna, en ágreiningur er um hversu langt á að ganga í málinu og hvort það þurfi að ná um það pólitískri samstöðu á þingi. Innlent 12.4.2006 16:24
Fjöldi kjörseðla finnst í ruslatunnu Fimm kassar troðnir kjörseðlum fyrir þingkosningarnar á Ítalíu fundust í ruslatunnu í Róm í dag. Kassarnir voru allir merktir innanríkisráðuneyti landsins. Erlent 12.4.2006 15:08
AFA krefst þess að vandi öldrunarheimila verði leystur strax Aðstandendafélag aldraðra krefst þess að vandi öldrunarheimila verði tafarlaust leystur með hækkun daggjalda og hækkun launa ófaglærðra starfsmanna heimilanna. Ef lausn finnst ekki á launadeilu starfsmanna hefst vikulangt setuverkfall eftir níu daga. Innlent 12.4.2006 12:13
4500 undirskriftum hefur verið safnað í Reykjanesbæ Tæplega 4.500 manns styðja Séra Sigfús B. Ingvason í embætti sóknarprests í Keflavík og verður undirskriftarlistinn afhentur dóms- og kirkjumálaráðherra í dag. Innlent 12.4.2006 11:02
Verðbólga orðin 5,5 prósent á ársgrundvelli Verðbólga í landinu er nú 5,5 prósent ársgrundvelli samkvæmt tölum Hagstofunnar sem birtar voru í morgun. Vísitala neysluverðs mælist nú 255,2 stig og hækkaði um 1,14 prósent frá fyrra mánuði. Verðbólga hefur ekki mælst hærri í fjögur ár. Innlent 12.4.2006 09:19
Vilja sleppa skatti af sjúkrastyrkjum Fjórir þingmenn stjórnarandstöðunnar hafa lagt fram lagafrumvarp um að styrkir úr sjúkra- og styrktarsjóðum stéttarfélaga verði ekki lengur skattskyldir. Fram hefur komið að nær ellefu þúsund einstaklingar greiddu rúmar 260 milljónir króna í skatta af sjúkrastyrkjum árið 2004. Innlent 11.4.2006 21:30
Holtasóley verður þjóðarblóm Ekkert virðist nú geta komið í veg fyrir að holtasóley verði valin þjóðarblóm Íslendinga. Landbúnaðarnefnd Alþingis hefur mælt með því við þingheimur samþykki þingsályktunartillögu í þessa veru. Innlent 11.4.2006 20:58
Sjálfstæðisflokkurinn í stórsókn Sjálfstæðisflokkurinn tvöfaldar fylgi sitt í Árborg og nær hreinum meirihluta samkvæmt nýrri skoðanakönnun NFS. Þrjátíu prósent kjósenda í Árborg hafa snúið baki við Samfylkingunni og Framsóknarflokknum samkvæmt könnuninni. Innlent 11.4.2006 20:20
Vilja sérkjörin burt sem fyrst Engar efndir hafa orðið á því að eftirlaunalögum yrði breytt þó ár sé síðan forsætisráðherra lofaði að það yrði gert. Þetta sagði Helgi Hjörvar, þingmaður Samfylkingar, á þingi í dag og deildi á forsætisráðherra sem sagði málið ekki stranda á sér. Innlent 11.4.2006 17:15
Engin ágreiningur um varnarmál Forsætisráðherra og utanríkisráðherra segja engan ágreining sín á milli um varnarmál. Stjórnarandstæðingar sökuðu utanríkisráðherra um að upplýsa ritstjóra Morgunblaðsins betur um gang varnarviðræðna við Bandaríkin en utanríkismálanefnd. Innlent 11.4.2006 16:01
Stýrivextir gætu farið í 16 prósent Stýrivextir Seðlabankans geta farið í allt að sextán prósent að því er fram kemur í viðtali viðskiptavefsins Bloomberg við Davíð Oddsson Seðlabankastjóra. Davíð segist reiðubúinn að hækka stýrivexti verulega ef þess gerist þörf til að halda aftur af verðbólgu. Innlent 10.4.2006 16:49
Aðgerðaleysi ráðherra gagnrýnt Stjórnarandstæðingar deildu hart á heilbrigðis- og fjármálaráðherra við upphaf þingfundar í dag. Þeir gagnrýndu ráðherrana fyrir aðgerða- og úrræðaleysi þegar kæmi að því að leysa stöðuna á hjúkrunarheimilum og óskuðu eftir því að forsætisráðherra hlutaðist til um málið. Innlent 10.4.2006 16:26
Framsóknarmenn vilja flugvöllinn á Löngusker Framsóknarmenn í Reykjavík boða þjóðarsátt í flugvallarmálum með því flytja Reykjavíkurflugvöll úr Vatnsmýrinni og út á Löngusker. Flokkurinn stefnir að því að ná tveimur borgarfulltrúm þrátt fyrir að gengi flokksins hafi verið afar slakt í skoðanakönnum. Innlent 9.4.2006 18:37
Samfylkingin vill öldrunarmálin úr höndum ríkisstjórnarinnar Oddvitar beggja stjórnarflokkanna fyrir borgarstjórnarkosningarnar í vor vilja að ríkisstjórnin taki strax á þeim vanda sem uppi er á dvalarheimilum aldraðra. Samfylkingin í Reykjavík vill hins vegar taka öldrunarmálin algerlega úr höndum ríkisstjórnarinna. Innlent 9.4.2006 18:26
Oddvitar vilja lausn í dvalarheimilismáli sem allra fyrst Oddvitar beggja stjórnarflokkanna fyrir borgarstjórnarkosningarnar í vor telja ótækt að ekki hafi verið tekið þeim vanda sem upp er á dvalarheimilum aldraðra. Þeir vænta þess að málin verði leyst á næstu dögum. Innlent 9.4.2006 13:49
Bæjarstjórinn segist hreinlega hafa verið hafnað Bæjarstjóri Hornafjarðar náði einungis þriðja sæti í prófkjöri sjálfstæðismanna í bænum í gær. Bæjarstjórinn segist líta svo á að honum hafi einfaldlega verið hafnað. Innlent 9.4.2006 12:34