Stj.mál
130 131 132 133 134 135 136 137 138 … 187 ›
Wolfowitz ekki í Alþjóðabankann Paul Wolfowitz, aðstoðarvarnarmálaráðherra Bandaríkjanna, verður ekki næsti forseti Alþjóðabankans. Fráfarandi forseti bankans, James Wolfensohn, lýsti þessu yfir í Brussel í dag. Erlent 13.10.2005 18:51
Fólk velji skatthlutfallið sjálft Leyfa ætti sveitarfélögum að ákveða sjálf hve hátt útsvar þeirra sé, segir Gunnlaugur Júlíusson sviðsstjóri hag- og upplýsingasviðs Sambands íslenskra sveitarfélaga. Slíkt þekkist til dæmis í Danmörku og Svþjóð. Kosningar marka þá stefnu sem íbúarnir vilji í þeim efnum. Innlent 13.10.2005 18:51
Vill ekki hætta með samræmd próf Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra sagði í fyrirspurnartíma á Alþingi í gær að hún teldi ekki rétt að hætta samræmdum prófum í grunnskóla. Þessi skoðun ráðherra gengur þvert á ályktun Félags grunnskólakennara í síðustu viku sem vill hætta að prófa grunnskólanemendur með þessum hætti. Innlent 13.10.2005 18:51
Siv réðst að utanríkisráðherra Siv Friðleifsdóttir réðst að utanríkisráðherra í þinginu í dag vegna ummæla hans um Evrópustefnu Framsóknarflokksins. Víst væri um tímamót að ræða. Hún spurði sig um andrúmsloftið á stjórnarheimilinu; hvaða skilaboð væri verið að senda forsætisráðherra. Innlent 13.10.2005 18:51
Rússar bætast í hóp gagnrýnenda Enn eykst þrýstingur á sýrlensk stjórnvöld að hverfa á brott með hersveitir sínar frá Líbanon. Sergej Lavrov, utanríkisráðherra Rússlands, hefur nú bæst í hóp gagnrýnenda en hingað til hafa Rússar verið álitnir einir sterkustu bandamenn Sýrlendinga. Erlent 13.10.2005 18:51
Íslenskir dómstólar hlíti EFTA Í frumvörpum um breytingu á samkeppnislögum er ákvæði sem segir að íslenskir dómstólar verði að hlíta niðurstöðum Eftirlitsstofnunar EFTA í samkeppnismálum er varða Evrópska efnahagssvæðið. Iðnaðarráðherra segir það ekki brot á ákvæði í stjórnarskrá er varði sjálfstæði dómstólanna. </font /></b /> Innlent 13.10.2005 18:51
Fylgi Framsóknar aldrei minna Fylgi Framsóknarflokksins er í sögulegu lágmarki, samkvæmt nýrri könnun þjóðarpúls Gallups sem birt var á RÚV í gær. Fylgi flokksins mælist nú rúmlega 10% og hefur minnkað um þrjú prósentustig frá síðustu könnun. Innlent 13.10.2005 18:51
Vilja afsögn forseta Líbanons Lykilmenn innan stjórnarandstðunnar í Líbanon vilja að Emile Lahoud, forseti landsins, segi af sér og feti þar með í fótspor ríkisstjórnar landsins sem óvænt sagði af sér í fyrradag. Háttsettur maður innan stjórnarandstöðunnar sagði í viðtali við fréttastofu Al-jazeera í gær að afsögn forsetans myndi skapa nýjan kafla í samskiptum Líbanons við Sýrland. Erlent 13.10.2005 18:51
Framtíð Varnarliðsins rædd Embættismannaviðræður um framtíð Varnarliðsins hefjast á næstunni og gerir Davíð Oddsson utanríkisráðherra ráð fyrir að niðurstaða fáist á árinu. Hann og Condoleezza Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, ræddust við í fyrradag um framhald viðræðna. Innlent 13.10.2005 18:51
Engin samkeppni á lyfjamarkaði Valgerður Sverrisdóttir viðskiptaráðherra segir enga samkeppni á lyfjamarkaði á Íslandi. Samkeppnislögin séu mjög ströng hvað varðar markaðsráðandi fyrirtæki. Hún segir Samkeppnisstofnun hins vegar ekki fyrir verkum. Innlent 13.10.2005 18:51
Ekki nauðsynlegt að þýða öll lög Frá og með áramótum verða íslensk stjórnvöld ekki lengur skuldbundin til að þýða á íslensku öll lög og reglugerðir sem gilda hér á landi. Frumvarp dómsmálaráðherra, sem afnemur þýðingarskylduna, var í dag samþykkt sem lög frá Alþingi. Innlent 13.10.2005 18:51
Upplýsingar um brot Írana Bandaríkjamenn krefjast þess að Alþjóða kjarnorkumálastofnunin veiti öryggisráði Sameinuðu þjóðanna upplýsingar um brot Írana á kjarnorkusáttmálum og segir sendiherra Bandaríkjanna við stofnunina að henni beri skylda til þess að gera ráðinu viðvart. Erlent 13.10.2005 18:51
Íslendingar flytja vopn til Íraks Ríkisstjórnin hefur boðist til að flytja 500 tonn af vopnum og skotfærum til Íraks á vegum NATO. Davíð Oddsson utanríkisráðherra upplýsti þetta á Alþingi í gær við umræður utan dagskrár um stuðning Íslands við þjálfun íraskra öryggissveita. Innlent 13.10.2005 18:51
Þrjár nýjar stofnanir Í nýjum frumvörpum um breytingu á samkeppnislögum er lagt til að í stað Samkeppnisstofnunar verða til tvær stofnanir, Samkeppniseftirlitið og úrskurðarnefnd samkeppnismála. Að auki verður sett á fót Neytendastofa. Innlent 13.10.2005 18:51
Engin stefnubreyting Ályktun Framsóknarflokksins um hugsanlegan undirbúning aðildarviðræðna við Evrópusambandið breytir engu um stefnu stjórnvalda og markar engin tímamót, að sögn Davíðs Oddssonar utanríkisráðherra. Innlent 13.10.2005 18:51
Heimild yfirvalda felld niður Heimild samkeppnisyfirvalda til að bregðast við aðstæðum sem skaða samkeppni er felld niður samkvæmt lagafrumvörpum sem viðskiptaráðherra lagði fram í dag. Innlent 13.10.2005 18:51
Fagna hlutdeild einkaaðila Frjálshyggjufélagið fagnar hugmyndum um aukna hlutdeild einkaaðila í rekstri orkufyrirtækja. Það segir aðild einkaaðila til þess fallna að styrkja greinina, auka þróun og koma í veg fyrir óskynsamlegar og óarðbærar fjárfestingar. Innlent 13.10.2005 18:51
Ánægja með frumvarpið "Við erum almennt ánægðir með þessa stjórnvaldsbreytingu og teljum að hún muni verða til góðs," segir Ari Edwald, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, vegna frumvarps Valgerðar Sverrisdóttur iðnaðar- og viðskiptaráðherra um sameiningu Samkeppnisráðs og Samkeppnistofnunnar í Samkeppniseftirlitið og stofnun Neytendastofu. Innlent 13.10.2005 18:51
Stjórnandi Hong Kong segir af sér Tung Chee-hwa, stjórnandi Hong Kong, hefur sagt af sér embætti. Tung var ákaflega óvinsæll stjórnandi og héldu íbúar Hong Kong hver mótmælin á fætur öðrum til að sýna andstöðu sína við stjórn hans. Afsögnin fylgir í kjölfar þess að Tung fékk ávítur frá Peking fyrir slælega stjórnunarhætti. Erlent 13.10.2005 18:51
R-listinn sveik loforð Ólafur F. Magnússon, borgarfulltrúi F-lista, segir R-lista hafa rofið heiðursmannasamkomulag sem laut að því að hann fengi að leggja fram tillögu um endurskoðun á niðurrifi gamalla húsa við Laugarveg á fundi borgarstjórnar í dag. Innlent 13.10.2005 18:51
Sýrlendingar hindra lýðræðisþróun Það hitnar undir Sýrlendingum. Bandaríkjamenn saka þá um að hindra lýðræðisþróun og í Líbanon magnast óánægja með afskipti Sýrlendinga þar. Erlent 13.10.2005 18:51
Ísland flytur vopn til Íraks Íslensk stjórnvöld hafa tekið að sér að flytja 500 tonn af vopnum og skotfærum til Íraks á vegum NATO. Davíð Oddsson utanríkisráðherra sagði í umræðum á Alþingi nú síðdegis að meginhluti af framlagi Íslands til Íraks færi þó í neyðar- og mannúðaraðstoð. Erlent 13.10.2005 18:51
Draumar um virðingu sjálfsagðir Viðhorf þriggja þingmanna úr ólíkum flokkum varðandi stefnu stjórnvalda að sækjast eftir sæti í öryggisráði Sameinuðu þjóðanna eru um margt lík. Íslendingar hafi þá stöðu í heiminum að við getum haft áhrif. Þó var deilt um hvort kostnaðurinn væri þess virði. </font /></b /> Innlent 13.10.2005 18:50
Breikkun ekki á döfinni Ekki er gert ráð fyrir frekari breikkun þjóðvegsins milli Reykjavíkur og Selfoss á næstunni ef undan er skilin breikkun vegarkafla yfir Svínahraun. Umferðin um veginn hefur nær tvöfaldast á áratug.</font /></b /> Innlent 13.10.2005 18:50
VG segir borgarstjóra í rétti Deilt var um það á fundi borgarstjórnar í gær, hvort Steinunn Valdís Óskarsdóttir borgarstjóri hefði haft umboð til að skrifa undir viljayfirlýsingu um að ganga til viðræðna við ríkið um sölu á hlut Reykjavíkurborgar í Landsvirkjun. Innlent 13.10.2005 18:50
Hópur ungs fólks gegn ríkisáfengi Þverpólitísk samtök ungs fólks um bætta vínmenningu verða stofnuð í Iðnó á hádegi í dag. Forsvarsmenn samtakanna segja framfaraskref í bættri vínmenningu hafa verið stigið með sölu bjórs á landinu. Nú sé kominn tími á að stíga næsta skref og lækka áfengisgjald og afnema einkasölu á bjór og léttvíni. Innlent 13.10.2005 18:50
Viðgerð er ofarlega á dagskrá Það blasir við að ráðast þarf í margvíslegar endurbætur á Þjóðleikhúsinu, segir Steingrímur Sigurgeirsson, aðstoðarmaður menntamálaráðherra. Ekki hefur þó verið ákveðið hvenær lagt verður til fjármagn í þær endurbætur, en slík fjárúthlutun er ofarlega á lista hjá menntamálaráðuneytinu. Innlent 13.10.2005 18:50
Vildu láta reyna á meirihluta Sjálfstæðismenn báru fram tillögu á borgarstjórnarfundi í dag um að viljayfirlýsing borgarstjórnar og ríkisstjórnarinnar um sölu á hlut Reykjavíkur og Akureyrar í Landsvirkjun yrði borin undir atkvæði. Komið hefði fram andstaða hjá vinstri - grænum sem skapaði óvissu um hvort meirihluti væri fyrir málinu. Borgarstjóri segir það af og frá. Innlent 13.10.2005 18:50
Vill draga úr niðurrifi húsa Ólafur F. Magnússon, borgarfulltrúi F-listans, ætlar að leggja fram tillögu á fundi borgarstjórnar í dag um að nýjum starfshópi verði komið á fót til að endurskoða deiliskipulag við Laugaveg. Markmið endurskoðunarinnar verði að draga úr þeim víðtæku heilmildum til niðurrifs gamalla húsa við Laugaveg sem ætlunin sé að veita. Innlent 13.10.2005 18:50
Segir Gunnar skorta reynslu Guðjón Arnar Kristjánsson, formaður Frjálslynda flokksins, segist telja Gunnar Örlygsson efnilegan stjórnmálamenn en hann skorti reynslu til að fara í varaformannsembættið á landsþingi flokksins um næstu helgi. Hann segir að afbrot hans hafi verið flokknum erfið en fagnar því að málarekstrinum sé lokið. Innlent 13.10.2005 18:50