Ítalski boltinn

Nesta fer aftur í bakuppskurð
Forráðamenn AC Milan hafa staðfest að varnarmaðurinn Alessandro Nesta muni gangast undir aðgerð vegna bakmeiðsla í fyrramálið, þar sem skurðlæknar munu freista þess að bjarga ferli hins 32 ára gamla fyrrum landsliðsmanns.

Galaxy og Milan enn í viðræðum
Sky fréttastofan segist hafa heimildir fyrir því að viðræður milli LA Galaxy og AC Milan vegna David Beckham séu enn lifandi þrátt fyrir að frestur sem gefin var til að klára málið hafi runnið út á föstudaginn.

Beckham tregur til að fara til Bandaríkjanna
Enski landsliðsmaðurinn David Beckham segist vera tregur til að snúa aftur til LA Galaxy í Bandaríkjunum eftir vel heppnaðar vikur sem lánsmaður hjá AC Milan á Ítalíu.

Inter vann borgarslaginn
Inter vann 2-1 sigur á AC Milan í borgarslagnum í Mílanó er liðin mættust í ítölsku úrvalsdeildinni í kvöld.

Íslendingar erlendis: Haraldur fékk rautt
Haraldur Freyr Guðmundsson fékk að líta rauða spjaldið er lið hans á Kýpur, Apollon Limassol, tapaði fyrir APOEL Nikosia á heimavelli, 1-0.

Beckham-sagan ekki öll
Forráðamenn AC Milan neita að játa sig sigraða í slagnum um David Beckham sem er í láni hjá félaginu frá LA Galaxy í Bandaríkjunum.

Beckham fer aftur til Bandaríkjanna
Forráðamenn LA Galaxy segja að ekkert verði af því að David Beckham verði seldur til AC Milan á Ítalíu eftir að síðarnefnda félagið náði ekki að koma með ásættanlegt tilboð í Beckham á tilsettum tíma.

Nesta úr leik enn eina ferðina?
Ítalskir fjölmiðlar greina frá því að varnarmaðurinn Alessandro Nesta hjá AC Milan hafi ekki komist fram úr rúminu vegna bakverkja í morgun.

1,7 milljarðar fyrir Beckham
Samkvæmt enskum fjölmiðlum mun AC Milan leggja fram tilboð í David Beckham upp á 11,6 milljónir evra eða 1,7 milljarða króna.

Zarate búinn að semja við Lazio
Eftir því sem umboðsmaður Argentínumannsins Mauro Zarate segir hefur hann náð samkomulagi við Lazio um að gera fimm ára samning við félagið.

Mál Beckham þurfa að leystast á morgun
Don Garber, forráðamaður bandarísku MLS-deildarinnar, segir að niðurstaða þurfi að koma í mál David Beckham í síðasta lagi á morgun.

City-mennirnir sáu um Ítalíu
Brasilía og Ítalía áttust við í vináttulandsleik á Emirates-vellinum í Lundúnum í kvöld. Þessar sigursælu þjóðir höfðu ekki mæst í landsleik síðan 1997 þegar kom að leiknum í kvöld.

Scolari reyndi að fá Adriano
Umboðsmaður brasilíska sóknarmannsins Adriano hefur opinberað það að Chelsea reyndi að fá leikmanninn í janúarglugganum. Adriano er hjá ítalska liðinu Inter en hann var orðaður við Chelsea og Tottenham í síðasta mánuði.

Poulsen tryggði Juventus sætan sigur
Varamaðurinn Christian Poulsen var hetja Juventus í dag þegar hann tryggði liði sínu 2-1 útisigur á Catania. Poulsen skoraði sigurmarkið í uppbótartíma eftir að Juventus hafði spilað með 10 menn frá 12. mínútu.

Kaka frá keppni í hálfan mánuð
Miðjumaðurinn sókndjarfi Kaka hjá AC Milan getur ekki leikið með liði sínu næstu tvær vikurnar vegna meiðsla ef marka má tilkynningu frá félaginu í dag.

Átta stiga forysta hjá Inter
Internazionale náði í gærkvöldi 8 stiga forystu á erkifjendur sína í AC Milan í ítölsku A-deildinni í knattspyrnu.

Galaxy vill fá eitthvað fyrir sinn snúð
Forráðamenn LA Galaxy eru tilbúnir að ræða þann möguleika að láta enska landsliðsmanninn David Beckham eftir til AC Milan, en aðeins gegn sanngjörnu verði.

Del Piero íhugar að fara í mál við Facebook
Ítalski knattspyrnumaðurinn Alessandro Del Piero hjá Juventus er sagður íhuga að fara í mál við samskiptavefinn vinsæla Facebook eftir að síða með nasistaáróðri í hans nafni var stofnuð á netinu.

Arena útilokar ekki að Beckham fari til Milan
Bruce Arena, þjálfari LA Galaxy í Bandaríkjunum, virðist vera á góðri leið með að sætta sig við að David Beckham muni skipta yfir til AC Milan á Ítalíu.

Beckham: Þetta snýst ekki um peninga
David Beckham hefur gefið það upp að hann sé tilbúinn að horfa á eftir háum peningaupphæðum gegn því að fá að upplifa drauminn að spila áfram með AC Milan.

Beckham vill vera áfram hjá Milan
David Beckham viðurkenndi í kvöld að hann vilji hætta hjá LA Galaxy og fara til AC Milan þar sem hann er í láni nú.

Lögmenn Beckham í viðræðum við Galaxy
Lögmenn knattspyrnumannsins David Beckham eru nú í viðræðum við forráðamenn LA Galaxy með það fyrir augum að framlengja lánssamning hans við AC Milan á Ítalíu.

Amauri: Spila bara fyrir Brasilíu
Sóknarmaðurinn Amauri hjá Juventus hefur gefið það út að hann muni ekki klæðast ítalska landsliðsbúningnum og bíður eftir því að fá tækifæri með landsliði Brasilíu.

Victoria til í að flytja til Mílanó
David Beckham hefur ekki farið leynt með þá ósk sína að hann vill vera til frambúðar hjá AC Milan. Fréttir bárust af því að Victoria, eiginkona hans, væri þó ekki til í að yfirgefa Los Angeles en þær fréttir virðast ekki réttar.

Galliani: Beckham vill vera áfram hjá Milan
David Beckham vill vera áfram hjá AC Milan og hætta við að snúa aftur til LA Galaxy þegar lánstíma hans á Ítalíu lýkur 9. mars.

Beckham í Evrópuhóp Milan
Orðrómurinn um að David Beckham muni ganga varanlega í raðir AC Milan varð enn háværari í mörgun þegar spurðist út að enski landsliðsmaðurinn hefði verið tekinn inn í hóp Milan fyrir lokasprettinn í Evrópukeppni félagsliða.

Leikmaður Roma á sjúkrahús eftir áflog
Franski varnarmaðurinn Philippe Mexes hjá Roma var fluttur á sjúkrahús í gærkvöld eftir að hafa lent í átökum á næturklúbbi í Róm.

Beckham lagði upp tvö í sigri AC Milan
David Beckham lagði upp tvö mörk í 3-0 sigri AC Milan á Lazio á útivelli í ítölsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í kvöld.

Inter gerði jafntefli á heimavelli
Inter mátti sætta sig við jafntefli gegn Udinese á heimavelli í ítölsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag. Bæði lið skoruðu eitt mark.

Inter bætti í forskotið - Beckham skoraði aftur
Inter náði í kvöld sex stiga forskoti á toppi ítölsku A-deildarinnar þegar liðið vann 2-0 sigur á Siena á Sikiley þrátt fyrir að vera manni færri allan síðari hálfleik.