Hernaður
1 2 3 4 5 6 7 8 9 … 55 ›
Leggur til að beita hernum gegn andstæðingum sínum Donald Trump, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, segist mögulega vilja siga þjóðvarðliði ríkisins eða bandaríska hernum, gegn „innri óvinum“. Fólki sem hann lýsti um helgina sem „öfga-, vinstri geðsjúklingum“ en slíka orðræðu hefur hann ítrekað notað um pólitíska andstæðinga sína. Erlent 14.10.2024 14:01
Nota óbreytta Palestínumenn til að leita að sprengjum og gildrum Ísraelskir hermenn hafa ítrekað notað óbreytta Palestínumenn sem handsamaðir eru á Gasaströndinni sem mennska skildi, meðal annars með því að þvinga þá til að fara inn í byggingar og leita að sprengjum og gildrum. Tilfellum sem þessum hefur farið fjölgandi. Erlent 14.10.2024 10:19
Fjórir létust og sjö særðust alvarlega í árás á ísraelska herstöð Fjórir hermenn Ísraelshers létust og sjö særðust alvarlega í drónaárás Hezbollah á herstöð nærri Binyamina í gær. Um var að ræða hefndarárás vegna árása Ísraels á Beirút á fimmtudag, þar sem 22 létu lífið. Erlent 14.10.2024 06:48
Vill friðargæsluliðið út úr Suður-Líbanon strax Forsætisráðherra Ísraels krefst þess að framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna dragi friðargæslulið þeirra frá Líbanon nú þegar. Tugir ríkja hafa fordæmt árásir Ísraela á friðargæsluliðana undanfarna daga. Erlent 13.10.2024 13:15
Segja átta manna fjölskyldu hafa fallið í loftárás Ísraela Palestínsk heilbrigðisyfirvöld segja að átta manna fjölskylda í Nuseirat-flóttamannabúðunum hafi fallið í loftárás Ísraela á miðri Gasaströndinni seint í gærkvöldi. Ísraelar hafa skipað hátt í hálfri milljón manna að rýma norðanverða Gasa. Erlent 13.10.2024 08:20
Eftirlifendur kjarnorkusprengjanna hlutu friðarverðlaun Nóbels Japönsku samtökin Nihon Hidankyo sem voru stofnuð af eftirlifendum kjarnorkuárásanna á Hiroshima og Nagasaki hljóta friðarverðlaun Nóbels í ár. Verðlaunin fá þau fyrir baráttu sína fyrir kjarnorkuvopnalausum heimi og fyrir að sýna með eigin vitnisburði hvers vegna aldrei megi beita kjarnavopnum aftur. Erlent 11.10.2024 09:05
Banvænustu árásirnar í miðborg Beirút hingað til Ísraelski herinn gerði í kvöld tvær banvænar loftárásir á Beirút, höfuðborg Líbanon. Heilbrigðisráðuneyti landsins segir 22 liggja í valnum og að minnsta kosti 117 hafa særst í árásunum en það gerir árásirnar þær banvænustu í miðborg Beirút hingað til í átökum undanfarins árs. Erlent 10.10.2024 23:09
Biden og Netanyahu ræddu aðgerðir Ísrael gegn Íran Joe Biden Bandaríkjaforseti og Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels, ræddust við í síma í gær, í fyrsta sinn í sjö vikur. Erlent 10.10.2024 07:37
Sprengdu upp vöruskemmu fulla af drónum Úkraínumenn gerðu í kvöld árás á vöruskemmu í sunnanverðu Rússlandi sem þeir segja að hafi hýst fjögur hundruð Shahed-sjálfsprengidróna. Myndbönd sem birt hafa verið á samfélagsmiðlum í Rússlandi renna stoðum undir frásögn úkraínska hersins. Erlent 9.10.2024 22:34
Biden mun freista þess að leggja Netanyahu línurnar varðandi Íran Joe Biden Bandaríkjaforseti mun ræða við Benjamin Netanyahu, forsætisráðherra Ísrael, í gegnum síma í dag um fyrirhugaðar árásir Ísrael á Íran. Erlent 9.10.2024 06:37
Segja hermenn Kim líklega á leið til liðs við Rússa Hermenn frá Norður-Kóreu verða líklega sendir til liðs við rússneska hermenn í Úkraínu. Sex hermenn frá einræðisríkinu einangraða eru þar að auki sagðir hafa fallið í eldflaugaárás í Úkraínu fyrr í mánuðinum. Erlent 8.10.2024 19:32
Segja Hezbollah höfuðlaus eftir dauða arftaka Nasrallah Forsvarsmenn ísraelska hersins sögðu í dag að Hashem Safieddine, einn af leiðtogum Hezbollah sem talið var að ætti að taka við af Hassan Nasrallah, væri líklega dáinn. Ekkert hefur heyrst af honum frá því Ísraelar gerðu loftárás í Dahiyeh, úthverfi Beirút, í síðustu viku. Erlent 8.10.2024 17:58
Ekkert lát á aðgerðum Ísraelshers gegn Hamas og Hezbollah Ísraelsher gerði umfangsmiklar árásir á Líbanon í gær og sendi meðal annars fjölda herþota gegn um 120 skotmörkum í suðurhluta landsins. Þá voru skömmu síðar gerðar árásir á úthverfin suður af Beirút síðar um daginn. Erlent 8.10.2024 06:40
Skutu niður eigin dróna yfir Úkraínu Flugmaður rússneskrar herþotu skaut á laugardaginn niður sjaldgæfan rússneskan dróna yfir Úkraínu. Svo virðist sem að Rússar hafi verið að nota drónann, sem er búinn tækni svo hann sést verr á ratsjám, til að varpa svifsprengjum á Úkraínu þegar þeir misstu stjórn á honum. Erlent 7.10.2024 21:33
Eitt ár frá upphafi stríðsins á Gasa Eitt ár er liðið frá innrás Hamas-samtakanna í Ísrael, þegar tólf hundruð voru myrt og 250 teknir föngnum og færðir í böndum inn á Gasaströndina. Erlent 7.10.2024 06:29
Lýsa nóttinni sem skelfilegri Upphafi skólaárs hefur verið frestað í Líbanon vegna öryggisógnar í landinu. Íbúar í Beirút lýsa nóttinni sem skelfilegri vegna loftárása Ísraelsmanna sem eru sagðar þær umfangsmestu á svæðinu frá upphafi átakanna. Erlent 6.10.2024 18:50
Huldukona í lykilhlutverki í lygilegu ráðabruggi um símboðana Talið er að hátt í þrjú þúsund Hezbollah-liðar hafi látið lífið eða verið limlestir ásamt óþekktum fjölda óbreyttra borgara þegar fjöldi símboða sprakk þann 17. september síðastliðinn. Það var Mossad, ísraelska leyniþjónustan, sem bar ábyrgð á verknaðinum sem hafði verið í undirbúningi í um tvö ár. Erlent 6.10.2024 12:23
Versnandi ástand í Pokrovsk Rússar gera ítrekaðar árásir á bæinn Pokrovsk í austurhluta Úkraínu og eru helstu innviðir bæjarins, þar sem um þrettán þúsund manns búa, ónýtir. Hersveitir Rússa eru um sjö kílómetra frá bænum, sem er mikilvæg birgðamiðstöð fyrir úkraínska herinn og óbreytta borgara í Dónetsk-héraði. Erlent 4.10.2024 15:12
Gerðu árás á landamærastöð þar sem tugir þúsunda hafa flúið Ísraelar vörpuðu í morgun sprengjum á landamærastöð milli Líbanon og Sýrlands. Tugir þúsunda hafa flúið yfir landamærin þar á undanförnum dögum en yfirvöld í Líbanon segja um 1,2 milljónir manna hafa þurft að flýja heimili sín. Erlent 4.10.2024 11:00
Arftaki Nasrallah sagður drepinn í árás Ísraela Hachem Safieddine, sem búist var við að tæki við sem leiðtogi Hezbollah-hryðjuverkasamtakanna, er sagður hafa fallið í eldflaugaáraás í úthverfi Beirút, höfuðborgar Líbanon. Erlent 4.10.2024 00:12
Segja íbúum tuttugu og fimm þorpa að flýja Ísraelski herinn sagði íbúum 25 bæja og þorpa í sunnanverðu Líbanon í dag að yfirgefa heimili sín. Byggðirnar eru norður af Litani-á en hún markar svæði sem átti að vera nokkurs konar hlífðarsvæði samkvæmt ályktun öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna frá 2006 og þykir yfirlýsingin til marks um mögulega útvíkkun innrásar Ísraela í Líbanon. Erlent 3.10.2024 16:18
Fyrsta heimsókn Rutte til Úkraínu Mark Rutte, nýr framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins og fyrrverandi forsætisráðherra Hollands, er í heimsókn í Kænugarði í Úkraínu. Þetta er fyrsta opinbera ferð Rutte frá því hann tók við embættinu á þriðjudaginn en hún var ekki opinberuð fyrr en hann var kominn þangað í morgun. Erlent 3.10.2024 12:13
Íhuga árásir á olíuvinnslur og kjarnorkustöðvar í Íran Joe Biden, forseti Bandaríkjanna, sagði í gær að hann væri ekki hlynntur því að Ísraelar gerðu loftárásir á kjarnorkurannsóknarstöðvar í Íran. Ísraelar eru sagðir íhuga slíkar árásir eftir að íranski herinn skaut um tvö hundruð skotflaugum að Ísrael á þriðjudaginn. Erlent 3.10.2024 12:02
Rússar reyndu að skjóta niður ísraelskar stýriflaugar Ísraelar gerðu í nótt árás á meinta vopnageymslu við hlið rússneskrar herstöðvar í Sýrlandi í nótt. Rússar reyndu að skjóta ísraelskar stýriflaugar niður en engin þeirra hæfði herstöðina sjálfa. Erlent 3.10.2024 09:59
Verulegar líkur á að stórt stríð brjótist út í Miðausturlöndum Arnór Sigurjónsson, sérfræðingur í varnarmálum, telur verulegar líkur á því að stórt stríð breiðist út í Miðausturlöndum. Erlent 2.10.2024 19:29
Bera hefndaraðgerðir undir Bandaríkin Bandaríska fréttavefsíðan Axios hefur eftir háttsettum embættismanni í Ísrael að þarlend yfirvöld kunni að hefna fyrir umfangsmikla árás Íran í gær með árás á olíuframleiðslu Írana og aðra mikilvæga innviði. Erlent 2.10.2024 10:25
Engar fregnir af mannfalli í Ísrael Enn er fátt vitað um skaðann af umfangsmikilli eldflaugaárás Íran á Ísrael í gær en engar tilkynningar hafa borist um dauðsföll eða meiðsl á fólki. Einn lést á Vesturbakkanum. Erlent 2.10.2024 06:34
Netanyahu heitir hefndum Benjamin Netanyahu forsætisráðherra Ísraels, segir að Íran hafi gert mikil mistök í kvöld, og muni gjalda þess. Þetta sagði hann á fundi öryggisráðs Ísrael í Jerúsalem skömmu eftir árásina. Erlent 1.10.2024 23:23
Fjöldi skotflauga lenti í Ísrael Að minnsta kosti tvö hundruð skotflaugum var skotið að Ísrael frá Íran í dag. Viðvörunarlúðrar ómuðu víðsvegar í Ísrael og er útlit fyrir að þó nokkrar þeirra hafi náð í gegnum loftvarnir Ísraela og brak úr mörgum féll til jarðar. Erlent 1.10.2024 16:43
Segja eldflaugaárás frá Íran væntanlega Forsvarsmenn ísraelska hersins hafa ákveðið að kalla út fjögur stórfylki af varaliði vegna átakanna við landamærin Ísrael og Líbanon. Hermennirnir eiga að verða sendir að landamærunum en Ísraelar hafa verið að gera loftárásir og áhlaup yfir landamærin þar sem sérsveitarmenn eru sagðir hafa farið inn í göng og hella sem eiga að hafa verið í notkun af vígamönnum Hezbollah. Erlent 1.10.2024 14:10