Ástin á götunni

Fréttamynd

Fyrirliði Stoke vill komast burtu

Fyrirliði Stoke City, Clive Clarke, er á leið frá félaginu. Hann er ekki ánægður með stjórnarhætti Gunnars Þórs Gíslasonar, stjórnarformanns, og segir hann ekki taka ákvarðanir með velferð Stoke City í huga.

Sport
Fréttamynd

Viera fundar með Wenger í vikunni

Framtíð miðjumannsins franska, Patrick Viera hjá Arsenal, ræðst væntanlega í þessari viku, því hann hefur óskað eftir fundi með Arsene Wenger knattspyrnustjóra sínum til að ræða málin.

Sport
Fréttamynd

ÍBV og Fram í kvöld

ÍBV og Fram mætast í kvöld í Landsbankadeild karla í knattspyrnu en leikið verður í Eyjum og hefst leikurinn klukkan 19.15. ÍBV er í fallsæti með aðeins sex stig en Framarar eru rétt fyrir ofan með átta stig. 

Sport
Fréttamynd

Real Madrid vill skipta

Real Madrid er tilbúið að bjóða Michael Owen í skiptum fyrir varnarmanninn Rio Ferdinand en Ferdinand hefur enn ekki skrifað undir nýjan samning hjá United.

Sport
Fréttamynd

Liverpool Wrexham 4-3

Evrópumeistarar Liverpool unnu Wrexham ,4-3, í æfingaleik en nokkrir upphitunarleikir fyrir komandi knattspyrnutímabil fóru fram í gær. Fernando Morientes og Milan Baros skoruðu mörk Liverpool en félagið gekk frá kaupum á miðvallarleikmanninum Mohamed Sissoko frá Valencia í gær fyrir fimm og hálfa milljón punda.

Sport
Fréttamynd

Figo dreymir um Liverpool

Knattspyrnumaðurinn Luis Figo hjá Real Madrid segir það draum sinn að leika með Liverpool. Figo og Liverpool hafa að sögn sögn fjölmiðla samið um kaup og kjör en Madrídingar vilja fá tvær milljónir punda fyrir leikmanninn sem á eitt ár eftir af samingi sínum.

Sport
Fréttamynd

Liverpool og Chelsea vilja Gallas

Umboðsmaður varnarmannsins Williams Gallas hjá Chelsea segir að Liverpool og Barcelona vilji kaupa leikmanninn en Chelsea er ekki tilbúið að selja hann.

Sport
Fréttamynd

Önnur deild í gær

Tveir leikir voru í annarri deild karla í gær. Leiknir Reykjavík og Fjarðarbyggð gerðu 1-1 jafntefli og Huginn Seyðisfirði bar sigurorð af ÍR 2-1. Leiknir er efst með 20 stig en Fjarðarbyggð er í öðru sæti með 15 stig. Stjarnan og Njarðvík mætast í dag klukkan 18 á Stjörnuvelli.

Sport
Fréttamynd

Úrslit fyrstu deildar í gær

Þrír leikir voru í fyrstu deild karla í fótbolta í gær. Víkingur Ólafsvík vann óvæntan útisigur á Þór 4-2. Eyþór Páll Ásgeirsson skoraði tvö mörk, Slavisa Mitic og Hermann Geir Þórsson sitt markið hvor fyrir Ólsara. Lárus Orri Sigurðsson og Arnljótur Ástvaldsson skoruðu fyrir Þórsara.

Sport
Fréttamynd

Naumur sigur hjá Liverpool

Liverpool vann í dag nauman 4–3 sigur á 2. deildarliði Wrexham í fyrsta æfingaleik tímabilsins en jafnframt þeim eina fyrir leik liðsins gegn Total Network Solutions frá Wales í undankeppni Meistaradeildarinnar í næstu viku.

Sport
Fréttamynd

Ronaldinho gerir risasamning

Samkvæmt spænskum fjölmiðlum þá hefur Ronaldinho samþykkt nýjan risasamning við meistara Barcelona. Samingurinn verður til árins 2014 og fyrir hann fær leikmaðurinn tæplega tíu milljarða króna um 85 milljónir punda. Ronaldinho verður 34 ára þegar samningum lýkur.

Sport
Fréttamynd

Kaup á leikmönnum í enska boltanum

Everton hefur boðið í brasilíska sóknarmanninn Edu hjá Celta Vigo en hann var í láni hjá Real Betis á síðustu leiktíð. Liverpool er einnig talið hafa áhuga á leikmanninum. Arsenal menn eru vongóðir um að landa Julio Baptista frá Sevilla á tíu milljónir punda en Manchester United og Tottenham eru einnig að reyna að ná í sóknarmanninn.

Sport
Fréttamynd

Ólafsvíkur-Víkingar skoruðu fjögur

Ólafsvíkur-Víkingar skoruðu fjögur mörk og unnu 2-4 sigur á Þór á Akureyri í 1. deild karla í dag og komust þar með upp í fjórða sæti deildarinnar. Fjölnismenn unnu einnig góðan sigur á KS og eru líka komnir upp í efri hluta deildarinnar.

Sport
Fréttamynd

Luxemburgo fær nóg

Miklar vangaveltur hafa verið uppi um framtíð nokkurra leikmanna Real Madrid á síðustu vikum og mánuðum og svo virðist sem knattspyrnustjóranum brasilíska þyki nóg komið af svo góðu.

Sport
Fréttamynd

Jafntefli Hauka og KA

Haukar og KA skildu jöfn 1-1 í fyrstu deild karla í knattspyrnu í gærkvöldi. Kristján Ómar Björnsson kom heimamönnum yfir en Hreinn Hringsson jafnaði metin fyrir Norðanmenn. KA er í þriðja sæti með 14 stig en Haukar eru í fjórða sæti með ellefu stig. Þrír leikir eru í deildinni í dag. Þór tekur á móti Víkingi Ólafsvík á Akureyrarvelli klukkan 14 og tveimur tímum síðar hefjast tveir leikir. Fjölnir- KS í Grafarvogi og Völsungur - Víkingur Reykjavík á Húsavík.

Sport
Fréttamynd

Ronaldinho seldur á tíu milljarða?

Ítalskir fjölmiðlar greina frá því um helgina að Chelsea ætli sér að gera 83 milljóna punda mettilboð í framherjann Ronaldinho hjá Barcelona. Samkvæmt heimildum ítalska blaðsins Corriere dello Sport myndi brasilíski leikmaðurinn fá níu ára samning og hafa um tíu milljónir punda í árslaun.

Sport
Fréttamynd

Vieira á leiðinni til Torínó

Ítalska stórliðið Juventus er ákveðið í því að klófesta miðjumanninn Patrick Vieira frá Arsenal. Viðræður milli félaganna tveggja hafa staðið yfir undanfarna daga og talað er um að þær þokist í rétta átt fyrir Juventus. Samkvæmt fréttum er Juventus búið að bjóða átta milljónir punda í leikmanninn.

Sport
Fréttamynd

Stefán Þórðarson skorar

Norrköbing, lið Stefáns Þórðarsonar komst í gærkvöldi í fjórðungsúrslit í sænsku bikarkeppninni í knattspyrnu, þegar liðið lagði Sundsvall 2-0, og skoraði Stefán fyrra markið. Í fjórðungsúrslitunum mætir Norrköbing, sem er í 8. sæti í 1. deild, Assyriska, sem er næstneðst í úrvalsdeildinni

Sport
Fréttamynd

Stórleikur KR og Vals í bikarnum

Dregið var í gær í fjórðungsúrslit í Visa-bikarkeppni karla. Tvö stærstu liðin í pottinum, FH og Valur, mætast ekki nú en Valsmenn fá það erfiða verkefni að heimsækja KR í Vesturbæinn á meðan að FH-ingar taka á móti bikarstemningsliðinu ÍA. </font /></b />

Sport
Fréttamynd

Saviola ekki áfram hjá Barcelona

Argentínski sóknarmaðurinn Javier Saviola leikur ekki með Barcelona á næstu leiktíð en leikmaðurinn var lánaður til Mónakó á síðustu leiktíð. Það er ekki pláss fyrir Saviola í herbúðum Spánarmeistarana en hann lék mjög vel með argentínska landsliðinu í Álfukeppninni.

Sport
Fréttamynd

KR fær Valsmenn í heimsókn

Dregið var í fjórðungsúrslit Visa-bikarkeppni karla í hádeginu á Hótel Loftleiðum í dag. Stórleikur umferðarinnar er væntanlega leikur KR og Vals þar sem Willum Þór Þórsson, þjálfari Vals, mætir sínu gamla liði í Frostaskjólinu. 1. deildarlið HK fékk heimaleik gegn Fylki.

Sport
Fréttamynd

Crespo spilar með Chelsea

Argentínski sóknarmaðurinn Hernan Crespo verður í herbúðum Englandsmeistara Chelsea á næstu leiktíð en hann var í láni hjá AC Milan á síðustu leiktíð. Milan keypti Christian Vieri á dögunum en hann lék með Inter á síðasta tímabili.

Sport
Fréttamynd

Gerrard biðst fyrirgefningar

Steven Gerrard gaf út yfirlýsingu í morgun þar sem hann lýsir ást sinni á Liverpool og biðst fyrirgefningar á hringli sínu varðandi hugsanleg félagaskipti. Hann segir einnig að félagið hafi beðið hann afsökunar á að bjóða honum ekki samning strax eftir sigurinn í Meistaradeildinni í lok maí.

Sport
Fréttamynd

GERRARD HÆTTUR VIÐ AÐ HÆTTA !

Sápuóperan um fyrirliða Liverpool, Steven Gerrard tók heldur betur óvænta stefnu í morgunsárið í morgun þegar Rick Parry stjórnarformaður Liverpool tilkynnti að Gerrard sé hættur við að yfirgefa félagið. Steven Gerrard verður sem sagt áfram hjá Liverpool og mun skrifa undir nýjan samning sem færir honum 100.000 pund í vikulaun.

Sport
Fréttamynd

HK sló bikarmeistarana út

Óvænt tíðindi urðu í 16 liða úrslitum Visa bikarkeppni karla í kvöld þegar bikarmeistarar Keflavíkur töpuðu fyrir 1. deildarliði HK, 1-0 á Kópavogsvelli. Ólafur Júlíusson skoraði sigurmarkið í síðari hálfleik. Þá vann Fylkir dramatískan sigur á Grindavík þar sem Guðni Rúnar Helgason skoraði sigurmarkið á 90. mínútu í Grindavík. Enginn leikur fór í framlengingu.

Sport
Fréttamynd

Visa-bikarkeppnin 4. júlí

KR, Valur og Akranes komust í gærkvöldi í 8-liða úrslit Visa-bikarkeppni karla í knattspyrnu.  KR-ingar mörðu sigur á 1. deildarliði Víkings í vítaspyrnukeppni. Eftir 90 mínútna leik var staðan jöfn, 3-3. 

Sport
Fréttamynd

Gerrard: Ég vil fara frá Liverpool

Nú er orðið endanlega ljóst að fyrirliði Liverpool, Steven Gerrard, er á förum frá félaginu en þetta staðfesti hann í yfirlýsingu nú síðdegis. Gerrard hafnaði launatilboði frá Liverpool upp á 100.000 pund gærkvöldi. Í yfirlýsingu frá Liverpool í dag segir að Gerrard hafi nú þegar óskað eftir því að fara frá félaginu.

Sport
Fréttamynd

Liverpool hafnar tilboði í Gerard

Liverpool hafnaði í morgun tilboði frá Chelsea í Steven Gerard.  Enskir fjölmiðlar greina frá því í morgun að tilboð Chelsea hafi numið 32 milljónum punda auk þess ætlaði Chelsea að borga þrjár milljónir í viðbót ef liðið næði ákveðnum markmiðum.  Heildarupphæðin fyrir Gerard er því rúmir 4 milljarðar íslenskra króna. 

Sport
Fréttamynd

Figo sagður semja við Liverpool

Netmiðillinn squarefootball.net greinir frá því í kvöld að portúgalski landsliðsmaðurinn Luis Figo sé genginn til liðs við Evrópumeistara Liverpool en hann hefur fengið leyfi frá Real Madrid til að yfirgefa félagið. Netmiðillinn kveðst hafa heimildir fyrir því frá innanbúðarmanni á Anfield að Figo hafi gert eins árs samning.

Sport
Fréttamynd

Enskar stjörnur til Íslands

Fjöldi stórstjarna úr ensku knattspyrnunni á árum áður er væntanlegur til landsins í byrjun nóvember til að taka þátt í alþjóðlegu knattspyrnumóti í Egilshöll. Það er gamla markamaskínan og Íslandsvinurinn Ian Rush sem stendur fyrir mótinu.

Sport