Besta deild karla
FH og Breiðablik hlunnfarin um milljónir í sölunni á Gylfa Þór
Gætu fengið aðra greiðslu vinni Utrecht mál fyrir FIFA-dómstóli.
Doumbia fékk fjögurra leikja bann
Kassim Doumbia, varnarmaður FH, hefur verið dæmdur í fjögurra leikja bann af Aganefnd KSÍ, vegna ofsafenginnar framkomu sinnar eftir leik FH og Stjörnunnar á laugardaginn. Þrjá menn þurfti til að forða fjúkandi reiðum Doumbia frá því að ráðast á Kristinn Jakobsson dómara leiksins.
Hreinsanir á Hlíðarenda - samningum þriggja leikmanna sagt upp
Valsmenn hafa sagt upp samningum við þrjá leikmenn og þar á meðal er hinn uppaldi Bjarni Ólafur Eiríksson sem hefur aldrei spilað fyrir annað íslenskt lið.
Atli Guðna: Ekki vitlaust hjá Heimi að hugsa mig þarna
FH-ingurinn Atli Guðnason er leikmaður ársins hjá Fréttablaðinu og Vísi en hann var með hæstu meðaleinkunn af öllum leikmönnum Pepsi-deildar karla í fótbolta.
Atli hæstur í einkunnagjöf Fréttablaðsins og Vísis
Í Fréttablaðinu í dag er farið yfir hvaða leikmenn stóðu sig best í Pepsi-deild karla samkvæmt einkunnagjöf Fréttablaðsins og Vísis.
Klúður, dýfur og tæklingar ársins | Myndbönd
Árlegur uppgjörsþáttur Pepsi-markanna var sýndur á laugardagskvöldið. Þar fóru Hörður Magnússon og sérfræðingar hans yfir tímabilið í máli og myndum.
Kristinn hafnaði atvinnumennsku
Bauðst að gerast atvinnudómari í öðru landi en hélt kyrru fyrir á Íslandi.
Kassim Doumbia þarf að bíða eftir niðurstöðu til morguns
Aga- og úrskurðarnefnd Knattspyrnusambands Íslands fundar ekki í dag, þriðjudag, eins og vaninn er á sjálfu tímabilinu en margir bíða eftir því hvernig tekið verður á þeim málum sem komu upp í tengslum við úrslitaleik FH og Stjörnunnar í lokaumferð Pepsi-deildar karla.
Rauschenberg til Lilleström á reynslu
Danski varnarmaðurinn Martin Rauschenberg, sem lék með Stjörnunni á nýafstöðnu tímabili, heldur á næstu dögum til norska úrvalsdeildarliðsins Lilleström til reynslu. Samningur Rauschenbergs, sem er 22 ára, við Stjörnuna rennur út um áramótin.
KSÍ sleppur ekki undan FH í dómsalnum
Kröfu KSÍ um að vísa frá innheimtumáli FH á hendur sambandinu hefur verið hafnað. Málið verður því rekið áfram í dómsal þar til niðurstaða fæst. Um ræða er ræða 700 þúsund króna kröfu FH á hendur KSÍ vegna meintrar misnotkunar á aðgangspössum KSÍ.
Heimir: Ræði framhaldið við FH í vikunni
Heimir Guðjónsson, þjálfari FH, segir framtíð sína óljósa. Samningur hans við Hafnarfjarðarliðið rennur út nú eftir tímabilið og ljóst að mörg félög munu sækjast eftir starfskröftum hans ef hann framlengir ekki samning sinn við FH.
Donni hættir líka hjá Val
Halldór Jón Sigurðsson, þekktastur undir gælunafninu Donni, verður ekki áfram í þjálfarateymi Vals. Donni var aðstoðarþjálfari Magnúsar Gylfasonar.
Sigurður Óli fyrstur til að viðurkenna mistökin
Kristinn Jakobsson segir það ljóst að fyrra mark Stjörnunnar átti ekki að standa.
Emil notar KSÍ til að losna frá KR
Framherjinn Emil Atlason hefur leitað til samninganefndar KSÍ til að losna undan samningi sínum við KR. Þetta staðfestir Kristinn Kjærnsted, formaður knattspyrnudeildar KR, en vill að öðru leyti ekki tjá sig um málið.
Kristinn Jakobsson: Menn þurfa að lifa með þessu
Eitt af síðustu verkum Kristins Jakobssonar sem knattspyrnudómara var að dæma vítaspyrnuna sem tryggði Stjörnunni sinn fyrsta Íslandsmeistaratitil í sögunni. Um áramótin leggur hann flautuna á hilluna fyrir fullt og allt og segist hann sáttur við ákvörðun sína
Pepsi-mörkin | 23. þáttur
Lokaumferð Pepsi-deildar karla fór fram um helgina og var að nógu að taka.
Gary Martin: Íslenska deildin er mun sterkari en fólk heldur
Gary Martin, markakóngur Pepsi-deildarinnar 2014, er leikmaður 22. umferðar hjá Fréttablaðinu
Vonbrigði ársins | Myndband
Árlegur uppgjörsþáttur Pepsi-markanna var sýndur á laugardagskvöldið. Þar fóru Hörður Magnússon og félagar yfir tímabilið sem leið og veittu ýmsar viðurkenningar.
Magnús hættur hjá Val
Magnús Gylfason er hættur sem þjálfari Vals. Þetta kemur fram í tilkynningu á heimasíðu félagsins í kvöld.
Bergsveinn: Sáttur í Grafarvoginum
Bergsveinn Ólafsson, fyrirliði Fjölnis, segir ekkert komið á hreint með sína framtíð, en hann hefur verið orðaður við lið í efri helmingi deildarinnar.
Framarar vilja að Bjarni haldi áfram
Snorri Már Skúlason, formaður meistaraflokksráðs Fram, segir gagnkvæman vilja þjálfara og stjórnar knattspyrnudeildar að Bjarni Guðjónsson verði áfram þjálfari liðsins.
Markvörslur sumarsins | Myndbönd
Hinn árlegi uppgjörsþáttur Pepsi-markanna var sýndur á laugardagskvöldið þar sem farið var yfir tímabilið sem kláraðist á laugardaginn.
Ummæli ársins | Myndbönd
Í uppgjörsþætti Pepsi-markanna á laugardagskvöldið voru ýmis skemmtileg ummæli leikmanna og þjálfara rifjuð upp.
Blikar hafa ekki rætt við Sigurð Ragnar
Fara sér hægt í leit að nýjum þjálfara.
Aron Elís: Álasund alltaf mitt fyrsta val
Aron Elís Þrándarson, sem skrifaði undir þriggja ára samning við norska úrvalsdeildarliðið Álasund í dag, segir í samtali við Vísi að félagið hafi alltaf verið hans fyrsta val.
Ágúst áfram í Grafarvogi
Skilaði liðinu í níunda sæti Pepsi-deildar karla.
Þorvaldur: Kemur til greina að halda áfram hjá HK
Þorvaldur Örlygsson, þjálfari HK, segir óvíst hvað taki við hjá sér.
Aron Elís samdi til þriggja ára | Verður í treyju númer ellefu
Víkingurinn Aron Elís Þrándarson samdi í dag til þriggja ára við danska úrvalsdeildarliðið Álasund.
Grétar: Ekkert heyrt í KR
Vill halda áfram í KR en er opinn fyrir öllu.
Ólafur þögull um framtíðina
Vill ekkert segja um áhuga Valsmanna eða annarra liða í Pepsi-deildinni.