Innlent Hvetur til umræðu um krónuna Kostnaður við krónuna sem gjaldmiðil er meiri en nemur ávinningnum af því að halda henni, segir Michael E. Porter, prófessor við Harvard Business School, sem af mörgum er talinn einhver áhrifamesti viðskiptahugsuður vorra tíma. Viðskipti innlent 2.10.2006 21:18 Erlendar skuldir geta varla lækkað meira Fjármálaráðherra segir erlendar skuldir ríkissjóðs orðnar það lágar að þær verði ekki lækkaðar mikið meira. Fjárlög ársins 2007 gera ráð fyrir 15,5 milljarða króna afgangi. 18 milljörðum verður varið til nýrra framkvæmda á árinu. Innlent 2.10.2006 23:10 Deilur um hersetuna hömluðu framþróun Forseti Íslands telur átökin um veru bandaríska hersins á Íslandi hafa staðið í vegi fyrir framþróun á öllum sviðum samfélagsins. Við setningu Alþingis í gær varaði hann við að nýting náttúrunnar yrði viðlíka hitamál og hersetan. Innlent 2.10.2006 23:12 Ofursönnunarbyrði lögð á landeigendur Ragnar Aðalsteinsson segir Hæstarétt leggja ofursönnunarbyrði á landeigendur. Landeigendur segja ríkið vera að eignast aftur land sem það hafi þegar selt. Þeir hugleiða að fara með málið fyrir Mannréttindadómstól Evrópu. Innlent 2.10.2006 23:11 Engin fólksfjölgun í aldarfjórðung Íbúafjöldi á Vesturlandi hefur staðið í stað á síðustu 25 árum þrátt fyrir að landsmönnum hafi fjölgað um þriðjung. Meðaltekjur eru allt niður í helming af landsmeðaltali. Innlent 2.10.2006 23:11 Raforka dýrari hér en víðast í V-Evrópu Raforkuverð til heimila á Íslandi er yfir meðallagi miðað við hvað tíðkast í Vestur-Evrópu. Ekkert leyndarmál að stóriðjan nýtur betri kjara en almenningur, segir sérfræðingur Orkustofnunar. Dreifing orku er dýrari hér vegna strjálbýlis. Innlent 2.10.2006 23:10 Stefnuræðan flutt í kvöld Geir H. Haarde forsætisráðherra flytur stefnuræðu sína á Alþingi í kvöld. Flytur hann nú stefnuræðu í fyrsta sinn, en hann tók við embætti forsætisráðherra 15. júní. Innlent 2.10.2006 23:11 Launaleynd verði aflétt Stjórnarandstaðan ætlar að flytja í sameiningu nokkur grundvallarmál á þingi og voru þrjú þeirra kynnt á blaðamannafundi í gær. Hún ætlar einnig að standa sameiginlega að kosningum í nefndir og ráð á vegum þingsins. Innlent 2.10.2006 23:10 Kostuðu nýju vatnsbólin í Grindavík Bandaríkjamenn hafa veitt tólf milljónir dollara, eða um átta hundruð milljónir króna, í ýmis verkefni á Keflavíkurflugvelli og telja sig þar með hafa uppfyllt skyldur sínar. Þetta kemur fram í úttekt sem bandarísk stjórnvöld létu gera á stöðu umhverfismála á varnarsvæðunum í sumar. Innlent 2.10.2006 23:11 Ungur ökumaður á ofsahraða Lögreglan í Kópavogi stöðvaði sautján ára pilt á 154 kílómetra hraða þar sem hámarkshraði er 70 km/klst. á sunnudagskvöldið. Pilturinn hafði verið með ökuleyfi í um þrjá mánuði en verður að sögn lögreglunnar væntanlega sviptur ökuréttindum eftir glæfraaksturinn. Innlent 2.10.2006 23:11 Vilja lægri hámarkshæð Ólafur F. Magnússon, borgarfulltrúi Frjálslynda flokksins, mun í dag leggja til að Borgarstjórn Reykjavíkur beini þeim tilmælum til stjórnar Landsvirkjunar að hámarkshæð vatnsborðs í Hálslóni verði 605 metrar en ekki 625 metrar eins og nú er ráðlagt. Með því að lækka lónhæðina, segir í tillögunni, dregur úr hættu á stíflurofi og gerir mögulegt að bregðast við í tæka tíð ef hamfarahlaup verður í Jöklu. Innlent 2.10.2006 23:11 Hafnarvigtin á útopnu „Þetta er allt á hárréttri leið,“ segir Ómar Már Jónsson, sveitarstjóri Súðavíkurhrepps, um sjóstangaveiðiferðamennskuna sem var reynd í fyrsta skipti á Vestfjörðum í sumar. „Þegar við fórum út í þetta töldum við gott ef við næðum 2-300 manns í fyrstu tilraun, en það var fullbókað í allt sumar og rúmlega níu hundruð manns sem heimsóttu okkur.“ Innlent 2.10.2006 23:11 Hegðun skólabarna mótuð Nokkuð hefur verið rætt um hegðunarvandamál í grunnskólum að undanförnu. Erlendar kannanir sýna að notkun PBS-hugmyndafræðinnar minnki líkur á óæskilegri hegðun. Innlent 2.10.2006 23:12 Ráðherra leggur til bann Skráning lögheimila í frístundabyggð verður óheimil, ef nýtt frumvarp félagsmálaráðherra nær fram að ganga. Magnús Stefánsson félagsmálaráherra kynnti málið á síðasta ríkisstjórnarfundi. Samkvæmt frumvarpinu verður ekki hægt að skrá lögheimili í frístundabyggð, nema að sveitarstjórn hafi samþykkt breytingu á skipulagi svæðisins. Lögin munu ekki ná til sumarhúsa sem standa utan skipulagðrar frístundabyggðar. Innlent 2.10.2006 23:11 Ný bankalán ollu ójafnvægi Innlent 2.10.2006 23:12 Gefur ekki kost á sér til þings Innlent 2.10.2006 23:11 Vilja landið til baka Herinn var með radarskerma rúman kílómetra frá bænum Austur-Stafnesi í marga áratugi og ruslahaug í svipaðri fjarlægð. Landeigendur fengu aldrei notið þess umgengnisréttar um landið sem þeir áttu. Mótmæli höfðu ekkert að segja. Innlent 2.10.2006 23:11 Um hundrað óku of hratt Mikill erill var hjá Lögreglunni í Reykjavík um helgina enda töluverður mannfjöldi saman kominn í miðborginni. Alls voru 93 ökumenn teknir fyrir of hraðan akstur og þar af voru 73 á yfir 100 km hraða. Sá sem keyrði hraðast var mældur á 139 km hraða þar sem hámarkshraði er 80 km á klst og annar mældist á 137 km hraða þar sem leyfilegt er að keyra á 60 km á klst. Þá voru tveir piltar á átjánda ári stöðvaðir á Sæbraut þar sem þeir háðu mikinn kappakstur hvor við annan. Þeir mældust á 131 km hraða og munu að öllum líkindum verða sviptir ökuréttindum líkt og fjölmargir aðrir ökumenn sem voru gripnir. Innlent 2.10.2006 23:10 Skattleysismörk hækka um 14% Tekjuskattur lækkar um eitt prósent 1. janúar 2007 og verður 22,75 prósent. Þetta kemur fram í nýju fjárlagafrumvarpi sem kynnt var í gær. Innlent 2.10.2006 23:11 Sæunn og Jón ný í þinginu Sæunn Stefánsdóttir tók fast sæti á Alþingi við setningu þess í gær. Hún kemur í stað Halldórs Ásgrímssonar sem afsalaði sér þingmennsku fyrir skömmu. Sæunn hefur nokkrum sinnum sest á þing sem varamaður. Innlent 2.10.2006 23:11 Prófkjör hinn 11. nóvember Kjördæmisráð sjálfstæðismanna í Suðurkjördæmi ákvað á fundi í gær að prófkjör yrði haldið hinn 11. nóvember til að velja fulltrúa á framboðslista flokksins fyrir komandi þingkosningar. Innlent 2.10.2006 23:11 Sækist eftir fjórða sæti Helgi Hjörvar alþingismaður, sækist eftir fjórða sæti í sameiginlegu prófkjöri Samfylkingarinnar í Reykjavíkurkjördæmunum sem fram fer 11. nóvember. Innlent 2.10.2006 23:10 Léttir undir með verslun Innlent 2.10.2006 23:11 Sækist eftir öruggu þingsæti Valgerður Bjarnadóttir, sviðsstjóri á innkaupa- og vörustjórnunarsviði hjá Landspítala–háskólasjúkrahúsi, gefur kost á sér í 3. til 5. sæti á framboðslista Samfylkingarinnar í Reykjavík fyrir alþingiskosningarnar í vor. "Það sem rekur mig helst af stað í framboð er að ég tel að sé möguleiki á að reka smiðshöggið á að búa til stóran jafnaðarmannaflokk. Það þurfa allir að leggjast á árar við það og ég vil gjarnan reyna að hjálpa til við það." Innlent 2.10.2006 23:11 Gangsetningu kerja er lokið Norðurál, dótturfélag Century Aluminum Company, lauk í gær við gangsetningu allra kerja í álverinu á Grundartanga vegna stækkunar þess og var haldin vígsluathöfn á Grundartanga við það tækifæri. Gert er ráð fyrir að verið afkasti 220.000 tonna árlegri framleiðslu á áli fyrir árslok, en það framleiddi áður um 90.000 tonn. Stækkunarferlinu verður lokið í lok næsta árs, þegar ráðgert er að álverið framleiði alls 260.000 tonn. Jón Þorvaldsson, framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar og fjármálasviðs hjá Norðuráli, gat ekki sagt til um hversu mikil mengunaráhrif þessi stækkun hefði í för með sér þegar Fréttablaðið ræddi við hann í gær, en sagði það innan núverandi mengunarviðmiða. Innlent 2.10.2006 23:10 Gefur kost á sér í þriðja sætið Kristín Á. Guðmundsdóttir, formaður Sjúkraliðafélags Íslands, býður sig fram í þriðja sæti á lista Samfylkingar í Suðvesturkjördæmi. Innlent 1.10.2006 22:04 Fundur í Laugarneskirkju Málfundur verður haldinn klukkan 20.30 í kvöld í safnaðarheimili Laugarneskirkju. Tilefnið er stólræða séra Hildar Eirar Bolladóttur sunnudaginn 24. september en í henni tók hún skýra afstöðu gegn framkvæmdunum við Kárahnjúka. Innlent 2.10.2006 23:11 Þrennt flutt til aðhlynningar Eldur kom upp í íbúðarhúsi við Hamragerði á Akureyri laust eftir miðnætti í fyrrinótt. Eldurinn hafði kviknað í íbúð á neðri hæð tveggja hæða húss og er talið að hann hafi kviknað út frá logandi kerti í svefnherbergi í íbúðinni. Tvennt var vakandi í íbúðinni þar sem eldsupptök áttu sér stað og tókst þeim að vekja þrjá aðra íbúa hússins þegar þeir urðu eldsins varir. Slökkvistarf gekk greiðlega en talsverðar skemmdir urðu á húsinu. Þrír íbúanna voru fluttir á sjúkrahús til aðhlynningar vegna gruns um reykeitrun en útskrifaðir síðar um nóttina. Innlent 2.10.2006 23:11 Vændiskonur leita skjóls fyrir dólgum Íslenskar konur sem lent hafa í vændi hafa í allnokkrum tilvikum leitað til Stígamóta og Kvennaathvarfsins til að flýja dólgana, sem hafa selt þær. Tveimur konum var hjálpað til þess að flýja til útlanda. Yngsta stúlkan var 15 ára. Innlent 2.10.2006 23:10 Gefur kost á sér í 4.-5. sæti Gunnar Axel Axelsson hefur tilkynnt að hann sækist eftir 4.-5. sæti í prófkjöri Samfylkingarinnar í Suðvesturkjördæmi þann 4. nóvember. Innlent 2.10.2006 23:10 « ‹ 220 221 222 223 224 225 226 227 228 … 334 ›
Hvetur til umræðu um krónuna Kostnaður við krónuna sem gjaldmiðil er meiri en nemur ávinningnum af því að halda henni, segir Michael E. Porter, prófessor við Harvard Business School, sem af mörgum er talinn einhver áhrifamesti viðskiptahugsuður vorra tíma. Viðskipti innlent 2.10.2006 21:18
Erlendar skuldir geta varla lækkað meira Fjármálaráðherra segir erlendar skuldir ríkissjóðs orðnar það lágar að þær verði ekki lækkaðar mikið meira. Fjárlög ársins 2007 gera ráð fyrir 15,5 milljarða króna afgangi. 18 milljörðum verður varið til nýrra framkvæmda á árinu. Innlent 2.10.2006 23:10
Deilur um hersetuna hömluðu framþróun Forseti Íslands telur átökin um veru bandaríska hersins á Íslandi hafa staðið í vegi fyrir framþróun á öllum sviðum samfélagsins. Við setningu Alþingis í gær varaði hann við að nýting náttúrunnar yrði viðlíka hitamál og hersetan. Innlent 2.10.2006 23:12
Ofursönnunarbyrði lögð á landeigendur Ragnar Aðalsteinsson segir Hæstarétt leggja ofursönnunarbyrði á landeigendur. Landeigendur segja ríkið vera að eignast aftur land sem það hafi þegar selt. Þeir hugleiða að fara með málið fyrir Mannréttindadómstól Evrópu. Innlent 2.10.2006 23:11
Engin fólksfjölgun í aldarfjórðung Íbúafjöldi á Vesturlandi hefur staðið í stað á síðustu 25 árum þrátt fyrir að landsmönnum hafi fjölgað um þriðjung. Meðaltekjur eru allt niður í helming af landsmeðaltali. Innlent 2.10.2006 23:11
Raforka dýrari hér en víðast í V-Evrópu Raforkuverð til heimila á Íslandi er yfir meðallagi miðað við hvað tíðkast í Vestur-Evrópu. Ekkert leyndarmál að stóriðjan nýtur betri kjara en almenningur, segir sérfræðingur Orkustofnunar. Dreifing orku er dýrari hér vegna strjálbýlis. Innlent 2.10.2006 23:10
Stefnuræðan flutt í kvöld Geir H. Haarde forsætisráðherra flytur stefnuræðu sína á Alþingi í kvöld. Flytur hann nú stefnuræðu í fyrsta sinn, en hann tók við embætti forsætisráðherra 15. júní. Innlent 2.10.2006 23:11
Launaleynd verði aflétt Stjórnarandstaðan ætlar að flytja í sameiningu nokkur grundvallarmál á þingi og voru þrjú þeirra kynnt á blaðamannafundi í gær. Hún ætlar einnig að standa sameiginlega að kosningum í nefndir og ráð á vegum þingsins. Innlent 2.10.2006 23:10
Kostuðu nýju vatnsbólin í Grindavík Bandaríkjamenn hafa veitt tólf milljónir dollara, eða um átta hundruð milljónir króna, í ýmis verkefni á Keflavíkurflugvelli og telja sig þar með hafa uppfyllt skyldur sínar. Þetta kemur fram í úttekt sem bandarísk stjórnvöld létu gera á stöðu umhverfismála á varnarsvæðunum í sumar. Innlent 2.10.2006 23:11
Ungur ökumaður á ofsahraða Lögreglan í Kópavogi stöðvaði sautján ára pilt á 154 kílómetra hraða þar sem hámarkshraði er 70 km/klst. á sunnudagskvöldið. Pilturinn hafði verið með ökuleyfi í um þrjá mánuði en verður að sögn lögreglunnar væntanlega sviptur ökuréttindum eftir glæfraaksturinn. Innlent 2.10.2006 23:11
Vilja lægri hámarkshæð Ólafur F. Magnússon, borgarfulltrúi Frjálslynda flokksins, mun í dag leggja til að Borgarstjórn Reykjavíkur beini þeim tilmælum til stjórnar Landsvirkjunar að hámarkshæð vatnsborðs í Hálslóni verði 605 metrar en ekki 625 metrar eins og nú er ráðlagt. Með því að lækka lónhæðina, segir í tillögunni, dregur úr hættu á stíflurofi og gerir mögulegt að bregðast við í tæka tíð ef hamfarahlaup verður í Jöklu. Innlent 2.10.2006 23:11
Hafnarvigtin á útopnu „Þetta er allt á hárréttri leið,“ segir Ómar Már Jónsson, sveitarstjóri Súðavíkurhrepps, um sjóstangaveiðiferðamennskuna sem var reynd í fyrsta skipti á Vestfjörðum í sumar. „Þegar við fórum út í þetta töldum við gott ef við næðum 2-300 manns í fyrstu tilraun, en það var fullbókað í allt sumar og rúmlega níu hundruð manns sem heimsóttu okkur.“ Innlent 2.10.2006 23:11
Hegðun skólabarna mótuð Nokkuð hefur verið rætt um hegðunarvandamál í grunnskólum að undanförnu. Erlendar kannanir sýna að notkun PBS-hugmyndafræðinnar minnki líkur á óæskilegri hegðun. Innlent 2.10.2006 23:12
Ráðherra leggur til bann Skráning lögheimila í frístundabyggð verður óheimil, ef nýtt frumvarp félagsmálaráðherra nær fram að ganga. Magnús Stefánsson félagsmálaráherra kynnti málið á síðasta ríkisstjórnarfundi. Samkvæmt frumvarpinu verður ekki hægt að skrá lögheimili í frístundabyggð, nema að sveitarstjórn hafi samþykkt breytingu á skipulagi svæðisins. Lögin munu ekki ná til sumarhúsa sem standa utan skipulagðrar frístundabyggðar. Innlent 2.10.2006 23:11
Vilja landið til baka Herinn var með radarskerma rúman kílómetra frá bænum Austur-Stafnesi í marga áratugi og ruslahaug í svipaðri fjarlægð. Landeigendur fengu aldrei notið þess umgengnisréttar um landið sem þeir áttu. Mótmæli höfðu ekkert að segja. Innlent 2.10.2006 23:11
Um hundrað óku of hratt Mikill erill var hjá Lögreglunni í Reykjavík um helgina enda töluverður mannfjöldi saman kominn í miðborginni. Alls voru 93 ökumenn teknir fyrir of hraðan akstur og þar af voru 73 á yfir 100 km hraða. Sá sem keyrði hraðast var mældur á 139 km hraða þar sem hámarkshraði er 80 km á klst og annar mældist á 137 km hraða þar sem leyfilegt er að keyra á 60 km á klst. Þá voru tveir piltar á átjánda ári stöðvaðir á Sæbraut þar sem þeir háðu mikinn kappakstur hvor við annan. Þeir mældust á 131 km hraða og munu að öllum líkindum verða sviptir ökuréttindum líkt og fjölmargir aðrir ökumenn sem voru gripnir. Innlent 2.10.2006 23:10
Skattleysismörk hækka um 14% Tekjuskattur lækkar um eitt prósent 1. janúar 2007 og verður 22,75 prósent. Þetta kemur fram í nýju fjárlagafrumvarpi sem kynnt var í gær. Innlent 2.10.2006 23:11
Sæunn og Jón ný í þinginu Sæunn Stefánsdóttir tók fast sæti á Alþingi við setningu þess í gær. Hún kemur í stað Halldórs Ásgrímssonar sem afsalaði sér þingmennsku fyrir skömmu. Sæunn hefur nokkrum sinnum sest á þing sem varamaður. Innlent 2.10.2006 23:11
Prófkjör hinn 11. nóvember Kjördæmisráð sjálfstæðismanna í Suðurkjördæmi ákvað á fundi í gær að prófkjör yrði haldið hinn 11. nóvember til að velja fulltrúa á framboðslista flokksins fyrir komandi þingkosningar. Innlent 2.10.2006 23:11
Sækist eftir fjórða sæti Helgi Hjörvar alþingismaður, sækist eftir fjórða sæti í sameiginlegu prófkjöri Samfylkingarinnar í Reykjavíkurkjördæmunum sem fram fer 11. nóvember. Innlent 2.10.2006 23:10
Sækist eftir öruggu þingsæti Valgerður Bjarnadóttir, sviðsstjóri á innkaupa- og vörustjórnunarsviði hjá Landspítala–háskólasjúkrahúsi, gefur kost á sér í 3. til 5. sæti á framboðslista Samfylkingarinnar í Reykjavík fyrir alþingiskosningarnar í vor. "Það sem rekur mig helst af stað í framboð er að ég tel að sé möguleiki á að reka smiðshöggið á að búa til stóran jafnaðarmannaflokk. Það þurfa allir að leggjast á árar við það og ég vil gjarnan reyna að hjálpa til við það." Innlent 2.10.2006 23:11
Gangsetningu kerja er lokið Norðurál, dótturfélag Century Aluminum Company, lauk í gær við gangsetningu allra kerja í álverinu á Grundartanga vegna stækkunar þess og var haldin vígsluathöfn á Grundartanga við það tækifæri. Gert er ráð fyrir að verið afkasti 220.000 tonna árlegri framleiðslu á áli fyrir árslok, en það framleiddi áður um 90.000 tonn. Stækkunarferlinu verður lokið í lok næsta árs, þegar ráðgert er að álverið framleiði alls 260.000 tonn. Jón Þorvaldsson, framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar og fjármálasviðs hjá Norðuráli, gat ekki sagt til um hversu mikil mengunaráhrif þessi stækkun hefði í för með sér þegar Fréttablaðið ræddi við hann í gær, en sagði það innan núverandi mengunarviðmiða. Innlent 2.10.2006 23:10
Gefur kost á sér í þriðja sætið Kristín Á. Guðmundsdóttir, formaður Sjúkraliðafélags Íslands, býður sig fram í þriðja sæti á lista Samfylkingar í Suðvesturkjördæmi. Innlent 1.10.2006 22:04
Fundur í Laugarneskirkju Málfundur verður haldinn klukkan 20.30 í kvöld í safnaðarheimili Laugarneskirkju. Tilefnið er stólræða séra Hildar Eirar Bolladóttur sunnudaginn 24. september en í henni tók hún skýra afstöðu gegn framkvæmdunum við Kárahnjúka. Innlent 2.10.2006 23:11
Þrennt flutt til aðhlynningar Eldur kom upp í íbúðarhúsi við Hamragerði á Akureyri laust eftir miðnætti í fyrrinótt. Eldurinn hafði kviknað í íbúð á neðri hæð tveggja hæða húss og er talið að hann hafi kviknað út frá logandi kerti í svefnherbergi í íbúðinni. Tvennt var vakandi í íbúðinni þar sem eldsupptök áttu sér stað og tókst þeim að vekja þrjá aðra íbúa hússins þegar þeir urðu eldsins varir. Slökkvistarf gekk greiðlega en talsverðar skemmdir urðu á húsinu. Þrír íbúanna voru fluttir á sjúkrahús til aðhlynningar vegna gruns um reykeitrun en útskrifaðir síðar um nóttina. Innlent 2.10.2006 23:11
Vændiskonur leita skjóls fyrir dólgum Íslenskar konur sem lent hafa í vændi hafa í allnokkrum tilvikum leitað til Stígamóta og Kvennaathvarfsins til að flýja dólgana, sem hafa selt þær. Tveimur konum var hjálpað til þess að flýja til útlanda. Yngsta stúlkan var 15 ára. Innlent 2.10.2006 23:10
Gefur kost á sér í 4.-5. sæti Gunnar Axel Axelsson hefur tilkynnt að hann sækist eftir 4.-5. sæti í prófkjöri Samfylkingarinnar í Suðvesturkjördæmi þann 4. nóvember. Innlent 2.10.2006 23:10