Lög og regla
6 7 8 9 10 11 12 13 14 … 120 ›
14 ára tekinn á mótorkrosshjóli Nokkuð er kvartað yfir akstri mótorkrosshjóla og ein slík barst lögreglunni í Reykjavík í gær. Hún kannaði málið og skömmu síðar birtust tvö þannig ökutæki en ökumenn þeirra reyndu að aka á brott. Lögreglan náði öðrum þeirra og reyndist ökumaðurinn vera réttindalaus en hann er 14 ára. Innlent 26.9.2006 16:47
Mánaðarlangt skilorðsbundið fangelsi fyrir líkamsárás Karlmaður var í dag dæmdur í mánaðarlangt fangelsi sem er skilorðsbundið til tveggja ára í Héraðsdómi Austurlands fyrir að hafa í sumar skallað annan mann á veitingastað á Reyðarfirði með þeim afleiðingum að hann hlaut glóðarauga og skurð á kinnbeini. Innlent 25.9.2006 16:27
Tveggja ára fangelsi fyrir að hafa banað manni Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í dag Loft Jens Magnússon í tveggja ára fangelsi fyrir að hafa verið valdur að dauða Ragnars Björnssonar á veitingastaðnum Ásláki í Mosfellsbæi í desember 2004. Innlent 25.9.2006 15:29
Slapp án skráma þegar jeppi valt Kona um tvítugt slapp ómeidd og ekki einu sinni skrámuð þegar hún missti stjórn á stórum jeppa sínum á Hellisheiði upp úr miðnætti með þeim afleiðingum að jeppinn endastakkst, valt og hafnaði loks á hjólunum, gjörónýtur. Innlent 25.9.2006 08:07
Á 130 km hraða í höfuðborginni Tveir ungir ökumenn, 17 og 18 ára, voru stöðvaðir á Reykjanesbraut á móts við Smárann í Kópavogi í gærkvöldi eftir að þeir höfðu mælst á tæplega 130 kílómetra hraða í kappakstri sem hófst á milli þeirra á Miklubraut. Innlent 25.9.2006 08:00
Hjólaði á bíl og slasaðist Átján ára stúlka slasaðist þegar hún hjólaði á bíl á mótum Suðurgötu og Kirkjugarðsstígs í Vesturbæ Reykjavíkur í gærkvöldi. Hún var flutt á slysadeild Landsspítalans og gekkst þar undir aðgerð. Tildrög slyssins eru óljós, en stúlkan var ekki með hjálm. Innlent 25.9.2006 07:52
Sektaður fyrir að hafa menn í vinnu án atvinnuleyfis Hæstiréttur dæmdi í gær karlmann til greiðslu hálfrar milljónar króna í sekt fyrir að hafa haft sex litháíska ríkisborgara í vinnu án atvinnuleyfis. Innlent 22.9.2006 14:10
365 ná dómssátt vegna umfjöllunar DV 365 miðlar hafa náð dómsátt í máli sem karlmaður höfðaði á hendur Jónasi Kristjánssyni og Mikael Torfasyni, fyrrverandi ritstjórum DV, vegna umfjöllunar blaðsins um manninn sökum þess að hann veiktist af hermannaveiki. Innlent 21.9.2006 17:31
Innbrot og skemmdarverk í höfuðborginni Nokkrar tilkynningar hafa borist lögreglunni í Reykjavík á síðasta sólarhring vegna innbrota og skemmdarverka. Innlent 21.9.2006 13:21
Þjófagengi á ferðinni á suðvesturhorninu Þjófagengi, sem farið hefur ránshendi víða um land upp á síðkastið var enn á ferð í nótt enda verður lögregla alltaf að sleppa fólkinu þegar játningar liggja fyrir. Innlent 21.9.2006 12:55
Pendúlhreyfing tók stjórnina af ökumanni Svonefnd pendúlhreyfing á hjólhýsi, sem jepplingur dró á eftir sér á Þrengslavegi í nótt, tók stjórnina af ökumanni jepplingsins og munaði minnstu að stórslys hlytist af. Margir ökumenn virðast hafa upplifað svipaða reynslu. Innlent 20.9.2006 12:40
Á fimmta hundrað eiga von á sektum 420 ökumenn eiga nú sekt yfir höfði sér fyrir að virða ekki 60 kílómetra leyfilegan hámarkshraða á Hringbrautinni um síðustu helgi. Brot þeirra náðust á löggæslumyndavél lögreglunnar í Reykjavík. Sektir geta numið allt að 60 þúsund krónum en þeir sem óku á 110 kílómetra hraða á klukkustund og þar yfir, fá að auki punkta í ökuferilsskrá. Innlent 20.9.2006 13:26
Mætti með loftbyssu í skólann Lögreglan í Reykjavík hafði nýverið afskipti af grunnskólanema sem kom með loftbyssu í skólann. Fram kemur á vef lögreglunnar að sá hafði skotið á tvo skólafélaga sína og marðist annar þeirra. Innlent 19.9.2006 15:13
Húsleit á nokkrum stöðum vegna barnakláms Lögreglan á Selfossi, á Ísafirði, í Reykjavík og í Kópavogi gerðu í morgun húsleit á nokkrum heimilum vegna ábendingar frá Interpol um að í gegnum tölvubúnað þessara heimila hefði verið hlaðið niður efni sem innihélt barnaklám. Innlent 19.9.2006 14:35
Eins árs fangelsi fyrir að stinga föður sinn Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi morgun átján ára pilt í eins árs fangelsi, þar af níu mánuði skilorðsbundna, fyrir að hafa stungið föður sinn á veitingastað í Reykjavík þann 17. júní í sumar. Innlent 19.9.2006 13:57
Brenndist við að fylla á kveikjara Maður brenndist á hendi og var næstu búinn að kveikja í húsi sínu, þegar hann var að setja kveikjarabensín á Sippó-kveikjarann sinn í húsi í Smáíbúðahverfinu í Reykjavík í nótt. Reykur var í íbúðinni þegar slökkviliðið kom á vettvang og var maðurinn fluttur á slysadeild þar sem í ljós kom að hann hafði hlotið annars stigs bruna en á litlu svæði þó. Innlent 19.9.2006 10:06
Átta mánuðir fyrir kynferðisbrot gegn 12 ára stúlku Tuttugu og þriggja ára karlmaður var í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag dæmdur í átta mánaða fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn tólf ára stúlku. Innlent 18.9.2006 16:03
Refsingu fyrir líkamsárás frestað í tvö ár Héraðsdómur Norðurlands vestra hefur frestað ákvörðun refsingar yfir 25 ára gamalli stúlku í tvö ár, en hún var sakfelld fyrir að hafa ráðist á aðra stúlku í félagsheimili Blönduóss í fyrra. Þau skilyrði eru sett að stúlkan haldi skilorð árin tvö. Innlent 18.9.2006 15:44
Gripinn nakinn á almannafæri Lögreglan í Reykjavík sinnti margvíslegum verkefnum um helgina eftir því sem fram kemur á vef hennar. Í einu þeirra var hún kölluð til þegar erlendir ferðamenn höfðu reist tjald sitt á sólpalli við fjölbýlishús í borginni. Fólkinu var gert að taka tjald sitt og leita sér gistingar annars staðar. Þá kom lögreglan ölvuðum manni til aðstoðar en sá var nakinn á almannafæri. Innlent 18.9.2006 15:18
101 sektaður fyrir hraðakstur í Hvalfjarðargöngum Lögreglan í Reykjavík mældi hundrað og einn ökumann sem ók yfir leyfilegum hámarkshraða í Hvalfjarðargöngum fyrir helgi. Segir í tilkynningu frá lögreglu að þrátt fyrir öflugt myndavélaeftirlit í göngunum virði margir ökumenn ekki 70 kílómetra leyfilegan hámarkshraða sem þar sé. Innlent 18.9.2006 11:47
Lést í umferðarslysi á Suðurlandsvegi Maðurinn sem lést í banaslysi á Suðurlandsvegi síðastliðið laugardagskvöld hét Magnús Magnússon til heimilis að bænum Hallanda í Árnessýslu. Hann var fæddur 24. júní árið 1945 og lætur eftir sig eiginkonu og þrjú uppkomin börn. Innlent 18.9.2006 10:05
Banaslys á Suðurlandsvegi Banaslys varð um klukkan níu í gærkvöldi á Suðurlandsvegi til móts við afleggjarann að Bollastöðum. Þar varð karlmaður á hesti fyrir bifreið sem ekið var austur veginn og er talið að hann hafi látist samstundis. Innlent 17.9.2006 09:07
Slökkvistarfi lokið í Varmárskóla Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins lauk störfum í Varmárskóla í Mosfellsbæ nú á fimmta tímanum en þangað var það hvatt um klukkan tvö í dag vegna elds í húsinu. Fyrstu fréttir bentu til þess að eldurinn hefði kviknað í rafmagnstöflu en það hefur ekki fengist staðfest. Innlent 15.9.2006 17:00
Eldur í þaki Varmárskóla Slökkviliðsmenn frá slökkviliði höfuðborgasvæðisins eru nú staddir í Varmárskóla í Mosfellsdbæ þar sem eldur logar í þak skólans. Tveir dælubílar og einn körfubíll eru að störfum á svæðinu. Talið er að eldurinn hafi kviknað út frá bilun í rafmagnstöflu og var skólinn rýmdur um leið og ljóst var að eldur hafði komið upp. Innlent 15.9.2006 14:59
Staðfestir sjö mánaða dóm fyrir ýmis brot Hæstiréttur staðfesti í dag sjö mánaða fangelsisdóm yfir karlmanni á þrítugsaldri sem ákærður var fyrir þjófnað, innbrot og fíkniefnabrot. Maðurinn hafði áður verið dæmdur fyrir ýmis brot en með þessum brotum rauf hann skilorð. Innlent 14.9.2006 17:06
Húsleit í tveimur húsum vegna fíkniefna Lögregla gerði í dag húsleit í tveimur húsum í Hafnarfirði þar sem grunur lék á finna mætti fíkniefni og vopn. Annað húsanna er í miðbæ Hafnarfjarðar og var einn maður handtekinn við innrás lögreglunnar þar. Innlent 14.9.2006 16:59
Fjögur fíkniefnamál hjá lögreglu Fjögur fíkniefnamál komu til kasta lögreglunnar í Reykjavík í gær og nótt. Málin eru óskyld en samtals komu fimm aðilar við sögu en ætluð fíkniefni fundust á þeim öllum. Fólkið er á aldrinum 18-24 ára. Þá var maður á þrítugsaldri færður á lögreglustöð en hann var í annarlegu ástandi og hafði haft í hótunum við annan mann. Innlent 14.9.2006 15:16
Fíkniefnarassía í Hafnarfirði Húsleit stendur nú yfir í miðbæ Hafnarfjarðar þar sem grunur leikur á að finna megi fíkniefni. Óeinkennisklæddir lögreglumenn frá lögreglunni í Hafnarfirði eru á staðnum og njóta aðstoðar sérsveitar Ríkislögreglustjóra. Innlent 14.9.2006 14:30
Staðfestir gæsluvarðhald vegna smygls Hæstiréttur hefur staðfest gæsluvarðhaldsúrskurð yfir Litháa sem handtekinn var eftir að tæplega sjö kíló af amfetamíni fundust í bíl hans við komu Norrænu til landsins þann 31. ágúst. Innlent 14.9.2006 10:00
Ítrekað ekið á hæðarslár Lögregla kvartar enn undan því að ekið sé á hæðarslár sem komið hefur verið fyrir á gatnamótum Suðurlandsvegar og Vesturlandsvegar. Síðdegis í gær var þrisvar ekið á hæðarslárnar þrátt fyrir að öllum eigi að vera ljóst að þar sé unnið að gerð mislægra gatnamóta. Innlent 13.9.2006 14:30