Erlendar
202 203 204 205 206 207 208 209 210 … 264 ›
Calzaghe og Lacy boxa í beinni í kvöld Áhugamenn um hnefaleika bíða spenntir eftir boxbardaga Walesverjans Joe Calzaghe og Bandaríkjamannsins Jeff Lacy. Þeir mætast í Manchester í kvöld um titil WBO og IBF heimssambandanna í léttmillivigt. Bardaginn byrjar laust eftir klukkan 11 í kvöld og hann verður sýndur beint á Sýn. Sport 4.3.2006 15:43
Ívar og Brynjar báðir í byrjunarliði Reading Ívar Ingimarsson og Brynjar Björn Gunnarsson eru báðir í byrjunarliði Reading sem er að leika við Burnley í ensku 1. deildinni í fótbolta í dag. Jóhannes Karl Guðjónsson er í byrjunarliði Leicester sem tekur á móti Hull en fleiri Íslendingar koma ekki við sögu í leikjum dagsins í deildinni í dag. Sport 4.3.2006 15:32
Ísland vann þrenn verðlaun Ísland vann til þrennra verðlauna á fyrsta degi Norðurlandamóts öldunga í frjálsum íþróttum sem hófst í Malmö í Svíþjóð í gær, ein gullverðlaun og tvö brons. Árný Hreiðarsdóttir vann gullverðlaun þegar hún sigraði þrístökk kvenna 50 ára og eldri. Sport 4.3.2006 14:41
Heiðar í byrjunarliðinu gegn Arsenal Heiðar Helguson er í byrjunarliði Fulham sem tekur á móti Arsenal í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta nú kl. 15. Arsenal er í 7. sæti deildarinnar með 41 stig, fimm stigum á eftir Tottenham sem er í 4. sæti en liðin berjast nú grimmilega um það sæti sem gefur þátttökurétt í Meistaradeildinni. Heiðar og félagar í Fulham eru í 14. sæti deildarinnar, en þó ekki nema níu stigum á eftir Arsenal. Sport 4.3.2006 14:55
Chelsea með 18 stiga forskot á toppnum Chelsea náði í dag 18 stiga forystu á toppi ensku úrvalsdeildarinnar þegar meistararnir unnu 1-2 útisigur á West Bromwich Albion. Eiður Smári Guðjohnsen var í byrjunarliði Chelsea en honum var skipt út af á 63. mínútu fyrir Geremi. Sport 4.3.2006 14:48
Ísland valtaði yfir Eista Íslenska öldungalandsliðið í krullu valtaði yfir Eista í morgun, 8-2 á heimsmeistaramótinu 50 ára og eldri en mótið hófst í Tårnby í Danmörku í morgun. Félagar úr Skautafélagi Akureyrar skipa lið Íslands en 15 lið taka þátt á mótinu í karlaflokki og 12 í kvennaflokki. Íslendingar mæta Japönum á morgun. Sport 4.3.2006 14:35
16. heimasigurinn í röð hjá Dallas 10 leikir voru í NBA körfuboltanum í gærkvöldi. Allen Iverson skoraði 43 stig þegar Philadelfia vann Washington, 119-113. Dallas Mavericks vann 16. heimaleik sinn í röð í gærkvöldi. Í gærkvöld stóðu leikmenn Charlotte Bobcats lengi í Dallas-mönnum. En Þjóðverjinn, Dirk Nowitzki, tók til sinna ráða en hann var stigahæstur hjá Dallas, skoraði 26 stig. Sport 4.3.2006 14:12
Síðari leikur Barcelona og Portland í dag Klukkan 15:30 í dag mætast Barcelona og Portland San Antonio í síðari leik liðanna í 8-liða úrslitum meistaradeildarinnar í handbolta. Leikurinn verður sýndur beint á Sýn. Portland vann fyrri leikinn með fjögurra marka mun á heimavelli sínum í Pamplóna, 25-21. Það má því búast við hörkuleik þessara frábæru handboltaliða í dag. Sport 4.3.2006 14:05
Fjórir kylfingar efstir og jafnir fyrir lokadaginn Þegar keppni á Fordmótinu í golfi í Miami í Flórída er hálfnuð eru fjórir kylfingar jafnir í fyrsta sætinu. Tiger Woods hafði forystu eftir fyrsta daginn, lék Doral-völlinn á 64 höggum eða 8 undir pari. Tiger lék í gær á 67 höggum og er samtals á 13 undir pari. Phil Mickelson var höggi á eftir þegar kylfingarnir hófu leik í gær. Mickelson lék betur en Tiger í gær, lék á 6 undir pari og er samtals á 13 undir pari. Sport 4.3.2006 13:55
Eiður í byrjunarliði Chelsea Eiður Smári Guðjohnsen er í byrjunarliði Chelsea sem er í heimsókn hjá W.B.A. í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta en leikurinn hófst í hádeginu kl. 12:45. Eiður kemur inn í liðið sem staðgengill fyrir Frank Lampard sem er meiddur. Sport 4.3.2006 13:31
Dallas - Charlotte í beinni Leikur Dallas Mavericks og Charlotte Bobcats verður sýndur í beinni útsendingu á NBA TV klukkan 01:30 í nótt. Fyrirfram mætti reikna með stórsigri Dallas, því Charlotte hefur aðeins unnið 6 útileiki í allan vetur en Dallas hefur aðeins tapað 4 leikjum á heimavelli. Sport 3.3.2006 22:29
Federer mætir Nadal í úrslitum Það verða tveir stigahæstu tennisleikarar heims í karlaflokki sem mætast í úrslitaleik Opna Dubai mótsins um helgina. Rafael Nadal vann sér sæti í úrslitum eftir sigur á Þjóðverjanum Rainer Schuettler 6-4 og 6-2, en Federer lagði Rússann Mikhail Youzhny 6-2 og 6-3 án þess að sýna nein glæsitilþrif. Sport 3.3.2006 21:16
Fjögur lið eiga möguleika á titlinum Fyrrum heimsmeistarinn Michael Schumacher telur fjögur keppnislið eiga möguleika á heimsmeistaratitlinum í Formúlu 1 á komandi keppnistímabili. Hann hefur auðvitað fulla trú á sínum mönnum í Ferrari, en telur að auk þess verði Renault, Honda og McLaren í baráttunni um titilinn. Sport 3.3.2006 19:09
Borgarstjórinn í Zaragoza býður Eto´o í heimsókn Juan Alberto Belloch, borgarstjóri í Zaragoza á Spáni brást hinn versti við þegar hann heyrði að stuðningsmenn knattspyrnuliðsins þar í borg hefðu sýnt Samuel Eto´o hjá Barcelona kynþáttafordóma á leik liðanna um síðustu helgi. Belloch hefur því sent knattspyrnumanninum bréf og boðið honum í sérstaka heimsókn til borgarinnar. Sport 3.3.2006 17:34
Björn Borg blankur Fyrrum tennisgoðsögnin Björn Borg er nú í miklum fjárhagsvandræðum og hefur kappinn nú neyðst til að selja verðlaunabikarana fimm sem hann vann á Wimbeldon-mótinu á árunum 1976 til 1980. Borg vann sér inn miklar fúlgur á stuttum ferli sínum, en berst nú í bökkum fjárhagslega. Sport 3.3.2006 17:26
Ronaldo settur út úr liðinu Brasilíski framherjinn Ronaldo verður ekki í leikmannahópi Real Madrid í grannaslag liðsins við Atletico Madrid um helgina og talið er að það sé að frumkvæði forseta félagsins sem hefur boðað nýja stefnu í leikmannamálum hjá félaginu. Sport 3.3.2006 16:38
Sheringham skrifar undir Framherjinn Teddy Sheringham hefur skrifað undir eins árs framlengingu á samningi sínum við úrvalsdeildarlið West Ham og verður því í herbúðum liðsins út næsta keppnistímabil. Sheringham verður því orðinn 41 árs gamall þegar samningstímanum lýkur. Sport 3.3.2006 16:21
Þorði ekki að hafa Saha á bekknum Sir Alex Ferguson, stjóri Manchester United, hefur viðurkennt að hann hafi ekki þorað að hafa sóknarmanninn Louis Saha á varamannabekknum í úrslitaleiknum í enska deildarbikarnum á dögunum af ótta við að leikmaðurinn færi frá félaginu. Sport 3.3.2006 16:07
Robbie Keane skrifar undir nýjan samning Írski landsliðsmaðurinn Robbie Keane skrifaði í dag undir nýjan fjögurra ára samning við úrvalsdeildarlið Tottenham og bindur þar með enda á vangaveltur um að hann sé á leið frá félaginu. Keane er 25 ára og kom til liðsins frá Leeds. Hann hefur skorað 54 mörk í 145 leikjum fyrir Tottenham. Sport 3.3.2006 15:57
Fer í mál við tvö dagblöð Ashley Cole, leikmaður Arsenal, ætlar að fara í mál við tvö bresk dagblöð sem fyrir nokkru slógu því upp á síðum sínum að hann væri samkynhneigður. Cole ætlar að giftast unnustu sinni á næstunni og hefur neitað öllu sem blöðin skrifuðu um kynhneigð hans. Sport 3.3.2006 15:51
Andorra fyrsta liðið á Wembley Nú hafa Englendingar loks komist að samkomulagi við mótherja sína í E-riðli undankeppni EM 2008 um niðurröðun leikja og í kjölfarið er ljóst að það verður lið Andorra sem fær þann heiður að spila fyrsta alvöru landsleik Englendinga á nýja Wembley leikvangnum sem tekinn verður í notkun í vor. Leikurinn fer fram 2. september. Sport 3.3.2006 15:38
San Antonio vann toppslaginn Meistarar San Antonio Spurs sýndu að þeir eru ekki dauðir úr öllum æðum í nótt þegar liðið skellti heitasta liði deildarinnar Dallas Mavericks í uppgjöri tveggja efstu liða Vesturdeildarinnar 98-89 á heimavelli sínum. Liðin eru nú hnífjöfn á toppi deildarinnar með 45 sigra og 12 töp. Sport 3.3.2006 14:33
Chicago - Cleveland í beinni Það má sannarlega búast við skemmtilegum körfubolta í beinni útsendingu á NBA TV í kvöld þegar Chicago Bulls og Cleveland Cavaliers leiða saman hesta sína. Leikmenn Cleveland mæta væntanlega eins og öskrandi ljón til leiks í kvöld, því liðið hefur tapað fimm leikjum í röð. Leikurinn er á besta tíma og hefst klukkan tólf á miðnætti. Sport 2.3.2006 22:00
Bruce stendur enn með Pennant Steve Bruce, stjóri Birmingham, segir að þó hann kjósi enn að styðja við bakið á Jermaine Pennant, hafi hann ekki endalausa þolinmæði í garð leikmannsins sem hefur verið duglegur við að koma sér í vandræði. Sport 2.3.2006 20:39
Neitar ásökunum um kynþáttafordóma Steve Finnan hjá Liverpool vísar á bug ásökunum á hendur honum eftir leik Liverpool og Manchester United í ensku úrvalsdeildinni á dögunum, þar sem áhorfendur sögðustu hafa heyrt hann hrópa ókvæðisorð af Patrice Evra, leikmanni Manchester United. Sport 2.3.2006 19:49
Tiltekt í vændum hjá Real Fernando Martin, sem á dögunum tók við embætti forseta Real Madrid í kjölfar afsagnar Florentino Perez, segist ekki kæra sig um að vera með lið fullt af milljónamæringum sem ekki leggi sig fram á knattspyrnuvellinum. Sport 2.3.2006 19:25
Hiddink næsti þjálfari Rússa? Rússneskir fjölmiðlar greina frá því í dag að Guus Hiddink, þjálfari PSV Eindhoven og ástralska landsliðsins, muni taka við rússneska landsliðinu eftir HM í sumar. Hiddink hefur meðal annars verið orðaður við stöðu landsliðsþjálfara Englands. Sport 2.3.2006 18:38
Varar við of mikilli bjartsýni Steve Staunton byrjaði sannarlega glæsilega með írska landsliðið í gær þegar hans menn burstuðu Svía 3-0 í æfingaleik á Lansdowne Road í gærkvöld. Staunton hvetur alla til að hafa báðar fætur á jörðinni þrátt fyrir sannfærandi sigur sinna manna, en segir leikinn þó gefa fyrirheit um það sem koma skal hjá landsliðinu sem tókst ekki að vinna sér sæti á HM í sumar. Sport 2.3.2006 18:25
Mamma mía, við erum lélegir Jurgen Klinsmann, landsliðsþjálfari Þjóðverja, fær það óþvegið í þýsku pressunni í dag eftir að Þjóðverjar voru teknir í bakaríið á Ítalíu í æfingaleik þjóðanna í gær 4-1. Þýska blaðið Bild birti stóra mynd af Klinsmann undir fyrirsögninni "Mamma, mía, við erum lélegir." Sport 2.3.2006 18:15
Bridge verður ekki með gegn Arsenal Forráðamenn Fulham hafa staðfest að varnarmaðurinn Wayne Bridge verði ekki með í næsta leik liðsins gegn Arsenal vegna ökklameiðslanna sem hann hlaut í landsleiknum í gærkvöldi, en þetta á þó ekkert skilt við þau ökklameiðsli sem hann var nýbúinn að jafna sig af þegar hann gekk í raðir liðsins frá Chelsea. Sport 2.3.2006 18:01