Erlendar
189 190 191 192 193 194 195 196 197 … 264 ›
Fabregas og Eboue fara með til Tórínó Cesc Fabregas og Emmanuel Eboue fara báðir með liði Arsenal til Tórínó þar sem liðið tekur á móti Juventus á miðvikudagskvöldið, en ljóst er að litlar líkur eru á því að þeir verði í liðinu vegna meiðsla. Fabregas fór á kostum í fyrri leiknum gegn Juventus, en þurfti að fara meiddur af velli eftir aðeins 15 mínútur í leik í ensku úrvalsdeildinni um helgina. Sport 3.4.2006 16:14
Hughes ætlar sér sigur Einn leikur fer fram í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í kvöld þegar Blackburn tekur á móti Wigan á heimavelli sínum Ewood Park. Blackburn er í harðri baráttu um Evrópusæti á næstu leiktíð og hefur liðið verið á mikilli siglingu undanfarið. Sport 3.4.2006 16:03
Það vann enginn fyrir kaupinu sínu Stuart Pearce, stjóri Manchester City var æfareiður eftir tap sinna manna fyrir Middlesbrough í ensku úrvalsdeildinni í gær og sparaði ekki stóru orðin eftir leikinn þegar hann sagði leikinn verstu frammistöðu liðs undir sinni stjórn og sagði engann leikmanna sinna hafa unnið fyrir kaupinu sínu í leiknum. Sport 3.4.2006 15:12
Við ætlum að láta Arsenal svitna Tékkneski miðjumaðurinn Pavel Nedved hjá Ítalíumeisturum Juventus segir að Arsenal eigi ekki von á því að verða tekið neinum vettlingatökum í Tórínó á miðvikudagskvöldið þegar liðin mætast í síðari leiknum í 8-liða úrslitum Meistaradeildarinnar, en Arsenal vann fyrri leikinn 2-0 á heimavelli sínum um daginn þar sem tveir leikmanna Juve voru reknir af velli. Nedved var í leikbanni í þeim leik. Sport 3.4.2006 15:04
Ætlar að ná í stórt nafn í stjórastólinn Freddy Shepherd, stjórnarformaður Newcastle, segir að félagið ætli að gera allt sem í þess valdi stendur til að ráða stórt nafn í stjórastólinn hjá félaginu í sumar, en Glenn Roader hefur sem kunnugt er sinnt starfinu í afleysingum síðan Graeme Souness var látinn fara á sínum tíma. Sport 3.4.2006 14:57
Chelsea er að undirbúa samningstilboð Umboðsmaður franska varnarmannsins William Gallas hjá Englandsmeisturum Chelsea segir að félagið sé nú að undirbúa samningstilboð handa varnarmanninum, sem hefur verið orðaður við mörg af stóru liðunum á meginlandi Evrópu á undanförnum mánuðum. Gallas hefur verið ósáttur við að fá ekki að spila uppáhaldsstöðuna sína á vellinum með Chelsea, en umboðsmaður hans telur að Chelsea muni bjóða honum vænlega framlengingu á næstunni. Sport 3.4.2006 14:45
Tólf í röð hjá New Jersey Lið New Jersey Nets hefur heldur betur verið á sigurgöngu í NBA deildinni að undanförnu og í nótt skellti liðið Miami og vann sinn 12. leik í röð. Vince Carter fór á kostum í liði New Jersey og skoraði 43 stig, en Dwayne Wade skoraði 32 stig fyrir Miami. Sport 3.4.2006 14:27
Við getum náð Chelsea Franski framherjinn Louis Saha hjá Manchester United segir að liðið hafi alla burði til að ná Chelsea að stigum á lokasprettinum í ensku úrvalsdeildinni, en United hefur verið á mikilli siglingu undanfarið á meðan Chelsea hefur verið að tapa stigum. Sport 3.4.2006 14:18
Rivaldo framlengir Brasilíski leikstjórnandinn Rivaldo hefur framlengt samning sinn við gríska liðið Olympiakos um eitt ár, en hann hefur verið í herbúðum liðsins síðan árið 2004. Liðið varð tvöfaldur meistari í fyrra og hefur góða forystu á toppi deildarinnar í ár. Forráðamenn félagsins líta á framlenginguna sem virðingarvott við besta leikmann í sögu félagsins. Rivaldo var kjörinn besti leikmaður heims árið 1999 þegar hann spilaði með Barcelona. Sport 31.3.2006 18:11
Graham Poll fulltrúi enskra dómara Nú er búið að birta lista yfir þá 23 dómara sem valdir hafa verið til að dæma á HM í Þýskalandi í sumar og verður Graham Poll fulltrúi ensku úrvalsdeildarinnar í keppninni. Auk Poll verða á mótinu dómarar eins og Eric Poulat frá Frakklandi,Markus Merk frá Þýskalandi, hinn spænski Enrique Mejuto Gonzalez og Massimo De Santis frá Ítalíu svo einhverjir séu nefndir. Sport 31.3.2006 16:35
Davidson fljótastur á æfingum Anthony Davidson hjá Honda náði bestum tíma allra á æfingum fyrir Melbourne-kappaksturinn í Formúlu 1 sem háður verður í Ástralíu um helgina. Alex Wurz hjá Williams náði öðrum besta tímanum og Robert Kubica hjá BMW Sauber náði þriðja besta tímanum. Sport 31.3.2006 16:45
Allardyce mjög líklegur landsliðsþjálfari Sir Alex Ferguson segir að Sam Allardyce, knattspyrnustjóri Bolton, sé mjög líklegur til að verða valinn eftirmaður Sven-Göran Eriksson hjá enska landsliðinu. Þetta sagði Ferguson á blaðamannafundi í dag fyrir viðureign Bolton og Manchester United á morgun. Sport 31.3.2006 16:02
Ákveður sig fyrir HM Franski framherjinn Thierry Henry hefur nú gefið það út að hann muni tilkynna hvort hann verði áfram hjá Arsenal eða ekki fyrir upphaf heimsmeistaramótsins í knattspyrnu þann 9. júní nk. Henry hefur verið orðaður við spænsku risana Barcelona og Real Madrid, en hann virðist vera búinn að gleyma því að hann lofaði stuðningsmönnum Arsenal fyrir nokkru að hann ætlaði að skrifa undir framlengingu á samningi sínum við félagið. Sport 31.3.2006 16:15
Fortune verður látinn fara Sir Alex Ferguson segir að líklega verði miðjumaðurinn Quinton Fortune látinn fara frá Manchester United fljótlega, en Suður-Afríkumaðurinn hefur átt við erfið meiðsli að stríða lengi. Fortune er með lausa samninga í sumar og þykja þessi tíðindi benda til þess að United ætli að taka nokkuð til á miðjunni hjá sér í sumar. Sport 31.3.2006 15:43
Reggie Miller heiðraður í Indiana Skotbakvörðurinn Reggie Miller var í nótt heiðraður sérstaklega Indiana Pacers þegar númerið hans var hengt upp í rjáfur í höll félagsins. Miller lagði skóna á hilluna í fyrra eftir að hafa spilað í 18 ár með liði Indiana, en hann hefur meðal annars skorað fleiri þriggja stiga körfur en nokkur annar leikmaður í sögu deildarinnar. Hann var fimm sinnum valinn í stjörnuliðið á ferlinum er minnst sem einnar bestu skyttu í sögu NBA. Sport 31.3.2006 15:09
Pogatetz frá út leiktíðina Varnarmaðurinn Emanuel Pogatetz hjá Middlesbrough leikur ekki meira með liðinu á tímabilinu eftir að hann hlaut alvarleg höfuðmeiðsli í viðureign Middlesbrough og svissneska liðsins Basel í Uefa-bikarnum í gærkvöldi. Pogatetz brákaðist á kjálkabeini og nefbrotnaði í hörðu samstuði við leikmann Basel. Sport 31.3.2006 14:52
Solskjær skrifar undir Norski sóknarmaðurinn Ole Gunnar Solskjær hjá Manchester United hefur nú framlengt samning sinn við félagið um tvö ár og verður því samningsbundinn United fram í júní 2008. Solskjær er mjög vinsæll meðal stuðningsmanna liðsins, en hefur verið einstaklega óheppinn með meiðsli að undanförnu og er nú að jafna sig eftir kinnbeinsbrot. Sport 31.3.2006 14:36
San Antonio lagði Lakers Tveir leikir fóru fram í NBA deildinni í körfubolta í nótt. Meistarar San Antonio lögðu LA Lakers á útivelli 96-85. Tim Duncan skoraði 20 stig og hirti 13 fráköst fyrir San Antonio en Kobe Bryant var að venju stigahæstur í liði Los Angeles með 23 stig. Þá vann Phoenix sigur á Indiana 114-104 á útivelli. Shawn Marion skoraði 29 stig fyrir Phoenix og Steve Nash var með 15 stig og 13 stoðsendingar, en Peja Stojakovic skoraði 25 stig fyrir Indiana. Sport 31.3.2006 14:26
Ekkert spilað á Wembley fyrr en 2007 Breska sjónvarpsstöðin BBC greindi frá því seint í gærkvöld að það hefði heimildir fyrir því að opnun nýja Wembley-leikvangsins yrði frestað það lengi að ekkert verði nú spilað á nýja vellinum fyrr en á næsta ári. Fyrirhugað var að spila nokkra landsleiki á vellinum í haust auk þess sem völlurinn átti að hýsa leikinn um samfélagsskjöldinn, en nú þykir ljóst að ekkert verði af því. Sport 31.3.2006 01:01
Boro í vondum málum Enska úrvalsdeildarliðið Middlesbrough tapaði fyrri leik sínum við svissneska liðið Basel 2-0 á útivelli í 8-liða úrslitum Uefa-bikarsins í kvöld og þarf því að eiga toppleik til að eiga möguleika á að komast áfram í keppninni. Sevilla vann auðveldan sigur á Zenit Pétursborg 4-1, Schalke vann Levski Sofia 3-1 á útivelli og grannliðin Rapid og Steua í Búkarest gerðu 1-1 jafntefli. Sport 30.3.2006 20:59
Bolton kaupir Ísraela Úrvalsdeildarfélagið Bolton gekk í dag frá samningi við ísraelska miðjunanninn Idan Tal frá Maccabi Haifa og mun hann ganga til liðs við enska liðið í júlí í sumar. Tal þessi spilaði með Everton á árunum 2000-2002 og á að baki 58 landsleiki fyrir Ísrael. Sport 30.3.2006 18:05
Ronaldinho verðmætasti leikmaður heims Brasilíski knattspyrnusnillingurinn Ronaldinho hefur verið útnefndur verðmætasti knattspyrnumaður heims í ítarlegri könnun sem gerð var á dögunum og skýtur þar köppum á borð við David Beckham og Wayne Rooney ref fyrir rass. Sport 30.3.2006 17:54
Óttast frekari seinkanir á Wembley Breska sjónvarpsstöðin BBC greinir frá því í dag að ýmis teikn séu á lofti um að nýi Wembley leikvangurinn verði jafnvel ekki tilbúinn fyrir leikinn um samfélagsskjöldinn síðaripart sumars, eftir að í ljós kom að rúgbýleikur sem halda átti á vellinum þann 26. ágúst gæti orðið færður annað - en leikurinn um samfélagsskjöldinn á að fara fram enn fyrr, eða þann 13. ágúst. Sport 30.3.2006 17:44
LeBron James loksins í úrslitakeppnina Cleveland Cavaliers tryggði sér í nótt sæti í úrslitakeppninni í NBA með góðum sigri á Dallas á heimavelli sínum 107-94. LeBron James hjá Cleveland hélt upp á að vera kominn í úrslitakeppnina í fyrsta skiptið á ferlinum með því að salla 46 stigum á Dallas í leiknum, en Dirk Nowitzki var stigahæstur gestanna með 29 stig. Þetta var í fyrsta sinn í vetur sem Dallas tapar tveimur leikjum í röð. Sport 30.3.2006 05:43
Bjarni og Hörður í tapliði Silkeborg Bjarni Ólafur Eiríksson og Hörður Sveinsson léku báðir allan leikinn fyrir danska liðið Silkeborg sem tapaði fyrir Bröndby. Með sigrinum tyllti Bröndby sér í efsta sæti deildarinnar með 51 stig, en FCK í Kaupmannahöfn kemur næst með 50 stig en þeir eioga einn leik til góða. Silkeborg er í svo 9. sæti með 23 stig. Sport 26.3.2006 22:34
Celtic einum sigri frá titlinum Celtic getur tryggt sér Skotlandsmeistaratitilinn eftir tíu daga en það þarf aðeins einn sigur í viðbót til að tryggja sér titilinn. Leikurinn er þann 5. apríl gegn Hearts, sem er í öðru sæti deildarinnar en fastlega má gera ráð fyrir því að Celtic vinni þann leik eftir frábæra leiki undanfarið. Sport 26.3.2006 19:08
Real Madrid burstaði Deportivo Real Madrid vann öruggan sigur á Deportivo La Coruna í La Liga á Spáni í dag. Madrídingar færast þar með nær erkifjendum sínum í Barcelona sem verma toppsæti deildarinnar en þeir náðu þó aðeins markalausu jafntefli gegn Malaga í gær. Sport 26.3.2006 19:01
Bruce lætur deigann ekki síga Steve Bruce er enn ákveðnari að draga Birmingham upp úr ruglinu sem liðið er í þessa stundina. Lið hans er í þriðja neðsta sæti úrvalsdeildarinnar og hefur leikur liðsins að undanförnu aldeilis ekki verið burðugur. Sport 26.3.2006 18:06
Ólafur með fjögur mörk í sigri Ciudad Ólafur Stefánsson skoraði fjögur mörk fyrir Ciudad Real þegar liðið bar sigurorð af þýska liðinu Flensborg í undanúrslitum Meistaradeildarinnar í handbolta. Flensborg sá aldrei til sólar í leiknum og Ciudad fór með öruggan níu marka sigur af hólmi, 31-22. Sport 26.3.2006 17:46
Öruggur sigur Manchester United Manchester United sáu til þess að vikan sem er að renna sitt skeið á enda er eins sú versta sem Steve Bruce, fyrrum United maður, hefur séð. Lið hans fékk á sig tíu mörk í vikunni en það tapaði 3-0 fyrir United í dag og 7-0 gegn Liverpool í ensku bikarkeppninni í vikunni. Sport 26.3.2006 16:52