Erlendar
188 189 190 191 192 193 194 195 196 … 264 ›
Ákvörðun liggur fyrir á næstu tveimur vikum Umboðsmaður franska miðjumannsins Robert Pires hjá Arsenal segir að það komi væntanlega í ljós á næstu tveimur vikum hvort leikmaðurinn verði áfram í London, en hann er með lausa samninga í sumar. Pires vill vera áfram hjá Arsenal, en heimtar tveggja ára samning á meðan Arsenal býður aðeins eins árs samning fyrir leikmenn á hans aldri. Sport 5.4.2006 16:22
Nýr samningur í sjónmáli fyrir Andy Cole Sóknarmaðurinn Andy Cole segir að styttist óðum í að hann undirriti framlengingu á samningi sínum við félagið. Cole er 34 ára gamall og mun ekki leika meira með liði City á þessu tímabili vegna hnéuppskurðar sem hann fór í á dögunum. Sport 5.4.2006 16:16
Samningurinn var aldrei einhliða David Gill segir að Manchester United hafi aldrei samþykkt að ræða einvörðungu við netfyrirtækið Mansion um styrktarsamning með auglýsingum á treyjum félagsins. Forráðamenn Mansion slitu viðræðunum á dögunum þegar í ljós kom að United hafði átt í viðræðum við fleiri styrktaraðila, en Gill segir alltaf hafa legið fyrir að United leitaði til fleiri en eins aðila með það fyrir augum að fá sem bestan samning. Sport 5.4.2006 15:56
Martin O´Neill á ekki að taka við Englendingum Bryan Robson er mótfallinn því að Martin O´Neill verði ráðinn landsliðsþjálfari Englands í knattspyrnu, því hann sé ekki enskur. Robson vill að heimamaður fái starfið og bendir á að enskir þjálfarar hafi náð ágætum árangri með liðið í gegn um tíðina. Sport 5.4.2006 15:45
Samningur Redknapp væntanlega framlengdur Milan Mandaric stjórnarformaður úrvalsdeildarliðs Portsmouth segir að nýr samningur handa knattspyrnustjóranum Harry Redknapp sé í smíðum, hvort sem liðið falli í fyrstu deild eða haldi sér uppi í vor. Sport 5.4.2006 15:01
Detroit vann 60. leikinn Detroit Pistons varð í nótt fyrsta liðið í NBA til að vinna 60 leiki í vetur þegar liðið skellti New Orleans 101-93. Detroit var án Rasheed Wallace í leiknum en hann tók út leikbann fyrir tæknivillur. Detroit hafði fyrir leikinn notað sama byrjunarliðið í 73 fyrstu leikjum vetrarins, sem er met. Antonio McDyess lék vel í fjarveru Wallace og skoraði 26 stig og hirti 14 fráköst, en Chris Paul og David West skoruðu 24 stig hvor fyrir New Orleans. Sport 5.4.2006 14:15
Utah - San Antonio í beinni Klukkan tvö í nótt verður leikur Utah Jazz og San Antonio Spurs sýndur í beinni útsendingu á NBA TV-rásinni á Digital Ísland. Lið þessi eru á gjörólíkum stað í töflunni, því meistarar San Antonio eru í efsta sæti Vesturdeildarinnar en Utah á litla möguleika á að komast í úrslitakeppnina. Sport 4.4.2006 22:22
Eins og nýtt lið Steve Bruce var að vonum kátur með sigur sinna manna á Bolton í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í kvöld, en 1-0 sigur liðsins lyfti því af fallsvæðinu í deildinni. Kollegi hans Sam Allardyce var þó skiljanlega ekki jafn hress með niðurstöðuna. Sport 4.4.2006 22:09
Birmingham úr fallsæti Lærisveinar Steve Bruce í Birmingham unnu gríðarlega mikilvægan sigur í fallbaráttunni í ensku úrvalsdeildinni í kvöld þegar liðið skellti Bolton á heimavelli sínum 1-0 með marki frá Jiri Jarosik. Sigurinn þýðir að Birmingham hefur lyft sér af fallsvæðinu og því er ljóst að Bruce getur andað léttar í nokkra daga. Tapið er Bolton á hinn bóginn mjög dýrt í baráttunni um sæti í Evrópukeppninni á næstu leiktíð. Sport 4.4.2006 21:01
Inzaghi skaut Milan í undanúrslitin Framherjinn knái Filippo Inzaghi skaut lið sitt AC Milan í undanúrslit Meistaradeildarinnar í kvöld þegar Milan lagði franska liðið Lyon 3-1 á heimavelli sínum San Siro. Lyon var með pálmann í höndunum lengst af og flest benti til þess að liðið færi áfram í keppninni á marki skoruðu á útivelli. Inzaghi skoraði sitt annað mark fyrir Milan á 88. mínútu og Shevchenko gerði út um leikinn skömmu síðar eftir að Frakkarnir tjölduðu öllu til að reyna að jafna leikinn og gerðu mistök í vörninni. Sport 4.4.2006 20:44
Villareal í undanúrslitin Spænska smáliðið Villareal er komið í undanúrslit Meistaradeildar Evrópu eftir 1-0 sigur á ítalska stórliðinu Inter Milan í kvöld. Það var varnarmaðurinn Rodolfo Arruabarrena sem skoraði sigurmark spænska liðsins í kvöld og því er Villareal komið áfram á marki skoruðu á útivelli. Sport 4.4.2006 20:39
Villareal komið yfir Spænska liðið Villareal stendur nú vel að vígi í einvíginu við Inter Milan í Meistaradeildinni því liðið hefur náð forystu 1-0 í síðari leik liðanna á Spáni. Það var Arruabarrena sem skoraði mark heimamanna á 58. mínútu og því er Villareal með pálmann í höndunum með mark skorað á útivelli í fyrri leiknum. Eins og staðan er núna eru því bæði Mílanóliðin á leið úr keppni í Meistaradeildinni. Sport 4.4.2006 20:09
Birmingham yfir gegn Bolton Birmingham hefur yfir 1-0 gegn Bolton í leik kvöldsins í ensku úrvalsdeildinni og er því á góðri leið með að ná sér í mikilvæg stig í fallbaráttunni. Það var Jiri Jarosik sem skoraði mark heimamanna á 37. mínútu. Sport 4.4.2006 19:42
Jafnt á báðum vígstöðvum Nú er kominn hálfleikur í leikjunum tveimur sem standa yfir í Meistaradeild Evrópu. Staðan í leik Milan og Lyon á San Siro er enn jöfn 1-1 en ekkert mark hefur verið skorað í leik Villareal og Inter á Spáni. Sport 4.4.2006 19:36
Lyon jafnaði Lyon var ekki lengi að svara á San Siro en staðan er orðin 1-1 í leik Milan og Lyon. Það var Diarra sem jafnaði fyrir franska liðið aðeins sex mínútum eftir að Milan komst yfir á 25. mínútu og nú stendur það vel að vígi með mark skorað á útivelli. Sport 4.4.2006 19:16
Inzaghi kemur Milan yfir Framherjinn skæði Filippo Inzaghi hefur komið AC Milan yfir gegn Lyon á San Siro í leik liðanna í Meistaradeildinni. Inzaghi skoraði með skalla á 25. mínútu leiksins og því eru Ítalirnir í vænlegri stöðu í einvíginu eftir að fyrri leiknum lauk með markalausu jafntefli. Leikurinn er í beinni útsendingu á Sýn. Sport 4.4.2006 19:10
Fabregas á góðum batavegi Arsene Wenger, stjóri Arsenal, er bjartsýnn á að miðjumaðurinn Cesc Fabregas verði klár í byrjunarlið í leiknum gegn Juventus í Meistaradeildinni annað kvöld en telur aðeins 30% líkur á því að varnarmaðurinn Emmanuel Eboue verði í byrjunarliðinu. Fabio Capello segist ekki gráta það að vanti menn í lið Juventus, en fagnar því sérstaklega að endurheimta Pavel Nedved úr leikbanni. Sport 4.4.2006 17:50
Milan - Lyon í beinni á Sýn Tveir leikir fara fram í 8-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í kvöld og verða þeir báðir sýndir í beinni útsendingu á Sýn og Sýn Extra. Leikur Milan og Lyon er í beinni á Sýn og hefst útsending þar klukkan 18:30 og á sama tíma hefst bein útsending frá leik Villareal og Inter á Sýn Extra. Sport 4.4.2006 16:59
Hasselbaink svartsýnn Hollenski framherjinn Jimmy Floyd Hasselbaink hjá Middlesbrough er ekki bjartsýnn á að verða boðinn nýr samningur hjá félaginu, en núverandi samningur hins 34 ára gamla leikmanns rennur út í sumar. Sport 4.4.2006 16:40
Flórída háskólameistari Lið Flórída er bandarískur háskólameistari í körfubolta eftir að liðið vann auðveldan sigur á UCLA í úrslitaleik í nótt 73-57. Flórída-liðið kom nokkuð á óvart í keppninni og vann andstæðinga sína með að meðaltali 16 stiga mun í úrslitaleikjunum. Joakim Noah skoraði 16 stig, hirti 9 fráköst og varði 6 skot fyrir Flórída í úrslitaleiknum. Sport 4.4.2006 14:59
Barkley, Dumars og Wilkins í heiðurshöllina Í gær var tilkynnt um nýjustu einstaklingana sem vígðir verða inn í körfuboltaheiðurshöllina í Bandaríkjunum og á meðal þeirra sem komust í gegn voru leikmennirnir Charles Barkley, Joe Dumars og Dominique Wilkins, sem gerðu garðinn frægan í NBA á níunda og tíunda áratugnum. Sport 4.4.2006 14:38
Hargreaves vonast eftir landsliðssæti Enski landsliðsmaðurinn Owen Hargreaves hjá þýsku meisturunum Bayern Munchen segist vonast til að vinna sér sæti í HM-hópi Sven-Göran Eriksson í sumar, en Hargreaves hefur átt við þrálát meiðsli að stríða í vetur eins og svo oft áður og á því sætið alls ekki víst eins og margir af ensku leikmönnunum. Sport 4.4.2006 14:11
Ég get náð liðinu á rétta braut Gengi Aston Villa hefur ekki verið í samræmi við væntingar stuðningsmanna í vetur og situr liðið sem stendur í fimmta neðsta sæti úrvalsdeildarinnar. David O´Leary viðurkennir að gengi liðsins hafi verið lélegt í vetur, en heldur því staðfastlega fram að hann sé maðurinn til að koma því á rétta braut á ný. Sport 4.4.2006 13:56
Del Piero verður ekki með Juventus Ítölsku meistararnir Juventus verða án sóknarmannsins Alessandro del Piero í leiknum gegn Arsenal í Meistaradeildinni annað kvöld, en hann á við meiðsli að stríða á læri og verður því að horfa á leikinn frá hliðarlínunni eins og Patrick Vieira sem tekur út leikbann. Þá hefur Freddy Ljungberg bæst í hóp þeirra sem eru tæpir vegna meiðsla hjá Arsenal. Sport 4.4.2006 13:33
Tveir leikir í kvöld Tveir leikir fóru fram í sænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í kvöld. Helgi Valur Daníelsson spilaði allan tímann með liði sínu Öster sem gerði markalaust jafntefli við Gautaborg og þá gerðu Malmö og Hacken 1-1 jafntefli. Sport 3.4.2006 21:55
Jafnt hjá Blackburn og Wigan Blackburn og Wigan gerðu 1-1 jafntefli í leik kvöldsins í ensku úrvalsdeildinni. Jason Roberts kom gestunum yfir á 52. mínútu, en Shefki Kuqi bjargaði stiginu fyrir heimamenn þegar hann jafnaði metin á 84. mínútu og þar við sat. Blackburn er því enn í sjötta sæti deildarinnar með 53 stig, en Wigan er í því áttunda með 47 stig. Sport 3.4.2006 21:21
Gerir sér vonir um einn eða tvo leiki með Newcastle Framherjinn Michael Owen segist aðeins gera sér vonir um að ná að spila einn eða tvo af síðustu leikjum Newcastle í vor eftir að setja þurfti nýja skrúfu í fótinn á honum á dögunum í kjölfar ökklabrots um áramótin. Sport 3.4.2006 19:58
Mendieta úr leik Spænski miðjumaðurinn Gaizka Mendieta hjá Middlesbrough spilar ekki meira með liðinu á leiktíðinni eftir að hann fótbrotnaði á æfingu í dag. Mendieta þarf því að fara í uppskurð og verður frá æfingum í einar 12 vikur. Hann hefur verið einstaklega óheppinn með meiðsli allar götur síðan hann kom til Middlesbrough og ljóst að hins 32 ára gamla leikmanns bíður erfitt verkefni að koma sér í lið Boro á ný. Sport 3.4.2006 19:41
Federer fær sendiherrastöðu Tenniskappinn Roger Federer hefur verið útnefndur velgjörðarsendiherra barnahjálpar sameinuðuþjóðanna, en áður hafa kappar á borð við David Beckham hlotið þessa stöðu úr röðum íþróttamanna. Með þessari útnefningu mun Federer leggja hönd á plóginn við ýmis tækifæri til að bæta hag barna sem eiga um sárt að binda víða um heim, en Federer hefur verið mjög duglegur að gefa til góðgerðarmála á ferlinum. Sport 3.4.2006 19:30
Viðræðum við stuðningsaðila hætt Í dag slitnaði upp úr viðræðum Manchester United við netfyrirtækið Mansion, en félögin voru komin á fremsta hlunn með að ganga frá auglýsingasamningi upp á 70 milljónir punda og hefðu búningar Manchester United þá prýtt auglýsingar netfyrirtækisins. Forráðamenn Mansion saka knattspyrnufélagið um að hafa leynilega átt í viðræðum við aðra stuðningsaðila á sama tíma og hafa því ákveðið að bakka út úr viðræðunum. Sport 3.4.2006 18:40