Innlendar
68 69 70 71 72 73 74 75 … 75 ›
Haukar fóru létt með HK Haukar báru sigurorð af HK 32-24 í síðasta leik ársins í DHL-deild karla í handknattleik í gærkvöldi, eftir að hafa verið yfir 13-12 í hálfleik. Haukar sitja í öðru sæti deildarinnar ásamt Val, en Fram er í toppsætinu. Deildin hefst ekki að nýju fyrr en í byrjun febrúar, því sem kunnugt er fer Evrópumót landsliða fram í Sviss í janúar. Sport 22.12.2005 02:45
Samdi við KR í dag Sóknarmaðurinn skæði, Björgólfur Takefusa sem leikið hefur mðe Fylki síðustu tvö tímabil í Landsbankadeildinni, skrifaði í dag undir tveggja ára samning við KR. Björgólfur sagði það alltaf hafa verið draum sinn að spila með Vesturbæjarliðinu og því sé hann afar ánægður að vera kominn í KR. Sport 21.12.2005 19:38
Laugardalsvöllur stækkaður Í dag var undirritaður nýr samningur milli KSÍ og menntamálaráðuneytisins um 200 milljón króna styrk sem renna mun í sjóð vegna stækkunar stúku og annara mannvirkja á Laugardalsvelli, en heildarkostnaður mun nema um 1200 milljónum króna. Sport 21.12.2005 18:49
Páll Einarsson í Fylki Páll Einarsson, fyrrum fyrirliði Þróttar, er genginn í raðir Fylkis í Árbænum og hefur skrifað undir tveggja ára samning við félagið. Þetta kemur fram á heimasíðu félagsins, Fylkir.com. Þá segir á síðunni að félagið hafi einnig náð samningi við Hermann Aðalgeirsson, sem er ungur leikmaður og kemur frá Húsavík. Sport 21.12.2005 18:36
Fellur um tvö sæti á styrkleikalista FIFA Íslenska kvennalandsliðið í knattspyrnu er í 19. sæti á styrkleikalista FIFA sem birtur var í morgun og fellur því um tvö sæti síðan listinn var birtur síðast og um eitt sæti á árinu. Heims- og Evrópumeistrar Þjóðverja eru sem fyrr í toppstinu og Bandaríkjamenn í öðru sæti. Sport 21.12.2005 14:42
Björn setti Íslandsmet Hlauparinn Björn Margeirsson setti Íslandsmet í 2000 metra hlaupi í frjálsíþróttahöllinni í Laugardal í gærkvöldi þegar hann hljóp vegalengdina á 5 mínútum og 25,23 sekúndum. Þetta var fyrsta Íslandsmetið sem slegið hefur verið í nýju höllinni. Sport 20.12.2005 15:06
Bjarni og Birkir aðstoða Eyjólf Bjarni Jóhannsson, þjálfari Breiðabliks og Birkir Kristinsson, fyrrum landsliðsmarkvörður, hafa verið ráðnir aðstoðarmenn Eyjólfs Sverrissonar landsliðsþjálfara. Bjarni kom liði Breiðabliks í Landsbankadeildina í sumar og Birkir, sem mun sjá um markmannsþjálfun hjá landsliðinu, spilaði sjálfur 74 landsleiki á ferlinum. Sport 19.12.2005 17:34
Helena með þrennu í sigri Hauka á ÍS Haukastúlkur unnu sannfærandi sigur á Stúdínum á Ásvöllum í dag 89-50. Kesha Tardy var stigahæst í liði Hauka með 28 stig og 13 fráköst, en Helena Sverrisdóttir náði þrefaldri tvennu með 21 stigi, 15 fráköstum og 10 stoðsendingum. Signý Hermannsdóttir var stigahæst í liði ÍS með 14 stig og hirti 7 fráköst. Sport 18.12.2005 19:21
Mætir Makedóníu á EM Íslenska kvennalandsliðið í handbolta mætir Makedóníu í tveimur leikjum um sæti á EM sem fram fer í Svíþjóð eftir eitt ár. Fyrri leikur liðanna verður hér á landi í maí og liðið sem hefur betur úr viðureignunum tveimur, tryggir sér þáttökurétt á mótinu. Sport 18.12.2005 14:48
ÍBV lagði ÍR Eyjamenn sigruðu heimamenn í ÍR í lokaleik dagsins í DHL-deild karla í handbolta 32-28 en leikurinn fór fram í Austurbergi. Sport 17.12.2005 19:19
Fram hafði betur í toppslagnum Framarar gerðu góða ferð á Ásvelli í dag og lögðu Hauka í toppslag DHL-deildar karla í handbolta, 33-26. Jóhann Gunnar Einarsson skoraði 11 mörk fyrir Fram, þar af 9 úr vítum, en Arnar Pétursson skoraði 6 fyrir Hauka. Haukarnir byrjuðu betur í leiknum, en varnarleikur Fram skóp sigurinn í dag og greinilegt að liðið er til alls líklegt undir stjórn Guðmundar Guðmundssonar. Sport 17.12.2005 18:31
Grindavík lagði Skallagrím Grindvíkingar lögðu Skallagrím á heimavelli sínum í Grindavík í dag 92-89. Bandaríkjamaðurinn Jeremiah Johnson var stigahæstur í liði heimamanna með 30 stig, en Jovan Zdravevski skoraði 23 stig fyrir gestina. Þetta var því góður dagur í Grindavík, því fyrr um daginn vann kvennaliðið góðan sigur á grönnum sínum úr Keflavík. Sport 17.12.2005 17:48
Grindavík hafði betur í grannaslagnum Grindavíkurstúlkur unnu nú áðan góðan sigur á grönnum sínum úr Keflavík í Iceland Express deild kvenna í körfuknattleik 89-83. Grindavík komst upp að hlið Hauka á toppi deildarinnar með sigrinum, en Keflavík er í þriðja sætinu. Jerica Watson fór á kostum í liði Grindavíkur í dag, skoraði 39 stig og var besti leikmaður vallarins. Sport 17.12.2005 15:18
Valur tapaði í Digranesi Topplið Vals í DHL-deild karla í handbolta sótti ekki gull í greipar HK í Digranesi í kvöld og tapaði 25-23. KA lagði granna sína í Þór í háspennuleik 26-25. Loks burstaði Stjarnan Selfoss 32-23. Valsmenn halda þó enn efsta sæti deildarinnar, en bæði Fram og Haukar geta skotist framúr Val á morgun. Þessi lið mætast einmitt í deildinni á morgun. Sport 16.12.2005 21:55
Þrír leikir í kvöld Síðustu umferð fyrir jól í DHL-deild karla í handbolta lýkur um helgina, en hún hefst í kvöld með þremur leikjum. HK tekur á móti Val í Digranesi, Þór Akureyri tekur á móti grönnum sínum í KA og Selfoss fær Stjörnuna í heimsókn. Allir leikirnir hefjast klukkan 20. Fjórir leikir verða svo á morgun, en þar ber hæst stórleikur Hauka og Fram á Ásvöllum. Sport 16.12.2005 14:13
Keflvíkingar úr leik Keflvíkingar eru úr leik í Áskorendakeppni Evrópu í körfubolta eftir 105-90 tap fyrir Madeira frá Portúgal ytra í kvöld. Madeira vann því báða leikina nokkuð sannfærandi og er komið áfram í átta liða úrslit keppninnar. Sport 15.12.2005 21:43
Njarðvík lagði Fjölni Njarðvíkingar lögðu Fjölni í Grafarvogi í úrvalsdeild karla í körfubolta í kvöld í fjörugum og skemmtilegum leik 90-77. Jeb Ivey var stigahæstur í liði Njarðvíkur með 30 stig, þar af 23 í fyrri hálfleik, Friðrik Stefánsson skoraði 26 stig og Brenton Birmingham var með 20. Nemanja Sovic skoraði mest hjá Fjölni, 27 stig og Fred Hooks bætti við 22 stigum. Sport 15.12.2005 20:47
Viggó valdi 15 manna hóp í dag Viggó Sigurðsson landsliðsþjálfari valdi í dag 15 manna hóp sem fer á Evrópumótið í handbolta í Sviss í janúar. Eitt sæti er enn laust í hópnum, en Viggó mun fylla það sæti á milli jóla og nýárs. Sport 15.12.2005 13:31
Haukar höfðu sigur á ÍR Haukar lögðu ÍR í Austurbergi í leik kvöldsins í DHL-deild karla í handbolta 33-29, eftir að staðan í hálfleik hafði verið 18-14 fyrir gestina. Guðmundur Pedersen skoraði 8 mörk fyrir Hauka, öll úr vítum, en Tryggvi Haraldsson, Ísleifur Sigurðsson, Ragnar Helgason og Hafsteinn Ingason skoruðu allir 5 mörk hver fyrir ÍR. Sport 14.12.2005 21:19
ÍR tekur á móti Haukum Einn leikur fer fram í DHL-deild karla í handknattleik í kvöld. ÍR-ingar taka á móti Íslandsmeisturum Hauka í Austurbergi og hefst leikurinn klukkan 19:15. Haukar eru sem stendur í þriðja sæti deildarinnar með 17 stig eftir 11 leiki, en ÍR er í áttunda sætinu með 11 stig úr 12 leikjum. Sport 14.12.2005 17:10
Jón Oddur og Kristín Rós íþróttamenn ársins Íþróttamenn ársins í karla- og kvennaflokki hjá íþróttasambandi fatlaðra voru tilkynntir í dag. Fyrir valinu urðu þau Jón Oddur Halldórsson frjálsíþróttamaður og Kristín Rós Hákonardóttir sundkona. Sport 14.12.2005 16:45
Dregið í undanúrslit Í dag varð ljóst hvaða lið mætast í undanúrslitum í karlaflokki í bikarkeppninni. Það verða annarsvegar Stjarnan og ÍBV og hinsvegar Haukar og Fram sem mætast í undanúrslitunum. Leikirnir fara fram um miðjan febrúar. Sport 14.12.2005 13:12
Bikarmeistararnir mæta Þór Þorlákshöfn Í dag var dregið í 16-liða úrslit bikarkeppni KKÍ í karla- og kvennaflokki. Bikarmeistarar Njarðvíkur í karlaflokki sækja Þór frá Þorlákshöfn heim, en kvennalið Hauka sem sigraði í keppninni í vor, tekur á móti Tindastól. Sport 13.12.2005 14:38
Eiður Smári og Ásthildur knattspyrnumenn ársins Eiður Smári Guðjohnsen og Ásthildur Helgadóttir voru nú síðdegis kosin knattspyrnumenn ársins við árlega athöfn á Hótel Nordica. Í öðru sæti í karlaflokki varð Hermann Hreiðarsson, en Margrét Lára Viðarsdóttir varð önnur í kvennaflokki. Sport 12.12.2005 19:12
Íslendingarnir úr leik Íslenska sundfólkið, Jakob Jóhann Sveinsson og Ragnheiður Ragnarsdóttir eru úr leik á Evrópumeistaramótinu í Trieste á Ítalíu en þau luku keppni í morgun. Jakob hafnaði í 19. sæti af 34 keppendum í undanrásum í 200 metra bringusundi en hann synti á 2 mín og 12.45 sek í morgun. Ragnheiður varð í 24. sæti af 41 keppanda í undanrásum í 50 metra skriðsundi en hún synti á 25.93 sek. Sport 11.12.2005 13:43
KA úr leik í Evrópu KA er úr leik í Áskorendakeppni Evrópu í handbolta karla en norðanmenn töpuðu með 10 marka mun gegn Steaua Bucharest, 31-21 í Rúmeníu í morgun. Þetta var í síðari leikur liðanna í 16-liða úrslitum en þeim fyrri lauk með sigri KA á Akureyri. Sport 11.12.2005 13:26
Týndu synirnir komnir heim Grétar Sigfinnur Sigurðsson og Viktor Bjarki Arnarson skrifuðu í gær undir nýja samninga við Víking Reykjavík til ársloka 2007. "Það er mjög ánægjulegt að búið sé að ganga frá málum varðandi þessa leikmenn og ljóst að nú styrkist leikmannahópurinn til muna en hann var ágætur fyrir. Víkingur gerði rétt með því að lána þá síðasta sumar, nú er liðið komið aftur upp og fær leikmennina sterkari til baka," sagði Magnús Gylfason, þjálfari Víkinga, með bros á vör eftir undirskriftina. Sport 10.12.2005 20:21
Atli baðst afsökunar Kristinn Einarsson, formaður Þróttar, greindi frá því á heimasíðu félagsins í gær að Atli Eðvaldsson, þjálfari félagsins, hefði beðist afsökunar á seinni yfirlýsingu sinni um Pál Einarsson sem bar heitið "leikmaðurinn Páll Einarsson" og birtist í Fréttablaðinu í vikunni. Sport 10.12.2005 20:20
Haukastúlkur með gott tak á Keflavík Haukar urðu í gær Powerade-bikarmeistarar í körfuknattleik kvenna með því að leggja Keflavík 77-63 í skemmtilegum úrslitaleik sem háður var í Kópavogi. Sport 10.12.2005 20:21
Jafntefli í kaflaskiptum leik Það var mikil spenna í Kópavogi í gær þegar HK tók á móti Fylki í DHL-deild karla í handbolta en leiknum lauk með jafntefli 27-27. Sport 10.12.2005 20:21