Innlendar
55 56 57 58 59 60 61 62 63 … 75 ›
KR lagði Fylki KR lagði Fylki 1-0 á heimavelli sínum í Frostaskjóli í Landsbankadeild karla í knattspyrnu í kvöld. Það var varnarmaðurinn Tryggvi Bjarnason sem skoraði markið sem skildi liðina að í kvöld, en bæði lið fengu nokkur tækifæri til að bæta við mörkum í kvöld. Leikurinn var í raun lítið fyrir augað í rokinu, en KR-ingar þiggja eflaust stigin þrjú með bros á vör. Sport 24.5.2006 21:14
Jafnt í hálfleik í Grindavík Nú er kominn hálfleikur í leik Grindavíkur og Keflvíkur í Landsbankadeild karla í knattspyrnu og staðan er jöfn 1-1. Jóhann Þórhallsson kom heimamönnum yfir á 33. mínútu, en hinn sólbrúni Guðmundur Steinarsson jafnaði metin aðeins fjórum mínútum síðar með marki úr vítaspyrnu. Grindvíkingar leika með sterkan vindinn í bakið í síðari hálfleiknum, en mjög hvasst er í Grindavík sem og annarsstaðar á suðvesturhorninu í kvöld. Sport 24.5.2006 20:49
Keflvíkingar fljótir að jafna Það tók Keflvíkinga ekki langan tíma að jafna metin í Grindavík, því aðeins fjórum mínútum eftir að heimamenn komust yfir í leiknum, hefur Guðmundur Steinarsson jafnað fyrir Keflavík úr vítaspyrnu - eftir klaufagang í vörn heimamanna. Sport 24.5.2006 20:37
Jóhann kemur Grindvíkingum yfir Jóhann Þórhallsson hefur komið Grindvíkingum í 1-0 gegn grönnum sínum úr Keflavík í sjónvarpsleiknum á Sýn. Mark Jóhanns kom á 33. mínútu og bætti Jóhann þar með fyrir að hafa klúðrað vítaspyrnu í upphafi hálfleiksins. Þetta er fjórða mark Jóhanns í deildinni Sport 24.5.2006 20:34
KR yfir í hálfleik KR-ingar hafa yfir 1-0 gegn Fylki í leik liðanna á KR-velli. Það var Tryggvi Bjarnason sem skoraði mark heimamanna á 28. mínútu, en eftir fjöruga byrjun, dró heldur úr leikmönnum beggja liða í rokinu í Frostaskjóli. Leikur Grindavíkur og Keflavíkur er hafinn og er í beinni útsendingu á Sýn. Þar er staðan jöfn 0-0, en Grindvíkingar voru rétt í þessu að misnota vítaspyrnu á 10. mínútu leiksins. Sport 24.5.2006 20:07
Tryggvi kemur KR yfir Tryggvi Bjarnason var rétt í þessu að koma KR-ingum yfir gegn Fylki í vesturbænum. Gestirnir úr Árbænum höfðu verið heldur sterkari fram að þessu, en Tryggvi náði að koma KR yfir með skalla af stuttu færi eftir klafs í teig Fylkis. Leikur Grindavíkur og Keflavíkur hefst klukkan 20 og er hann sýndur í beinni útsendingu á Sýn. Sport 24.5.2006 19:46
Stjarnan lagði KR Stjörnustúlkur lögðu KR 2-1 á heimavelli sínum í Landsbankadeild kvenna í knattspyrnu í kvöld. Valur burstaði Þór/KA 6-0, Fylkir sigraði FH 3-0 á útivelli og Breiðablik sigraði Keflavík 3-1 á útivelli. Breiðablik og Valur hafa fullt hús stiga eftir tvær umferðir, en KR og FH eru á botninum án stiga. Sport 23.5.2006 21:19
Stjarnan yfir gegn KR Nú er kominn hálfleikur í leikjum kvöldsins í Landsbankadeild kvenna. Stjörnustúlkur hafa yfir 1-0 gegn KR í rokinu á Stjörnuvelli, þar sem Helga Jóhannesdóttir skoraði mark heimamanna á 18. mínútu. Valur hefur yfir 4-0 í hálfleik gegn KA/Þór, Breiðablik leiðir 3-0 gegn Keflavík og markalaust er hjá FH og Fylki. Sport 23.5.2006 20:23
Eiður til Barcelona? Eiður Smári Guðjohnsen gæti verið rétti maðurinn til þess að leysa af Henke Larsson í Barcelona. Fréttir herma að fyrrum leikmaður Manchester United, Diego Forlan sé fyrsti kostur Evrópumeistarana. Ef það gengur ekki upp þá er Eiður Smári næstur á listanum. Sport 23.5.2006 10:28
Íslenskur sigur í Digranesi Íslenska kvennalandsliðið í blaki gerði sér lítið fyrir og sigraði í fyrsta riðli undankeppni Evrópumóts smáþjóða sem haldinn var í íþróttahúsinu í Digranesi um helgina. Íslenska liðið vann alla þrjá leiki sína í keppninni og sýndi gríðarlegan karakter í úrslitaleiknum gegn Kýpur í gær. Sport 21.5.2006 20:53
2 marka sigur FH í Laugardalnum Íslandsmeistarar FH unnu tveggja marka útisigur á Val, 0-2 á Laugardalsvelli í kvöld í lokaleik 2. umferðar Landsbankadeildar karla í knattspyrnu. Valsmenn voru síst lakari aðilinn í leiknum en máttu sætta sig við að fá bæði mörkin á sig eftir aukaspyrnur Tryggva Guðmundssonar. Ármann Smári Björnsson og Freyr Bjarnason skoruðu mörk Íslandsmeistaranna sem eru með fullt hús stiga eftir tvær umferðir. Sport 21.5.2006 21:53
Ármann Smári kemur FH yfir gegn Val FH hefur náð forystu gegn Val á Laugardalsvelli, 0-1 í lokaleik 2. umferðar Landsbankadeildar karla í knattspyrnu. Það var fyrrverandi Valsmaðurinn Ármann Smári Björnsson sem skoraði markið með skalla í þverslána og inn eftir aukaspyrnu Tryggva Guðmundssonar af vinstri kanti. Leiknum er lýst beint hér á Vísi. Sport 21.5.2006 20:35
Spangsberg byrjar inni á í stað Garðars Willum Þór Þórsson þjálfari Vals hefur tekið Garðar Gunnlaugsson og Baldur Aðalsteinsson úr byrjunarliði Vals sem tekur á móti FH í stórleik 2. umferðar Landsbankadeildar karla í knattspyrnu. Leikurinn hófst kl. 20 og er í beinni útsendingu á Sýn. Við bendum á að Vísir er einnig með beina útsendingu frá leiknum... Sport 21.5.2006 20:18
Þróttur eitt á toppnum Þróttur Reykjavík er eitt á toppnum í 1. deild karla í knattspyrnu þegar tveimur umferðum er lokið en annarri umferð lauk með þremur leikjum nú undir kvöldið. Þróttarar lögðu Víking Ólafsvík á útivelli, 2-3, HK vann 4-1 sigur á KA á meðan Þór Akureyri gerði 1-1 jafntefli við Stjörnuna fyrir norðan. Sport 21.5.2006 18:14
Nýr golfvöllur tekinn í notkun Golfklúbbur Kópavogs og Garðabæjar tók í dag formlega í notkun nýjan golfvöll í Leirdal sem er 9 holu viðbót við golfvöll klúbbsins við Vífilsstaði. Bæjarstjórar Kópavogs og Garðabæjar afhentu Golfklúbbi GKG völlinn til afnota og undirrituðu í leiðinni viljayfirlýsingu um áframhaldandi stuðning við golfklúbbinn. Sport 21.5.2006 14:19
Jafnt á Skaganum Nú stendur yfir leikur Skagamanna og KR-inga á Akranesi. Leikurinn hófst klukkan 16. Staðan er 1-1.. Guðmundur Gunnarsson kom KR yfir skömmu fyrir miðjan hálfleikinn en skömmu síðar jafnaði Arnar Gunnlaugsson metin úr vítaspyrnu. Leikurinn er sýndur beint á Sýn. Sport 20.5.2006 16:32
Blikar burstuðu Eyjamenn Breiðablik vann ÍBV 4-1 í Landsbankadeild karla í knattspyrnu í Kópavoginum í dag. Eyjamenn náðu forystu á 21. mínútu þegar Johan Long skoraði beint úr hornspyrnu. Sport 20.5.2006 16:30
Glæsimark Grétars tryggði KR sigur Grétar Hjartarson skoraði sigurmark KR í 1-2 útisigri Vesturbæjarliðsins á ÍA í Landsbankadeild karla í knattspyrnu. Sport 21.5.2006 02:53
Keflvíkingar stálu sigrinum í lokin Keflvíkingar lögðu nýliða Víkings 2-1 á heimavelli sínum í Keflavík í kvöld og það var Stefán Örn Arnarson sem skoraði sigurmark liðsins í blálokin. Hólmar Örn Rúnarsson skoraði fyrsta mark leiksins á 40. mínútu, en Davíð Þór Rúnarsson jafnaði fyrir Víking á þeirri 69. Víkingur hefur því tapað tveimur fyrstu leikjum sínum í deildinni. Sport 19.5.2006 21:25
Christiansen tryggði Fylki öll stigin Það var mikil dramatík í Árbænum í kvöld þegar Fylkir lagði Grindavík 2-1 í Landsbankadeild karla í knattspyrnu. Grindvíkingar voru yfir í leikhléi, en Sævar Þór Gíslason jafnaði metin fyrir heimamenn úr víti á 86. mínútu og lagði svo upp sigurmarkið fyrir Christian Christiansen þegar þrjár mínútur voru komnar fram yfir venjulegan leiktíma. Grindvíkingar léku manni færri frá 65. mínútu. Sport 19.5.2006 21:11
Grindavík hefur yfir í Árbænum Nú er kominn hálfleikur í leikjunum tveimur sem standa yfir í annari umferð Landsbankadeildar karla í knattspyrnu. Grindvíkingar hafa yfir 1-0 gegn Fylki í Árbænum, þar sem Jóhann Þórhallsson skoraði mark gestanna á 32. mínútu og þar með sitt þriðja mark í sumar. Keflvíkingar hafa náð 1-0 forystu gegn nýliðum Víkings með marki frá Hólmari Erni Rúnarssyni á 40. mínútu. Sport 19.5.2006 20:00
Tveir leikir í kvöld Nú klukkan 19:15 hefjast fyrstu tveir leikirnir í annari umferð Landsbankadeildar karla í knattspyrnu og hægt er að fylgjast náið með gangi mála á Boltavaktinni hér á Vísi þar sem nýjustu tíðindi af leikjunum eru uppfærð um leið og þau gerast. Fylkir tekur á móti Grindavík í Árbænum og Keflvíkingar mæta nýliðum Víkings suður með sjó. Sport 19.5.2006 19:09
Ernir í Val Handknattleiksmaðurinn efnilegi Ernir Hrafn Arnarsson úr Aftureldingu í Mosfellsbæ er genginn til liðs við Valsmenn. Ernir skrifaði í dag undir þriggja ára samning við Reykjavíkurliðið, sem ætlar sér stóra hluti næsta vetur og lofuðu forráðamenn liðsins frekari liðsstyrk á næstunni á blaðamannafundi sem haldinn var af þessu tilefni í dag. Sport 19.5.2006 19:00
Þráðlaust net á vellinum í sumar Og Vodafone hefur tekið í notkun þráðlaust net (Hot Spot) á öllum völlum í efstu deild karla og kvenna í sumar, alls 13 völlum. Innlent 18.5.2006 11:19
Tap fyrir Hollandi Íslenska kvennalandsliðið í handknattleik tapaði í kvöld síðari æfingaleik sínum við Hollendinga í Ásgarði 25-21. Ísland hafði yfir í hálfleik 13-12, en hollensku stúlkurnar voru sterkari í síðari hálfleiknum og unnu sannfærandi sigur. Hrafnhildur Skúladóttir var markahæst í íslenska liðinu með 6 mörk og Ágústa Edda Björnsdóttir skoraði 5 mörk. Sport 17.5.2006 18:55
Ísland yfir í hálfleik Íslenska kvennalandsliðið í handknattleik hefur yfir 13-12 í hálfleik gegn Hollendingum í síðari æfingaleik þjóðanna á tveimur dögum. Leikurinn fer fram í Ásgarði í Garðabæ og hófst klukkan 17. Sport 17.5.2006 17:37
Góður sigur á Hollendingum Íslenska kvennalandsliðið í handknattleik vann í kvöld góðan 29-28 sigur á hollenska landsliðinu í Laugardalshöllinni, en þetta var fyrri æfingaleikur liðanna á tveimur dögum. Íslenska liðið átti á brattann að sækja þegar tíu mínútur voru eftir af leiknum, en náði að snúa við dæminu á lokasprettinum. Sport 16.5.2006 21:36
Auðvelt hjá Blikastúlkum Íslandsmeistarar Breiðabliks hefja leiktíðina með glæsibrag í Landsbankadeild kvenna í knattspyrnu, en í kvöld vann liðið öruggan 4-0 sigur á KR á Kópavogsvelli. Á sama tíma burstuðu Valsstúlkur Stjörnuna 6-0, Þór/KA vann FH 4-2 fyrir norðan og Keflavíkurstúlkur lögðu Fylki í Árbænum 2-0. Sport 16.5.2006 21:26
Samningur Petkevicius ekki framlengdur Íslandsmeistarar Fram í handknattleik hafa ákveðið að endurnýja ekki samninga við litháenska markvörðinn Egidijus Petkevicius sem verið hefur hjá liðinu í þrjú ár. Sport 16.5.2006 18:26
Stórleikur strax í fyrstu umferð Fyrsta umferð Landsbankadeildar kvenna fer fram í kvöld með fjórum leikjum og þar er er strax á dagskrá stórleikur Íslandsmeistara Breiðabliks og KR á Kópavogsvelli. Leikir kvöldsins hefjast allir klukkan 19:15. Sport 16.5.2006 17:55