Innlendar

Atli og Snjólaug sigursæl á Meistaramóti BH
Atli Jóhannesson og Snjólaug Jóhannsdóttir úr TBR unnu tvenn gullverðlaun á Meistaramóti Badmintonfélags Hafnarfjarðar sem fram fór um helgina.

Verðlaunaði sjálfan sig með pitsu
Róbert Kristmannsson var maður helgarinnar á Íslandsmótinu í áhaldafimleikum. Hann sigraði í fjölþraut á laugardag og bætti um betur í gær er hann vann Íslandsmeistaratitil á öllum áhöldum. Fullt hús hjá honum. Í kvennaflokki varð Thelma Rut Hermannsdótti

Hilmar Örn kastaði vel í Svíþjóð
Hilmar Örn Jónsson, frjálsíþróttamaðurinn efnilegi úr ÍR, stóð sig vel á móti í Vaxjö í Svíþjóð um helgina. Hilmar Örn hafnaði í 4. sæti í kringlukasti í dag og 2. sæti í kúluvarpi í gær.

Apostolov endurráðinn sem landsliðsþjálfari kvenna í blaki
Apostol Apostolov hefur verið endurráðinn sem landsliðsþjálfari A-landsliðs kvenna í blaki. Apostolov hefur stýrt liðinu frá árinu 2008 en hann er einnig þjálfara unglingalandsliða Íslands.

Hlaupakona úr Grindavík fyrst í mark á Kanaríeyjum
Christine Bucholtz, hlaupakona úr Grindavík, kom fyrst í mark í maraþonhlaupi kvenna í TransCranCanaria-hlaupinu á Kanaríeyjum á dögunum.

Róbert Íslandsmeistari á öllum áhöldum
Síðari keppnisdagur á Íslandsmeistaramótinu í fimleikum fór fram í Ármannsheimilinu í dag. Þá fór fram keppni í úrslitum á einstaka áhöldum í karla- og kvennaflokki, ásamt unglingaflokki karla og kvenna.

Thelma Rut og Róbert Íslandsmeistarar í áhaldafimleikum
Íslandsmótið í áhaldafimleikum fór fram í íþróttahúsi Ármanns í Laugardalnum í dag. Keppt var í bæði karla- og kvennaflokki í frjálsum æfingum ásamt unglingaflokkum karla og kvenna.

100 ára íþróttasaga Íslands
Íþróttir Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands fagnar aldarafmæli sínu á þessu ári og hefur af því tilefni gefið út Íþróttabókina – sögu og samfélag í 100 ár.

Nýr meistari hjá strákunum | Níu ára sigurganga Viktors á enda
Viktor Kristmannsson er ekki meðal keppenda á Íslandsmótinu í áhaldafimleikum sem fram fer í Laugabóli í Reykjavík í dag og á morgun.

Willum Þór aðalgesturinn í Boltanum á X-inu
Willum Þór Þórsson, þjálfari Leiknis, verður aðalgesturinn í þættinum Boltinn á X-inu 977 sem hefst klukkan 11.00 á eftir og er fram að hádegi.

Boltinn í dag: Arnar Grétars í viðtali
Arnar Grétarsson, yfirmaður knattspyrnumála hjá AEK í Grikklandi, verður í viðtali í Boltanum á X-inu 977 sem hefst klukkan 11.00. Það er allt í tjóni hjá AEK og Arnar mun greina frá stöðu mála.

Gunnar Nelson: Nýt mín ekki í hringnum
„Það er ekki það skemmtilegasta við þetta sport að vera í hringnum. Ég get ekki sagt að ég njóti mín eitthvað sérstaklega þar," sagði bardagakappinn Gunnar Nelson sem var í ítarlegu viðtali í íþróttaþættinum á X-inu 977 í gær. Í viðtalinu fór Gunnar yfir víðan völl og viðurkenndi meðal annars að hann nyti sín ekki í hringnum. Gunnar hefur unnið níu bardaga í röð í blönduðum bardagaíþróttum eftir að hafa gert jafntefli í sínum fyrsta.

Ármann batt enda á 15 ára sigurgöngu Gerplu í frjálsum æfingum
Lið Gerplu voru sigursæl á Bikarmóti Fimleikasambands Íslands í Versölum í Kópavogi í gær. Ármann batt enda á 15 ára sigurgöngu Gerplu í frjálsum æfingum karla.

Ragna komst í þriðju umferð í Austurríki
Ragna Ingólfsdóttir komst áfram í þriðju umferð á alþjóðlegu badmintonmóti sem fram fer í Austurríki. Ragna lagði Simone Prutsch frá Austurríki en Ragna vann tvær síðustu loturnar eftir að hafa tapað fyrstu lotunni 24-26.

Handboltinn í fyrirrúmi í Boltanum á X-inu 977
Það er bikarúrslitahelgi í handboltanum og stórleikur í Meistaradeildinni um helgina og því verður mikið fjallað um handbolta í Boltanum á X-inu 977 í dag. Þátturinn er á milli 11 og 12.

Andstæðingur Árna dregur sig úr keppni | Árni keppir ekki um helgina
Það verður ekkert af því að Árni "úr járni" Ísaksson keppi í Cage Contender í Dublin um helgina. Andstæðingur hans hefur nefnilega dregið sig úr keppni.

Karfa og fótbolti umfjöllunarefnið í Boltanum á X-inu 977
Íþróttafréttamennirnir Elvar Geir Magnússon og Tómas Þór Þórðarson stjórna boltaþættinum á X-inu 977 í dag á milli 11-12. Gestur þáttarins að þessu sinni er Jón Björn Ólafsson körfuboltasérfræðingur fréttavefsins karfan.is. Einnig verður rætt við knattspyrnumanninn Sverri Garðarsson sem nýverið gekk í raðir ÍBV.

Trausti bætti Íslandsmetið | ÍR-ingar settu met í 4x400
Spretthlauparinn Trausti Stefánsson úr FH bætti um helgina Íslandsmet sitt í 400 metra hlaupi innanhúss. Trausti hljóp á tímanum 48,05 sekúndum.

FH-ingar náðu titlinum úr höndum ÍR-inga
FH-ingar náðu að heimta bikarmeistaratitilinn í frjálsum íþróttum úr höndum ÍR-inga en keppt var í Laugardal um helgina. ÍR hafði unnið keppnina seinustu tvö ár. FH sigraði í karlaflokki og ÍR í kvennaflokki.

Helga Margrét vann í Hollandi | Grátlega nálægt Íslandsmetinu
Helga Margrét Þorsteinsdóttir vann glæsilegan sigur í fimmþraut á hollenska meistaramótinu í dag. Helga var þess utan aðeins sex stigum frá Íslandsmeti sínu.

Fimleikaþing vill breytingar á kjöri íþróttamanns ársins
Stjórn Fimleikasambands Íslands er ósátt við aðkomu ÍSÍ að kjöri íþróttamanns ársins og hefur skorað á stjórn ÍSÍ að endurskoða aðkomu sína að kjörinu.

Bikarhelgi í enska boltanum
Sjónvarp Fjölmargar beinar útsendingar verða að venju í sjónvarpinu um helgina en þetta er bikarhelgi bæði í enska boltanum og í körfunni.

Guðlaugur Victor gestur í Boltanum á X-inu í dag
Guðlaugur Victor Pálsson, leikmaður NY Red Bulls, er aðalgesturinn í þættinum Boltinn á X-inu 977 í dag. Þátturinn hefst klukkan 11.00. Guðlaugur er fyrsti Íslendingurinn sem spilar í MLS-deildinni.

Gunnar Nelson í beinni á Stöð 2 Sport
Stöð 2 Sport sýnir beint frá bardögum Gunnars Nelsonar og Árna Ísakssonar sem verða meðal keppenda í Cage Contender XII sem fram fer í Dublin á Írlandi þann 25. febrúar.

Kynþáttafordómar í brennidepli í Boltanum á X-inu
Lætin í kringum Luis Suarez og Patrice Evra um helgina verða krufin til mergjar í íþróttaþættinum Boltinn á X-inu 977 á eftir. Þátturinn er á milli ellefu og tólf.

ÓL í hættu hjá Þormóði: Hugsa það versta en býst við því besta
Ólympíudraumur júdókappans Þormóðs Árna Jónssonar er í uppnámi eftir að hann meiddist á hné. Hann gæti verið með slitið liðband og sé það raunin mun hann missa af Ólympíuleikunum í London í sumar.

Agne Bergvall verður með Helgu Margréti í Tallinn
Ármenningurinn Helga Margrét Þorsteinsdóttir flaug í gær til Tallinn í Eistlandi þar sem hún mun á laugardaginn keppa í sinni fyrstu fimmtarþraut innanhúss á þessu keppnistímabili. Mótið er svokallað EAA Permit mót sem er á vegum Frjálsíþróttasambands Evrópu.

Íslenskir tvíburar Norðurlandameistarar félagsliða í blaki
Tvíburarnir Hafsteinn og Kristján Valdimarssynir eru að gera það gott með danska liðinu Marienlyst. Þeir urðu um helgina Norðurlandameistarar félagsliða en vikuna á undan höfðu þeir orðið danskir bikarmeistarar.

Trausti setti Íslandsmet í 400 metra hlaupi á Stórmóti ÍR
Trausti Stefánsson úr FH setti Íslandsmet í 400 m hlaupi á sextánda Stórmóti ÍR sem fór fram í Laugardalshöll um helgina. Hápunktar mótsins voru þetta Íslandsmet og Færeyjamet í þrístökki karla.

Helga Margrét keppir í sinni fyrstu þraut á árinu um næstu helgi
Ármenningurinn Helga Margrét Þorsteinsdóttir hefur nú hafið sitt innanhússtímabil og er búin að keppa í fimm greinum á tveimur mótum undanfarið, fyrst á Reykjavíkurleikunum um síðustu helgi og svo á móti í Norrköping í Svíþjóð um helgina.