Íþróttir
289 290 291 292 293 294 295 296 297 … 334 ›
Skrautlegur sigur Liverpool Liverpool bar sigurorð af Luton Town 5-3 í lokaleik dagsins í FA bikarnum á Englandi, en leikurinn var bráðfjörugur og var sýndur í beinni útsendingu á Sýn. Heimamenn í Luton Town komust í 3-1 í leiknum, en Liverpool sýndi klærnar í síðari hálfleik og tryggði sér sigurinn. Sport 7.1.2006 19:25
Stjarnan lagði Víking Þrír leikir fóru fram í DHL-deild kvenna í handbolta nú síðdegis. Stjarnan sigraði Víking 24-18 á heimavelli sínum í Ásgarði. Rakel Dögg Bragadóttir var markahæst í liði Stjörnunnar með 6 mörk, en Natasha Damiljanovic skoraði 5 fyrir Víking. Sport 7.1.2006 18:32
Luton yfir gegn Liverpool í hálfleik Luton Town er heldur betur að koma á óvart gegn Liverpool í lokaleik dagsins í enska bikarnum. Luton hefur yfir 2-1 í hálfleik, eftir að Steven Gerrard hafði komið Evrópumeisturunum yfir senmma leiks. Leikurinn er í beinni útsendingu á Sýn. Sport 7.1.2006 18:20
Stórtap hjá Haukastúlkum Kvennalið Hauka tapaði í dag 37-24 fyrir króatíska liðinu Podravka í EHF-keppninni í handbolta á heimavelli sínum að Ásvöllum, en síðari leikur liðanna fer fram á sama stað. Ramune Pekarskyte skoraði 11 mörk fyrir Haukana, sem komust í 3-0 í leiknum en sáu aldrei til sólar eftir það. Sérstaklega var markvörður Podravka þeim erfiður ljár í þúfu, en hún varði 27 skot í leiknum. Sport 7.1.2006 17:41
Úrvalsdeildarliðin í vandræðum en sluppu við áföll Nokkur úrvalsdeildarlið lentu í vandræðum gegn smærri liðum í enska bikarnum í dag, en þó sluppu þau við stóráföll. Everton náði aðeins jafntefli 1-1 gegn Milwall, Middlesbrough gerði jafntefli við Nuneaton 1-1, Birmingham gerði markalaust jafntefli við Torquay og West Brom gerði 1-1 jafntefli við Reading. Að öðru leiti náðu úrvalsdeildarliðin að leggja andstæðinga sína að velli. Sport 7.1.2006 16:59
Eiður tryggði Chelsea sigurinn Eiður Smári Guðjohnsen tryggði Chelsea 2-1 sigur á Huddersfield í enska bikarnum í dag með marki á 82. mínútu. Carlton Cole kom Chelsea yfir í leiknum, en Huddersfield sýndi mikla seiglu og náði að jafna, áður en Eiður Smári gerði út um leikinn í lokin. Eiður var fyrirliði Chelsea í dag. Sport 7.1.2006 16:52
ÍBV lagði Gróttu DHL-deild kvenna hófst aftur í dag eftir langt vetrarfrí. ÍBV sigraði Gróttu í Eyjum 31-25. Ivana Velkjovic skoraði níu mörk fyrir Eyjastúlkur, en Renata Horvath skoraði mest fyrir Gróttu, átta mörk. Sport 7.1.2006 16:10
Martin Djetou látinn fara frá Bolton Sam Allardyce hefur ákveðið að láta Martin Djetou fara frá félaginu eftir að leikmanninum mistókst að sanna sig síðan hann kom til Bolton í haust. Djetou hafði vonast til að fá að spila með liðinu í bikarnum nú um helgina til að sanna sig fyrir stjóranum, en sá hefur ekki talið sig hafa not fyrir leikmanninn. Sport 7.1.2006 16:03
Orðað við Iaquinta hjá Udinese Breska dagblaðið Mirror greinir frá því í dag að Tottenham Hotspurs sé nú að undirbúa 7 milljón punda tilboð í ítalska sóknarmanninn Vincenzo Iaquinta hjá Udinese. Þá segir í sömu frétt að félagið sé í viðræðum við Portsmouth um að selja þá Noe Pamarot, Sean Davis og Pedro Mendes fyrir alls um 5 milljónir punda til að fjármagna kaupin á Iaquinta. Sport 7.1.2006 15:42
Everton undir gegn Millwall Nú standa yfir 23 leikir í enska bikarnum og leikhlé komið í þeim flestum. Það sem af er stendur hæst að Millwall hefur yfir 1-0 í hálfleik gegn úrvalsdeildarliði Everton. Blackburn hefur yfir 2-0 gegn QPR með mörkum frá Todd og Bellamy, Chelsea hefur yfir 1-0 gegn Huddersfield með marki frá Carlton Cole, en þar er Eiður Smári Guðjohnsen í byrjunarliði Chelsea. Sport 7.1.2006 15:49
Clijsters sigraði í Hong Kong Tenniskonan Kim Clijsters sigraði á sterku tennismóti sem fram fór í Hong Kong í dag, þegar hún lagði stigahæstu tenniskonu heims, Lindsay Davenport, í úrslitaleik 6-3 og 7-5. Þær stöllur verða svo í eldlínunni á opna ástralska meistaramótinu sem fram fer síðar í þessum mánuði. Sport 7.1.2006 15:33
Jón Arnór í stuði með Napoli Jón Arnór Stefánsson var í stuði með liði sínu Napoli í ítölsku A-deildinni í körfubolta í gærkvöldi og skoraði 21 stig í sigri liðsins á Roma, 94-70 og er liðið í þriðja sæti deildarinnar eftir sigurinn. Sport 7.1.2006 15:22
Í viðræðum við Fulham Markvörðurinn Antti Niemi er nú í viðræðum við Fulham um að ganga til liðs við félagið frá Southampton, þar sem hann hefur varið markið með ágætum síðustu ár. Charlton var einnig talið vera á höttunum eftir Niemi, en nýjustu fréttir herma að hann sé við það að skrifa undir hjá Fulham og snúi því aftur í úrvalsdeildina. Kaupverðið er talið vera um 1,5 milljónir punda. Sport 7.1.2006 15:14
Palace hafnaði stóru tilboði í Johnson Birmingham hafði ekki erindi sem erfiði í dag þegar liðið bauð Crystal Palace 3 milljónir punda og tvo leikmenn í skiptum fyrir framherjann Andy Johnson, en Palace sagði þvert nei eins og áður. Svörin sem Birmingham fékk var að Palace ætlaði sér í úrvalsdeildina og því hefði það ekki efni á að selja Johnson fyrr en í allra fyrsta lagi í sumar. Sport 7.1.2006 15:09
Arsenal lagði Cardiff Þremur leikjum er nú lokið í enska bikarnum. Arsenal lagði Cardiff 2-1 með mörkum frá Robert Pires, Aston Villa lagði Hull City 1-0 á útivelli með marki Gareth Barry, en 1. deildarlið Leeds náði jafntefli 1-1 á útivelli gegn Wigan og því verða liðin að mætast öðru sinni á heimavelli Leeds. Sport 7.1.2006 15:04
Phoenix burstaði Miami Stjörnum prýtt lið Miami Heat á ekki sjö dagana sæla um þessar mundir og í nótt tapaði liðið stórt fyrir Phoenix Suns 111-93, eftir að hafa fengið á sig 47 stig í fyrsta fjórðung leiksins. Dwayne Wade lék ekki með Miami í nótt, en Steve Nash fór á kostum í liði Phoenix, skoraði 11 stig og gaf 19 stoðsendingar, þar af 12 í fyrsta leikhlutanum, sem er annar besti árangur í sögu NBA. Sport 7.1.2006 14:09
Robson að landa Ehiogu Bryan Robson, stjóri West Brom, er sagður vera að leggja lokahönd á að fá til sín varnarmanninn Ugo Ehiogu frá Middlesbrough, en Ehiogu lék einmitt undir stjórn Robson hjá Boro á sínum tíma. Robson var í stífum viðræðum við forráðamenn Boro í gær og talið er að samningar gætu jafnvel náðst um helgina. Ehiogu er 33 ára miðvörður og á að baki landsleiki fyrir England, en hefur lítið spilað í vetur. Sport 7.1.2006 03:10
Thierry Henry ætlar að vera áfram hjá Arsenal Franski knattspyrnusnillingurinn Thierry Henry hefur nú bundið enda á vangaveltur um framtíð hans hjá Arsenal, því í kvöld lýsti hann því yfir í viðtali við The Sun að hann ætlaði að vera áfram hjá félaginu í það minnsta út næsta keppnistímabil. Þetta eru mjög góðar fréttir fyrir stuðningsmenn Arsenal, sem óttuðust mjög að hann fetaði í fótspor Patrick Vieira og reyndi fyrir sér á meginlandinu. Sport 7.1.2006 02:49
Ferdinand semur til 2010 Hinn tvítugi Anton Ferdinand hjá West Ham hefur undirritað nýjan samning við félagið sem gildir til ársins 2010. Ferdinand hefur verið hjá félaginu allar götur síðan 2001 og er aðeins tvítugur. "Ég er í skýjunum yfir því að búið sé að semja við Anton, hann á eftir að gera stóra hluti í framtíðinni," sagði Alan Pardew, stjóri West Ham. Þess má geta að Anton er bróðir Rio Ferdinand hjá Manchester United. Sport 6.1.2006 21:10
Van Persie skrifaði undir Hollenski framherjinn Robin Van Persie hefur skrifað undir nýjan samning við Arsenal sem nær allt til ársins 2011. Hann var keyptur frá Feyenoord fyrir 2,75 milljónir vorið 2004, en miklar vonir eru nú bundnar við hann í framtíðinni. Sport 6.1.2006 21:01
Fimm leikir í beinni í enska bikarnum Það verður sannkölluð íþróttaveisla á Sýn um helgina, þar sem hápunkturinn verður FA bikarinn á Englandi og hvorki meira né minna en fimm leikir í beinni útsendingu á laugardag og sunnudag. Auk þessa verða beinar útsendingar úr ítalska- og spænska boltanum og NBA körfuboltanum svo eitthvað sé nefnt. Sport 6.1.2006 15:13
Hornets spila þrjá leiki í New Orleans Forráðamenn New Orleans/Oklahoma City Hornets-liðsins í NBA deildinni hafa nú tilkynnt að liðið muni spila þrjá heimaleiki í New Orleans í vor sökum þess hve vel uppbygging í borginni gengur eftir að fellibylurinn Katrín reið þar yfir á sínum tíma. Sport 6.1.2006 14:41
Henry fer til Barcelona Fyrrum sóknarmaður Arsenal, Ian Wright, segist búast fastlega við því að Frakkinn Thierry Henry gangi til liðs við Barcelona á Spáni í sumar og tekur þar með undir áhyggjur stjórnarformanns Arsenal á dögunum. Sport 6.1.2006 14:08
Brown orðaður við tvö félög Michael Brown, leikmaður Tottenham, hefur nú verið orðaður við tvö félög í ensku knattspyrnunni, en hann hefur ekki átt fast sæti í liði Tottenham síðan þeir Jermaine Jenas og Edgar Davids gengu í raðir liðsins í sumar. Manchester City og Sheffield United eru sögð hafa mikinn áhuga á Brown, sem er mikill vinnuhestur, en hann kom einmitt til Tottenham frá Sheffield United fyrir tveimur árum. Sport 6.1.2006 14:03
Mwaruwari kominn til Portsmouth Enska úrvalsdeildarliðið Portsmouth hefur gengið frá kaupum á landsliðsmanninum Benjani Mwaruwari frá Zimbabwe fyrir rúmar fjórar milljónir punda. Mwaruwari þessi er sóknarmaður og spilaði áður með franska liðinu Auxeirre. Hann er 27 ára gamall og valdi Portsmouth fram yfir Wigan og Marseille sem einnig höfðu áhuga á að fá hann í sínar raðir. Sport 6.1.2006 12:47
Ákærður fyrir ljóta tæklingu David Sommeil, leikmaður Manchester City, á yfir höfði sér þriggja leikja bann fyrir ljóta tæklingu sína á Lee Young-Pyo hjá Tottenham í leik liðanna í vikunni. Martin Jol, stjóri Tottenham kallaði þetta ljótustu tæklingu sem hann hefði séð, en boltinn var víðsfjarri þegar Sommeil sparkaði í hné mótherja síns. Sport 6.1.2006 12:36
Gaydamak formlega orðinn meðeigandi Alexandre Gaydamak hefur nú formlega gengið frá kaupum á helmingshlut í knattspyrnufélaginu Portsmouth, en stjórnarformaðurinn Milan Mandaric er sagður hafa þegið um 15 milljónir punda fyrir að láta eftir hlut sinn. Gaydamak er jafnvel sagður hafa í hyggju að taka yfir allt félagið á næstu 12 mánuðum, en það ku hafa verið skilyrði fyrir kaup hans á helmingshlut sínum nú. Sport 6.1.2006 11:50
Schwarzer á sölulistann Middlesbrough hefur samþykkt beiðni markvarðarins Mark Schwarzer um að vera settur á sölulista hjá félaginu. Schwarzer hefur spilað 342 leiki fyrir Boro síðan hann kom til liðsins árið 1997, en hann er ástralskur landsliðsmaður. Honum þótti kominn tími til að breyta til og hefur Steve McClaren ákveðið að verða við beiðni hans, með nokkrum trega þó. Sport 6.1.2006 11:31
Staðfestir kaupin á Evra Franski landsliðsmaðurinn Patrice Evra á nú aðeins eftir að ganga í gegn um læknisskoðun á mánudag til að ganga formlega í raðir Manchester United fyrir 5,5 milljónir punda. Evra er 24 ára gamall og lék áður hjá Mónakó í Frakklandi, en Alex Ferguson segist hafa haft augastað á honum allar götur síðan Gabriel Heinze meiddist í haust. Sport 6.1.2006 13:47
McGrady vann einvígið við James Tveir leikir fóru fram í NBA deildinni í körfubolta í nótt. Tracy McGrady og LeBron James háðu mikið einvígi þegar Houston vann góðan útisigur á Cleveland 90-81 og svo virðist sem Cleveland sakni Larry Hughes mikið, en hann verður frá í allt að tvo mánuði vegna fingurbrots. Cleveland hafði verið á mikilli sigurgöngu fyrir leikinn, en náði ekki að leggja meiðslum hrjáð lið Houston. Sport 6.1.2006 11:13