Íþróttir
233 234 235 236 237 238 239 240 241 … 334 ›
Púttin klikkuðu hjá mér Bandaríski kylfingnum Tiger Woods þótti ansi blóðugt að það hefðu verið sérgrein hans púttin sem hefðu orðið honum að falli á nýafstöðnu Masters-mótinu í Bandaríkjunum. Það var landi hans Phil Mickelson sem sigraði á mótinu og klæddist græna jakkanum sem hann einmitt afhenti Woods eftir mótið í fyrra. Sport 10.4.2006 09:53
Búist er við um 12 til 15 þúsund manns á Landsmót hestamanna Landsmót hestamanna verður haldið á Vindheimamelum í Skagafirði dagana 26. júní - 2. júlí næstkomandi. Undirbúningur og framkæmdir fyrir þennan stórviðburð eru langt á veg komnar og miðar vel. Búist er við um 12 til 15 þúsund manns á Landsmót og er áætlað að 5 – 7 þúsund af þeim séu erlendir gestir. Sport 10.4.2006 11:07
Opna Reykjavíkurmeistaramótið í hestaíþróttum Opna Reykjavíkurmeistaramótið verður haldið á félagssvæði Fáks í Víðidal dagana 10.-14. maí. Mótið er World Ranking mót og er keppt skv FIPO reglum. Sport 10.4.2006 10:39
Hiddink í fýlu út í enska knattspyrnusambandið Knattspyrnustjórinn Guus Hiddink sem gerði lið sitt PSV Eindhoven að Hollandsmeisturum í gær, er sármóðgaður út í enska knattspyrnusambandið og hefur nú fullyrt að hann muni alls ekki taka við lið Englendingum eftir að Sven-Göran Eriksson hættir störfum þar eftir HM í sumar. Sport 10.4.2006 10:23
Miðaverð hækkar mikið á næsa tímabili Gera má ráð fyrir að stuðningsmenn Manchester United verði sumir hverjir óhressir með nýjustu fréttir af félaginu, því forráðamenn félagsins hafa nú tilkynnt að miðaverð muni hækka verulega á næstu leiktíð. Þegar allt er talið hækkar miðaverð á leiki á Old Trafford að meðaltali um rúm 12%. Einhverjir stuðningsmanna liðsins geta þó sætt sig við það að það verða dýrustu sætin sem hækka hlutfallslega mest. Hækkunin þýðir að dýrasta sætið mun kosta um 38 pund, en það ódýrasta um 23 pund. Sport 10.4.2006 10:10
Þeir allra sterkustu Ein magnaðasta stóðhestasýning ársins verður haldin í Skautahöllinni í Laugardal, laugardaginn 15. apríl næstkomandi. "Þeir allra sterkustu" er heitið á sýningunni og eins og nafnið gefur til kynna verða glæsilegustu stóðhestar landsins sýndir á ísnum. Keppt verður í annarsvegar í tölti og er knöpum sem skarað hafa fram úr boðið í þann flokk. Sport 10.4.2006 09:28
Lakers vann grannaslaginn Los Angeles Lakers sigraði í nótt granna sína Clippers 100-83 í NBA deildinni og kom þar með í veg fyrir að Clippers hefði betur í innbyrðisviðureignum liðanna í fyrsta sinn síðan árið 1993. Kobe Bryant skoraði 17 af 38 stigum sínum í fjórða leikhlutanum, en Elton Brand og Sam Cassell skoruðu 24 stig hvor fyrir Clippers - sem þó er enn ofar í töflunni. Sport 10.4.2006 08:53
Phil Mickelson sigraði Bandaríski kylfingurinn Phil Mickelson vann í gær sinn annan sigur á þremur árum á Masters-mótinu í golfi sem fram fór á Augusta-vellinum. Mickelson lék lokahringinn á 69 höggum og endaði á 7 höggum undir pari - tveimur höggum á undan Suður-Afríkumanninum Tim Clark. Sport 10.4.2006 08:28
Kidd með áttundu þrennuna í sigri Nets Fimm leikjum er þegar lokið í NBA deildinni í kvöld. New Jersey Nets komst aftur á sigurbraut og lagði Milwaukee Bucks 95-83. Jason Kidd náði áttundu þrennu sinni í vetur og þeirri 75. á ferlinum þegar hann skoraði 11 stig, hirti 12 fráköst og gaf 10 stoðsendingar hjá Nets. Vince Carter var stigahæstur með 25 stig, en hjá Milwaukee skoraði TJ Ford mest, 19 stig. Leikur Seattle og Phoenix verður sýndur í beinni útsendingu á NBA TV klukkan eitt í nótt. Sport 9.4.2006 22:17
Haukar burstuðu Víking/Fjölni Íslandsmeistarar Hauka skutust í kvöld upp að hlið Fram á toppi DHL-deildarinnar í handbolta þegar liðið burstaði Víking/Fjölni á heimavelli sínum 33-19. Haukar hafa hlotið 39 stig eins og Fram, en Víkingur/Fjölnir er sem fyrr í næstneðsta sæti deildarinnar með aðeins 11 stig. Sport 9.4.2006 22:08
Mikilvægur sigur FH á HK FH-ingar unnu í kvöld gríðarlega mikilvægan 30-27 sigur á HK í DHL-deild karla í handbolta í Kaplakrika. HK hefði geta tryggt veru sína á meðal þeirra bestu með sigri, en þarf nú að bíða eitthvað lengur eftir því. HK er í 6.sæti deildarinnar með 28 stig, en FH er í því 7. með 23. Fyrr í dag lögðu Eyjamenn svo Stjörnuna 32-27 í leik sem skipti í raun litlu máli þar sem bæði lið sigla lygnan sjó í efri- og neðrihluta deildarinnar. Leik Hauka og Víkings/Fjölnis er enn ólokið. Sport 9.4.2006 20:44
Ánægður með Fowler Rafa Benitez var ánægður með sigurmark afmælisbarnsins Robbie Fowler gegn Bolton í ensku úrvalsdeildinni í dag og gaf til kynna að frammistaða eins og þessi yrði ekki til að skemma fyrir honum þegar kæmi að því að endurskoða samning hans í sumar. Sport 9.4.2006 19:40
Önnur félög hefðu ef til vill rekið Ferguson David Gill segir ekki ólíklegt að einhver önnur félög en Manchester United hefðu ef til vill látið Sir Alex Ferguson fara eftir vonbrigði framan af leiktíðinni, en bendir á að það að skipta um knattspyrnustjóra sé alls ekki alltaf lausnin. Sport 9.4.2006 20:17
Svaraði spurningunum á vellinum Breska blaðið The Sunday Mirror greindi frá því í dag að Wayne Rooney skuldaði 700.000 pund vegna veðmála á þessu ári og hefur málið vakið mikla athygli á Englandi, þar sem landsliðsþjálfarinn Sven-Göran Eriksson hefur meðal annars ákveðið að kalla Rooney á sinn fund til að ræða þessar fréttir. Rooney var spurður út í þessar fréttir eftir leikinn við Arsenal í dag. Sport 9.4.2006 19:55
PSV Eindhoven meistari PSV Eindhoven varði í dag meistaratitil sinn í hollensku knattspyrnunni þegar liðið gerði 1-1 jafntefli við Groningen á heimavelli sínum og liðið því komið með 80 stig í deildinni þegar aðeins tvær umferðir eru eftir. AZ Alkmaar tapaði á sama tíma fyrir Ajax og hefur 70 stig í öðru sætinu. Sport 9.4.2006 19:07
Stjarnan vann þrefalt Stjarnan úr Garðabæ er án efa lið ársins í blaki því í dag tryggði liðið sér bikarmeistaratitilinn með 3-1 sigri á KA í úrslitaleik. Stjarnan hefur því unnið þrefalt í karlaflokki í vetur. Kvennalið Þróttar úr Reykjavík vann öruggan 3-0 sigur á KA í úrslitaleiknum í kvennaflokki. Sport 9.4.2006 19:16
Jafnt hjá Santander og Barcelona Spænsku meistararnir í Barcelona urðu að sætta sig við jafntefli á útivelli gegn frísku liði Racing Santander í dag 2-2. Henrik Larsson og Samuel Eto´o skoruðu mörk Börsunga í leiknum sem sýndur var í beinni útsendingu á Sýn. Barcelona er sem fyrr á toppi deildarinnar og hefur 11 stiga forskot á Real Madrid og Valencia sem eru í öðru og þriðja sætinu. Sport 9.4.2006 18:55
Við eigum góða möguleika á að ná Chelsea Sir Alex Ferguson var mjög ánægður með sína menn eftir sigurinn á Arsenal í ensku úrvalsdeildinni í dag og segir lið sitt eiga ágæta möguleika á að ná Chelsea á lokasprettinum. Wayne Rooney var maður leiksins og skoraði annað mark liðsins og lagði hitt upp fyrir Kóreumanninn Park. Sport 9.4.2006 18:41
Loeb sigraði annað árið í röð Heimsmeistarinn í rallakstri, Sebastien Loeb frá Frakklandi, vann í dag sigur í hinu árlega Korsíkuralli sem staðið hefur yfir síðan fyrir helgi. Þetta er annað árið í röð sem Loeb sigrar í þessari keppni, en með sigrinum minnkaði hann forskot Marcus Grönholm á toppi stigakeppni ökumanna til heimsmeistaratitilsins. Loeb, sem ekur á Citroen, varð nærri hálfri mínútu á undan hinum finnska Grönholm sem ekur Ford-bifreið. Sport 9.4.2006 18:28
Hamburg bikarmeistari Lið Hamburg varð í dag bikarmeistari í þýska handboltanum þegar liðið skellti Kronau/Östringen í úrslitaleik 26-25. Hamburg hefur komið nokkuð á óvart í keppninni og sló meðal annars Íslendingalið Magdeburg úr keppni í undanúrslitum í gær. Sport 9.4.2006 18:21
Mickelson í forystu Bandaríski kylfingurinn Phil Mickelson hefur eins höggs forystu á Masters mótinu í golfi þegar einn hringur er eftir sem spilaður verður á morgun. Michelson er á fjórum höggum undir pari, en hann átti erfitt uppdráttar á síðasta hring eins og fleiri. Chad Campbell og Fred Couples eru jafnir í öðru sæti á mótinu á þremur höggum undir pari. Sport 9.4.2006 18:08
Kaka skoraði þrennu Brasilíski leikstjórnandinn Kaká fór á kostum í dag þegar AC Milan tók Verona í kennslustund 4-1 í ítölsku A-deildinni í knattspyrnu. Milan lenti undir 1-0 í leiknum, en varnarmaðurinn Nesta jafnaði leikinn og svo skoraði Kaká þrennu í síðari hálfleiknum, þar af eitt mark úr vítaspyrnu. Milan er sem fyrr í öðru sæti deildarinnar á eftir Juventus og eru tveimur stigum á undan grönnum sínum í Inter sem eru í þriðja sætinu. Sport 9.4.2006 17:20
Annað gull hjá Sif í dag Sif Pálsdóttir úr Gróttu bætti í dag við öðrum gullverðlaunum sínum á Norðurlandameistaramótinu í fimleikum þegar hún sigraði í keppni á tvíslá. Rúnar Alexandersson varð einnig hlutskarpastur í keppni á tvíslá í karlalokki. Sport 9.4.2006 17:09
Manchester United lagði Arsenal Manchester United heldur uppteknum hætti í toppbaráttunni í ensku úrvalsdeildinni og í dag vann liðið sannfærandi sigur á Arsenal 2-0 á heimavelli sínum Old Trafford, en þetta var níundi sigur United í röð. Maður leiksins Wayne Rooney skoraði fyrra mark United í upphafi síðari hálfleiksins og Kóreumaðurinn Park bætti við öðru marki á 78. mínútu og innsiglaði sigurinn. Sport 9.4.2006 16:57
Eins og við værum tólf á vellinum Jose Mourinho var afar ánægður með sigur sinna manna í Chelsea á West Ham í dag, þar sem heimamenn lentu marki undir og misstu mann af velli snemma leiks - en náðu að snúa dæminu við og vinna stórsigur. Mourinho sagði að sínir menn hefðu litið út fyrir að vera manni fleiri inni á vellinum en ekki einum færri eins og raun bar vitni. Sport 9.4.2006 16:41
Mayweather vann Judah Heimsmeistarinn Floyd Mayweather tryggði stöðu sína sem einn allra besti boxari heims þegar hann sigraði Zab Judah á stigum í bardaga þeirra í Las Vegas í nótt. Mayweather var sannarlega betri í bardaganum og hirti IBF-beltið af Judah með sigrinum. Mayweather er ósigraður í 35 bardögum. Sport 9.4.2006 16:31
Chelsea burstaði West Ham Chelsea vann sannfærandi sigur á grönnum sínum í West Ham í ensku úrvalsdeildinni í dag þrátt fyrir að vera manni færri nær allan leikinn. Maniche var vikið af leikvelli á 16. mínútu en áður hafði Collins komið gestunum í West Ham í 1-0. Chelsea tvíefldist við mótlætið og sigraði 4-1 með mörkum frá Drogba, Gallas, Crespo og Terry og heldur sínu striki á toppi deildarinnar. Sport 9.4.2006 16:14
Frábært Kvennatölt Kvennatölt Gusts og Landsbankans fór fram í gær, laugardag, og tókst frábærlega vel. Metskráning var á mótið og mættu á annað hundrað konur víðs vegar af landinu til leiks með gæðinga af bestu gerð. Keppnin var óvenju jöfn og hörð þetta árið og sáust feikna tilþrif í öllum flokkum. Sport 9.4.2006 02:16
Cleveland stöðvaði New Jersey LeBron James og félagar í Cleveland Cavaliers stöðvuðu í kvöld 14 leikja sigurgöngu New Jersey Nets í NBA deildinni með 108-102 sigri á útivelli. LeBron James fór á kostum í fjórða leikhlutanum og tók þá yfir leikinn eins og svo oft áður, en hann skoraði 18 af 37 stigum sínum í lokaleikhlutanum. Þetta var níundi leikurinn í röð sem hinn ungi James skorar 35 stig eða meira, sem er næstlengsta rispa sinnar tegundar í deildinni síðan árið 1970. Sport 8.4.2006 20:01
Sif Norðurlandameistari Fimleikadrottningin unga Sif Pálsdóttir varð í dag Norðurlandameistari í fjölþraut fyrst íslenskra kvenna þegar hún hlaut 54,80 í einkunn og bar sigur úr býtum eftir harða keppni. Keppt verður á einstökum áhöldum á morgun. Sport 8.4.2006 19:44