Íþróttir
210 211 212 213 214 215 216 217 218 … 334 ›
Syngur Hasselhoff í sturtu Þjóðverjinn Dirk Nowitzki hefur vakið mikla athygli fyrir að sýna stáltaugar á vítalínunni undir lok síðustu leikja Dallas gegn San Antonio í úrslitakeppninni. Hann segir að leyndarmálið sé að ná að slaka vel á og það segist hann gera með því að syngja gamla slagara með strandverðinum David Hasselhoff í sturtunni. Sport 17.5.2006 15:33
Cole hefur áður lent í Ronaldinho Bakvörðurinn Ashley Cole segist búast við því að viðureign varnarmanna Arsenal við Ronaldinho hjá Barcelona muni draga fram það besta í þeim í leiknum í kvöld, en Cole hefur áður lent í vandræðum með brasilíska töframanninn. Sport 17.5.2006 14:36
Heimsmetið tekið af Gatlin Glæsilegt heimsmet Bandaríkjamannsins Justin Gatlin í 100 metra hlaupi frá því fyrir nokkrum dögum hefur nú verið gert ógilt. Við rannsókn kom í ljós að tímatökubúnaður á brautinni í Katar virkaði ekki sem skildi og því hefur mettími Gatlin verið færður úr 9,76 sekúndum í 9,77 sekúndur og það er því aðeins heimsmetsjöfnun. Sport 17.5.2006 14:30
Fer til Villarreal í næstu viku Fernando Roig, forseti spænska knattspyrnufélagsins Villarreal, hélt því fram í sjónvarpsviðtali að franski leikmaðurinn Robert Pires hjá Arsenal myndi ganga í raðir Villarreal í næstu viku. Sport 17.5.2006 14:23
Berbatov til Tottenham Enska úrvalsdeildarliðið Tottenham gekk í dag frá kaupum á búlgarska framherjanum Dimitar Berbatov frá Bayer Leverkusen fyrir tæpar 11 milljónir punda. Berbatov mun skrifa undir samning þann 1. júlí næstkomandi. Berbatov var næst markahæstur í þýsku úrvalsdeildinni í vetur og er 25 ára gamall. Sport 17.5.2006 14:19
Borgvardt með 4 mörk í 7 leikjum Danski knattspyrnumaðurinn Allan Borgvardt sem sló í gegn tvö tímabil með Íslandsmeisturum FH, er nú að gera góða hluti með norska 1. deildarliðinu Bryne. Sport 17.5.2006 00:43
Phoenix lagði Clippers í tvíframlengdum leik Fimmti leikur Phoenix Suns og LA Clippers í nótt var í meira lagi sögulegur, en úrslit réðust ekki fyrr en eftir tvær framlengingar og svo fór að heimamenn í Phoenix höfðu betur 125-118. Phoenix leiðir því 3-2 í einvíginu og næsti leikur fer fram í Los Angeles. Sport 17.5.2006 06:21
Miami kláraði dæmið Miami Heat tryggði sér í nótt sæti í úrslitum Austurdeildarinnar annað árið í röð þegar liðið vann nauman sigur á baráttuglöðu liði New Jersey Nets á heimavelli sínum 106-105. Sport 17.5.2006 05:45
Wenger sigurviss Arsene Wenger hefur fulla trú á sigri sinna manna þegar liðið mætir Barcelona í úrslitaleik meistaradeildarinnar annað kvöld, en leikurinn verður að sjálfssögðu í beinni útsendingu á Sýn. Sport 16.5.2006 20:43
Rijkaard kallar á auðmýkt Frank Rijkaard, stjóri Barcelona, segir að leikmenn sínir láti það ekki hafa áhrif á sig þó þeim sé almennt spáð sigri í úrslitaleik meistaradeildarinnar annað kvöld og bendir á að það sé óréttlátt að stilla hlutunum þannig upp. Sport 16.5.2006 20:49
Góður sigur á Hollendingum Íslenska kvennalandsliðið í handknattleik vann í kvöld góðan 29-28 sigur á hollenska landsliðinu í Laugardalshöllinni, en þetta var fyrri æfingaleikur liðanna á tveimur dögum. Íslenska liðið átti á brattann að sækja þegar tíu mínútur voru eftir af leiknum, en náði að snúa við dæminu á lokasprettinum. Sport 16.5.2006 21:36
Auðvelt hjá Blikastúlkum Íslandsmeistarar Breiðabliks hefja leiktíðina með glæsibrag í Landsbankadeild kvenna í knattspyrnu, en í kvöld vann liðið öruggan 4-0 sigur á KR á Kópavogsvelli. Á sama tíma burstuðu Valsstúlkur Stjörnuna 6-0, Þór/KA vann FH 4-2 fyrir norðan og Keflavíkurstúlkur lögðu Fylki í Árbænum 2-0. Sport 16.5.2006 21:26
Real hélt öðru sætinu þrátt fyrir tap Real Madrid tryggði sér í kvöld annað sætið í spænsku deildinni í knattspyrnu þrátt fyrir 4-3 tap fyrir Sevilla á útivelli í frábærum leik sem sýndur var beint á Sýn. Franski miðjumaðurinn Zinedine Zidane spilaði sinn síðasta leik fyrir Real í kvöld og skoraði mark, en það nægði liðinu ekki til sigurs. Sport 16.5.2006 21:16
Ólafur Örn skoraði sigurmark Brann Ólafur Örn Bjarnason og Kristján Örn Sigurðsson voru lykilmenn í liði Brann í kvöld þegar liðið lagði Tromsö 2-1 í norsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. Ólafur Örn skoraði sigurmark Brann í kvöld og Kristján átti einni fínan leik í liði Brann. Sport 16.5.2006 20:26
Aðstoðardómaranum kippt út fyrir aulamistök Norska aðstoðardómaranum Ole Hermann Borgan var tilkynnt það nú fyrir stundu að hann yrði ekki á hliðarlínunni í úrslitaleik meistaradeildarinnar annað kvöld eins og til stóð, eftir að mynd birtist af honum í Barcelona-treyju í norsku dagblaði í gær. Sport 16.5.2006 20:01
Flugeldasýning í Sevilla Leikur Sevilla og Real Madrid í lokaumferð spænsku deildarinnar í kvöld hefur svo sannarlega staðið undir væntingum, en sex mörk eru þegar komin í fyrri hálfleik. Leikurinn er sýndur beint á Sýn. Sport 16.5.2006 19:38
Sevilla - Real Madrid í beinni Nú er ný hafinn leikur Sevilla og Real Madrid í lokaumferð spænsku deildarinnar og er hann í beinni útsendingu á Sýn. Real Madrid verður að vinna í kvöld til að tryggja sér annað sætið í deildinni og þar með öruggt sæti í meistaradeild Evrópu á næstu leiktíð. Sport 16.5.2006 19:00
Samningur Petkevicius ekki framlengdur Íslandsmeistarar Fram í handknattleik hafa ákveðið að endurnýja ekki samninga við litháenska markvörðinn Egidijus Petkevicius sem verið hefur hjá liðinu í þrjú ár. Sport 16.5.2006 18:26
Owen í lagi eftir æfingu Enski landsliðsframherjinn Michael Owen komst áfallalaust í gegn um æfingu hjá enska landsliðinu í dag og er landsliðsþjálfarinn Sven-Göran Eriksson ekki í nokkrum vafa um að Owen verði búinn að ná sér þegar HM hefst í næsta mánuði. Sport 16.5.2006 18:17
Stórleikur strax í fyrstu umferð Fyrsta umferð Landsbankadeildar kvenna fer fram í kvöld með fjórum leikjum og þar er er strax á dagskrá stórleikur Íslandsmeistara Breiðabliks og KR á Kópavogsvelli. Leikir kvöldsins hefjast allir klukkan 19:15. Sport 16.5.2006 17:55
Ísland - Holland í kvöld Íslenska kvennalandsliðið í handbolta mætir Hollendingum í Laugardalshöllinni klukkan 20 í kvöld, en þetta er fyrri æfingaleikur þjóðanna og liður í undirbúningi íslenska liðsins fyrir umspilsleikina gegn Makedóníu síðar í mánuðinum. Sport 16.5.2006 17:50
Peter Taylor eftirmaður Curbishley? Forráðamenn Hull City hafa gefið úrvalsdeildarliðinu Charlton Athletic leyfi til að ræða við knattspyrnustjórann Peter Taylor með það fyrir augum að gera hann að eftirmanni Alan Curbishley. Breskir fjölmiðlar hallast að því að Taylor muni verða sá sem fær starfið hjá Charlton, en hann er einnig þjálfari U-21 árs liðs Englendinga. Sport 16.5.2006 16:36
Leikmenn Tottenham fengu ekki matareitrun Nú er ljóst að leikmenn Tottenham sem veiktust fyrir lokaleik liðsins í ensku úrvalsdeildinni á dögunum veiktust ekki af matareitrun eins og talið var í fyrstu, eftir að ítarleg rannsókn hefur leitt í ljós að ekkert athugavert var við matvæli eða hreinlætisaðbúnað á hótelinu þar sem liðið snæddi kvöldið fyrir leik. Sport 16.5.2006 16:55
Ég vil spila með Henry Samuel Eto´o, framherji Barcelona, segist ólmur vilja spila með Thierry Henry í framlínu liðsins ef svo færi að sá franski gengi í raðir Barcelona í sumar og segir þá tvo vera góða vini. Sport 16.5.2006 16:28
Collazo heimtar annan bardaga Bandaríkjamaðurinn Luis Collazo hefur farið fram á annan bardaga við Ricky Hatton, en sá síðarnefndi sigraði í titilbardaga þeirra í Boston um liðna helgi. Don King, umboðsmaður Collazo, segir að Hatton skuldi stuðningsmönnum sínum í Bretlandi og Bandaríkjunum annan bardaga. Sport 16.5.2006 16:20
Aðstoðardómarinn myndaður í Barcelona-treyju Nokkuð fjaðrafok hefur myndast í enskum fjölmiðlum í dag eftir að norska dagblaðið Drammen Tidende birti mynd af öðrum aðstoðardómaranna í úrslitaleik meistaradeildarinnar í Barcelona-treyju í gær. Sport 16.5.2006 16:03
Rooney á ekki að fara tæpur á HM Sir Alex Ferguson hefur enn og aftur tjáð sig um að sér finnist það ekki góð hugmynd að fara með Wayne Rooney á HM þegar útlit er fyrir að hann verði alls ekki búinn að ná sér af fótbrotinu á dögunum. Sport 16.5.2006 15:04
Roader ráðinn stjóri Newcastle Forráðamenn Newcastle tilkynntu í dag að félagið hefði gert tveggja ára samning við knattspyrnustjórann Glenn Roader og þá var Alan Shearer skipaður sérstakur útsendari félagsins. Roader sagði að með ráðningunni hefði gamall draumur verið að rætast hjá sér. Sport 16.5.2006 14:55
Meistararnir í vondum málum Meistarar San Antonio eru komnir í mjög vond mál í einvígi sínu við Dallas í undanúrslitum Vesturdeildarinnar eftir að Dallas vann sigur í fjórða leik liðanna í Dallas í nótt 123-118 eftir framlengingu. Dallas leiðir nú 3-1 í einvíginu og getur klárað dæmið í San Antonio í næsta leik eftir þrjá sigra í röð. Sport 16.5.2006 05:22
Spámaðurinn hafði loks rangt fyrir sér LeBron James og félagar í Cleveland Cavaliers hafa ekki sagt sitt síðasta orð í úrslitakeppni Austurdeildarinnar í NBA og í nótt varð Cleveland fyrst allra liða til að láta spámanninn Rasheed Wallace hafa rangt fyrir sér með 74-72 sigri á heimavelli sínum í fjórða leiknum við Detroit. Sport 16.5.2006 03:56
Leynilega upptakan á Edition-hótelinu: „Ef ég á að taka fimmta sætið vil ég verða þinn maður í þessu“ Innlent