Íþróttir
193 194 195 196 197 198 199 200 201 … 334 ›
Ronaldo fluttur á sjúkrahús Brasilíski framherjinn Ronaldo var fluttur á sjúkrahús í gærkvöld vegna höfuðverks og svima. Ekkert óeðlilegt kom fram við skoðun lækna á sjúkrahúsinu, sem sendu kappann aftur á hótel Brasilíumanna í nótt. Fótbolti 15.6.2006 12:27
Átök milli fótboltaáhugamanna í Dortmund Þýska lögreglan handtók í gær nokkur hundruð knattspyrnuáhugamenn eftir að til átaka kom milli þeirra. Fyrstu fimm dagar heimsmeistaramótsins í knattspyrnu höfðu farið friðsamlega fram. Í gær sauð hins vegar upp úr hjá stuðningsmönnum Þjóðverja og Pólverja fyrir leik liðanna sem fram fór í Dortmund. Upptök slagsmálanna virðist mega rekja til aðgerða lögreglu sem skyggði á sjónvörp sem knattspyrnuáhugamenn voru að reyna að fylgjast með. Alls handtók lögreglan um þrjúhundruð manns. Erlent 15.6.2006 07:22
Neuville skaut Pólverja úr keppni Oliver Neuville tryggði Þjóðverjum dýrmætan 1-0 sigur á Pólverjum í A-riðli í kvöld með marki á annari mínútu í uppbótartíma. Neuville átti góða innkomu af varamannabekknum í leiknum, líkt og David Odonkor, sem lagði markið upp fyrir félaga sinn og fór langt með að tryggja liðinu sæti í 16-liða úrslitum keppninnar. Pólverjar hafa tapað báðum leikjum sínum til þessa og eiga litla von um að komast áfram. Sport 14.6.2006 20:49
Ekki hægt að segja nei við Barcelona Eiður Smári Guðjohnsen sagði að tækifærið til að ganga í raðir Evrópumeistara hefði verið of gott til að hafna því. Eiður gekk formlega í raðir spænska risans í dag eftir að hafa gengist undir læknisskoðun. Kaupverðið var rúmur milljarður króna og samningurinn er til fjögurra ára. Sport 14.6.2006 20:13
Camoranesi kann ekki þjóðsönginn Miðjumaðurinn Mauro Camoranesi hjá ítalska landsliðinu, viðurkennir að hann syngi ekki ítalska þjóðsönginn af þeirri einföldu ástæðu að hann kunni hann ekki. Camoranesi er fæddur í Argentínu, en fékk ítalskt ríkisfang árið 2003 og hefur síðan verið í landsliði ítala. Hann hefur þó aldrei farið leynt með það að hann upplifi sig alltaf sem Argentínumann en ekki Ítala. Sport 14.6.2006 19:57
Markalaust í hálfleik í Dortmund Staðan í leik Þjóðverja og Pólverja í A-riðlinum á HM er jöfn 0-0 í hálfleik. Leikurinn hefur verið hinn fjörugasti þrátt fyrir markaleysið, en greinilegt er að hvorugt liðið ætlar að gefa tommu eftir í baráttunni. Lukas Podolski fékk líklega besta færi leiksins rétt áður en flautað var til hlés, en skot hans fór framhjá markinu. Sport 14.6.2006 19:43
Messi meiddur Læknir argentínska landsliðsins í knattspyrnu hefur staðfest að ungstirnið Lionel Messi hafi meiðst á vinstri fæti á æfingu liðsins í dag. Messi verður skoðaður betur á morgun, en þetta gæti þýtt að stuðningsmenn argentínska liðsins þyrftu að bíða þess eitthvað að sjá þennan snjalla samherja Eiðs Smára Guðjohnsen leika listir sínar á mótinu. Messi gat sem kunnugt er ekki leikið með Barcelona í úrslitaleiknum í meistaradeildinni vegna meiðsla. Sport 14.6.2006 19:31
Al Jaber í sögubækurnar Gamla brýnið Sami Al Jaber hjá Sadí Arabíu, varð í dag 14. leikmaðurinn í sögu HM til að skora mark í þremur heimsmeistarakeppnum á ferlinum. Jaber hafði skorað mark úr vítaspyrnum á síðustu tveimur mótum áður en hann skoraði fyrir Sáda í dag. Aðeins tveir menn hafa náð þeim einstaka árangri að skora í fjórum heimsmeistarakeppnum. Sport 14.6.2006 19:10
Leikur Þjóðverja og Pólverja að hefjast Michael Ballack kemur inn í byrjunarlið Þjóðverja á ný þegar liðið tekur á móti grönnum sínum Pólverjum í A-riðli HM nú klukkan 19. Leikurinn fer fram á hinum glæsilega heimavelli Dortmund sem tekur 65.000 áhorfendur í sæti. Þess má til gamans geta að báðir framherjar þýska liðsins, Lukas Podolski og Miroslav Klose, eru fæddir í Póllandi. Sport 14.6.2006 18:31
Túnisar mörðu jafntefli gegn Sádum Túnis og Sádí Arabía gerðu 2-2 jafntefli í síðasta leik fyrstu umferðar HM í dag, en liðin leika í H-riðli. Radhi Jaidi, leikmaður Bolton, bjargaði stiginu fyrir Túnis þegar hann skallaði knöttinn í netið á lokaandartökum leiksins. Sport 14.6.2006 18:11
Eiður búinn að skrifa undir hjá Barcelona Landsliðsfyrirliðinn Eiður Smári Guðjohnsen er búinn að skrifa undir fjögurra ára samning við Evrópumeistara Barcelona. Frá þessu var greint í fréttum NFS nú fyrir stundu. Jón Örn Guðbjartsson var staddur á blaðamannafundinum í Katalóníu og sagði gríðarlega stemmingu í kring um nýjustu kaup spænsku meistaranna. Kaupverðið er rúmur milljarður króna og mun Eiður spila í treyju númer 7 og tekur við númerinu sem Henrik Larsson spilaði í á síðustu leiktíð. Sport 14.6.2006 17:18
Stjórnarformaðurinn hættur Bob Murray, stjórnarformaður 1.deildarliðs Sunderland, sagði starfi sínu lausu í dag eftir 20 ára starf. Félagið féll úr úrvalsdeildinni í vor eftir afleita leiktíð og nú standa yfir viðræður við fjárfesta sem hafa í hyggju að kaupa félagið. Murray ákvað því að segja af sér til að greiða fyrir kaupunum og sagði sjálfur að hann væri sáttur við framlag sitt til félagsins í þessa tvo áratugi - nú væri kominn tími til að hleypa öðrum að. Sport 14.6.2006 17:13
Ólöf á þremur yfir pari Ólöf María Jónsdóttir úr golfklúbbnum Keili lauk fyrsta keppnisdeginum á BMW-mótinu á Ítalíu á þremur höggum yfir pari, eða 75 höggum í dag. Ólöf er nokkuð langt frá efstu mönnum á mótinu. Sport 14.6.2006 16:56
Túnisar yfir gegn Sádum Túni hefur yfir 1-0 í leikhléi gegn Sádi-Arabíu í leik liðanna í H-riðlinum á HM, en þetta er lokaleikurinn í fyrstu umferð mótsins. Það var Ziad Jazari sem skoraði mark Túnis með glæsilegu skoti eftir 22 mínútur. Sport 14.6.2006 16:44
Fabregas og Ramos yngstir Spánverja á HM Cesc Fabregas, leikmaður Arsenal og Sergio Ramos, leikmaður Real Madrid, urðu í dag yngstu leikmennirnir í sögu spænska landsliðsins til að spila leik á HM. Ramos varð tvítugur fyrir skömmu, en Fabregas er rétt skriðinn yfir nítján árin. Það var Julen Guerrero sem átti eldra metið frá 1994 þegar hann kom við sögu hjá liðinu 20 ára og 161 daga gamall. Sport 14.6.2006 16:35
Pólskir stuðningsmenn handteknir Lögreglan í Dortmund handtók í dag 55 stuðningsmenn pólska landsliðsins fyrir ólæti og vopnaburð, en þessir fornu fjendur mætast í A-riðli í kvöld. Nokkrir af þessum stuðningsmönnum voru sagðir "góðkunningjar lögreglunnar" en mikill viðbúnaður er fyrir leik liðanna. Tugþúsundir stuðningsmanna liðanna eru þegar farnir að safnast saman í borginni. Talsmaður lögreglu tók þó fram að yfir höfuð hefðu samskipti stuðningsmanna þjóðanna verið til mikils sóma. Sport 14.6.2006 16:24
Pulis kominn aftur til Stoke Stjórn Stoke City hefur ráðið Tony Pulis sem næsta knattspyrnustjóra félagsins, en hann var sem kunnugt er rekinn frá félaginu í fyrra. Pulis stýrði liðinu á árunum 2002-2005, en var nú síðast hjá Plymouth. Pulis tekur við starfinu af hollendingnum Johan Boskamp, sem nú er kominn til Belgíu. Sport 14.6.2006 16:10
Everton kaupir Lescott Enska úrvalsdeildarliðið Everton hefur gengið frá kaupum á varnarmanninum Joleon Lescott frá Wolves fyrir 5 milljónir punda. Lescott hefur skrifað undir fjögurra ára samning við félagið, en hann er 23 ára gamall. David Moyes, stjóri Everton, segir að félagið hafi lengi haft augastað á leikmanninum, sem hann kallaði besta miðvörð í ensku 1. deildinni á síðustu leiktíð. Sport 14.6.2006 16:00
Aragones mjög sáttur við sína menn Luis Aragones, þjálfari spænska landsliðsins, var mjög sáttur við frammistöðu sinna manna í sigrinum á Úkraínu í dag. "Ég er viss um að við höfum alla burði til að verða eitt af bestu liðunum í þessari keppni. Ég átti von á erfiðari leik gegn Úkraínu, en eftir að við settum annað markið á þá, var eins og þeir brotnuðu," sagði Aragones eftir auðveldan 4-0 sigur Spánverja. Sport 14.6.2006 15:55
Samingur Eiðs kynntur fyrir fjölmiðlum innan skamms Blaðamannafundur spænska knattspyrnuliðsins Barcelona vegna samningsins við Eið Smára Guðjohnsen hefst klukkan fjögur. Fundurinn átti upprunalega að vera klukkan þrjú, en honum var frestað um klukkustund vegna leiks Spánverja og Úkraínu á heimsmeistaramótinu í knattspyrnu. Þar á að kynna fjögra ára samning Eiðs Smára við Evrópumeistara Barcelona. Innlent 14.6.2006 15:36
Neville meiddur, Rooney klár Englendingar urðu fyrir nokkru áfalli í dag þegar bakvörðurinn Gary Neville þurfti að hætta á æfingu liðsins eftir aðeins 15 mínútur vegna meiðsla á læri. Neville hefur barist við þessi meiðsli síðan tímabilinu í ensku úrvalsdeildinni lauk og er nú talinn afar tæpur fyrir leikinn gegn Trinidad á morgun. Sven-Göran Eriksson fullyrðir hinsvegar að Wayne Rooney sé klár í slaginn og gæti hann jafnvel komið við sögu á morgun. Hann ætlar að tefla fram sama byrjunarliði og í opnunarleiknum. Sport 14.6.2006 15:32
Risatilboð í Torres í vændum? Breska blaðið Manchester Evening News hefur greint frá því að Manchester United sé að undirbúa risatilboð í spænska framherjann Fernando Torres hjá Atletico Madrid. Blaðið heldur því fram að enska liðið muni bjóða 25 milljónir punda í spænska landsliðsmanninn fljótlega, en hann var einmitt einn af markaskorurum liðsins í sigrinum á Úkraínumönnum á HM í dag og hefur verið einn eftirsóttasti framherji heimsins í nokkur ár. Sport 14.6.2006 15:27
Dökkt útlit hjá Baros Tékkneski framherjinn Milan Baros er ekki mjög bjartsýnn á að geta leikið með liðinu á HM eftir að hann reyndi fyrir sér á æfingu í dag, en þurfti að hætta eftir aðeins 30 mínútur. Baros var sprautaður með verkjalyfjum, en allt kom fyrir ekki. Það er því ljóst að tékkneska liðið er í bullandi vandræðum með framherja sína á mótinu, en Jan Koller er meiddur á læri og verður frá í að minnsta kosti eina viku í viðbót. Sport 14.6.2006 15:21
Auðvelt hjá Spánverjum Spánverjar burstuðu Úkraínumenn 4-0 í H-riðli heimsmeistaramótsins í dag. Mörk Spánverja skoruðu þeir Xabi Alonso, Fernando Torres og David Villa skoraði tvö mörk. Úkraínumenn léku manni færri frá því í upphafi síðari hálfleiks. Ljóst er að Spánverjar eru til alls líklegir í keppninni. Sport 14.6.2006 14:48
Það er auðvelt að dekka Ronaldo Robert Kovac, miðvörður króatíska landsliðsins í knattspyrnu, sagði að það hefði verið auðvelt að dekka brasilíska framherjann Ronaldo í leiknum í gærkvöldi og sagði að Ronaldo hefði verið fjarri sínu besta. Sport 14.6.2006 14:40
Stóðst læknisskoðun hjá Barcelona Nú styttist í að haldinn verði blaðamannafundur hjá spænska liðinu Barcelona þar sem tilkynnt verða kaup félagsins á landsliðsfyrirliðanum Eiði Smára Guðjohnsen. Eiður stóðst læknisskoðun hjá félaginu í dag og skrifar undir fjögurra ára samning nú innan stundar. Sport 14.6.2006 14:27
Spánverjar komnir í 3-0 gegn Úkraínu Spánverjar eru komnir langt með að vinna sigur í sínum fyrsta leik í H-riðlinum á HM, en liðið hefur náð 3-0 forystu gegn Úkraínu eftir aðeins 50 mínútur og leika manni fleiri. Xabi Alonso kom Spánverjum yfir og David Villa er búinn að skora tvö mörk, annað úr aukaspyrnu og hitt úr víti. Vladislav Vashchuk hefur verið vikið af leikvelli hjá Úkraínu. Sport 14.6.2006 14:07
Eiður skrifar undir samning við Barcelona Eiður Smári Guðjohnsen skrifar í dag undir fjögurra ára samning við Evrópumeistara Barcelona. Fréttamannafundur vegna málsins verður klukkan þrjú. Innlent 14.6.2006 08:54
Ótrúlegur sigur Miami Miami Heat forðaði sér naumlega frá því að lenda undir 3-0 í lokaúrslitum NBA í nótt þegar liðið vann afar dramatískan sigur á Dallas Mavericks á heimavelli sínum 98-96. Svo virtist sem lið Miami væri heillum horfið í gær, en liðið var á kafla 13 stigum undir í fjórða leikhluta. Dwyane Wade bar sína menn á herðum sér og skoraði 42 stig og hirti 13 fráköst fyrir Miami. Sport 14.6.2006 04:32
Brasilía lagði Króatíu Heimsmeistarar Brasilíu sigruðu Króata 1-0 í F-riðli heimsmeistaramótsins í kvöld með glæsimarki frá Kaka skömmu fyrir leikhlé. Lið Króata sýndi hetjulega baráttu og vel skipulagðan varnarleik, en glæsilegt einstaklingsframtak Kaka gerði gæfumuninn í kvöld. Þetta var áttundi sigur Brasilíumanna í röð á HM og það er afrek sem ekkert lið hefur áður náð í sögu keppninnar. Sport 13.6.2006 22:25
Leynilega upptakan á Edition-hótelinu:„Ef ég á að taka fimmta sætið vil ég verða þinn maður í þessu“ Innlent