Íþróttir
192 193 194 195 196 197 198 199 200 … 334 ›
Það er heiður að spila með svona liði Hinn ungi framherji argentínska landsliðsins, Carlos Tevez, segir að liðsandinn hafi verið lykillinn að 6-0 stórsigri liðsins á Serbum og Svartfellingum í dag. Tevez kom inná sem varamaður í leiknum og skoraði ótrúlegt mark eftir einstaklingsframtak. Sport 16.6.2006 16:04
Holland - Fílabeinsströndin næstur á dagskrá Hollendingar mæta með óbreytt lið til leiks í Stuttgart í dag frá sigurleiknum gegn Serbum í upphafi móts, en þrjár breytingar hafa verið gerðar á byrjunarliði Strandamanna. Arouna Kone kemur inn í framlínu liðsins við hlið Didier Drogba, en liðið verður að vinna í dag til að eiga möguleika á að komast upp úr þessum ógnarsterka riðli. Leikurinn hefst klukkan 16 og verður að sjálfssögðu í beinni á Sýn. Sport 16.6.2006 15:36
Zlatan tæpur fyrir leikinn gegn Englendingum Mikil óvissa ríkir um það hvort framherjinn sterki Zlatan Ibrahimovic geti spilað lokaleik Svía í riðlakeppninni á HM þar sem sænska liðið mætir Englendingum. Zlatan tognaði á nára í upphitun fyrir leikinn gegn Paragvæ en spilaði hálfan leikinn engu að síður. Læknar sænska vonast til að fá niðurstöðu í málið í dag, en segja að meiðslin gætu jafnað sig á 24 tímum - en í versta falli á tveimur vikum. Sport 16.6.2006 15:26
Argentínumenn rótburstuðu Serba Argentínumenn sýndu úr hverju þeir eru gerðir á HM í dag þegar liðið valtaði yfir Serba og Svartfellinga 6-0 í viðureign liðanna í C-riðli og ljóst að ekkert lið verður öfundsvert af því að mæta Suður-Ameríkuliðinu í framhaldinu. Sport 16.6.2006 14:49
Við eigum ekki möguleika á titlinum Steven Gerrard, fyrirliði Liverpool og leikmaður enska landsliðsins, viðurkennir að liðið eigi ekki nokkurn möguleika á að verða heimsmeistari ef það spilar ekki betur en það hefur gert hingað til í keppninni. Sport 16.6.2006 14:32
Cisse fer að láni til Marseille Franska dagblaðið L´Equipe greindi frá því í dag að Liverpool hafi samþykkt að lána franska framherjann Djibril Cisse til liðs Marseille í heimalandi hans út næstu leiktíð. Cisse fótbrotnaði á dögunum og er ekki væntanlegur í slaginn aftur fyrr en í fyrsta lagi eftir um fimm mánuði. Sport 16.6.2006 14:16
Argentínumenn að valta yfir Serba Argentínumenn eru að sýna sínar bestu hliðar í leik sínum gegn Serbum og Svartfellingum í C-riðli og staðan er orðin 3-0 fyrir Argentínu þegar flautað hefur verið til leikhlés. Maxi Rodrigues hefur skorað tvívegis og varamaðurinn Esteban Cambiasso hefur skorað eitt mark. Sport 16.6.2006 13:56
Blikarnir hafa tapað flestum stigum Nýliðar Breiðabliks töpuðu niður forskoti fjórða leikinn í röð í Landsbankadeild karla á Akranesi í gær og eru það lið í deildinni sem hefur tapað langflestum stigum í fyrstu sjö umferðunum. Að tapa stigum telst það þegar lið tapa eða gera jafntefli í leikjum sem þau hafa haft forustu í. Grindvíkingar koma þeim næstir en þeir eru líka það lið sem hefur unnið sér inn flest stig eftir að hafa verið undir í leikjum sínum. Sport 16.6.2006 13:21
Willum Þór ósigraður í Grindavík Willum Þór Þórssyni hefur gengið vel með sín lið þegar hann hefur heimsótt Grindvíkinga þótt ekki hafi Valsmönnum tekist að koma með öll stigin heim úr leik sínum þar í gær. Þetta var sjötti leikur liðs undir stjórn Willums Þór á Grindavíkurvelli og hans lið hafa náð í 14 af 18 stigum í boði eða 78% stiganna. Markatalan er, 7-2, liðum Willums í vil. Sport 16.6.2006 13:13
Miami ætlar í sögubækurnar Miami Heat stefnir hraðbyri á að verða þriðja liðið í sögu lokaúrslita NBA-deildarinnar til að vinna meistaratitilinn eftir að lenda undir 2-0, því í nótt vann liðið auðveldan 98-74 sigur á heillum horfnu liði Dallas Mavericks í fjórða leik liðanna. Næsti leikur fer einnig fram í Miami á sunnudagskvöldið og einvígið, sem margir héldu að væri nánast búið, er skyndilega orðið æsispennandi á ný. Sport 16.6.2006 04:19
Michael Jordan snýr aftur Michael Jordan hefur hingað til ekki séð sér fært um að vera lengi í einu frá körfuboltanum og í gærdag eignaðist hann umtalsverðan hlut í Charlotte Bobcats. Liðið er það yngsta í deildinni og er staðsett skammt frá þeim stað þar sem Jordan tók fyrstu skrefin í átt til þess að verða þekktasti körfuboltamaður allra tíma, þegar hann lék með háskólaliði Norður-Karólínu. Sport 16.6.2006 03:59
FH lagði ÍBV Íslandsmeistarar FH lögðu ÍBV 3-1 á heimavelli sínum í Landsbankadeildinni í kvöld. KR lagði Víking 1-0, Skagamenn lögðu Blika 2-1 og Grindavík og Valur skildu jöfn 1-1 í Grindavík. Sport 15.6.2006 21:28
Ljungberg tryggði Svíum sigur á elleftu stundu Svíar unnu í kvöld baráttusigur á Paragvæum 1-0 í B-riðli HM og eru því komnir í ágæt mál í öðru sæti riðilsins. Það var Arsenal-leikmaðurinn Freddy Ljungberg sem skoraði mark sænska liðsins með skalla á 89. mínútu eftir laglega sókn. Bæði lið hefðu í raun geta stolið sigrinum í kvöld, en hungur Svíanna var einfaldlega meira í þettta sinn. England hefur 6 stig á toppi riðilsins, Svíar 4 stig, Trínídad 1 og Paragvæ er úr leik með 0 stig. Sport 15.6.2006 20:52
Ólöf úr leik á BMW-mótinu Ólöf María Jónsdóttir úr Keili er úr leik á BMW-mótinu á Ítalíu, en mótið er liður í Evrópumótaröðinni. Ólöf lék skelfilega í dag og lauk keppni á 11 höggum yfir pari vallar - 83 höggum. Í gær lék hún á þremur höggum yfir pari og lýkur því keppni á 14 yfir pari og var fjarri því að komast í geng um niðurskurðinn á mótinu. Sport 15.6.2006 20:34
Pétur skoraði eftir 30 sekúndur í Kaplakrika Nú er kominn hálfleikur í leikjunum fjórum sem fara fram í Landsbankadeild karla í kvöld. Staðan í leik FH og ÍBV í Kaplakrika er 1-1. Pétur Runólfsson kom gestunum yfir eftir aðeins 30 sekúndur, en Atli Viðar Björnsson jafnaði á 31. mínútu. Grindvíkingar hafa yfir 1-0 gegn Val í Grindavík þar sem Jóhann Þórhallsson skoraði mark heimamanna. Þá er markalaust hjá KR og Víkingi í vesturbænum, eins og hjá ÍA og Blikum á Skaganum. Sport 15.6.2006 20:28
Við hefðum átt að vinna stærra Sven-Göran Eriksson, landliðsþjálfari Englendinga, var mjög ánægður með spilamennsku sinna manna gegn Trinidad í kvöld, en sagðist hafa viljað fá fleiri mörk. Sigur enska liðsins þýðir að það hefur tryggt sér sæti í 16-liða úrslitum keppninnar. Sport 15.6.2006 20:01
Markalaust í hálfleik í Berlín Staðan í leik Svía og Paragvæa í B-riðli HM er markalaus í hálfleik. Leikurinn hefur verið sæmilega fjörugur þrátt fyrir markaleysið, en bæði lið tjalda öllu til að ná í sigur til að eiga möguleika á að fylgja Englendingum í 16-liða úrslitin. Zlatan Ibrahimovic fór meiddur af leikvelli í hálfleik eftir að hafa alls ekki náð sér á strik og Marcus Allback er kominn inn í stað hans. Sport 15.6.2006 19:45
Kekic hættur hjá Grindavík Hinn fjölhæfi leikmaður Sinisa Kekic, sem leikið hefur með Grindvíkingum í Landsbankadeildinni undanfarin ár, hefur spilað sinn síðasta leik fyrir félagið. Kekic lenti í deilum við þjálfarann Sigurð Jónsson á dögunum, en Sigurður staðfesti þessi tíðindi á fréttavef Víkurfrétta síðdegis í dag. Sport 15.6.2006 19:37
Rosalega sárt að tapa fyrir Englendingum Leo Beenhakker sagði tapið fyrir Englendingum í dag hafa verið gríðarlega sárt, en um tíma leit út fyrir að spútniklið hans næði að stela stigi af enska liðinu og setja þar með allt upp í loft í B-riðlinum. Sport 15.6.2006 19:01
Við höfum alls ekki sagt okkar síðasta David Beckham, fyrirliði enska landsliðsins, segir að liðið eigi mikið inni og lofar að það muni spila betur eftir því sem líður á heimsmeistaramótið. Englendingar lögðu Trinidad og Tobago 2-0 í dag, en enska liðið var fjarri því að vera sannfærandi. Sport 15.6.2006 18:50
Kallström og Isaksson í byrjunarliði Svía Leikur Svía og Paragvæa í B-riðli hefst klukkan 19 og búið er að tilkynna byrjunarliðin. Kim Kallström kemur inn í sænska liðið í stað Anders Svensson og þá er Andreas Isaksson á ný í markinu eftir meiðsli. Miðjumaðurinn Jorge Nunez er kominn í byrjunarlið Paragvæ í stað Delio Toledo. Sport 15.6.2006 18:37
Englendingar mörðu sigur Englendingar höfðu sigur 2-0 gegn Trinidad og Tobago í B-riðli HM í dag og eru komnir áfram í keppninni þrátt fyrir að hafa ekki sýnt nein glæsitilþrif. Peter Crouch náði loks að brjóta ísinn fyrir enska liðið á 83. mínútu þegar hann skoraði með laglegum skalla eftir fyrirgjöf David Beckham og Steven Gerrard innsiglaði sigur enska liðsins með laglegu skoti í uppbótartíma. Sport 15.6.2006 17:52
Wayne Rooney mættur til leiks Staðan í leik Englands og Trínídad er enn markalaus og því hefur Sven-Göran Eriksson ákveðið að tefla djarft og er búinn að skipta þeim Wayne Rooney og Aaron Lennon inn á völlinn fyrir þá Michael Owen og Jamie Carragher á 57. mínútu. Sport 15.6.2006 17:17
Englendingar í bullandi vandræðum Staðan í leik Trínidad og Englands er markalaus í hálfleik. Enska liðið hefur alls ekki verið sannfærandi og John Terry bjargaði enska liðinu frá því að lenda undir með því að verja skot Trínidada á marklínunni með glæsilegum tilþrifum skömmu fyrir hlé. Enska liðið hefur átt sín færi sömuleiðis, en þau hafa runnið út í sandinn og ljóst að Eriksson verður að blanda sterkt te handa sínum mönnum í hálfleik. Sport 15.6.2006 16:58
Mér líður vel í landi Adidas Ofurstjarnan David Beckham hefur aldrei verið í vandræðum með að koma fyrir sig orði og í viðtali við Sky-sjónvarpsstöðina í gær, sagði hann að sér liði mjög vel í Þýskalandi af því Þýskaland væri "land Adidas." Sport 15.6.2006 16:33
Lætur blaðamenn heyra það Thierry Henry, fyrirliði Arsenal og framherji franska landsliðsins, lét blaðamenn heyra það í dag fyrir að gagnrýna félaga sinn Franck Ribery fyrir frammistöðu sína í jafnteflinu gegn Sviss. Henry á von á mjög erfiðum næsta leik gegn Suður-Kóreu. Sport 15.6.2006 16:20
Carragher byrjar í stað Neville Leikur Englands og Trinidad í B-riðli er næstur á dagskrá á HM og hefst klukkan 16. Hinn fjölhæfi varnarmaður Liverpool, Jamie Carragher, kemur inn í stöðu hægri bakvarðar í stað Gary Neville sem er meiddur. Þá er jafnvel búist við að Wayne Rooney fái að spreyta sig í leiknum. Búið er að tilkynna byrjunarliðin og þau má sjá hér fyrir neðan. Sport 15.6.2006 15:09
Ekvador í 16-liða úrslitin Ekvador vann í dag auðveldan sigur á Kosta Ríka 3-0 í dag og er því búið að tryggja sér farseðilinn í 16-liða úrslit keppninnar. Carlos Tenorio kom Ekvador yfir á 8. mínútu leiksins, Agustin Delgado bætti við öðru marki á þeirri 54. og Ivan Kaviedes innsiglaði öruggan sigurinn í uppbótartíma. Ekvador hefur því unnið báða leiki sína til þessa með nokkuð sannfærandi hætti og er liðið til alls líklegt í keppninni. Sport 15.6.2006 14:50
Fisichella áfram hjá Renault Ökuþórinn Giancarlo Fisichella hefur framlengt samning sinn við lið Renault í Formúlu 1út næsta keppnisár, en gamli samningurinn hefði runnið út að loknu yfirstandandi tímabili. Nokkur óvissa hafði ríkt um framtíð ítalans hjá liðinu og höfðu þeirKimi Raikkönen, Juan Pablo Montoya og Mark Webber allir verið orðaðir við Renault. Heimsmeistarinn Fernando Alonso fer sem kunnugt er frá liðinu til McLaren á næsta tímabili. Sport 15.6.2006 14:28
Ekvador yfir í hálfleik Ekvador hefur yfir 1-0 í hálfleik í viðureign sinni við Kosta Ríka í A-riðlinum á HM. Carlos Tenorio skoraði mark Ekvadora á 22. mínútu leiksins og ljóst að liðið getur komið sér í ágæt mál í riðlinum með sigri í dag. Sport 15.6.2006 13:43
Leynilega upptakan á Edition-hótelinu:„Ef ég á að taka fimmta sætið vil ég verða þinn maður í þessu“ Innlent