Íþróttir
189 190 191 192 193 194 195 196 197 … 334 ›
New York rak Larry Brown og réð Isiah Thomas New York Knicks í NBA-deildinni er búið að reka þjálfara sinna Larry Brown og við stöðu hans mun taka framkvæmdastjórinn Isiah Thomas. Larry Brown var aðeins búinn með eitt ár af fimm ára samningi sínum. Undir stjórn Brown vann New York aðeins 23 af 82 leikjum sínum í fyrra (Aðeins Portland vann færri leiki) og draumastarfið hans varð að martröð. Sport 22.6.2006 15:26
Ítalía yfir gegn tíu Tékkum Ítalir hafa yfir 1-0 gegn Tékkum í leik liðanna í E-riðlinum á HM þegar flautað hefur verið til leikhlés. Það var varamaðurinn Marco Materazzi sem skoraði markið með glæsilegum skalla eftir fast leikatriði á 26. mínútu leiksins. Þetta var fyrsta mark hans fyrir ítalska landsliðið, en Materazzi kom inn fyrir Alessandro Nesta sem er meiddur í nára. Tékkarnir eru einum færri eftir að Jan Polak fékk sitt annað gula spjald fyrir gjörsamlega glórulausa tæklingu. Sport 22.6.2006 14:51
Bellamy búinn að skrifa undir hjá Liverpool Enska úrvalsdeildarfélagið Liverpool hefur gengið frá fjögurra ára samningi við framherjann skapmikla Craig Bellamy hjá Blackburn. Bellamy var með klausu í samningi sínum sem gerði honum kleift að fara frá félaginu ef ákveðið hátt tilboð bærist í hann og er nú genginn til liðs við félagið sem hann hélt með þegar hann var ungur. Sport 22.6.2006 14:47
Ætlar að sparka hressilega í Rooney Ulises De La Cruz, varnarmaður Ekvador og Aston Villa, ætlar að láta reyna á það hvort fótbrotið hans Wayne Rooney sé gróið þegar liðin mætast í 16-liða úrslitunum á HM á sunnudaginn. Sport 22.6.2006 14:13
Ver val sitt á enska hópnum Sven-Göran Eriksson segist ekki sjá eftir neinu þegar kemur að vali sínu á enska landsliðshópnum, en hann hefur sem kunnugt er úr litlu að moða þegar kemur að framherjum eftir að Michael Owen meiddist í leiknum gegn Svíum á dögunum. Sport 22.6.2006 14:01
Chelsea hefur titilvörnina á heimavelli Nú er búið að staðfesta leikjaniðurröðun í ensku úrvalsdeildinni fyrir næstu leiktíð. Englandsmeistarar Chelsea hefja leik á heimavelli að þessu sinni og taka á móti lærisveinum Stuart Pearce í Manchester City. Sport 22.6.2006 13:51
Steindautt jafntefli á Laugardalsvelli Valsmenn og Keflvíkingar skildu jafnir 0-0 í fyrsta leik 8. umferðarinnar í Landsbankadeild karla í knattspyrnu í kvöld. Leikurinn var spilaður við kjöraðstæður í blíðunni í Laugardalnum, en engin mörk litu dagsins ljós og liðin skiptu með sér stigunum. Áttundu umferðinni lýkur annað kvöld. Sport 21.6.2006 22:57
Serbar hafa yfir í hálfleik Ekkert mark hefur enn verið skorað í leik Argentínumanna og Hollendinga í C-riðlinum á HM, en dómarinn flautaði til hálfleiks fyrir skömmu. Öllu meira fjör er í hinum leiknum í riðlinum, þar sem Serbar hafa yfir 2-1 gegn Fílabeinsstrendingum. Nikola Zigic og Sasa Ilic skoruðu mörk Serba, en Aruna Dindane skoraði mark Strandamanna úr endurtekinni vítaspyrnu. Sport 21.6.2006 19:47
Búinn að vinna tíu leiki í röð á HM Luiz Scolari, þjálfari Portúgala, vann í dag sinn tíunda leik í röð á HM sem þjálfari, sem er að sjálfssögðu met. Scolari var sem kunnugt er þjálfari Brasilíumanna á HM í Japan og Suður-Kóreu fyrir fjórum árum, þar sem liðið vann alla sjö leiki sína á mótinu og sigraði glæsilega. Nú hefur hann stýrt portúgalska liðinu til þriggja sigra í röð og því eru sigrarnir orðnir tíu í röð alls, sem er einstakur árangur. Sport 21.6.2006 19:12
Valur - Keflavík að hefjast Einn leikur er á dagskrá í Landsbankadeild karla í knattspyrnu í kvöld. Valsmenn taka á móti Keflvíkingum á Laugardalsvelli og er þetta fyrsti leikurinn í áttundu umferð deildarinnar, sem klárast svo annað kvöld. Valsmenn eru í 6. sæti deildarinnar með 10 stig og Keflvíkingar í því 7. með 7 stig. Sport 21.6.2006 19:05
Leikjaniðurröðun tilkynnt á morgun Aðdáendur enska boltans bíða nú spenntir eftir morgundeginum, en þá verður leikjaniðurröðun í ensku úrvalsdeildinni kynnt. Leikur hefst í úrvalsdeildinni þann 19. ágúst og nokkru fyrr, eða 5. ágúst í 1.deildinni. Leikurinn um samfélagsskjöldinn verður á dagskrá sunnudaginn 13. ágúst og þar mætast bikarmeistarar Liverpool og Englandsmeistarar Chelsea. Sport 21.6.2006 18:57
Newcastle fær bætur vegna meiðsla Owen Freddy Shepherd, stjórnarformaður Newcastle, hefur staðfest að úrvalsdeildarfélagið muni fá bætur frá enska knattspyrnusambandinu vegna meiðsla framherjans Michael Owen í gær. Owen getur ekki spilað knattspyrnu næstu mánuði vegna þessa, en Newcastle mun vera tryggt fyrir svona uppákomum og þarf því væntanlega að greiða lítið sem ekkert af launum hans á meðan hann jafnar sig. Sport 21.6.2006 18:52
Fimm breytingar á hollenska liðinu Nú styttist í að flautað verði til leiks í stórleik Hollendinga og Argentínumanna í C-riðlinum á HM. Hollendingar gera fimm breytingar á byrjunarliði sínu frá síðasta leik og þeir Carlos Tevez og Lionel Messi eru í byrjunarliði Argentínu. Þá er leikur Serba og Fílabeinsstrendinga einnig á dagskrá klukkan 19. Sport 21.6.2006 18:26
Ekki á leið til Real Madrid Arsene Wenger hefur alfarið neitað sögusögnum sem verið hafa á kreiki um að hann muni taka við spænska liðinu Real Madrid. Einn af forsetaframbjóðendunum í komandi kosningu hjá spænska félaginu hafði haldið því fram á dögunum að hann hefði rætt við Wenger að taka við Real ef hann yrði kjörinn forseti félagsins. Wenger vísar þessu alfarið á bug og segir þetta lygi, enginn hafi sett sig í samband við sig. Sport 21.6.2006 16:20
Beenhakker í vafasaman hóp Leo Beenhakker, þjálfari Trinidad og Tobago, komst í gær í vafasaman hóp manna þegar hann stýrði liði í sjöunda sinn á HM án þess að vinna sigur. Undir hans stjórn unnu Hollendingar ekki leik á Ítalíu árið 1990 og sömu sögu er að segja af Trínídad í keppninni í ár. Enginn þjálfari getur státað af jafn slökum árangri á HM, en tveir aðrir hafa tapað öllum 6 leikjum sínum á mótinu í sögunni. Sport 21.6.2006 16:13
Portúgalar með fullt hús Portúgalar lögðu Mexíkóa 2-1 í D-riðlinum á HM í dag. Sabrosa og Maniche skoruðu mörk Portúgala, en Fonseca minnkaði muninn fyrir Mexíkóa, sem klúðruðu vítaspyrnu í leiknum og léku manni færri frá 60. mínútu þegar Luiz Perez fékk sitt annað gula spjald fyrir leikaraskap. Sport 21.6.2006 15:52
Meiðsli Ferdinand ekki alvarleg Varnarmaðurinn Rio Ferdinand verður væntanlega klár í slaginn með enska landsliðinu á sunnudaginn þegar það mætir Ekvador í 16-liða úrslitunum á HM, en Ferdinand var skipt af velli í leiknum gegn Svíum í gær. Hann kenndi sér meins í nára, en læknar liðsins segja meiðslin ekki alvarleg. Sport 21.6.2006 15:44
Portúgal yfir í hálfleik Portúgal hefur yfir 2-1 gegn Mexíkó í hálfleik í uppgjöri liðanna í D-riðlinum á HM. Maniche kom Portúgal yfir strax í upphafi og Simao Sabrosa bætti við öðru marki úr vítaspyrnu á 24. mínútu. Jose Fonseca minnkaði muninn skömmu síðar og hefur leikurinn verið einstaklega fjörugur og skemmtilegur. Staðan í leik Íran og Angóla er enn 0-0. Sport 21.6.2006 15:08
Eigandi Dallas sektaður um 19 milljónir Mark Cuban, eigandi Dallas Mavericks, var sektaður um sem nemur 19 milljónum króna í gærkvöldi. Þetta var tilkynnt rétt fyrir sjötta leik Dallas og Miami, þar sem Dallas varð svo að horfa upp á gestina fagna meistaratitlinum á þeirra eigin heimavelli. Cuban fékk sektina í kjölfar reiðikasts síns eftir fimmta leik liðanna og hefur nú alls verið sektaður um 125 milljónir króna síðan hann keypti liðið á sínum tíma. Sport 21.6.2006 14:31
Verður frá í nokkra mánuði Framherjinn Michael Owen verður frá í nokkra mánuði vegna hnémeiðslanna sem hann hlaut í byrjun leiks gegn Svíum í gær og því heldur meiðslamartröð þessa lipra knattspyrnumanns áfram. Owen var nýstiginn upp úr meiðslum sem hann lenti í um áramótin og komst í raun aldrei í leikform á HM. Ekki hefur verið gefið upp hve lengi hann verður frá keppni, en talað er um nokkra mánuði. Sport 21.6.2006 13:55
Portúgal - Mexíkó að hefjast Nú klukkan 14 hefjast tveir leikir í D-riðlinum á HM. Augu flestra beinast að viðureign Portúgal og Mexíkó sem sýndur er í beinni á Sýn. Portúgal er í efsta sæti riðilsins og mun hvíla fjóra lykilmenn í dag, en Mexíkóar eiga þó möguleika á að hirða af þeim efsta sætið. Leikur Íran og Angóla er sýndur beint á Sýn Extra á sama tíma. Sport 21.6.2006 13:49
Miami Heat NBA-meistari í fyrsta sinn Miami Heat varð í nótt NBA-meistari í fyrsta sinn í sögu félagsins þegar liðið skellti Dallas á útivelli 95-92 og vann þar með einvígið 4-2, eftir að hafa tapað fyrstu tveimur leikjunum. Dwyane Wade bar höfuð og herðar yfir aðra leikmenn í einvíginu og var kjörinn verðmætasti leikmaður úrslitanna. Hann skoraði yfir 35 stig í fjórum síðustu leikjunum og var gjörsamlega óstöðvandi. Sport 21.6.2006 05:30
Miami getur unnið meistaratitilinn í fyrsta sinn í kvöld Sjötti leikur Dallas Mavericks og Miami Heat fer fram í Dallas klukkan eitt eftir miðnætti í kvöld og verður leikurinn sýndur beint á Sýn. Miami getur með sigri tryggt sér fyrsta NBA meistaratitil sinn í sögu félagsins, en Dallas mun eflaust verða þeim erfið hindrun á heimavelli sínum. Sport 20.6.2006 22:25
Verðum að verjast betur í næsta leik Sven-Göran Eriksson var að vonum ekki sáttur við varnarleik sinna manna í kvöld, eftir að Englendingar fengu á sig tvö mörk eftir föst leikatriði. Hann segist þó ánægðastur með að hafa náð að vinna riðilinn. Sport 20.6.2006 21:57
Útlitið dökkt með Owen Sven-Göran Eriksson segir að útlitið sé mjög dökkt hjá Michael Owen eftir að hann meiddist á hné á fyrstu mínútu leiksins gegn Svíum í kvöld. "Þetta leit mjög illa út og hann verður ef til vill ekki meira með í keppninni," sagði Eriksson, sem þurfti að skipta Peter Crouch inn á völlinn á fjórðu mínútu leiksins. Sport 20.6.2006 21:40
Paragvæ lauk keppni með sæmd Paragvæ átti ekki möguleika á að komast í 16-liða úrslit HM fyrir leikinn gegn Trinidad og Tobago í kvöld. Suður-Ameríkumennirnir luku þó keppni með sóma og höfðu 2-0 sigur með sjálfsmarki Brent Sancho í fyrri hálfleik og Nelson Cuevas fimm mínútum fyrir leikslok. Sport 20.6.2006 21:02
Jafntefli hjá Svíum og Englendingum Svíar og Englendingar skildu jafnir 2-2 í skemmtilegum lokaleik sínum í B-riðli HM í kvöld. Joe Cole kom enskum yfir með frábæru marki í fyrri hálfleik, en Marcus Allback jafnaði í upphafi þess síðari. Varamaðurinn Steven Gerrard kom Englendingum aftur yfir með skalla á 85. mínútu, en sænska liðið sýndi mikið harfylgi og jafnaði á þeirri 90. Þar var að verki markahrókurinn ótrúlegi, Henrik Larsson. Sport 20.6.2006 20:47
Klinsmann varar við of mikilli bjartsýni Jurgen Klinsmann, landsliðsþjálfari Þjóðverja, segir liðið hafa náð settu marki með því að vinna riðil sinn á HM, en varar menn við of mikilli bjartsýni í framhaldinu. Sport 20.6.2006 20:23
Svíar jafna Svíar mæta ákveðnir til leiks í síðari hálfleiks í viðureign sinni gegn Englendingum í B-riðli og hafa jafnað leikinn strax á 51. mínútu. Þar var að verki framherjinn Marcus Allback, sem potaði boltanum í netið eftir hornspyrnu og vandræðagang í ensku vörninni. Þetta var 2000. markið í sögu HM og hafa Svíarnir verið stórhættulegir upp við mark Englendinganna í kjölfar marks Allback. Sport 20.6.2006 20:14
Englendingar yfir í hálfleik Englendingar hafa yfir 1-0 gegn Svíum í uppgjöri liðanna um toppsætið í B-riðlinum á HM. Stórkostlegt mark Joe Cole á 34. mínútu skilur liðin að, en enskir hafa verið öllu sterkari það sem af er í þessum stórskemmtilega leik. Þá eru Paravæar yfir 1-0 gegn Trínídad, þar sem Brent Sancho skoraði mark Paragvæ. Sport 20.6.2006 19:52