Íþróttir
183 184 185 186 187 188 189 190 191 … 334 ›
Verðum að gæta okkar á Portúgölunum Varnarmaðurinn William Gallas hjá Chelse og franska landsliðinu, segir að hann og félagar hans verði að vera vel á verði í leiknum gegn Portúgölum í undanúrslitum HM á morgun. Hann segir Portúgalina vera þolinmóða og duglega að veiða mótherja sína í gildrur. Sport 4.7.2006 17:26
Líkleg byrjunarlið í kvöld Leikur Þjóðverja og Ítala í undanúrslitunum á HM hefst klukkan 19 í kvöld og verður sýndur beint á sjónvarpsstöðinni Sýn. Búið er að tilkynna líkleg byrjunarlið þjóðanna. Torsten Frings tekur út leikbann hjá Þjóðverjum eftir ólætin í leiknum við Argentínumenn. Michael Ballack og Miroslav Klose eru búnir að hrista af sér smávægileg meiðsli og eiga að vera klárir, en ólíklegt þykir að Alessandro Nesta verði klár hjá Ítölum vegna nárameiðsla sem hafa kostað hann síðustu tvo leiki. Sport 4.7.2006 17:06
Rossi semur til ársins 2010 Manchester United hefur framlengt samning ítalska framherjans Giuseppe Rossi til ársins 2010. Rossi er aðeins 19 ára gamall og þykir mikið efni. Hann kom nokkuð við sögu hjá liðinu á síðustu leiktíð og hefur Sir Alex Ferguson látið hafa eftir sér í samtali við sjónvarpsstöð félagsins að hann myndi treysta Rossi til að spila reglulega með aðalliðinu ef sú staða kæmi upp í nánustu framtíð. Sport 4.7.2006 16:38
Ætlaði að rjúka í Ronaldo Breskir fjölmiðlar greina frá því í dag að enski framherjinn Wayne Rooney hafi ætlað að storma inn í búningsherbergi portúgalska landsliðsins eftir leik þjóðanna um helgina, þar sem enskum þótti Ronaldo reyna að hvetja dómarann til að reka félaga sinn hjá Manchester United af velli. Sport 4.7.2006 16:27
Þeir bláu spila aftur í hvítu Franska landsliðið gengur jafnan undir nafninu "Hinir Bláu" í heimalandinu, en Frakkar verða þó eina þjóðin í undanúrslitum HM sem ekki leikur í sínum hefðbundna heimabúningi. Þjóðverjar spila í sínum hvíta, Portúgalar í þeim rauða og Ítalar í þeim bláa, en Frakkar spila í hvítum útibúningi sínum. Þetta er þó ekki líklegt til að koma illa við franska liðið, því það hefur slegið bæði Spánverja og Brasilíumenn í hvítu búningunum. Sport 4.7.2006 16:12
Steypufylltir boltar til vandræða Að minnsta kosti tveir grunlausir knattspyrnuáhugamenn hafa þurft að leggjast inn á sjúkrahús í Berlín eftir að hafa sparkað í bolta sem hlekkjaðir voru við staura á götum borgarinnar. Hrekkjalómar höfðu fyllt boltana af steypu og skrifað á skilti við hliðina á þeim "getur þú sparkað?" Eins og nærri má geta lágu þeir meiddir eftir sem tóku þessari áskorun, en lögregla hefur engar vísbendingar um hver eða hverjir voru þarna að verki. Sport 4.7.2006 15:54
Klinsmann vongóður um sigur Jurgen Klinsman, þjálfari Þýskalands er vongóður um sigur hjá sínum mönnum í kvöld, er liðið mætir Ítölum í Dortmund, í undanúrslitum á HM. Klinsman segir að sitt lið muni áfram spila sóknarbolta. Fótbolti 4.7.2006 15:19
Ben Wallace á leið til Chicago Miðherjinn "Stóri-Ben" Wallace, sem verið hefur lykilmaður í harðri vörn Detroit Pistons undanfarin ár, hefur samþykkt tilboð frá Chicago Bulls um að ganga í raðir liðsins. Wallace var með lausa samninga nú í sumar og fáir áttu von á því að hann færi frá félaginu, en Chicago gat boðið honum mikið hærri laun en Detroit og hefur hann því ákveðið að skipta um lið. Sport 4.7.2006 15:17
Staðráðinn í að fara frá Chelsea Argentínski framherjinn Hernan Crespo er harðákveðinn í að fara frá Englandsmeisturum Chelsea í sumar og hefur enn á ný ítrekað ósk sína um að snúa aftur til Ítalíu. Talið er að annað Mílanó-liðanna verði fyrir valinu. Sport 4.7.2006 15:06
Samningur Hasselbaink ekki endurnýjaður Gareth Southgate, knattspyrnustjóri enska úrvalsdeildarliðsins Middlesbrough, staðfesti í dag að samningur hollenska framherjans Jimmy Floyd Hasselbaink yrði ekki endurnýjaður. Hasselbaink er 34 ára gamall og þó hann sé ef til vill kominn af léttasta skeiði, verða eflaust nokkur lið sem sýna honum áhuga í framtíðinni. Sport 4.7.2006 15:02
Sharapova örugg í undanúrslit Maria Sharapova tryggði sér í dag nokkuð öruggan sigur á löndu sinni Elenu Dementievu í 8-liða úrslitunum á Wimbledon. Sharapova var í miklu stuði og kláraði leikinn 6-1 og 6-4 á rúmri klukkustund. Hún mætir því annað hvort Amelie Mauresmo eða Anastasiu Myskinu í undanúrslitunum. Gera þurfti hlé á leiknum í smá stund í dag þegar nakinn maður hljóp inn á völlinn, en hann var fjarlægður og virtist ekki hafa truflandi áhrif á Sharapovu, sem vann sigur á þessu móti árið 2004. Sport 4.7.2006 14:48
Þjóðverjar með hernaðaráætlun Eitt þýsku dagblaðanna birti í dag hernaðaráætlun sem ætlað er að slá Ítala út af laginu í kvöld - hvernig sem fer í landsleik þjóðanna í Dortmund. Blaðið birti símanúmer yfir 40 pizza-staða víða í Þýskalandi og hvetur alla til að hringja og panta Pizzu á meðan á leiknum stendur. "Þessir deighnoðarar hlæja kannski núna, en þeim stekkur ekki bros þegar símarnir byrja að hringja um leik og leikurinn hefst í kvöld," sagði í blaðinu sem kemur út í Berlín. Sport 4.7.2006 14:31
Við eigum harma að hefna gegn Ítölum Bakvörðurinn Philipp Lahm segir félaga sína í þýska landsliðinu hafa fullan hug á að hefna ófaranna frá því í síðasta vináttuleik gegn Ítölum þegar þjóðirnar mætast í undanúrslitum HM í Dortmund í kvöld. Sport 4.7.2006 14:22
Fabio Capello hættur hjá Juventus Fabio Capello hefur sagt af sér sem þjálfari Juventus á Ítalíu, en líklegt þykir að félagið verði á næstunni dæmt til að leika í neðri deildunum þar í landi. Capello hefur verið sterklega orðaður við spænska liðið Real Madrid að undanförnu og er fyrsti kostur nýkjörins forseta félagsins Ramon Calderon. Capello hefur gert Juventus að tvöföldum meisturum á Ítalíu, en heldur nú væntanlega til Spánar á ný þar sem hann gerði einmitt Real að meisturum árið 1997. Fótbolti 4.7.2006 14:04
Bikarmeistararnir mæta Víkingi Í dag var dregið í átta liða úrslitum Visa-bikars karla og kvenna í fótbolta. Bikarmeistar Vals í karlaflokki mæta Víkingi á heimavelli, KR mætir ÍBV, ÍA mætir Leikni eða Keflavík og 1. deildarlið KA og Þróttar mætast fyrir norðan. Í kvennaflokki mætast Breiðablik og Keflavík, HK/Víkingur og Fjölnir, Stjarnan og ÍR og að lokum KR og Valur. Sport 4.7.2006 13:56
Mourinho hvetur Scolari til að vera áfram Jose Mourinho knattspyrnustjóri Chelsea segir að hann óski þess fyrir Portúgal að Luiz Felipe Scolari haldi áfram með liðið. Fótbolti 3.7.2006 10:44
Framlengt hjá Englendingum og Portúgal Enn hefur ekkert mark verið skorað í leik Englands og Portúgal á HM í Þýskalandi. Það hefur ýmislegt gengið á þrátt fyrir markalaust jafntefli. Meðal annars er David Beckham farinn meiddur af leikvelli og Wayne Rooney fékk umdeilt rautt spjald. Englendingar leika því 10 á móti 11 í framlengingunni. Sport 1.7.2006 16:51
Scolari biður FA afsökunar Luiz Felipe Scolari, þjálfari Portúgala hefur beðið enska knattspyrnusambandið afsökunar á því að hafa sagt að hann hafi hafnað því að taka við enska landsliðinu í vor. Fótbolti 1.7.2006 13:34
Tæplega 10 þúsund manns komnir á Vindheimamela í Skagafirði Tæplega 10 þúsund manns eru komnir á Vindheimamela í Skagafirði til þess að fylgjast með Landsmóti hestamanna. Í gærkvöldi var haldinn stórdansleikur með Todmobil sem stóð fram eftir nóttu og að sögn lögreglu á svæðinu fór allt vel fram fyrir utan einstaka pústra. Innlent 1.7.2006 12:20
Leikur Ítala og Úkraínumanna hafinn Síðari leikur dagsins í 8-liða úrslitum HM er viðureign Ítala og Úkraínumanna í Hamburg. Byrjunarliðin eru klár og þrjár breytingar hafa verið gerðar á liði Ítala. Andrea Barzagli kemur inn fyrir Marco Materazzi, Francesco Totti kemur í stað Alessandro del Piero og Mauro Camoranesi kemur í stað Alberto Gilardino. Sport 30.6.2006 18:57
Þjóðverjar áfram eftir sigur í vítakeppni Þjóðverjar eru komnir í undanúrslitin á HM eftir sigur á Argentínumönnum í vítaspyrnukeppni í Berlín í dag. Staðan var jöfn 1-1 að loknum venjulegum leiktíma, en það var markvörðurinn Jens Lehmann sem var hetja liðsins í dag þegar hann varði tvær spyrnur frá Argentínumönnunum, eftir að hafa þegið góð ráð frá erkióvini sínum Oliver Khan. Sport 30.6.2006 17:41
Framlengt í Berlín Leikur Þjóðverja og Argentínumanna í Berlín verður framlengdur eftir að staðan að loknum venjulegum leiktíma var 1-1. Roberto Ayala kom Argentínu yfir en Miroslav Klose jafnaði fyrir þýska liðið þegar um 10 mínútur voru eftir af leiknum. Sport 30.6.2006 16:51
Miroslav Klose jafnar fyrir Þjóðverja Hinn magnaði Miroslav Klose er búinn að jafna metin fyrir Þjóðverja gegn Argentínumönnum. Klose skoraði með laglegum skalla eftir að Michael Ballack sendi knöttinn fyrir markið, Tim Borowski skallaði boltann inn í teiginn og Klose stangaði hann í netið. Það stefnir því í æsilegar lokamínútur í Berlín. Sport 30.6.2006 16:38
Tottenham kaupir Didier Zokora Enska úrvalsdeildarliðið Tottenham hefur gengið frá kaupum á miðjumanninum Didier Zokora frá franska liðinu St. Etienne. Hann spilaði alla leikina á HM með liði Fílabeinsstrandarinnar og þótti standa sig með prýði. Það var Damien Comolli, yfirmaður knattspyrnumála hjá Tottenham, sem var maðurinn á bak við kaupin, en hann fékk Zokora einmitt til St Etienne þegar hann var á mála hjá franska liðinu á sínum tíma. Sport 30.6.2006 16:25
Argentínumenn komnir yfir Argentínumenn hafa náð forystu gegn Þjóðverjum í viðureign liðanna í Berlín. Það var varnarmaðurinn Roberto Ayala sem skoraði markið með skalla strax í upphafi síðari hálfleiks. Sport 30.6.2006 16:12
Markalaust í hálfleik í Berlín Staðan í leik Þjóðverja og Argentínumanna í fyrsta leik 8-liða úrslitanna á HM er 0-0 þegar flautað hefur verið til hálfleiks í Berlín. Nokkuð jafnræði hefur verið með liðunum í fyrri hálfleiknum, Argentína hefur verið öllu meira með boltann, en Þjóðverjar átt hættulegasta færið til þessa þegar Michael Ballack skallaði knöttinn yfir markið úr upplögðu færi. Leikurinn er að sjálfssögður í beinni útsendingu á Sýn. Sport 30.6.2006 15:48
Yfirlýsing frá Ólafi Þórðarsyni Ólafur Þórðarson, fráfarandi þjálfari knattspyrnuliðs ÍA í Landsbankadeildinni, hefur gefið út yfirlýsingu sem birt er á heimasíðu Skagamanna. Sport 30.6.2006 15:20
Ólafur hættur - Arnar og Bjarki taka við Stjórn knattspyrnufélagsins ÍA hefur sent frá sér tilkynningu þar sem greint er frá því að Ólafur Þórðarson hafi látið af störfum sem þjálfari liðsins og tvíburarnir Arnar og Bjarki Gunnlaugssynir muni taka við þjálfun liðsins frá og með deginum í dag. Þetta kemur fram á heimasíðu félagsins. Sport 30.6.2006 15:04
Argentínumenn gera tvær breytingar Ný styttist í að fyrsti leikurinn í 8-liða úrslitunum á HM hefjist í Berlín, en það er viðureign heimamanna Þjóðverja og Argentínumanna. Þjóðverjar eru með óbreytt lið frá því í sigrinum á Svíum, en Argentínumenn gera tvær breytingar á byrjunarliði sínu. Hinn ungi Carlos Tevez kemur inn í framlínuna í stað Javier Saviola og Fabricio Coloccini kemur inn í stað Lionel Scaloni. Sport 30.6.2006 14:13
Ulrich og Basso reknir frá liðum sínum Tveir af sigurstranglegustu köppunum í Frakklandshjólreiðunum sem hefjast í Stassburg á morgun, verða ekki með í mótinu eftir að í ljós kom að þeir tengjast rannsókn á ólöglegri lyfjaneyslu. Þeir hafa því verið reknir úr liðum sínum og þurfa að gangast undir rannsókn á Spáni. Þetta eru þeir Jan Ulrich og Ivan Basso. Sport 30.6.2006 13:39