Lyf
1 2 3 4 5 6 … 23 ›
Jólagjöf ársins er stóllinn sem getur allt nema flogið Helga Rakel Rafnsdóttir kvikmyndagerðarkona er orðlaus, eða svo gott sem, en hún fékk jólagjöf ársins afhenta nú skömmu fyrir jól. Stól sem getur allt nema flogið. Lífið 24.12.2024 09:00
Danskt sjúkrahús kært til lögreglu vegna tilrauna á ungum drengjum Rannsóknasiðanefnd Danmerkur hefur kært ríkissjúkrahúsið í Kaupmannahöfn og lækni vegna rannsóknar á ungum drengjum. Upp komst um ágalla á rannsókninni þegar þurfti að skrá hana í nýtt samevrópskt kerfi. Erlent 19.12.2024 15:33
Kanni frekar mögulegar aukaverkanir af notkun Ozempic Tvær nýjar rannsóknir vísindamanna við Háskólann í Suður-Danmörku (d. Syddansk Universitet) í Óðinsvéum benda til að mögulega séu auknar líkur á að þeir sem notist við þyngdarstjórnunarlyfið Ozempic þrói með sér sjaldgæfan augnsjúkdóm, Naion. Erlent 17.12.2024 07:51
Augljósir hagsmunaárekstrar að lyfsali skrifi upp á lyf Læknir segir að margir þeirra sem starfa við heilsugæsluna hafi misst hökuna í gólfið þegar þeir lásu tillögu starfshóps heilbrigðisráðherra um að lyfjafræðingar gætu ávísað lyfjum. Það skapaði hagsmunaárekstra sem kæmu niður á sjúklingum og gerði lítið úr störfum lækna. Innlent 13.12.2024 14:01
Lyfsalar og heilbrigðisráðuneyti - í bergmálshelli? Nýlega birti heilbrigðisráðuneytið á síðu sinni innan stjórnarráðsins, skýrslu starfshóps á vegum heilbrigðisráðuneytis sem er ætlað að vera stöðumat á lyfjafræðilegri þjónustu íslenskra apóteka, svokölluð „hvítbók“. Skoðun 13.12.2024 12:00
Vilja að lyfjafræðingar geti ávísað lyfjum og apótek verði fyrsti viðkomustaður Lyfjafræðingar fá heimild til að ávísa ákveðnum lyfjum og apótek verða fyrsti viðkomustaður í veikindum samkvæmt tillögum starfshóps heilbrigðisráðherra. Formaður Lyfjafræðingafélagsins segir lyfjafræðinga í apótekum lengi hafa beðið eftir þessu og tillögurnar í takti við það sem tíðkast í nágrannalöndunum. Innlent 12.12.2024 13:00
Ásdís Eir, Arnheiður og Ólöf Helga nýir forstöðumenn hjá Lyfju Ásdís Eir Símonardóttir hefur verið ráðin forstöðumaður mannauðs og menningar hjá Lyfju og kemur ný inn í hóp lykilstjórnenda félagsins ásamt Arnheiði Leifsdóttur og Ólöfu Helgu Gunnarsdóttur sem eru nýir forstöðumenn á sínum sviðum. Viðskipti innlent 12.12.2024 08:59
Óvenjulegt að bóluefni séu skráð sem dánarorsök Sóttvarnalæknir segir það afar óvenjulegt ef rétt reynist að fjórir einstaklingar í umsjón sama læknis hafi látist af völdum bóluefnis gegn Covid-19 í ljósi þess hversu fágætar alvarlegar aukaverkanir séu. Óháðir sérfræðingar kanna skráningar læknisins á orsökum andlátanna. Innlent 28.11.2024 15:07
Lyfjapokar úr gömlum gardínum og borðdúkum á Selfossi Konur í Kvenfélagi Selfoss hafa haft í nógu að snúast síðustu vikurnar við saumavélarnar sínar því þær tóku að sér að sauma fjölnota lyfjapoka undir lyfjabox fyrir Apótek Suðurlands, allt úr endurunnu efni. Innlent 16.11.2024 14:05
Ísland meðal Evrópulanda þar sem lyfjatengd andlát eru hlutfallslega flest Ísland er meðal þeirra landa sem er með hlutfallslega flest lyfjatengd andlát í Evrópu samkvæmt tölum frá Evrópusambandinu. Formaður samtaka um skaðaminnkun segir brýnt að stjórnvöld bregðist við. Lyfjafræðingar berjast fyrir því að fá að selja nefúða í lausasölu sem er mótefni við of stórum skammti ópíóðalyfja. Innlent 8.11.2024 20:01
Controlant klárar milljarða fjármögnun með aðkomu lífeyrissjóða og Arion Tæknifyrirtækið Controlant, sem hefur glímt við rekstrarerfiðleika að undanförnu, hefur lokið við samanlagt um 35 milljóna Bandaríkjadala fjármögnun, einkum með nýju hlutafé frá nokkrum lífeyrissjóðum og láni frá Arion. Stjórnarformaður Controlant segir að þótt kaup- og innleiðingaferli alþjóðlegra lyfjarisa á stafrænni tækni og rauntímavöktun hafi tafist þá sé félagið bjartsýnt á framhaldið enda í „einstakri stöðu“ til að umbylta aðfangakeðju lyfja. Innherji 8.11.2024 13:46
Hver tilheyrir hverjum? Árlega gefur Landlæknisembættið út tölulegar upplýsingar hvar getur m.a. að líta tölur um lyfjatengd andlát. Fjöldi þeirra sem létu lífið árið 2023 á Íslandi af lyfjatengdum orsökum er hærri en nokkru sinni fyrr eða alls 56 einstaklingar. Árið 2022 var fjöldi þeirra sem lét lífið af þessum sökum 35 - við erum því að horfa upp á aukningu úr 35 í 56, hátt í 40% aukningu sem er ævintýraleg aukning. Og þótt sveiflur milla ára séu nokkrar þá hefur þessi tala aldrei verið svona há, aldrei nokkurn tímann. Til samanburðar má nefna að 8 einstaklingar létu lífið í umferðinni árið 2023 en árið þar á undan voru þeir 9. Skoðun 7.11.2024 08:31
Andlát af völdum fíkniefna og lyfja aldrei verið fleiri Árið 2023 voru lyfjatengd andlát alls 56 hér á landi og hafa aldrei verið fleiri, að því er fram kemur í tölum frá Landlæknisembættinu. Innlent 6.11.2024 17:57
Lyfjastofnun Evrópu tekur umsókn Alvotech til umsagnar Alvotech og samstarfsaðili þess, alþjóðlega lyfjafyrirtækið Advanz Pharma tilkynntu í dag að Lyfjastofnun Evrópu, EMA, hafi samþykkt að taka til umsagnar umsókn um markaðsleyfi fyrir AVT05, sem er fyrirhuguð líftæknilyfjahliðstæða Alvotech við Simponi (golimumab), sem notað er til meðferðar við ýmsum þrálátum bólgusjúkdómum. Viðskipti innlent 4.11.2024 12:21
Tíu mánaða strákur fær byltingarkennt lyf fyrstur Íslendinga Foreldrar tíu mánaða stráks sem fæddist með sjaldgæfan taugahrörnunarsjúkdóm vonast til að lyfjagjöf í Svíþjóð muni gjörbreyta lífi hans. Hann verður fyrsta íslenska barnið til að fá lyfin. Veröldin hrundi þegar þeim var tilkynnt símleiðis að sonurinn væri með sjúkdóminn en við tók löng bið eftir að hitta lækni. Innlent 1.11.2024 19:39
Viðræðum slitið um samruna Samkaupa, Heimkaupa og Orkunnar Viðræðum Samkaupa og Skeljar fasteignarfélags um samruna Samkaupa og dótturfélaga Skeljar, Heimkaupa og Orkunnar, hefur verið slitið. Áhyggjur af yfirstandandi rannsókn ESA á Skel hafi haft áhrif á slitin. Viðskipti innlent 30.10.2024 18:24
Oculis rauk upp eftir tilkynningu Gengi hlutabréfa augnlyfjafyrirtækisins Oculis rauk upp um tæplega tíu prósent í dag. Í morgun tilkynnti félagið að innritunum þátttakenda í rannsóknum á lyfinu OCS-01 hefði verið flýtt verulega. Viðskipti innlent 21.10.2024 16:00
Samþykktu hlutafjárhækkun til að verja tiltekna fjárfesta fyrir gengislækkun Mikill meirihluti hluthafa samþykkti tillögu stjórnar Controlant um að fara meðal annars í hlutafjárhækkun í því skyni að gefa út uppbótarhluti til að verja þá fjárfesta, einkum lífeyrissjóði, sem höfðu komið inn í síðasta útboði fyrir þeirri miklu gengislækkun sem er fyrirséð í yfirstandandi útboðsferli. Útlit er fyrir að sömu lífeyrissjóðir muni leggja til um þriðjunginn af þeirri fjárhæð sem Controlant hyggst sækja sér í nýtt hlutafé á næstu vikum. Innherji 18.10.2024 13:23
„Nauðsynlegt að bregðast við“ en aðgerðum fækkar Fjármagn streymir úr landi í tengslum við efnaskiptaaðgerðir. Á sama tíma og heilbrigðisyfirvöld segja nauðsynlegt að takast á við offituvandann eru slíkar aðgerðir á íslenskri einkastofu ekki niðurgreiddar. Innlent 17.10.2024 23:00
Lyfjaávísanir um 20 lækna til rannsóknar hjá landlæknisembættinu Lyfjaávísanir um það bil 20 lækna eru til rannsóknar hjá landlæknisembættinu og hafa viðkomandi annað hvort fengið sent bréf frá embættinu eða eiga von á bréfi, þar sem þeim gefst kostur á andsvörum. Innlent 17.10.2024 07:37
Fordæmalaus húsleit þegar ESA beitti sjálfstæðum valdheimildum sínum Fyrirvaralaus athugun Eftirlitsstofnunar EFTA (ESA) hjá fjárfestingafélaginu Skel í tengslum við meinta markaðsskiptingu á smásölumarkaði með lyf, fyrsta slíka aðgerðin sem ráðist hefur verið í hér á landi, kemur um einu ári eftir að málinu lauk með úrskurði áfrýjunarnefndar Samkeppnismála. Húsleit ESA, framkvæmd í gær og fjöldi manns kom að, er gerð í samræmi við ákvæði samkeppnislaga um sjálfstæða heimild stofnunarinnar til að framfylgja samkeppnisreglum EES-samningsins á Íslandi – og þarf hún ekki til þess úrskurð dómstóla. Innherji 15.10.2024 14:20
Sannfærður um að niðurstaðan verði Lyfjavali í hag Forstjóri hjá Skel fjárfestingafélagi hafnar því að Lyfjaval hafi brotið samkeppnisreglur, með því að einbeita sér í auknum mæli að rekstri bílaapóteka. Ráðist var í athugun hjá félaginu í gær, vegna gruns um markaðsskiptingu. Viðskipti innlent 15.10.2024 12:06
Vonast til að fleiri fái niðurgreiðslu á sprautunni Kona sem sprautar sig með þyngdarstjórnunarlyfinu Wegovy vill að lyfið verði niðurgreitt í meira mæli. Hún fær enga niðurgreiðslu og sér fram á að borga rúmlega 300 þúsund á ári fyrir lyfið. Innlent 11.10.2024 22:04
Að meðhöndla eðlilegar tilfinningar með lyfjum Í umfjöllun undanfarna daga hefur komið fram að um 15-20% lyfjanotkunar hér á landi sé óþörf. Óljóst er hversu stór hluti þessara lyfja eru geð- eða róandi lyf en ljóst að það hlutfall er líklega töluvert. Skoðun 11.10.2024 15:32
Útlit fyrir að heildartekjur Controlant skreppi saman um nærri sextíu prósent Mun meiri samdráttur en áður var áætlað í verkefnum tengdum dreifingu á bóluefnum gegn Covid-19, ásamt því að hægar hefur gengið að klára samninga við nýja viðskiptavini, veldur því að útlit er fyrir að heildartekjur Controlant skreppi saman um hátt sextíu prósent á þessu ári. Samkvæmt tekjuspám sem félagið hefur kynnt fjárfestum í aðdraganda mögulegrar hlutafjáraukningar mun taka um tvö til þrjú ár þangað til umsvifin verða á svipuðum slóðum og á tímum farsóttarinnar. Innherji 11.10.2024 12:41
Heimilislæknar upplifi stundum pressu á að skrifa lyfin út Dæmi eru um að heimilislæknar upplifi mikinn þrýsting frá skjólstæðingum um að fá þyngdarstjórnunarlyf uppáskrifuð. Þetta segir formaður Félags heimilislækna sem segir ásókn í lyfin gríðarlega og í samræmi við ákveðna hjarðhegðun Íslendinga. Innlent 9.10.2024 22:03
Lyfin hjálpi fólki í vandræðum en leysi ekki vandann Hátt í hundrað börn eru á þyngdarstjórnunarlyfjum. Barnalæknir sem hefur sérhæft sig í offitu segir þyngdarstjórnunarlyf ekki leysa offituvandann en þau hjálpi til. Innlent 9.10.2024 07:02
Skorti langtímarannsóknir á áhrifum Ozempic og Wegovy Læknir segir skynsamlegt að setja vinnureglur um hvenær skuli ávísa þyngdarstjórnunarlyfjum og hvenær ekki. Það muni taka nokkur ár í viðbót áður en góður skilningur fáist á langtímaávinningi og mögulegum aukaverkunum af lyfjunum. Innlent 8.10.2024 15:02
Sprautan umdeilda sem fólk er tilbúið að borga fyrir út ævina Sprenging hefur orðið í notkun þyngdarstjórnarlyfja á borð við Ozempic og Wegovy. Ætla má að þúsundir Íslendinga sprauti sig í von um að léttast. Lyfin eru sögð öflugt tól í baráttunni við offitu en aðgengi að þeim virðist stjórnlaust og læknir óttast misnotkun. Í Kompás skoðum við notkun þessara lyfja á Íslandi. Innlent 8.10.2024 07:02
Vilja klára stóra fjármögnun í aðdraganda mögulegra samninga við Novo Nordisk Controlant áformar að klára á næstu vikum allt að sjö milljarða króna fjármögnun, meðal annars með sölu á nýju hlutafé til núverandi og nýrra fjárfesta, í aðdraganda þess að tæknifyrirtækið vonast til að landa stórum samningi við danska lyfjarisann Novo Nordisk. Talsverður kurr er hjá sumum hluthöfum með að þeir fjárfestar sem komu inn í síðasta hlutafjárútboði Controlant, einkum lífeyrissjóðir, hafi fengið samþykkt sérstakt ákvæði sem ver þá gegn þeirri verulegu lækkun á hlutabréfaverði sem er fyrirséð í yfirstandandi útboðsferli. Innherji 7.10.2024 14:37