Írak
17 18 19 20 21 22 23 24 25 … 27 ›
21 hefur látist í Írak í morgun Sautján Írakar létust og þrettán særðust í árás uppreisnarmanna í norðurhluta Íraks í morgun. Uppreisnarmennirnir óku tveimur bifreiðum og gerðu skothríð á strætisvagna. Í vögnunum var fólk á leið til vinnu. Yfirmaður í þjóðvarðliði Íraka var einnig drepinn skammt norður af Bagdad í morgun, sem og þrír lífverðir hans. Erlent 13.10.2005 15:06
Uppreisnarmenn sækja í sig veðrið 21 Íraki lést í þremur árásum uppreisnarmanna í landinu í morgun. Svo virðist sem uppreisnarmenn sæki í sig veðrið eftir því sem nær dregur kosningum í landinu. Erlent 13.10.2005 15:07
Sjö Kúrdar drepnir í Mósúl Að minnsta kosti sjö Kúrdar létust þegar sjálfsmorðsárás var gerð á rútu sem þeir voru í í borginni Mósúl í Írak í dag. Í morgun dóu fimmtán manns og um fimmtíu slösuðust þegar tvær öflugar bílsprengjur sprungu í nágrenni við græna svæðið svokallaða í Bagdad. Erlent 13.10.2005 15:06
15 lögreglumenn drepnir í Írak Tugir manna særðust og að minnsta kosti fimmtán írakskir lögreglumenn létust þegar tvær öflugar bílasprengjur sprungu í nágrenni við græna beltið í Bagdad, höfuðborg Íraks, í morgun. Sprengjunum var komið fyrir í nágrenni opinberra bygginga og erlendra sendiráða þar sem gríðarlegri öryggisgæslu er haldið uppi Erlent 13.10.2005 15:06
Nýtt Abu Grahib hneyksli? Bandarísk hernaðaryfirvöld kanna nú myndir sem virðast sýna sérsveitarmenn flotans beita írakska fanga pyntingum. Þær þykja minna um margt á hinar óhugnanlegu myndir frá Abu Grahib fangelsinu í Írak. Erlent 13.10.2005 15:06
Þúsundir hermanna til Íraks Fimmtán létust og um fimmtíu manns slösuðust þegar tvær öflugar bílasprengjur sprungu í nágrenni við græna beltið í Bagdad, höfuðborg Íraks, í morgun. Pentagon tilkynnti í gær að þúsundir hermanna yrði sendir til Íraks til að reyna tryggja ástandið fyrir kosningarnar sem fram fara í næsta mánuði. Erlent 13.10.2005 15:06
Hermönnum fjölgað um tólf þúsund Að minnsta kosti sextán létust og tugir manna slösuðust þegar tvær öflugar bílasprengjur sprungu í Bagdad, höfuðborg Íraks, í morgun. Bandarísk hernaðaryfirvöld stefna nú að því fjölga í hersetuliði sínu um tólf þúsund til að tryggja ástandið. Þá verða 150 þúsund bandarískir hermenn við störf í Írak. Erlent 13.10.2005 15:06
Ellefu lögreglumenn drepnir Vopnaðir uppreisnarmenn réðust inn á lögreglustöð í vesturhluta Bagdad í Írak í morgun. Þeir kveiktu í fimm lögreglubílum og að sögn sjónvarvotta létust ellefu lögreglumenn í árásinni. Lögreglustöðin er við þjóðveg í útjaðri Bagdad en fara þarf um hann þegar farið er á alþjóðaflugvöllinn í Bagdad. Erlent 13.10.2005 15:06
25 Írakar hafa fallið í morgun Tuttugu og fimm Írakar féllu í árásum hryðjuverkamanna í morgun, þar af ellefu lögreglumenn. Sjálfmorðsárás var gerð á mosku sjíta í Bagdad við föstudagsbæn. Fyrr í morgun gerði hópur hryðjuverkamanna árás á lögreglustöð í suðvesturhluta borgarinnar. Erlent 13.10.2005 15:06
Blóðugur dagur í Bagdad Hryðjuverkamenn myrtu nær þrjátíu manns þegar þeir létu til skarar skríða með tveimur árásum í Bagdad. Abu Musab al-Zarqawi, sem Bandaríkjamenn og Írakar freistuðu að ná með árásinni á Falluja, lýsti árásunum á hendur sér. Erlent 13.10.2005 15:06
Fjölga hermönnum um tólf þúsund Bandaríkjastjórn ætlar að fjölga hermönnum í Írak um tólf þúsund fyrir kosningarnar sem áætlaðar eru 30. janúar. Hermennirnir eru 138 þúsund í dag en verða 150 þúsund þegar kosningarnar fara fram og hafa ekki verið fleiri síðan George W. Bush Bandaríkjaforseti lýsti því yfir að meiriháttar átökum væri lokið. Erlent 13.10.2005 15:06
Vissu af misþyrmingum fyrir ári Háttsettir herforingjar í Bandaríkjaher voru varaðir við því fyrir ári síðan að sérsveitarmenn og leyniþjónustumenn misþyrmdu föngum í Írak. Viðvaranirnar birtust í leynilegri skýrslu en þrátt fyrir hana hefur yfirstjórn Bandaríkjahers haldið því fram að henni hafi fyrst orðið kunnugt um misþyrmingarnar í byrjun þessa árs. Erlent 13.10.2005 15:05
Starfa fyrir breskt fyrirtæki Íslendingarnir tveir sem fóru til starfa í Írak fyrir mánuði voru í þjálfun í Bretlandi í sumar. Þeir sinna öryggisgæslu á vegum bresks fyrirtækis en slík störf geta verið mjög hættuleg. Innlent 13.10.2005 15:05
Danskur herforingi fær dóm Fyrrverandi foringi í leyniþjónustu danska hersins hefur verið dæmdur í hálfs árs fangelsi fyrir að leka innihaldi leyniskýrslu um gereyðingarvopn í Írak. Foringinn, Frank Grevil, sakaði einnig Anders Fogh Rasmussen forsætisráðherra um að hafa logið til þess að afla stuðningi við innrásina í Írak. Erlent 13.10.2005 15:05
40 manns drukkna í Írak Að minnsta kosti fjörutíu manns drukknuðu í Írak í morgun þegar þeir reyndu að komast yfir beljandi á nyrst í landinu á pramma. Skyndilegur vatnselgur skolaði þeim af prammanum á andartaki. Aðeins fjórir komust lífs af að sögn sjónarvotta. Erlent 13.10.2005 15:05
Ísland ekki af listanum Formaður utanríkismálanefndar Alþingis segist ekki vita til þess að ríkisstjórnin ætli að endurskoða stuðning sinn við innrásina í Írak. Hún segir ummæli þingflokksformanns Framsóknarflokksins í Silfri Egils í gær hafa komið sér á óvart. Innlent 13.10.2005 15:04
Hátt í 20 þúsund borgarar látnir 1237 bandarískir hermenn hafa látist í Írak síðan stríðið þar hófst í mars á síðasta ári, þar af 1098 síðan George Bush Bandaríkjaforseti lýsti því yfir að stríðinu væri „að mestu leyti“ lokið þann 1. maí í fyrra. Nákvæmar tölur yfir fall írakskra borgara liggur ekki fyrir en áætlað er að þeir séu á bilinu 14.500-18.000 að sögn Reuters-fréttastofunnar. Erlent 13.10.2005 15:04
12 látnir eftir sjálfsmorðsárás Að minnsta kosti tólf létust og tíu eru særðir eftir sjálfsmorðsárás fyrir utan írakska lögreglustöð í útjaðri Ramadí-borgar í Írak í morgun. Að sögn talsmanns sjúkahússins þangað sem hinir særðu voru fluttir eru um 90% fórnarlambanna lögreglumenn. Erlent 13.10.2005 15:04
Sprengjudrunur í Bagdad Sprengjudrunur heyrast víða í Bagdadborg nú um stundir en engar fréttir hafa borist af særðum eða látnum. Öflug sprenging kvað við í miðborginni fyrir stuttu og fréttamaður Reuters í borginni segist sjá reyk stíga upp til himins norðan við Græna svæðið svokallaða þar sem meðal annars er aðsetur hernámsliðsins og bráðabirgðastjórnar Íraks. Erlent 13.10.2005 15:03
80 uppreisnarmenn handsamaðir Hundruð breskra hermanna réðust á bækisstöðvar meintra stuðningsmanna Saddams Hússeins nærri Bagdad í Írak í morgun en hersveitir hafa undanfarna daga reynt að knésetja uppreisnarmenn suður af höfuðborginni. Áttatíu Írakar voru handsamaðir og hald lagt á tæki sem talin eru vera til sprengjugerðar. Erlent 13.10.2005 15:03
Tilraunastofa til efnavopnagerðar Tilraunastofa til efnavopnagerðar hefur fundist í Fallujah-borg í Írak að sögn utanríkisráðherra landsins, Kassims Daouds. Hernámsliðið náði borginni á sitt vald, eða svo gott sem, á dögunum með því að ráðast gegn skæruliðum sem höfðu borgina í herkví og í kjölfarið uppgötvaðist þessi tilraunastofa. Erlent 13.10.2005 15:03
Aukið hungur kemur ekki á óvart Þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins segir skýrslu um aukna vannæringu íraskra barna ekki koma á óvart. Hann telur ástand í landinu þó betra en áður en ráðist var inn. Þingflokksformaður Vinstri grænna segir niðurstöðurnar skelfilegar Erlent 13.10.2005 15:02
Frænda Allawis sleppt? Mannræningjarnir sem rændu frænda Iyads Allawis, forsætisráðherra Íraks, létu hann lausan í dag að sögn arabískrar sjónvarpsstöðvar. Talsmaður íröksku ríkisstjórnarinnar sagðist ekki geta staðfest fréttirnar í samtali við Reuters-fréttastofuna. Frænda forsætisráðherrans var rænt fyrr í mánuðinum. Erlent 13.10.2005 15:01
80% skuldanna felld niður Rússar hafa samþykkt að fella niður 80 prósent skulda Íraka sem hljóða upp á um það bil 125 milljarða dollara. Þetta er haft eftir bandarískum embættismanni en Bandaríkjamenn leggja mikla áherslu á að skuldirnar verði felldar niður. Erlent 13.10.2005 15:01
Ghazi Allawi sleppt úr gíslingu Ghazi Allawi, frændi Iyads Allawi, forsætisráðherra Íraks, var látinn laus á sunnudag í Bagdad en hann var tekinn í gíslingu þann 10. nóvember. Erlent 13.10.2005 15:01
Kosningar í Írak 30. janúar Kosninganefnd Íraks ákvað í morgun dagsetningu á fyrirhugaðar kosningar í landinu og var ákveðið að Írakar gangi að kjörborðinu þann 30. janúar næstkomandi. Mikil óöld ríkir í landinu og margir fréttaskýrendur hafa talið óvarlegt að boða til kosninga að svo komnu máli á meðan ekki hefur tekist að ná tökum á uppreisnarhópum víðs vegar um landið. Erlent 13.10.2005 15:01
Fleiri lík finnast Lík þriggja manna sem skotnir höfðu verið í höfuðið fundust á götum Mósúl í Írak í dag. Líklegt er talið að mennirnir séu úr þjóðvarðaliði Íraka en það hefur ekki verið staðfest. Í gær fundust lík níu írakskra þjóðvarðliða á víðavangi í borginni sem einnig höfðu verið drepnir með skoti í höfuðið. Erlent 13.10.2005 15:01
Boðað til kosninga í Írak Boðað hefur verið til þingkosninga í Írak þrítugasta janúar á næsta ári þrátt fyrir það upplausnarástand sem ríkir í landinu. Dagsetningin fyrir kosningarnar var kunngerð í dag en fyrirfram höfðu margir haft uppi varnaðarorð og efast um að kosningar geti verið óhlutdrægar við núverandi kringumstæður. Erlent 13.10.2005 15:01
Aftökurnar halda áfram Írakskir hryðjuverkamenn myrtu í dag enn tvo gísla sína og settu aftöku þeirra á Netið. Að þessu sinni voru fórnarlömbin tveir Kúrdar sem morðingjarnir segja að hafi tilheyrt lýðræðisflokki þjóðflokksins. Sá flokkur er annar af tveimur stjórnmálahreyfingum Kúrda sem á aðild að bráðabirgðastjórninni í Írak. Erlent 13.10.2005 15:01
Deilt um skuldir Íraka Ríkustu þjóðum heims gengur erfiðlega að ná samkomulagi um hvort og hversu mikið af skuldum Íraka þær felli niður. Erlendar skuldir Íraka eru um 122 milljarðar króna og hafa þeir beðið um niðurfellingu á þeim þar sem byrðin sé að sliga landið og hindra eðlilega uppbyggingu. Erlent 13.10.2005 15:01