
Slökkvilið

Logaði á fleiri en einum stað á Sogavegi
Tilkynning barst um klukkan 6:30 í morgun og tók aðeins nokkrar mínútur fyrir slökkviliðsmennina að slökkva eldinn.

Kviknaði í bílnum 86 klukkutímum eftir að rafhlaðan varð fyrir tjóni
Ekki er þó meiri hætta á að kvikni í rafmagnsbílum en bensín- eða dísilbílum.

Slökkviliðið tók þátt í Tetris-áskoruninni
Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu tók þátt í nýjasta æðinu á Internetinu í dag, svokallaðri Tetris-áskorun. Öllum búnaði úr nýju slökkviliðsbílunum var stillt upp líkt og um Tetris-leikinn væri að ræða.

Slökkvilið kallað út vegna elds í Sandgerði
Slökkviliðsmenn á vegnum Brunavarna Suðurnesja eru nú á leiðinni til Sandgerðis eftir að tilkynnt var um eld í bílskúr húss við Brekkustíg.

Slysið á Snæfellsvegi var banaslys
Einn hefur verið úrskurðaður látinn en ástand hinna fjögurra sem í bifreiðinni voru liggur ekki fyrir.

Sjúkrabílar kallaðir út frá fimm stöðum vegna slyssins
Fimm slösuðust og þar af tveir alvarlega þegar bíll erlendra ferðamanna fór út af Snæfellsvegi nærri bænum Gröf við Kleifá á sunnanverðu Snæfellsnesi í dag.

Dælubílar sendir út vegna tveggja umferðaróhappa
Slökkviliðið sinnir nú tveimur útköllum vegna umferðarslysa, annars vegar á Reykjanesbraut við Smáralind og hins vegar við Reykjavíkurveg í Hafnarfirði.

Slökkvilið og bæjarstarfsmenn lögðu fráveitukerfinu á Siglufirði lið í miklu vatnsveðri
Mikið vatn flæddi um götur Siglufjarðar í gærkvöldi eftir úrhellisrigningu, í hvassri norðanátt, frá miðjum degi og fram á kvöld. Svo mikið var vatnið að það flæddi upp um niðurföll og brunna á nokkrum stöðum í bænum.

Hátæknimyndavélar á nýjum slökkviliðsbílum
Fjórir nýir slökkviliðsbílar munu á næstunni aka um götur borgarinnar. Þeir eru fyrstu nýju bílarnir sem Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins fær í sextán ár en þeir elstu eru yfir þrjátíu ára gamlir.

Nýir bílar slökkviliðsins komnir til landsins
Nýju slökkvibílarnir verða teknir í notkun, einn af öðrum, fram að áramótum að lokinni þjálfun slökkviliðsmanna. Þetta er í fyrsta sinn sem Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins fær fjóra nýja bíla á einu bretti.

Hrærður yfir viðbrögðunum: „Þegar eitthvað bjátar á standa allir saman“
Árni Gunnlaugsson, einstæður faðir sem missti aleiguna í bruna fyrir rúmri viku, hefur fundið fyrir miklum stuðningi.

Einstæður þriggja barna faðir missti allt í bruna
Maðurinn er ekki með heimilistryggingu og með báðar hendur tómar. Eitt barn hans var að fikta með eld með þeim afleiðingum að íbúðin varð alelda. Feðgarnir sofa nú á dýnum í tómu lánshúsi.

Vísbendingar um að kviknað hafi í út frá rafmagni
Tæknideild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu og starfsfólk Mannvirkjastofnunar hafa bruna í sumarbústað í Brekkuskógi fyrir viku til rannsóknar.

Slökkvilið kallað út vegna elds á verkstæði á Hellu
Slökkvilið hefur verið kallað út vegna elds á rafmagnsverkstæði á Hellu.

Flæddi upp á Fiskmarkaðnum
Varðstjóri hjá slökkviliðinu segir í samtali við Vísi að lagnakerfi staðanna hafi ekki haft undan og því flætt upp.

Plastið hefur áhrif á heilsu slökkviliðsmanna
Útbreiðsla plasts í umhverfinu eykur líkur á því að slökkviliðsmenn fái krabbamein. Þetta segir slökkviliðsmaður og að í dag séu þeir allt að tvisvar sinnum líklegri en aðrir til að fá ákveðnar tegundir krabbameins.

Aleigan brann á hálftíma
Eldur sem kviknaði í litlum potti á eldavél varð að báli á örskömmum tíma og gjöreyðilagði heila íbúð. Fjölskyldan hafði skroppið frá um kvöldmatarleitið á fimmtudag og þegar hún kom til baka hálftíma síðar lagði svartan reyk út um eldhúsgluggann. Aleigan fór í eldsvoðanum.

Nýjum tankbíl ætlað að tryggja frekar öryggi í sumarhúsabyggð
Brunavarnir Árnessýslu fengu í gær afhenta nýja Bens tankbifreið í bílaflota slökkviliðsins. Henni er ætlað að tryggja enn frekar öryggi í sumarhúsabyggðinni í Árnessýslu.

Fjölskyldan í áfalli eftir altjón í eldsvoða
Altjón varð í íbúð í fjölbýlishúsi að Suðurhólum í Breiðholti í gærkvöldi eftir að þar kviknaði í út frá potti á eldavél. Fjögurra manna fjölskylda sem þar býr var að koma heim þegar hún varð vör við eldinn. Fjölskyldufaðirinn hjálpaði fólki úr öðrum íbúðum út og fékk snert af reykeitrun.

Kviknaði í út frá potti á eldavél
Rannsókn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu hefur leitt í ljós að rekja megi eldsupptök eldsins í fjölbýlishúsi í Suðurhólum í Reykjavík til potts á eldavél. Húsráðendur voru ekki í íbúðinni þegar eldurinn kom upp.

Íbúum bjargað úr fjölbýli í Suðurhólum eftir að eldur kviknaði
Altjón varð í íbúð í Reykjavík en eldsupptök eru ókunn.

Telja að óvarlega hafi verið farið með eld í íbúð í Jórufelli
Rannsókn Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu á bruna í íbúð fjölbýlishúss í Jórufelli í Reykjavík aðfaranótt sunnudags er lokið, en hún leiddi í ljós að eldurinn kviknaði í svefnherbergi þar sem farið var óvarlega með eld.

Alelda sumarbústaður í Brekkuskógi
Slökkviliðsmenn hjá Brunavörnum Árnessýslu vinna nú að því að ráða niðurlögum elds sem kom upp í sumarhúsi í Brekkuskógi á öðrum tímanum í dag.

Eldur kom upp í strætisvagni
Eldur kom upp í strætisvagni á athafnasvæði Strætó við Hestháls í Reykjavík í morgun.

Mikill eldur í sumarbústað í Hvassahrauni
Starfsmenn Brunavarna Suðurnesja eru komnir á vettvang, alls sex menn á einum slökkvibíl.

Mikill eldur logaði í íbúð í Jórufelli
Allt tiltækt lið Slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðinu var kallað út skömmu eftir miðnætti eftir að tilkynning barst um að eldur logaði í íbúð á þriðju hæð, í blokk í Jórufelli.

Eldur við Tjarnabraut í Reykjanesbæ
Brunavarnir Suðurnesja voru kallaðar út vegna elds sem kviknaði í vinnuskúr við leikskóla að Tjarnabraut í Reykjanesbæ.

Slökktu í rusli í Hróarstungu
Brunavarnir á Austurlandi sendu allt tiltækt lið á vettvang í Hróarstungu í kvöld eftir að vegfarendur tilkynntu um eldsvoða.

Slökkvilið kallað út að Heiðarskóla í Reykjanesbæ
Samkvæmt upplýsingum frá Brunavörnum Suðurnesjum var tilkynnt um eld í ljósi við sundlaugina í skólanum.

Eldur í einbýlishúsi á Akureyri
Eldur kom upp í olíu í einbýlishúsi á Akureyri nú síðdegis.