Skipulagsmál

Fréttamynd

Verk­lok í Þverholti færast frá sumri til ára­móta

Framkvæmdir í Þverholti við Hlemm, sem áætlað var að stæðu fram á mitt sumar, eru enn í fullum gangi. Reykjavíkurborg stefnir nú að því að ljúka þeim fyrir áramót. Á sama tíma er nýr framkvæmdaráfangi að hefjast á norðursvæði Hlemms vegna uppbyggingar Borgarlínu. Honum á að ljúka í lok árs 2027.

Innlent
Fréttamynd

Segir flugeldasöluna ekki í hættu

Flugeldasala Björgunarsveitar Hafnarfjarðar er ekki í hættu um næstu áramót og ólíklegt að hún verði það á næsta ári, að sögn bæjarstjóra. Hann hyggst funda með sveitinni í næstu viku og fara yfir húsnæðisþörf hennar og kostnað við uppbyggingu.

Innlent
Fréttamynd

Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik

Farþegasalurinn í Mjódd verður tekinn í gegn og undirbúnar eru umfangsmiklar endurbætur á strætóstöðinni sjálfri. Skipta á öllu ofnakerfi salarins, endurnýja sætisaðstöðuna og setja upp nýja lýsingu og öryggiskerfi. Ofbeldi á svæðinu og slæmt ástand aðstöðunnar eru meðal ástæðna framkvæmdanna.

Innlent
Fréttamynd

Segja upp 34 á­skriftum og opna stæðin al­menningi

Reykjavíkurborg ætlar að segja upp 34 bílastæðaáskriftum á efstu hæð Bergstaða og opna stæðin almenningi. Bílahúsið skilaði rúmlega tíu milljóna króna tapi í fyrra og mælingar sýna að flest stæði efstu hæðarinnar standa auð yfir daginn.

Innlent
Fréttamynd

Vilja 125 milljónir til að halda flugeldasölunni gangandi

Fyrirhuguð íbúðablokk við Hvaleyrarbraut í Hafnarfirði kemur í veg fyrir áframhaldandi flugeldasölu í húsnæði Björgunarsveitar Hafnarfjarðar, að sögn sveitarinnar. Hún óskar eftir að bærinn greiði um 125 milljóna króna viðbyggingu svo halda megi sölunni áfram.

Innlent
Fréttamynd

Vandinn heima­til­búinn og vill sleppistæði

Skoða á sérstök sleppistæði við ungbarnaleikskólann í Bríetartúni eftir ábendingar foreldra um erfiða og óörugga aðkomu. Magnea Gná Jóhannsdóttir, fulltrúi Framsóknar í umhverfis- og skipulagsráði, segir að ekki hafi verið nægilega hugað að aðgengi foreldra sem koma með börn sín á bíl.

Innlent
Fréttamynd

Eig­endur Kaffi Laugalækjar færa út kvíarnar

Hjónin Markús Hauksson og Bríet Guðrúnardóttir opnuðu nýlega kaffihúsið Róst að Suðurlandsbraut 8 þar sem Te og kaffi var áður til húsa. Þau tóku við rekstri kaffihússins Kaffi Laugalækjar fyrir rúmu ári síðan og segja að töluverð samlegðaráhrif verði með kaffihúsunum þó það séu ólíkar áherslur. 

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Borað eftir heitu vatni í Laugar­dal

Í dag hefst flutningur á hundrað tonna bor frá Hellisheiði í Laugardalinn, en þar ætla Veitur að bora í leit sinni að heitu vatni. Í tilkynningu segir að Veitur hafi undanfarið undirbúið borun eftir heitu vatni á tveimur stöðum, við Engjateig og Bolholt.

Innlent
Fréttamynd

Borgin aftur­kallar lóðir trúfélaganna

Lóðir sem voru úthlutaðar til annars vegar rússnesku rétttrúnaðarkirkjunnar og hins vegar til Félags múslima á Íslandi verða afturkallaðar. Málinu var fyrst um sinn frestað eftir að félögin komu af fjöllum.

Innlent
Fréttamynd

Máttu tæma lónið

Landsréttur hefur staðfest úrskurð Héraðsdóms sem taldi að Orkuveita Reykjavíkur hefði verið í rétti þegar hún lét tæma Árbæjarlón til frambúðar. Rétturinn viðurkenndi þó að íbúi hefði haft lögvarða hagsmuni af tæmingunni enda byggi hann við nyrðri hluta lónsins og ásýnd svæðisins breyttist mikið.

Innlent
Fréttamynd

Niður­rif hafið á Laugasól

Niðurrif á leikskólanum Laugasól við Leirulæk í Laugardal hófst fyrr í þessum mánuði. Ákveðið var í nóvember árið 2024 að rífa leikskólann en verkið var ekki boðið út fyrr en í sumar. Ekki liggur fyrir endanleg hönnun á nýjum leikskóla né hvenær framkvæmdir geta hafist. 

Innlent
Fréttamynd

Skora á borgina að bæta ekki við beygju­vasa

Samtök um bíllausan lífstíl leggjast á móti áformum meirihlutans og Miðflokks í umhverfis- og skipulagsráði um að bæta við hægribeygjuframhjáhlaupi þegar ekið er af Bæjarhálsi yfir á Höfðabakka til norðurs.

Innlent
Fréttamynd

Meiri­hlutinn sprakk aftur vegna vallarmála

Sjálfstæðismenn og óháðir harma að meirihlutasamstarfi við Samfylkinguna sé lokið og segja það áhyggjuefni að bæjarstjórn Suðurnesjabæjar springi í annað sinn vegna vinnslu á vallarmálum.

Innlent
Fréttamynd

Vill breyta um­deildum gatna­mótum

Til skoðunar er að breyta á ný gatnamótum sem gerðar voru umdeildar breytingar á í fyrra. Oddviti Miðflokksins gekk til liðs við meirihlutann í málinu og vonast til að framkvæmdir hefjist í vor. 

Innlent
Fréttamynd

Arnarnesvegur opnar loks á morgun

Opnað verður fyrir umferð um nýja Arnarnesveginn á morgun klukkan 14.00. Svæðið sé þó enn vinnusvæði enda standi yfir framkvæmdir við nýtt hringtorg við mót Arnarnesvegar og Rjúpnavegar og við nærliggjandi göngu- og hjólastíga. 

Innlent
Fréttamynd

Þetta eru stæðin sem borgin hefur endur­heimt

Fimmtán bílastæði í miðborg Reykjavíkur eru aftur komin í notkun eða verða opnuð á næstu dögum. Meirihluti umhverfis- og skipulagsráðs fagnar breytingunni en fulltrúar Samfylkingarinnar og Vinstrisins gagnrýna að útiborð og hjólabogar séu fjarlægð til að rýma fyrir bílum.

Innlent
Fréttamynd

„Dapur­legt pólitískt út­spil hjá odd­vita Sam­fylkingar“

Ásdís Kristjánsdóttir segir Kópavogsbæ hafa verið að prófa sig áfram með nýja útboðsleið þegar bygging stúku við Kórinn var boðin út. Kærunefnd útboðsmála hefur úrskurðað útboðið ólögmætt. Ásdís segir orð oddvita Samfylkingar um að bærinn hafi flýtt sér um of vera dapurlegt pólitískt útspil.

Innlent
Fréttamynd

„Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri til­viljun“

Oddviti Samfylkingarinnar í Kópavogi segir að útboð vegna byggingar stúku við Kórinn, sem nú hefur verið dæmt ólöglegt, beri öll merki þess að Kópavogsbær hafi flýtt sér of mikið við gerð þess. Engin tilviljun sé að fyrsta skóflustunga hafi átt að vera tekin daginn fyrir kjördag í vor.

Innlent
Fréttamynd

Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á á­ætlun og verði búin í lok októ­ber

Íbúar nærri framkvæmdasvæðinu Arnarlandi í Garðabæ hafa margir hverjir lýst því að sprengingar á svæðinu finnist vel á heimilum sem skelfi öll. Þá heyrist ekki nægilega vel í hljóðmerkjum sem eigi að koma á undan og á eftir hverri sprengingu. Sprengistjóri segir að leitast sé við að valda sem minnstu ónæði en hann skilji vel að það sé ekki spennandi að hafa þetta í þéttbýli.

Innlent
Fréttamynd

Bruna­vörnum hafi verið veru­lega á­fátt

Einar Þorsteinsson, oddviti Framsóknar í borginni og formaður borgarráðs, segir unnið að nokkrum sviðsmyndum um framtíðarnotkun húsnæðis eða lóða sem Reykjavíkurborg sagði upp við listamenn víða um borg. Brunavörnum hafi verið verulega áfátt og ekki hafi verið hagkvæmt að laga eða endurgera húsin.

Innlent
Fréttamynd

Nýtt tíma­bil í skipu­lags­málum Reykja­víkur

Skipulagsmál hafa lengi verið eitt heitasta umræðuefnið á kaffistofum borgarbúa. Það er ekkert skrítið. Fáar ákvarðanir borgarinnar hafa jafn bein áhrif á daglegt líf okkar. Skipulagið ræður miklu um það hvort við komumst greiðlega til vinnu, finnum bílastæði við heimilið, njótum birtu í íbúðinni og hvort uppbygging íbúða haldi í við þarfir borgarbúa.

Skoðun
Fréttamynd

Þjóðarsjúkrahúsið seinkar

Við Hringbraut rís eitt stærsta hús landsins. Útveggir eru komnir. Innri vinna stendur yfir. Tugir milljarða hafa þegar verið lagðir í verkefnið og enn stærri fjárhæðir eru fram undan.

Skoðun
Fréttamynd

Rýma húsið: „Draumurinn er að Reykja­víkur­borg geti hjálpað okkur“

Parkour-inniaðstaða á Sævarhöfða sem hefur verið nýtt af iðkendum jaðaríþróttarinnar í rúm fimm ár verður jöfnuð við jörðu innan nokkurra mánaða og enn hefur ekki fundist nýtt húsnæði fyrir starfsemina. Sjálfboðaliðar sem hafa leigt rýmið og boðið upp á kennslu sjá fram á að þurfa að færa það sem bjargað verður í gám og leggjast í dvala yfir veturinn.

Innlent
Fréttamynd

Tengir stór­fram­kvæmdir við fram­tíð lýð­ræðisins

Stofnun innviðafélagsins Ganga og brúar er líka pólitískt verkefni um að sýna að lýðræðislega kjörnar ríkisstjórnir geti komið stórum hlutum í verk, segir Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra. Hún segir stóra erlenda fjárfesta sýna félaginu áhuga og að með því skapist fjárhagslegur rammi fyrir Sundabraut og fleiri stór samgönguverkefni.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Trúfélögin hafi greini­lega ekki fylgst með innhólfinu

Afgreiðslu tillögu um að afturkalla lóðarúthlutun til tveggja trúfélaga var frestað á fundi borgarráðs í morgun. Borgarráði barst póstur frá Félagi múslíma á Íslandi á meðan á fundinum stóð. Félagið kom af fjöllum um að mál þeirra væri til afgreiðslu á fundinum.

Innlent
Fréttamynd

Koma af fjöllum varðandi á­form borgarinnar

Talsmenn Félags múslíma á Íslandi og rússnesku rétttrúnaðarkirkjunnar hér á landi segjast alfarið koma af fjöllum hvað varðar áform Reykjavíkurborgar um að afturkalla lóðarúthlutun til trúfélaganna. Félögin segja ekkert erindi þess efnis hafa borist frá borginni.

Innlent
Fréttamynd

Fimm aukaíbúðir þar sem að­eins mátti vera ein

Eigendur einbýlishúss í Breiðholti verða að breyta húsinu eftir að fimm aukaíbúðir voru innréttaðar þar sem borgin leyfir aðeins eina. Borgin gaf þeim þó of skamman tíma til breytinganna og tók ekki nægilegt tillit til fólksins sem leigir íbúðirnar.

Innlent