Framsóknarflokkurinn
7 8 9 10 11 12 13 14 15 … 49 ›
Röng skilaboð að Yaris borgi það sama og stór jeppi Runólfur Ólafsson, framkvæmdastjóri Félags íslenskra bifreiðaeigenda, segir að flatt kílómetragjald sem lagt er til á alla bíla undir 3,5 tonnum, sé ósanngjarnt. Það séu röng skilaboð til almennings að minni bílar sem mengi minna og slíti vegum minna, borgi það sama og stærri jeppar og pallbílar. Einnig þurfi að ræða gjaldtöku á þungu atvinnubílunum, en ef fram fer sem horfir mun gífurlegur kostnaður leggjast á landsbyggðina. Innlent 23.7.2024 20:35
Skerjafjarðarskáld skriplar á skötu en gefst ekki upp Kristján Hreinsson skáld, kenndur við Skerjafjörðinn er ósáttur við að Lilja Dögg Alfreðsdóttir menntamálaráðherra hafi vísað kæru hans á hendur Ríkisútvarpinu frá. En hann er hvergi nærri af baki dottinn. Innlent 22.7.2024 10:15
Félag í eigu rabbína keypti Framsóknarhúsið Félag í eigu rabbínsins Avraham „Avi“ Feldham hefur fest kaup á Framsóknarhúsinu á Hverfisgötu. Hann flutti hingað til lands árið 2018 til þess að koma fyrstu íslensku sýnagógunni á laggirnar. Innlent 20.7.2024 14:15
Afstaða borgarstjóra „blaut tuska í andlit margra“ Oddviti Flokks fólksins í borginni kveðst sleginn yfir ummælum borgarstjóra um stöðu fólks sem býr í hjólhýsum í borginni. Fólkið hafi fengið fyrirheit um úrlausn sinna mála, sem nú virðist úr sögunni. Innlent 20.7.2024 13:01
Umræða um ábyrgð starfsfólks MAST eigi ekki rétt á sér Matvælaráðherra segir umræðu um persónulega ábyrgð starfsfólks Matvælastofnunar á veitingu rekstrarleyfis til fiskeldis í Ísafjarðardjúpi ekki eiga rétt á sér. Innlent 19.7.2024 16:56
Bendir íbúum á tjaldsvæði í grennd við borgina „Ég hef ekki verið hlynntur þessari þróun að Reykjavíkurborg búi til hjólhýsagarð sem sérstakt húsnæðisúrræði. Aðal atriðið er það að byggja nóg til þess að allir geti fundið þak yfir höfuðið og mæta sérstaklega lágtekjuhópum með sérstökum úrræðum og það erum við að gera.“ Innlent 19.7.2024 13:00
Stjórnsýslufræðingur segir Þórarinn Inga brotlegan við siðareglur Haukur Arnþórsson stjórnsýslufræðingur telur blasa við að Þórarinn Ingi Pétursson Framsóknarflokki, hafi brotið siðareglur þingsins, þá er hann mælti fyrir breytingu á búvörulögum. Innlent 11.7.2024 16:30
Segir dómgreindarleysi formannsins algert Bubbi Morthens tónlistarmaður hefur blandað sér í funheita umræðu um hvort Þórarinn Ingi Pétursson formaður atvinnuveganefndar hafi verið á réttu róli þegar hann, sem eigandi 0,6 prósents í Búsæld og þar með einn eigandi Kjarnafæðis, samþykkti lög sem heimiluðu sölu á Kjarnafæði til Kaupfélags Skagfirðinga. Innlent 10.7.2024 15:11
Fagnar umræðu um kynfæralimlestingar barna Silja Dögg Gunnarsdóttir, fyrrverandi þingmaður Framsóknarflokksins, fagnar nýrri skýrslu heilbrigðisráðherra um ofbeldi gegn börnum, sem tók kynfæralimlestingar á börnum meðal annars til umfjöllunar. Silja lagði fram frumvarp árið 2018 þar sem banna átti umskurð á drengjum, sem náði ekki fram að ganga. Innlent 9.7.2024 20:48
Ráðherra beitir sér ekki og eftirlitið í öngum sínum Matvælaráðherra ætlar ekki að beita sér fyrir breytingum á undanþáguheimildum í búvörulögum. Forstjóri Samkeppniseftirlitsins gagnrýnir ráðherra og atvinnuveganefnd og segir vinnubrögðin óforsvaranleg. Innlent 9.7.2024 13:57
Búið að afvopna neytendur Formaður atvinnuveganefndar segir það ekki tortryggilegt að hann eigi hlut í félagi sem keypt var af Kaupfélagi Skagfirðinga á grundvelli nýsamþykktra búvörulaga sem tekin voru fyrir í nefndinni. Þingmaður Viðreisnar segir nefndina hafa tekið gríðarmikilvægt vopn úr höndum neytenda. Neytendur 8.7.2024 20:22
Þaulskipulagt af hagsmunaaðilum og þeirra fulltrúum á þingi Formaður atvinnuveganefndar Alþingis á hlut í félagi sem Kaupfélag Skagfirðinga er að kaupa. Kaupin ganga í gegn án aðkomu Samkeppniseftirlitsins vegna breytinga á búvörulögum sem atvinnuveganefnd gerði. Framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda segir um skipulagða aðgerða hagsmunaaðila og fulltrúa þeirra á þingi að ræða. Innlent 8.7.2024 13:41
Formaður atvinnuveganefndar á hlut í félaginu sem KS keypti Þórarinn Ingi Pétursson, formaður atvinnuveganefndar, á um það bil 0,8 prósenta hlut í Búsæld ehf., sem á rúmlega 43 prósent hlutafjár í Kjarnafæði Norðlenska hf.. Hluthafar Kjarnafæði Norðlenska hafa samþykkt kaup Kaupfélags Skagfirðinga á allt að hundrað prósent hlutafjár í félaginu. Nýsamþykkt lög, sem fóru í gegnum atvinnuveganefnd, gera kaupin möguleg. Viðskipti innlent 8.7.2024 11:00
Stjórnarflokkarnir geti allir haft áhyggjur Formaður Framsóknarflokksins rekur lítið fylgi Framsóknarflokksins til stöðunnar í efnahagsmálum, en segist eiga von á að fylgið taki við sér með vetrinum. Prófessor í stjórnmálafræði segir fleira ráða fylgistapinu en mikil verðbólga og háir vextir. Innlent 2.7.2024 19:43
Nýr tækniskóli rís við Flensborgarhöfn í Hafnarfirði Það má segja að vegferðin hafi farið af stað sumarið 2021 þegar viljayfirlýsing um framtíðarhúsnæði Tækniskólans var undirrituð hér í Hafnarfirði, m.a. af þáverandi menntamálaráðherra. Það var því stór stund í Hafnarfirði síðastliðinn fimmtudag þegar stjórnvöld, Hafnarfjarðarbær og Tækniskólinn undirrituðu skuldbindandi samkomulag þess efnis að nýr Tækniskóli verði staðsettur í Hafnarfirði og verkefnið fari nú af stað af fullum krafti í samræmi við stjórnarsáttmála núverandi ríkisstjórnar. Skoðun 29.6.2024 15:00
Væru með helmingi færri þingmenn Flokkarnir sem mynda núverandi meirihluta í Reykjavík gætu myndað ríkisstjórn með ríflegum meirihluta samkvæmt nýlegri könnun Maskínu. Stjórnmálafræðingur segir Sjálfstæðisflokkinn þurfa að gera upp við sig hvert hann sækir tapað fylgi. Formaðurinn tekur fylgistapinu alvarlega. Innlent 27.6.2024 19:30
Miðflokkurinn nartar í hæla Sjálfstæðisflokksins Sjálfstæðisflokkurinn missir tæplega þrjú prósentustig frá síðustu mælingu Maskínu en Sósíalistaflokkurinn bætir við sig tveimur. Marktækur munur er á fylgi Samfylkingarinnar og Sjálfstæðisflokksins sextánda mánuðinn í röð. Samanlagt fylgi ríkisstjórnarflokkanna er nú 30 prósent og hefur aldrei verið lægra. Innlent 26.6.2024 09:21
Árangursríkur þingvetur skilar samfélaginu í rétta átt Á Íslandi er gott að búa og hér höfum við byggt upp öflugt velferðarsamfélag; samfélag sem gefur atvinnulífi og einstaklingum súrefni til að vaxa og dafna, samhliða því að styðja við barnafjölskyldur og þá hópa sem höllum fæti standa. Skoðun 26.6.2024 08:00
Sigmundur Davíð furðu lostinn yfir nýrri mannréttindastofnun Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður Miðflokksins er furðu lostinn vegna mannréttindastofnunar sem samþykkt var í dag á þinginu að koma á koppinn. Innlent 21.6.2024 14:32
Vísar á heilbrigðisráðherra að borga bílastæðagjöldin Svandís Svavarsdóttir innviðaráðherra vísar því til Willums Þór Þórssonar heilbrigðisráðherra að skoða hvort Sjúkratryggingar geti mætt þeim aukna kostnaði sem ný bílastæðagjöld á innanlandsflugvöllum valda landsbyggðarfólki á leið í læknisheimsóknir. Þetta kom fram í svari hennar við fyrirspurn Þorgríms Sigmundssonar, varaþingmanns Miðflokksins úr Norðausturkjördæmi, á Alþingi í gær. Innlent 21.6.2024 11:11
Þinglokasamningar í höfn: Lögreglulögin fljúga í gegn með breyttum örorkulífeyri Formenn þingflokkanna náðu rétt fyrir miðnætti í gær saman um afgreiðslumála fyrir frestun funda Alþingis. Stefnt er að þingfrestun á morgun. Samkvæmt upphaflegri starfsáætlun Alþingis átti þingfrestun að vera fyrir viku síðan. Innlent 21.6.2024 10:21
Stjórnarflokkarnir séu farnir að stilla sér upp fyrir kosningabaráttu Eiríkur Bergmann prófessor í stjórnmálafræði segir að, þó að Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir hafi varist vantrausti með talsverðum meirihluta, varpi atkvæðagreiðslan enn skærara ljósi á þá úlfúð og óeiningu sem ríkir í ríkisstjórnarsamstarfinu. Innlent 20.6.2024 21:15
Greiða atkvæði um vantrauststillöguna Alþingismenn greiða atkvæði um vantrauststillögu Bergþórs Ólasonar, þingmanns Miðflokksins, á hendur Bjarkeyju Olsen Gunnarsdóttur matvælaráðherra á þingfundi dagsins. Innlent 20.6.2024 10:53
„Þessi vantrauststillaga verður felld“ Vantrauststillaga Miðflokksins á Bjarkeyju Olsen Gunnarsdóttur matvælaráðherra vegna meintra slælegra vinnubragða hennar við útgáfu leyfis til Hvals hf. um veiðar á langreyði verður tekin til umræðu á Alþingi á morgun. Innlent 19.6.2024 23:01
„Það er þetta viðvarandi ólögmæti“ Þingmenn stjórnarandstöðuflokkanna fylkja sér um vantrauststillögu á hendur matvælaráðherra. Bergþór Ólason þingmaður Miðflokksins segir stjórnsýslu hvalveiðimálsins, allt frá því að Svandís Svavarsdóttir tók ákvarðanir í málinu sem matvælaráðherra, hafa verið óboðlega. Innlent 18.6.2024 20:45
Fjármálaráðherra hafi slátrað eigin samgönguáætlun Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir Viðreisn spurði Sigurð Inga Jóhannsson fjármálaráðherra hvernig það mætti vera að samgönguáætlun hafi verið slátrað en þar eru allar samgönguáætlanir landsins undir. Sigurður Ingi sagði Þorbjörgu Sigríði nota gildishlaðin lýsingarorð og túlka orð sín frjálslega. Innlent 18.6.2024 15:40
„Þetta setur okkur í svolítið einkennilega stöðu“ Óvissa ríkir um hvenær fyrirhuguð gjaldtaka á bílastæðum við innanlandsflugvelli hefst, sem átti að hefjast í vikunni. Málið strandar hjá fjármálaráðherra sem hefur ekki undirritað þjónustusamning sem þegar hefur verið endurnýjaður milli innviðaráðuneytisins og Isavia. Þetta setur Isavia í einkennilega stöðu að sögn framkvæmdastjóra Isavia innanlandsflugvalla. Innlent 18.6.2024 12:31
Stjórnarflokkarnir ekki enn komnir með forgangslista mála Stjórnarandstaðan hefur enn ekki verið upplýst um hvaða mál stjórnarflokkarnir leggja áherslu á að fá afgreidd á yfirstandandi vorþingi. Þingflokksformaður Samfylkingarinnar segir formenn þingflokka stjórnarflokkanna forðast að ræða stöðuna. Innlent 18.6.2024 11:42
Sigurður Ingi ekki búinn að undirrita Isavia-samning Sigurður Ingi Jóhannsson fjármála- og efnahagsráðherra er ekki búinn að undirrita þjónustusamning sem veitir Isavia heimild til innheimtu bílastæðagjalda á Akureyrarflugvelli og Egilsstaðaflugvelli. Ingveldur Sæmundsdóttir, aðstoðarmaður Sigurðar Inga, óskar eftir að þetta komi fram vegna frétta um að í síðustu viku hafi nýr þjónustusamningur verið undirritaður milli innviðaráðuneytis og Isavia, með aðild fjármála- og efnahagsráðuneytisins, þar sem félaginu er veitt heimild til innheimtu stöðugjalda. Innlent 15.6.2024 16:27
Svandís og Sigurður Ingi sögð bakka upp bílastæðagjöldin Ráðuneyti Svandísar Svavarsdóttur og Sigurðar Inga Jóhannssonar, innviðaráðuneytið og fjármála- og efnahagsráðuneytið, áttu bæði aðild að undirritun þjónustusamnings við Isavia í síðustu viku þar sem félaginu var veitt heimild til innheimtu bílastæðagjalda á flugvöllum. Formaður Sambands sveitarfélaga á Austurlandi segir þetta hafa verið leynigjörð á sama tíma og fyrir lá lögfræðiálit þar sem efast var um lögmæti gjaldtökunnar. Innlent 15.6.2024 08:08