Fréttir
304 305 306 307 308 309 310 311 312 … 334 ›
Reyndi að stinga lögreglu af með fíkniefni Talsvert af fíkniefnum fannst í fórum ökumanns sem reyndi að stinga lögregluna í Reykjavík af í nótt. Hann sinnti ekki stöðvunarmerkjum lögreglu, ók yfir gatanmót á rauðu, en eftir skamma en snarpa eftirför náðist hann Innlent 23.11.2006 09:36
Sluppu ómeiddir í veltu í Skíðaskálabrekku Ökumaður og farþegi sluppu ómeiddir þegar bíll þeirra valt í Skíðaskálabrekkunni á Suðurlandsvegi í nótt. Hálka var á vettvangi og ökumaður er auk þess grunaður um akstur undir áhrifum lyfja. Innlent 23.11.2006 09:34
Sameinuðu þjóðirnar gegn ofbeldi gagnvart konum Sjóður Sameinuðu þjóðanna sem á að binda enda á ofbeldi gagnvart konum mun gefa alls 3,5 milljónir dollara, eða um 250 milljónir íslenskra króna, til verkefna sem eiga að miða að því að binda enda á ofbeldi gagnvart konum. Þetta er jafnframt stærsta upphæð sem sjóðurinn hefur deilt út. Erlent 22.11.2006 23:18
Hamas til viðræðna um fangaskipti Leiðtogi Hamas-samtakanna, Khaled Meshaal, er kominn til Kaíró, höfuðborgar Egyptalands, til þess að ræða um hugsanleg skipti á föngum við Ísraela. Talsmaður samtakanna skýrði frá þessu nú rétt í þessu. Erlent 22.11.2006 22:33
Kabila setur friðargæsluliðum úrslitakosti Forseti Austur-Kongó gaf í dag friðargæsluliðum Sameinuðu þjóðanna 48 klukkustunda frest til þess að koma vopnuðum liðsmönnum mótframbjóðanda síns, Jean-Pierre Bemba, úr höfuðborginni, Kinshasa. Ef þeir myndu ekki gera það ætlar hann sér að láta herinn sinna verkefninu. Erlent 22.11.2006 22:07
Líbanir biðja Sameinuðu þjóðirnar um aðstoð Líbanski forsætisráðherrann Fouad Siniora hefur beðið Sameinuðu þjóðirnar um aðstoð við að rannsaka morðið á iðnaðarráðherra landsins, Pierre Gemayel, sem myrtur var síðastliðinn þriðjudag. Erlent 22.11.2006 22:01
Alþjóðadómstóllinn í Haag sýnir aðbúnað fanga sinna Nýtt myndband sem alþjóðadómstólinn í Haag sendi frá sér sýnir þær aðstæður sem að fangar þar þurfa að lifa í. Dómstóllinn varð fyrir mikilli gagnrýni eftir sjálfsmorð eins fanga þar og síðan lát Slobodans Milosevic fyrr á árinu. Myndbandið var gert til þess að auka á gegnsæi innan stofnunarinnar og auka tiltrú á henni í kjölfar þessara atburða. Erlent 22.11.2006 21:30
Kristilegir demókratar með forystu eftir fyrstu tölur Hollenska ríkissjónvarpsstöðin NOS skýrði frá því í kvöld að þegar að ellefu prósent atkvæða hefðu verið talin væri stjórnarflokkur Kristilegra demókrata með forystu á aðal stjórnarandstöðuflokkinn, Verkamannaflokkinn. Bjóst sjónvarpsstöðin við því að Kristilegir demókratar eigi eftir að hljóta 41 sæti en Verkamannaflokkurinn 33. Erlent 22.11.2006 21:16
Ísraelar að hreinsa landssvæði af klasasprengjum Ísraelski herinn sagði í dag að hann myndi taka þátt í því að þjálfa friðargæsluliða Sameinuðu þjóðanna í því að hreinsa landsvæði af klasasprengjum og öðrum jarðsprengjum sem að hafa orðið eftir úr 34 daga stríði Ísraels og Hisbollah í sumar. Sprengjurnar hafa þegar valdið meira en 20 dauðsföllum og sært fleiri en 70 manns síðan að stríðinu lauk þann 14. ágúst síðastliðinn. Erlent 22.11.2006 21:08
Sprenging í efnaverksmiðju í Bandaríkjunum Sprenging varð í efnaverksmiðju í Bandaríkjunum í dag. Úr varð gríðarlegur eldur og slösuðust í hið minnsta tíu manns og talið er að nálægt hundrað heimili og byggingar hafi skemmst. Þurfti lögregla að flytja um 200 íbúa frá heimilum sínum. Erlent 22.11.2006 20:57
Pólverjar koma í veg fyrir viðræður Pólverjar héldu sig við hótanir sínar frá því í síðustu viku og beittu neitunarvaldi gegn þeirri tillögu Evrópusambandsins að viðræður yrðu hafnar við Rússa um nýjan samstarfssamning milli Evrópusambandsins og Rússlands. Erlent 22.11.2006 20:17
Ólga í listaheiminum á Ítalíu Viðræðum á milli ítalskra yfirvalda og J. Paul Getty safnsins í Los Angeles vegna 52 safngripa sem að Ítalir segja að hafi verið rænt hefur verið frestað um óákveðinn tíma þar sem safnið er aðeins tilbúið til þess að skila helmingi þeirra gripa sem rætt er um. Erlent 22.11.2006 20:14
Kristilegum demókrötum spáð sigri í Hollandi Búist er við því að flokkur Kristilegra demókrata eigi eftir að bera sigur úr býtum í þingkosningum í Hollandi sem fram fóru í dag en þó er ekki búist við því að þeir nái hreinum meirihluta á þinginu. Þetta sýna útgönguspár hollensku sjónvarpsstöðvarinnar RTL. Erlent 22.11.2006 20:01
Airbus segir eftirspurn stóraukast á næstu árum Evrópski flugvélaframleiðandinn Airbus segir mikinn hagvöxt í Kína og Indlandi á næstu árum kalla á aukna eftirspurn eftir flugvélum. Að sögn forsvarsmanna Airbus benda spár félagsins til þess að hægt verði að selja allt að 22.700 nýjar flugvélar frá félaginu fram til ársins 2025. Viðskipti erlent 22.11.2006 17:34
Rottweiler hundar bíta unga konu til bana Fjórir rottweiler hundar bitu unga konu til bana í húsi nálægt París í Frakklandi í dag. Bitu þeir hana sérstaklega illa á andliti og á handleggjum samkvæmt fregnum frá lögreglu. Varð hún að skjóta hundana til bana til þess að komast að líki konunnar. Erlent 22.11.2006 19:37
Vill ekki láta farga fósturvísunum Bresk kona berst nú fyrir því að fá að halda eftir fósturvísum úr fyrra hjónabandi sínu en lögum samkvæmt á að eyða þeim. Flutningur á máli hennar hófst fyrir Mannréttindadómstól Evrópu í dag. Erlent 22.11.2006 18:52
Þjóðhátíð í skugga morðs Líbanskir stjórnmálamenn óttast að fleiri víg muni fylgja í kjölfar morðsins á Pierre Gemayel iðnaðarráðherra í gær. Þriggja daga þjóðarsorg hófst í landinu í morgun með því að þúsundir manna fylgdu kistu Gemayel um götur heimaborgar hans. Erlent 22.11.2006 18:58
Buðu bætur en viðurkenna ekki skaða Lögmenn Olís, Essó og Skeljungs höfnuðu því fyrir héraðsdómi í dag að Reykjavíkurborg hefði sannað tjón sitt vegna ólögmæts samráðs. Þó var óvænt upplýst að félögin hefðu boðið borginni fimmtíu milljónir króna til að sætta málið og losna við skaðabótamál. Í þessu tilboði féllst samt engin viðurkenning á að borgin hafi orðið fyrir tjóni, segja olíufélögin. Innlent 22.11.2006 18:54
Hver íslendingur fengi arð af virkjunum Allir lifandi íslendingar yrðu hluthafar í Íslenska auðlindasjóðnum ohf. sem héldi utan um sameiginlegar auðlindir þjóðarinnar og virkjanir þeirra nái ný hugmynd Víglundar Þorsteinssonar stjórnarformanns BM Vallár fram að ganga. Sjóðurinn myndi auk þess greiða landsmönnum arð. Lagt er til að sjóðurinn nái yfir allar sameiginlegar auðlindir þjóðarinnar auk Landsvirkjunar. Innlent 22.11.2006 17:42
Vilja 130 milljónir til viðbótar á fjárlögum til stjórnmálaflokka Meirihluti fjárlaganefndur leggur til að stjórnmálaflokkarnir fái 130 milljóna króna aukafjárveitingu vegna breytinga á lagaumgjörð um flokkana. Þetta kemur fram í breytingartillögum meirihlutans við fjárlagafrumvarp fjármálaráðherra. Innlent 22.11.2006 18:16
Minni væntingar vestanhafs Væntingavísitalan mældist 92,1 stig í Bandaríkjunum í þessum mánuði. Þetta er 1,5 stiga lækkun á milli mánaða og nokkuð meiri lækkun en búist var við. Viðskipti erlent 22.11.2006 17:24
Áhöfninni kennt um slysið Áhöfn rússnesku flugvélarinnar sem keyrði á vegg og brann síðan til kaldra kola eftir lendingu í sumar hefur verið kennt um atvikið. Þetta kom fram í skýrslu rannsóknarmanna sem var gefin út í dag. Alls dóu 125 manns í flugslysinu. Erlent 22.11.2006 18:08
Sjúkdómsvæðing meðgöngunnar Þingmaður Sjálfstæðisflokksins sakaði heilbrigðisyfirvöld um stefnuleysi í mæðravernd á Alþingi í dag. Hætta væri á að peningar og þjálfun starfsfólks færu í súginn við flutning áhættumeðgönguverndar á Landspítalann. Þingmaður vinstri grænna segir að verið sé að sjúkdómsvæða meðgönguna. Innlent 22.11.2006 18:06
Sautján umferðaróhöpp í Reykjavík í gær Sautján umferðaróhöpp voru tilkynnt til lögreglunnar í Reykjavík í gær og stungu þeir sem keyrðu á af í þremur tilfellum. Óhöppin voru flest minni háttar eftir því sem fram kemur á vef lögreglunnar en í einu tilviki var ökumaður fluttur á slysadeild. Sá ók vörubifreið en hún valt þegar sturta átti farminum af. Innlent 22.11.2006 17:52
Evrópskir bankar brutu lög um persónuvernd Eftirlitsstofnun Evrópusambandsins samþykkti í dag ályktun þar sem kom fram að belgíska bankafyrirtækið SWIFT hefði brotið lög um persónuvernd þegar það lét bandaríska fjármálaráðuneytið fá upplýsingar um millifærslur viðskipta sinna. Erlent 22.11.2006 17:44
Heildarfjárfesting sveitarfélaga 41 milljarður á síðasta ári Heildarfjárfesting sveitarfélaga á síðasta ári nam liðlega 41 milljarði króna samkvæmt yfirliti sem hag- og upplýsingasvið Samband íslenskra sveitarfélaga hefur tekið saman. Innlent 22.11.2006 17:42
Þriggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir líkamsárás Héraðsdómur Austurlands dæmdi í dag karlmann í þriggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að hafa ásamt félaga sínum gengið í skrokk á manni á Eskifirði í sumar. Atvikið átt sér stað fyrir utan verslun í bænum aðfararnótt sunnudagsins 11. júní en þar kýldi ákærði manninn og stappaði ofan á andliti hans þannig að maðurinn hlaut mikla áverka í andliti. Innlent 22.11.2006 17:21
Kaupmáttur eykst Laun hækkuðu að meðaltali um 0,5% í október og hafa því hækkað um alls 11% á síðustu tólf mánuðum. Kaupmáttur hefur því aukist sem þessu hálfa prósenti nemur og því alls um rúm 3,5% á síðasta ári. Þetta gerist þrátt fyrir að verðbólga hafi skotist upp á síðustu misserum. Innlent 22.11.2006 17:20
Krónan lækkaði fjórða daginn í röð Töluverðar sviptingar voru á gjaldeyrismarkaði í dag en krónan veiktist hratt í upphafi dags og fór vísitalan hæst í 127,8 stig í morgun. Gengisvísitalan endaði síðan í 126,96 stigum og veiktist því krónan um 0,5 prósent, að sögn greiningardeildar Landsbankans. Viðskipti innlent 22.11.2006 17:19
Mikill áhugi á skuldabréfum ríkissjóðs Ríkissjóður Íslands lauk í dag skuldabréfaútboði á Evrópumarkaði upp á einn milljað evra eða sem samsvarar 90 milljörðum íslenskra króna. Fram kemur í tilkynningu frá Seðlabanka Íslands að mikill áhugi hafi verið fyrir útboðinu og bárust kauptillboð að fjárhæð um 1,7 milljaðar evra frá um 60 aðilum Innlent 22.11.2006 16:55