Fréttir
238 239 240 241 242 243 244 245 246 … 334 ›
Forseti Gambíu segist geta læknað alnæmi Forseti Gambíu, Yahya Jammeh, tilkynnti í janúarlok að hann gæti læknað fólk af alnæmi og HIV á þremur til tíu dögum. Sérfræðingar í alnæmi og HIV um heim allan hafa fordæmt yfirlýsingu Jammeh og segja að hún gæti leitt til þess að smit aukist þar sem yfirlýsingin gæti gert sjúkdóminn léttvægan í augum almennings. Erlent 2.2.2007 16:01
Samdráttur hjá Chevron Chevron, næststærsta olíufyrirtæki Bandaríkjanna, skilaði 3,77 milljröðun bandaríkjadala hagnaði á fjórða ársfjórðungi í fyrra. Þetta svarar til rúmlega 258 milljarða íslenskra króna en jafngildir til 9 prósenta samdráttar á milli ára. Viðskipti erlent 2.2.2007 15:38
14 fórust í óveðri í Flórída Fjórtán manns létu lífið og tugir slösuðust í aftakaveðri sem gekk yfir miðbik Flórída í Bandaríkjunum í dag. Hundruð heimila á svæðinu og ein kirkja gjöreyðilögðust í þrumuveðri og skýstrókum. Tré rifnuðu upp með rótum og raflínur eyðilögðust. Flutningabílar með dráttarvagna fuku út af einni aðalhraðbraut Florida og henni var lokað í nokkra tíma. Charlie Crist, ríkisstjóri Florida, hefur lýst fyri neyðarástandi í fjórum sýslum. Erlent 2.2.2007 15:22
Ölvun á framhaldsskólaböllum Nokkur ölvun var á tveimur skólaböllum framhaldsskólanema sem haldin voru í Reykjavík í gærkvöld. Á öðrum staðnum var hringt í foreldra á þriðja tug nemenda og þeir látnir sækja börn sín. Eitt ungmennið var svo illa haldið af áfengisdrykkju að því var ekið á slysadeild. Annar ölvaður unglingur var handtekinn vegna óláta og færður á lögreglustöð. Innlent 2.2.2007 15:08
Iðnaðarráðherra vill auðlindasjóð Jón Sigurðsson, iðnaðar- og viðskiptaráðherra lagði til í dag að stofnaður yrði auðlindasjóður sem myndi styðja við bakið á nýsköpunarfyrirtækjum. Þetta kom fram í ræðu sem hann hélt við upphaf Sprotaþings í Laugardalshöll í dag. Innlent 2.2.2007 14:50
Ríkiseinokun bjór- og vínsölu aflétt? Frumvarp um að aflétta ríkiseinokun af sölu á víni og bjór var lagt fram á Alþingi í gær. Guðlaugur Þór Þórðarson alþingismaður lagði frumvarpið fram og sagði að það hafi komið honum á óvart hversu margir tóku þátt í umræðunni, en flutningsmenn voru 14. Frumvarpið leggur til að aldurstakmark sölufólks verði 20 ár eins og kaupendanna. Innlent 2.2.2007 14:17
Bardagar geysa í Ramadi Bandarískar hersveitir skutu 18 uppreisnarmenn til bana í bardögum í borginni Ramadi í Írak í morgun. Þeir gerðu líka loftárásir á höfuðstöðvar hryðjuverkahóps sem hefur staðið fyrir sjálfsmorðsárásum á óbreytta borgara. Talsmenn hersins sögðu að þeir hefðu fyrir því heimildir að leiðtogar hryðjuverkahópsins hefðu látið lífið í árásunum. Erlent 2.2.2007 14:15
Hamas og Fatah samþykkja vopnahlé Leiðtogar Hamas samtakanna og Fatah fylkingarinnar ákváðu eftir viðræður í morgun að endurvekja vopnahlé sín á milli. Vopnahléið var rofið í gær eftir harða bardaga á milli liðsmanna samtakanna. „Leiðtogar samtakanna tveggja hafa samþykkt að taka upp vopnahlé á ný.“ sagði í yfirlýsingu sem einn leiðtoga Hamas, Nizar Rayyan, las upp eftir sáttafund sem egypskir sáttasemjarar stóðu að. Yfirlýsingar sem þessar hafa venjulega ekki leitt til langvarandi friðar. Erlent 2.2.2007 13:54
Áhrifaleysi Seðlabankans vex Aukin notkun erlendra gjaldmiðla á íslenska markaðnum stuðlar að áhrifaleysi Seðlabanka Íslands. Þetta sagði Guðmundur Ólafsson hagfræðingur í þætti Sigurðar G. Tómassonar á Útvarpi Sögu í dag. Hann sagði að áhrifasvæði vaxtastefnu Seðlabankans í dag væri líklega 13% peningamarkaðarins. Þannig vísaði hann til álits Vilhjálms Egilssonar framkvæmdastjóra Samtaka Atvinnulífsins. Innlent 2.2.2007 13:49
Forseti Serbíu hafnar áætlun UN um Kosovo Forseti Serbíu, Boris Tadic, sagði í dag að Serbía mundi aldrei samþykkja sjálfstætt Kosovo. Þetta sagði hann í viðræðum við Martti Ahtisaari í dag. Ahtisaari er sérstakur erindreki Sameinuðu þjóðanna í Kosovo og lagði nýlega fram áætlun um framtíð héraðsins. Í henni felast tillögur sem Tadic segir að geti leitt til sjálfstæðis Kosovo síðar meir. Erlent 2.2.2007 13:42
Viðskiptasendinefnd og nýtt sendiráð í S-Afríku Valgerður Sverrisdóttir utanríkisráðherra mun leiða viðskiptasendinefnd Útflutningsráðs til S-Afríku í lok mánaðarins. Um 15 fyrirtæki hafa staðfest þátttöku í ferðinni. Í fréttatilkynningu frá Útflutningsráði íslands kemur fram að skráningarfrestur hafi verið framlengdur til 7. febrúar. Það sé gert til að gefa fleiri fyrirtækjum tækifæri á að taka þátt í ferðinni og nýta sér þetta tækifæri til að koma vöru sinni og þjónustu á framfæri við rétta aðila í S-Afríku. Innlent 2.2.2007 13:33
Grænt ljós á samruna NYSE og Euronext Gerrit Zalm, fjármálaráðherra Hollands gaf í dag grænt ljós á fyrirhugaðan samruna bandarísku kauphallarinnar í New York í Bandaríkjunum (NYSE) og samevrópska hlutabréfamarkaðarins Euronext. Lítið er því til fyrirstöðu að markaðarnir renni saman í eina sæng. Viðskipti erlent 2.2.2007 13:14
Fagaðstoð fyrir heyrnarlaus fórnarlömb ábótavant Félag heyrnarlausra segja tvö dómsmál og ábendingar vera kveikju að könnun um kynferðislega misnotkun heyrnarlausra á Íslandi. Kristinn Jón Bjarnason framkvæmdastjóri Félags heyrnarlausra segir í fréttatilkynningu að könnunin hafi verið gerð til viðmiðunar fyrir aukin og markviss úrræði fyrir fórnarlömb kynferðislegrar misnotkunar. Hún hafi ekki verið unnin í þeim tilgangi að finna sökudólga. Innlent 2.2.2007 12:18
Blaðamannasamtök undrast skipan ráðherra Þing norrænu blaðamannasamtakanna hefur sent Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur menntamálaráðherra bréf vegna skipunar fulltrúa í stjórn Norræna blaðamannaskólans, NJC, í Árósum. Að sögn Örnu Schram formanni Blaðamannafélags Íslands tilnefndi félagið tvo aðila að beiðni ráðuneytisins í stjórnina. Menntamálaráðherra skipaði hins vegar aðra aðila í stjórn skólans. Innlent 2.2.2007 11:13
Gæsluvarðhald vegna innflutnings fíkniefna Héraðsdómur Suðurlands úrskurðaði í gærkvöldi tvo menn á þrítugsaldri í gæsluvarðhald vegna rannsóknar á innflutningi fíkniefna. Annar maðurinn fékk úrskurð um gæsluvarðhald til fostudagsins 9. febrúar og hinn til þriðjudagsins 6. febrúar. Lögreglan í Árnessýslu fer með rannsókn málsins en gefur ekki frekari upplýsingar á þessu stigi. Innlent 2.2.2007 11:04
Netsímaþjónusta í fyrsta sinn hérlendis Lággjaldasímafyrirtækið SKO hefur nú slegist í hóp þeirra sem bjóða upp á svokallaða netsímaþjónustu. Netsíminn verður að sögn Ragnhildar Ágústsdóttur framkvæmdastjóra ódýrari valkostur á netsímamarkaði hérl á landi. Með nýju þjónustunni geta viðskiptavinir SKO hringt og tekið á móti símtölum í tölvum og lækkað þannig símkostnað sinn. Innlent 2.2.2007 10:40
Dow Jones í methæðum Bandaríska hlutabréfavístalan Dow Jones fór í methæðir við lokun markað í Bandaríkjunum í gær. Vísitalan lokaði í 12.673,68 stigum en hafði áður farið í 12.682,57 stig yfir daginn og hafði hún aldrei farið jafn hátt. Viðskipti erlent 2.2.2007 10:34
Minni hagnaður hjá Eyri Invest Fjárfestingafélagið Eyrir Invest skilaði tæplega 1,7 milljarða króna hagnaði í fyrra samanborið við 4,1 milljarðs króna hagnaðar árið 2005.Þetta jafngildir því að að hagnaður félagsins hafi dregist saman um 2,4 milljarða krónur á milli ára. Viðskipti innlent 2.2.2007 10:15
Hagnaður Amazon dregst saman um helming Bandaríska netverslunin Amazon skilaði 98 milljóna dala hagnaði á síðasta fjórðungi nýliðins árs. Þetta jafngildir rétt rúmum 6,7 milljörðum íslenskra króna. Á sama tíma ári fyrr skilaði netverslunin 199 milljóna dala, 13,6 milljarða króna, hagnaði. Samdrátturinn nemur því rúmlega 50 prósentum á milli ára en er samt sem áður yfir væntingum greinenda. Viðskipti erlent 2.2.2007 09:39
Ekki brenna konur lifandi! Innflytjendum til smábæjar í Quebec í Kanada hefur verið sagt að ekki megi grýta konur til bana á almannafæri, brenna þær lifandi eða skvetta á þær sýru. Þessar óvenjulegu reglur eru birtar á vef bæjarins Herouxville og hafa aukið spennu varðandi umburðarlyndi íbúa gagnvart hefðum og siðum innflytjenda. Erlent 2.2.2007 08:14
Auglýsingaskilti skelfa Bostonbúa Lögreglan í Boston handtók í gær tvo menn sem höfðu sett upp 38 auglýsingaskilti víðsvegar um borgina, en skiltin þóttu minna á sprengjur. Varð það til þess að lögreglan setti í gang neyðaraðgerðir með hjálp strandgæslunnar, sprengjusveita, sérsveita og björgunarsveita, og truflanir urðu á umferð. Erlent 2.2.2007 07:17
Á 135 á Vesturlandsvegi Lögregla mældi í nótt ökumann á 135 kílómetra hraða á Vesturlandsvegi á móts við Grafarholt, þar sem hámarkshraði er 80 km. Hans bíða þungar sektir og punktar í ökuferilsskrá. Upp á síðkastið virðist hafa dregið úr hraðakstri bæði á höfuðborgarsvæðinu og um landið allt. Innlent 2.2.2007 07:12
Bandaríkin ætla ekki að ráðast á Íran Bandaríkin ætla sér ekki að ráðast á Íran til þess að koma í veg fyrir að þau sjái hryðjuverkamönnum í Írak fyrir vopnum. Þetta fullyrti háttsettur bandarískur embættismaður í dag. Innlent 1.2.2007 23:42
Auglýsingaskilti valda hræðslu í Boston Lögreglan í Boston handtók í dag tvo menn sem höfðu sett upp 38 auglýsingaskilti víðsvegar um borgina. Skiltin þóttu minna á sprengjur í útliti. Varð það til þess að lögreglan setti í gang neyðaraðgerðir með hjálp strandgæslunnar, sprengjusveita, sérsveita og björgunarsveita. Erlent 1.2.2007 22:56
Bandaríkin þrýsta á Chavez að fara eftir alþjóðalögum Bandaríkjastjórn gaf frá sér yfirlýsingu í kvöld vegna ætlunar stjórnvalda í Venesúela að þjóðnýta fjögur stór verkefni alþjóðlegra olíufyrirtækja í Venesúela á næstu mánuðum. Í henni sagði að þau vonuðust eftir því að farið yrði eftir alþjóðlegum sáttmálum varðandi skaðabætur til bandarískra fyrirtækja. Erlent 1.2.2007 22:46
Síðasta bókin um Potter gefin út 21. júlí Síðasta bókin um Harry Potter kemur út 21. júlí. Útgáfan verður án efa einn stærsti viðburður bókaársins en viku áður en bókin kemur út verður byrjað að sýna fimmtu myndina um Harry Potter í kvikmyndahúsum. Bókin kemur til með að heita „Harry Potter and the Deathly Hallows.“ Erlent 1.2.2007 22:17
Stúlkan fundin Sigríður Hugrún Sigurðardóttir, stúlkan sem hefur verið leitað að síðan á laugardaginn 27. janúar, er fundin. Lögregla skýrði frá þessu í kvöld. Hún vildi einnig koma þökkum á framfæri fyrir aðstoðina. Innlent 1.2.2007 21:56
45 létust og 150 slösuðust Lögregla í Írak skýrði frá því í kvöld að 45 manns hefðu látið lífið og 150 slasast í tveimur sjálfsmorðsárásum á fjölförnum markaði í bænum Hilla í Írak í dag. Lögreglumaður reyndi að stöðva annan þeirra og leita á honum en þá sprengdu báðir mennirnir sig upp. Erlent 1.2.2007 21:49
Handarþjófur handsamaður Bandarískur læknir játaði í dag að hafa stolið hönd úr læknaskólanum í New Jersey í Bandaríkjunum og gefið hana fatafellu. Fatafellunni langaði í höndina svo hún gæti haft hana til sýnis í íbúð sinni. Erlent 1.2.2007 21:19
Fjármögnuðu ekki Hamas Tveir bandarískir Palestínumenn voru í dag sýknaðir af ákærum um að fjármagna Hamas samtökin. Þeir áttu að hafa safnað peningum og sent til Hamas frá Bandaríkjunum. Bandaríkin, Evrópusambandi og Ísrael skilgreina öll Hamas sem hryðjuverkasamtök. Erlent 1.2.2007 20:52