Allt að þrjátíu metrar á sekúndu Gul viðvörun er enn í gildi á Norðurlandi eystra og vindhviður geta náð allt að þrjátíu metrum á sekúndu austan Húsavíkur. Mikilvægt er að tryggja lausa hluti utandyra og veðrið getur verið varasamt ökutækjum sem taka á sig mikinn vind. 31.7.2022 09:01
Leiðinlegt að fólk geti ekki skemmt sér fallega Slökkviliðið segir leiðinlegt að fólk geti ekki skemmt sér fallega en farið var í fjölmarga sjúkraflutninga í nótt. Flest útköllin voru tengd skemmtanalífi í miðborginni. 31.7.2022 08:32
Skotinn til bana í Örebro Karlmaður á þrítugsaldri var skotinn til bana í sænsku borginni Örebro í gærkvöldi. Fjölmennt lögreglulið vinnur að rannsókn málsins en enginn hefur verið handtekinn. 31.7.2022 08:21
Vopnað rán í Hlíðunum Karlmaður var handtekinn fyrir vopnað rán í Hlíðunum í nótt en sá ógnaði konu með hnífi og rændi af henni síma. Maðurinn var vistaður í fangageymslu og málið er í rannsókn. 31.7.2022 07:43
Stór skjálfti í nótt Jarðskjálfti 4,2 að stærð mældist laust eftir klukkan fjögur í nótt austnorður af Fagradalsfjalli. Um 2.500 skjálftar hafa mælst síðan í gær og þar af 700 síðan um miðnætti. 31.7.2022 07:18
Handtekinn grunaður um að hafa stungið stúlkuna til bana Tuttugu og tveggja ára gamall karlmaður hefur verið handtekinn grunaður um að hafa stungið níu ára stúlku til bana í miðbæ Boston í Lincolnskíri í Bretlandi í vikunni. 30.7.2022 16:47
Rússar vilja hengja hermennina Rússar vilja hengja hermenn úr Azov-herdeildinni. Þeir segja hermennina eiga skilið niðurlægjandi dauðdaga en Úkraínumenn segja ummælin viðurstyggileg. 30.7.2022 16:11
Skjálfti að stærð 4,4 reið yfir við Fagradalsfjall rétt fyrir fimm Jarðskjálftahrina stendur nú yfir við Fagradalsfjall. Hún hófst um hádegisbil en stærsti skjálftinn í hrinunni var 4,4 að stærð og mældist rétt fyrir klukkan fimm. Flugveðurkóði hefur verið settur á gult og Almannavarnir fylgjast með stöðunni. Náttúruvársérfræðingur telur að atburðurinn muni vara í nokkra daga. 30.7.2022 14:15
Lag Hinsegin daga lítur dagsins ljós Næs, lag Hinsegin daga 2022 kom út í morgun. Lagið flytur Bjarni Snæbjörnsson en það var upphaflega samið fyrir söngleikinn Góðan daginn, faggi sem sýndur hefur verið í Þjóðleikhúsinu. Daði Freyr úr Gagnamagninu gerði taktinn og Sigga Beinteins og Sigga Eyrún syngja bakraddir. Hinsegin dagar fara fram 2. - 7. ágúst næstkomandi 30.7.2022 14:03
Skógarböðin á Akureyri rýmd Skógarböðin á Akureyri voru rýmd um hádegisbil í dag vegna reyks. Slökkvilið Akureyrar segir í samtali við fréttastofu að bilun hafi komið upp í rafmagnstöflu. Ekki hafi kviknað í. 30.7.2022 13:26