Segir að hverfið sitt hafi gleymst Mörghundruð íbúar í Hlíðunum hafa skrifað undir áskorun til borgaryfirvalda að sinna hverfinu þeirra betur. Aðalgatan í hverfinu er sögð þurfa allsherjaryfirhalningu til að standa undir nafni sem borgargata. Íbúarnir vilja hverfastemingu, til dæmis eins og í Vesturbæ eða Laugardal. 16.9.2022 08:01
Sprotafyrirtækið Marea hlaut Bláskelina Sprotafyrirtækið Marea hlaut Bláskelina, viðurkenningu umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins fyrir framúrskarandi plastlausa lausn og gott fordæmi. Fyrirtækið hefur þróað náttúrulega filmu úr þörungahrati sem ætluð er fyrir grænmeti og ávexti. 15.9.2022 23:42
Átján ára stunginn á leiðinni á íþróttaæfingu Átján ára piltur var stunginn þrívegis í undirgöngum við Sprengisand í Reykjavík seinnipartinn í gær. Pilturinn er með þroskaskerðingu en hann var á leið á íþróttaæfingu þegar ráðist var á hann. Árásarmaðurinn reyndi að hafa af honum hjól áður en hann réðst til atlögu. 15.9.2022 22:20
Ungverjaland geti ekki talist lýðræðisríki Evrópuþingið segir að Ungverjaland geti ekki talist fullkomið lýðræðisríki. Stjórnarhættir falli ekki að grundvallarhugmyndum um lýðræði og réttarríki. Þingfulltrúar greiddu atkvæði gegn ríkisstjórn Viktors Orban forsætisráðherra landsins fyrr í dag. 15.9.2022 22:12
Rafbílavæðing mögulega farin að skila árangri Losun gróðurhúsalofttegunda jókst um þrjú prósent á milli áranna 2020 og 2021. Vegasamgöngur, fiskiskip og iðragerjun eru stærstu losunarþættirnir. Umhverfisstofnun segir að rafbílavæðingin hafi mögulega skilað árangri og bráðabirgðaniðurstöður gefi góða mynd af losun Íslands. 15.9.2022 20:20
Eik hættir við kaup á Lambhaga Eik fasteignafélag hefur hætt við að kaupa garðyrkjustöðvarnar Lambhaga í Úlfarsdal og Lund í Mosfellsdal. Kaupverð var áætlað 4,2 milljarðar króna. 15.9.2022 18:59
Sendiherrann vakinn um miðja nótt Sendiherra Íslands í Lundúnum var vakinn við hljóðfæraleik og trommuslátt í vikunni þegar verið var að æfa fyrir útför Elísabetar II, sem fram fer á mánudaginn næstkomandi. Þúsundir manna hafa streymt til borgarinnar síðustu daga og öryggisgæsla hefur aldrei verið meiri. 15.9.2022 17:56
Pútín sjái ekki bjálkann í eigin auga Kanslari Þýskalands segir Pútín neita að átta sig á því að hann hafi gert mistök með innrásinni í Úkraínu. Hann sjái ekki bjálkann í eigin auga og hafi ekki breytt afstöðu sinni að neinu leyti. 14.9.2022 23:35
75 milljarða krafa á Kópavogsbæ fer fyrir Hæstarétt Hæstiréttur hefur fallist á að taka fyrir 75 milljarða kröfu erfingja Sigurðar K. Hjaltested, eigenda Vatnsendajarðarinnar. Erfingjarnir krefja Kópavogsbæ um milljarðana, en bærinn var sýknaður í Landsrétti í júní á þessu ári. 14.9.2022 22:45
„Þá verður allt vitlaust á Akranesi“ Forseti bæjarstjórnar Akraness segir að það verði allt vitlaust í bænum, nái hugmyndir innviðaráðherra um gjaldtöku í jarðgöngum fram að ganga. Það gildi allt annað um Hvalfjarðargöngin en önnur göng, enda sé löngu búið að borga göngin upp. 14.9.2022 21:46