Ferðamenn fastir í Hólmsá Björgunarsveitir voru kallaðar út í gærkvöldi til að aðstoða ferðamenn sem festu jeppa í Hólmsá. Vel gekk að losa bílinn og var aðgerðum lokið rétt fyrir miðnætti. 22.10.2023 13:51
„Tilfellið er að við stöndum frammi fyrir algjöru hruni“ Framkvæmdastjóri Bændasamtakanna kallar eftir tafarlausum stuðningi ríkisstjórnarinnar og segir íslenskan landbúnað standa frammi fyrir algjöru hruni. Hún hefur áhyggjur af áhuga erlendra einkaaðila og segir hættu á að þeir sölsi undir sig íslenskan landbúnað. 22.10.2023 13:37
Sextán ára heiladáin eftir meðferð lögreglu Sextán ára írönsk stúlka varð fyrir alvarlegum heilaskaða eftir það, sem mannréttindasamtök telja að hafa verið meðferð lögreglu. Hún var ekki með hijab-slæðu á almannafæri. 22.10.2023 13:16
Biðja starfsfólk að láta yfirmenn vita Icelandair og Play styðja starfsfólk sem hyggst leggja niður störf vegna kvenna- og kváraverkfalls á þriðjudag. Isavia sem meðal annars rekur Keflavíkurflugvöll gerir slíkt hið sama. Fólk er beðið um að láta yfirmann vita ef það ætlar að taka þátt. Vonir eru bundnar við að ekki verði tafir á flugsamgöngum. 22.10.2023 10:50
Margverðlaunuð kántrístjarna á Íslandi Kántrístjarnan Kacey Musgraves er stödd á Íslandi þessa stundina. 21.10.2023 16:46
Dómsmálaráðherra Belgíu segir af sér vegna skotárásarinnar Dómsmálaráðherra Belgíu hefur ákveðið að segja af sér vegna skotárásar þar sem tveir Svíar voru skotnir til bana í Brussel í vikunni. Hann segist hafa gert mistök en árásarmaðurinn dvaldi ólöglega í Belgíu. 21.10.2023 15:49
Goðsögnin Bobby Charlton látinn Heimsmeistarinn og fótboltagoðsögnin Sir Bobby Charlton lést í morgun, laugardag, 86 ára gamall. 21.10.2023 15:06
Töluvert tjón eftir eldsvoða í Kópavogi Eldsvoði varð í nýbyggingu við Digranesveg í Kópavogi laust fyrir klukkan hálf þrjú í nótt. Slökkvilið sendi þrjár stöðvar á vettvang en töluvert tjón hlaust af eldsvoðanum. Lögregla rannsakar eldsupptök. 21.10.2023 14:22
Sex mánaða skilorð fyrir hundrað byssur og 34 þúsund skot Karlmaður hefur verið dæmdur í sex mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir vopnalagabrot. Maðurinn var gripinn með tæplega hundrað byssur og 34 þúsund byssuskot í vörslum sínum. Hann taldi geymslu vopnanna fullnægjandi. 21.10.2023 13:20
Forstjóri Ríkiskaupa segir að persónulegur ávinningur megi ekki ráða för Forstjóri Ríkiskaupa segir að persónulegur ávinningur ríkisstarfsmanna, þar með talið alþingismanna, þegar hið opinbera kaupir flugferðir fyrir starfsfólk, megi ekki ráða för. Hún segir að rammasamningur um flugfargjöld sé í endurskoðun. 21.10.2023 12:06