Blótað í Grindavík á nýjan leik Þorrablót Grindvíkinga mun fara fram í íþróttahúsinu í Grindavík í kvöld í fyrsta skipti síðan að bærinn var rýmdur þann tíunda nóvember árið 2023 eftir miklar jarðhræringar á Reykjanesskaganum. 31.1.2026 15:26
„Erum rétt byrjuð að sjá ofan í þennan forarpytt“ Dómsmálaráðuneyti Bandaríkjanna birti í gær þrjár milljónir nýrra Epstein-skjala. Fjöldi þekktra nafna bregður fyrir, til að mynda er minnst á Bandaríkjaforseta mörg hundruð sinnum en einnig er minnst á Íslendinga. Enn er aðeins um topp ísjakans að ræða að mati sérfræðings í bandarískum stjórnmálum. 31.1.2026 13:22
Rýnt í Epstein-skjölin, prófkjör Viðreisnar og árás ungmenna Í hádegisfréttum Bylgjunnar rýnum við í nýjustu Epstein-skölin sem voru birt í gær af dómsmálaráðuneyti Bandaríkjanna í tengslum við mál Jeffrey Epsteins, barnaníðings og auðkýfings. 31.1.2026 11:47
„Koma einhverjir strákar og svo fer allt í háaloft“ Tvenn ungmenni réðust á karlmann á fimmtugsaldri við strætóbiðstöð við Hafnarfjarðarveg til móts við Aktu taktu skömmu fyrir miðnætti í gær. Málið er rannsakað sem stórfelld líkamsárás. Brotaþoli var fluttur á slysadeild en lítið er vitað um líðan mannsins. 31.1.2026 11:42
„Mjög áhugaverð umræða“ Olíufélögin hafa brugðist illa við málflutningi ríkisstjórnarinnar sem hefur sagt þau bera að ábyrgðar vegna aukinnar verðbólgu. Framsetningin sé villandi og standist ekki skoðun. 30.1.2026 22:25
Ríkisstjórnin rugli og olíufélögin ekki sökudólgurinn „Það er beinlínis villandi fyrir neytendur að benda á olíufélögin sem sökudólg fyrir aukinni verðbólgu. Ekki aðeins var öllu olíugjaldinu skilað til neytenda heldur hefur álagning á eldsneyti N1 haldist óbreytt frá síðasta ári.“ 30.1.2026 14:38
Afar sérstakt að lækka laun og það á verkalýðsdaginn sjálfan Formaður Verkalýðsfélags Vestfirðinga segir það afar sérstakt af fiskeldisfyrirtækjum á svæðinu að ákveða að lækka laun þeirra starfsmanna sem vinni mikilvægustu og erfiðustu störfin. Hann gefur lítið fyrir þau rök að um leiðréttingu launa sé að ræða. 30.1.2026 11:57
Foreldrarnir vissu ekki af kynferðisofbeldinu Foreldrar sex ára gamallar stúlku höfðu enga vitneskju um að brotið hefði verið kynferðislega gegn henni fyrr en lögregla hafði samband. Karlmaður sem er ákærður fyrir brotið dreifði ljósmyndum á netinu sem komu lögreglu á snoðir um málið. Alþjóðlegt samstarf skipti sköpum. 22.1.2026 19:41
Húsleit fór fram víðar en á Akureyri Fimm starfsmönnum og stjórnarmönnum Vélfags sem voru handteknir í aðgerðum héraðssaksóknara í gær hefur verið sleppt úr haldi lögreglu. Aðgerðirnar stóðu yfir í nokkrar klukkustundir. Húsleit fór fram á Akureyri og í Reykjavík á sama tíma þar sem lagt var hald á töluvert magn af rafrænum gögnum. 22.1.2026 11:20
Var á ráðstefnunni í Davos: „Fólk andaði kannski aðeins léttar“ „Ég held að það sem að fólk hafi aðallega verið að ræða um eftir þessa ræðu er þessi ruglingur með Ísland og Grænland. Og hvort hann sé að meina Grænland þegar hann segir Ísland eða hvort að Ísland þurfi að hafa áhyggjur af því sem hann er að segja. Ég held að það sé ekki alveg á hreinu.“ 21.1.2026 19:10