Íslensk félög með innlán upp á hundruð milljóna í SVB þegar bankinn féll Nokkur íslensk fyrirtæki áttu innistæður, sem námu að lágmarki nokkur hundruðum milljóna króna, í Silicon Valley Bank (SVB) þegar bankinn varð gjaldþrota fyrr í þessum mánuði. Miklar hræringar á alþjóðlegum bankamarkaði hafa orðið til þess að íslensk fyrirtæki hafa flutt gjaldeyrisinnistæður frá erlendum bönkum yfir til íslensku bankanna á undanförnum dögum og vikum. 28.3.2023 10:23
Öfugsnúin ríkisfjármál koma illa niður á þjóðarbúinu Faraldurinn er að baki en eftir situr allur sá heljarinnar óþarfi sem hefur safnast fyrir í kerfinu á undanförnum þremur árum. 24.3.2023 13:59
Minni hækkun en 100 punktar hefði verið „veikleikamerki“ Seðlabanki Íslands hefði sýnt „veikleikamerki“ ef peningastefnunefnd bankans hefði hækkað stýrivextir um 75 punkta eða minna að sögn skuldabréfamiðlara hjá Arion banka. Lækkun verðbólguálags á skuldabréfamarkaði eftir vaxtaákvörðunina sé merki um að brött vaxtahækkun hafi verið rétt ákvörðun. 24.3.2023 09:20
Mikill hallarekstur samhliða háu atvinnustigi „eitraður kokteill“ Mikill hallarekstur á sama tíma og atvinnustig er komið í eðlilegt horf vekur áleitnar spurningar um hagstjórn hins opinbera. Konráð S. Guðjónsson, hagfræðingur hjá Arion greiningu, segir að í hallarekstrinum felist ónýtt tækifæri til að vinna bug á verðbólgunni og ástæða sé til að hafa áhyggjur af svigrúmi hins opinbera til að takast á við áföll í framtíðinni. 23.3.2023 13:30
Kísilverið á Bakka fór „verulega undir núllið“ í lok síðasta árs Kísilverið á Bakka var rekið með verulegu tapi á fjórða ársfjórðungi síðasta árs vegna lítillar eftirspurnar eftir kísilmálmi og aukinnar alþjóðlegrar samkeppni. Þýska móðurfélagið bindur vonir við að minnkandi útflutningur frá Kína muni styðja við verð kísilmálms á komandi mánuðum. 22.3.2023 13:01
Stjórnvöld láti aðra líða fyrir eigin mistök í orkumálum Samtök iðnaðarins og Viðskiptaráð Íslands gagnrýna frumvarpsdrög sem heimila stjórnvöldum að mismuna notendum þegar kemur að skömmtun raforku. Benda hagsmunasamtökin á að stjórnvöld beri sjálf ábyrgð á því að þeirri alvarlegu stöðu sem uppi er í orkumálum, frumvarpsdrögin hafi verið unnin í flýti og engu skeytt um umsagnir. 21.3.2023 10:01
Flestir telja að Seðlabankinn hækki vexti um meira en 50 punkta Mikill meirihluti markaðsaðila gerir ráð fyrir því, samkvæmt könnun Innherja, að Seðlabanki Íslands hækki vexti um 75 eða 100 punkta á næsta vaxtaákvörðunarfundi bankans á miðvikudaginn. Eftir sem áður helgast spár um brattar vaxtahækkanir af þrálátri verðbólgu, hækkandi verðbólguvæntingum og kröftugri einkaneyslu. 20.3.2023 09:41
Stefna að skráningu Bláa lónsins í haust Stjórn Bláa lónsins, eins stærsta ferðaþjónustufyrirtækis landsins, hefur ákveðið að hefja undirbúning að því að skrá félagið í Kauphöllina í haust. Þetta staðfestir Úlfar Steindórsson, stjórnarformaður Bláa lónsins, í samtali við Innherja, en hann kynnti ákvörðunina á hluthafafundi félagsins í morgun. 17.3.2023 13:12
Seðlabankinn vill meiri áherslu á atvinnuhúsnæði Lítið framboð og hátt verð einkenna markaðinn með atvinnuhúsnæði samkvæmt greiningu Fjármálastöðugleikanefndar Seðlabanka Íslands. Að mati nefndarinnar yrði jákvætt ef lækkandi íbúðaverð skapaði aukinn hvata til uppbyggingar atvinnuhúsnæðis. 16.3.2023 13:06
Bankarnir verði að auka markaðsfjármögnun og binda innlán Fjármálastöðugleikanefnd Seðlabanka Íslands telur að íslensku bankarnir verði að auka markaðsfjármögnun, bæði í íslenskum krónum og erlendum gjaldmiðlum, og huga að bindingu innlána til að treysta lausafjárstöðuna. 15.3.2023 13:15
Leynilega upptakan á Edition-hótelinu: „Ef ég á að taka fimmta sætið vil ég verða þinn maður í þessu“ Innlent