varafréttastjóri

Sunna Sæmundsdóttir

Sunna er varafréttastjóri fréttastofu Sýnar.

Nýjustu greinar eftir höfund

Við­brögð Ölmu mikil von­brigði

Formaður Félags bráðalækna lýsir miklum vonbrigðum með viðbrögð heilbrigðisráðherra við neyðarópi starfsmanna bráðamóttökunnar. Hamfaraástand ríki þar á degi hverjum og bregðast þurfi tafarlaust við.

Neyðar­óp starfs­manna og leynisímar

Starfsfólk á bráðamóttöku Landspítalans óttast um öryggi sitt og sjúklinga vegna óviðunandi aðstæðna á spítalanum. Í kvöldfréttum verðum við í beinni útsendingu frá sameiginlegum hitafundi stéttarfélaga allra starfsmanna bráðamóttökunnar. Þá mætir Alma Möller, heilbrigðisráðherra, í viðtal í beinni.

Starfs­fólk bráða­mót­töku óttist um heilsu sína og öryggi

Starfsfólk bráðamóttöku Landspítala óttast um öryggi sitt og sjúklinga þar sem ekki er hægt að tryggja sýkingavarnir, segir formaður Félags hjúkrunarfræðinga. Vinnuaðstæður séu óboðlegar. Stéttarfélög allra starfsmanna bráðamóttökunnar hafa boðað til fundar síðdegis.

Inn­flutningi stýrt frá Litla-Hrauni

Lögreglan telur sig hafa upprætt alþjóðleg glæpasamtök sem bera ábyrgð á stórum hluta þess kókaíns sem lagt hefur verið hald á hér á landi á síðustu árum. Við sjáum myndband frá aðgerðum í kvöldfréttum og ræðum við lögreglu.

Tifandi tíma­sprengja, odd­viti í beinni og breytt Reynisfjara

Maður sem grunaður er um stunguárás um helgina var nýbúinn að afplána dóm fyrir önnur ofbeldisverk og sætir ákæru fyrir fleiri. Í kvöldfréttum verður rætt við formann Afstöðu sem gagnrýnir að manninum hafi verið sleppt úr haldi án þess að honum væri veittur stuðningur.

Reiknar með einu gosi í við­bót

Ekki er útilokað að skjálftahrina við Eldey endi með eldgosi, að sögn prófessors í jarðeðlisfræði. Langmestu líkurnar séu þó á einu gosi til viðbótar á Sundhnúksgígaröð. Farið sé á að síga á seinni hlutann í yfirstandandi eldvirknitímabili á svæðinu.

Sorg­legt að vera einungis tala á blaði

Foreldrar þrettán ára fatlaðs drengs segja sorglegt að upplifa að sonur þeirra sé einungis tala á blaði. Þau bíða að meðaltali í tvö ár eftir allri þjónustu og segja nær ómögulegt að undirbúa hann fyrir sjálfstætt líf með þessu áframhaldi. Við hittum foreldrana í kvöldfréttum á Sýn.

Ó­heppi­leg tíma­setning

Seðlabankastjóri segir tímasetningu skattahækkana um áramótin hafa verið óheppilega. Stýrivöxtum var í dag haldið óbreyttum í ljósi verðbólguskots. Þingmennirnir Guðlaugur Þór Þórðarson og Dagur B. Eggertsson, sem eiga sæti í fjárlaganefnd Alþingis, mæta í myndver og fara yfir málið í beinni í kvöldfréttum.

Sáttamiðlun úr­ræði sem væri alls ekki fyrir alla þol­endur

Dómsmálaráðherra segist opin fyrir því að skoða allar leiðir er miða að því að bæta meðferð kynferðisbrotamála. Kallað hefur verið eftir nokkurs konar sáttamiðlun í málaflokknum. Ráðherra segir það ekki fyrir alla og að það yrði þá úrræði sem væri í boði samhliða réttarkerfinu.

„Vinna er heilsuefling“

Þjónustugeta Virk starfsendurhæfingar nálgast þolmörk vegna metfjölda sem leitar þangað. Mun fleiri konur en karlar leita sér aðstoðar og forstjóri segir forvarnarstarf mikilvægt til að hindra að fólk detti út af vinnumarkaði. Vinna geti oft verið mikil heilsubót.

Sjá meira