Sprungur að stækka og líkur á nýjum gosopum Þrátt fyrir að dregið hafi úr gosvirkni eru líkur á að ný gosop opnist innan Grindavíkur og sprungur eru að myndast í bænum. Deildarstjóri eldvirkni og jarðskjálfta segir mikla hættu til staðar á svæðinu þar í kring og óvissu um framhaldið. 15.1.2024 12:00
VG hafi varið ráðherra Sjálfstæðisflokksins vantrausti Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra segir ekki tímabært að tjá sig um boðaða vantrauststillögu stjórnarandstöðunnar á Svandísi Svavarsdóttur matvælaráðherra en bendir á að Vinstri Grænir hafi varið ráðherra Sjálfstæðisflokksins vantrausti þegar á það reyndi. 9.1.2024 13:46
Gos í Grímsvötnum líklega í vændum Búast má við gosi í Grímsvötnum á næstu dögum eða vikum að mati eldfjallafræðings. Fluglitakóði yfir eldstöðinni var færður á gult í gær vegna óvenjulegrar skjálftahrinu en gosmökkurinn gæti haft áhrif á flugumferð. 5.1.2024 12:02
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Bjartsýni ríkir hjá hjá samninganefndum SA og ASÍ um yfirstandandi kjaraviðræður þar sem kallað er eftir þjóðarsátt. Hið opinbera og atvinnulífið þurfi að halda aftur af hækkunum svo hún náist. Formaður verkalýðsfélags segir að á 20 ára ferli hafi hann ekki séð annan eins samtakamátt. 3.1.2024 18:01
Skjálftinn líklega ekki merki um kvika sé að brjótast upp Tveir nokkuð stórir skjálftar riðu yfir suðvesturhorn landsins rétt fyrir klukkan ellefu í morgun. Sérfræðingur hjá Veðurstofu Íslands segir þá líklega ekki til marks um að kvika sé að brjóta sér leið til yfirborðsins heldur afleiðing spennubreytinga á Reykjanesi. 3.1.2024 12:24
Vísar ásökun um vanhæfi á bug Orkumálastjóri segir gríðarlega mikilvægt að þingið nái að afgreiða frumvarp um orkuöryggi sem allra fyrst. Hún bendir framkvæmdastjóra Samtaka iðnaðarins sem hefur sakað hana um vanhæfi á að beina áhyggjum sínum að stjórnmálamönnum. 2.1.2024 12:03
Bak við tjöldin: Mistök og hlátursköst Viðmælendur í hláturskasti, alls konar mistök og óþolandi tæknivesen. Við skyggnumst á bak við tjöldin hjá fréttastofunni í þessum síðasta annál ársins. 29.12.2023 07:06
Metfjöldi þarf jólaaðstoð og hjálparbeiðnum rignir inn Metfjöldi hefur leitað jólaaðstoðar hjá Mæðrastyrksnefnd Hafnarfjarðar. Fjöldi sækir um á hverjum degi þrátt fyrir að úthlutun sé lokið og formaður segist ekki ná að sinna öllum eins og er. Mun fleiri barnafjölskyldur þurfi aðstoð. 13.12.2023 12:00
Á tæpasta vaði: Deilur og drama á stjórnarheimilinu Viðburðaríkt ár er að baki á sviði stjórnmálanna og ólga er kannski orð sem nær ágætlega utan um það. Ólga vegna kjaramála, verðbólgu, hvalveiða, laxeldis, stríðsreksturs á Gasa, bankasölu og í sjálfu stjórnarsamstarfinu. Við förum yfir liðið ár sem einkennist af deilum og dramatík. 13.12.2023 07:02
Furðuleg og ósanngjörn staða Icelandair og Play skoða réttarstöðu sína vegna verkfallsaðgerða flugumferðastjóra sem hafa valdið félögunum miklu tjóni. Ferðaplön þúsunda farþega röskuðust þegar verkfallið skall á í nótt. Boðað hefur verið til fundar hjá ríkissáttasemjara klukkan þrjú í dag. 12.12.2023 12:53