Konfettíið enn að hrynja meðan hnéð „fimmfaldaðist“ Sviðslistakona sem lagði út fyrir uppsetningu leiksýningar sjálfsstæðs sviðslistahóps í Iðnó lenti í því óhappi á frumsýningu að falla í gólfið með þeim afleiðingum að hnéskel hennar fór úr lið. Sýninguna fjármagnaði hún með launum sínum hjá frístundaheimili í Reykjavík. 18.4.2025 21:44
Diddy ekki veittur aukafrestur Dómari í New York ríki í Bandaríkjunum hafnaði í dag beiðni rapparans Sean „Diddy“ Combs um að fresta réttarhöldunum yfir honum um tvo mánuði. Þannig eru réttarhöldin áfram fyrirhuguð þann 5. maí næstkomandi. 18.4.2025 19:25
Sunneva og Benedikt trúlofuð Sunneva Eir Einarsdóttir áhrifavaldur og raunveruleikastjarna og Benedikt Bjarnason tölvunarfræðingur eru trúlofuð. 18.4.2025 18:02
Bresk systkini létust í kláfferjuslysinu Bresk systkini á sextugs- og sjötugsaldri létust þegar kláfferja hrapaði til jarðar við fjallið Minre Faito nærri borginni Napólí á Ítalíu í gær. 18.4.2025 17:46
Annarri tilraun að Fyre-hátíðinni frestað um ókomna tíð Útihátíðinni Fyre II hefur verið frestað um ókomna tíð. Fyre-hátíðin, sem haldin var af sama skipuleggjanda er sögð misheppnaðasta útihátíð sögunnar. Þeir sem hafa gerst svo djarfir að tryggja sér miða fengu skilaboð um frestunina á dögunum. 17.4.2025 23:50
Tveir létust í skotárás á háskóla í Flórída Tveir létu lífið og sex særðust í skotárás sem gerð var á ríkisháskóla Flórída í Bandaríkjunum í dag. Árásarmaðurinn var skotinn af lögreglumönnum og handtekinn í framhaldinu. 17.4.2025 22:30
Rafmennt í samstarf og kaupir eignir þrotabúsins Þekkingarfyrirtækið Rafmennt hefur gengið til samninga við skiptastjóra þrotabús Kvikmyndaskóla Íslands og tryggt sér allar eignir þess. Skólastjóri Rafmenntar sér fram á að hægt verði að ljúka önninni og rektor Kvikmyndaskólans lítur björtum augum til framtíðar. 17.4.2025 20:55
Fjórir létust þegar kláfferja hrapaði á Ítalíu Fjórir eru látnir og einn alvarlega slasaður eftir að kláfferja féll til jarðar nærri Napólí í suðurhluta Ítalíu í dag. 17.4.2025 19:24
Fanney og Teitur greina frá kyninu Fanney Ingvarsdóttir, fegurðardrottning og stafrænn markarðssérfræðingur hjá Bioeffect, og Teitur Páll Reynisson, viðskiptastjóri hjá Landsbankanum, eiga von á dóttur. 17.4.2025 18:20
Háværar framkvæmdir stöðvaðar Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafði tvisvar sinnum í dag afskipti af einstaklingum vegna háværra framkvæmda. Sérstaklega hávaðasamar framkvæmdir eru lögum samkvæmt bannaðar á helgidögum. 17.4.2025 18:01